Skessuhorn - 06.07.2005, Síða 17
§)figSSIiH©BKi
MIÐVIKUDAGUR 6 JULI 2005
17
AS í Hagahrauni, „trúss“-bíllinn í baksýn. Mynd: SigríSur Skúladóttir
Hestaferð
Vartnalandsskóla
Að gefhu tilefhi
Um nokkurt skeið hafa forsvars-
menn Varmalandsskóla, með
Flemming Jessen, skólastjóra og
Ingibjörgu Daníelsdóttur, kennara
Fróðastöðum, í broddi fylkingar
boðið upp á veglegt ferðalag á best-
um. Að jafnaði hefur verið farið
annað hvert ár. Nemendum 7.-10.
bekkja stendur til boða að taka þátt
í ferðinni og vel er þegið að fá for-
eldra með. Mikill áhugi hefur jaín-
an verið fyrir ferðalaginu og hafa
sumir nemendur lagt býsna mikið á
sig til að geta tekið þátt. Ekki þýð-
ir að vera gjörsamlega óvanur því
nauðsynlegt er að hafa tvo til reið-
ar, dagleiðir eru svo langar. Að
þessu sinni var farið ffá Fróðastöð-
um að Stað í tveimur áföngum, til
að venja menn og hesta. Þriðja dag-
inn var riðin stutt dagleið frá Stað
að Grímsstöðum þar sem hin eig-
inlega hestaferð hófst síðan, 19.
júní. Nestað var til dagsins og haft
með í hnakktösku en „trúss“ flutt á
bíl. Var riðið að Snorrastöðum, þar
sem gist var í tvær nætur. Næsta
dag fóru hestamennirnir á hinar
ffægu Löngufjörur og þurftu að
taka kvöldfjöruna sem var um mið-
nættið. 21. júní var haldið af stað
heim og endað í túninu hjá Sigur-
jóni Jóhannssyni bónda á Valbjam-
arvöllum. Ferðin tókst í alla staði
vel og hreppm ferðalangarnir veð-
ur af öllum toga, eins og gjarnan er
á Islandi. Krakkar, fullorðnir og
hross vora þreytt en sæl á áfanga-
stað.
BK
Það hefur sjálfsagt ekki farið
fram hjá mörgum á liðnum vor-
dögum, að nýr framkvæmdastjóri
var ráðinn að Dvalarheimilinu
Höfða á Akranesi. Miðað við þau
skrif og oft óvægna umræðu í
blöðum og á Akranesvefnum þá
dreg ég þá ályktun. Eins og oft vill
verða í stöðuveitingum eru aldrei
allir á eitt sáttir og þannig mtm
það sjálfsagt verða um ókomna tíð,
en þegar menn missa sig í slíkri
umræðu þá er oft erfitt hjá þeim
sem eru í beinni skotlínu.
Um starfið sóttu 16 mjög hæfir
einstaklingar og hafi þeir þökk fyr-
ir þann áhuga sem þeir sýndu með
umsóknum sínum. I starf fram-
kvæmdastjóra var ráðinn Guðjón
Guðmundsson fyrrverandi þing-
maður á Akranesi og vil ég bjóða
hann velkominn til starfa og óska
honum velfarnaðar í þessu nýja
starfi sínu. Það er afar mikilvægt
að um svona störf skapist friður og
að framtíð Dvalarheimilisins
Höfða og velferð þess sé aðalmál-
ið. Eg hef sagt að það sé ekki hægt
að kveðja Asmund Olafsson í orðs-
ins merkingu. Hann hefur ásamt
góðu starfsfólki gert heimilið að
því sem það er í dag, hann hefur
verið afar farsæll í starfi og oftar en
ekki lagt á sig mikla vinnu til að
svo mætti fara. Eg vil einnig nota
þetta tækifæri til að þakka As-
mundi Olafssyni fyrir hönd stjórn-
ar Dvalarheimilisins Höfða allt
hans starf í þágu þess. Einnig fyrir
okkar samvinnu síðastliðin átta ár
sem aldei hefur borið skugga á.
Við í stjórn Höfða horfum með
mikilli bjartsýni til ffamtíðar og
hvernig mörmum mun farnast í
byggingarmálum á Höfðareitnum.
Við horfum bjartsýn á að við get-
um vonandi innan tíðar leyst úr
þeim vanda að hafa ekki langa
biðlista eftir vistun. Það er okkur
ekki ljúft að þurfa að neita þeim
sem þurfa á plássi að halda þar sem
þörf skapast hverju sinni. Það er
ekki sanngjamt sem kom ffam í
áður nefndum blaðaskrifum að
stjórn Höfða hafi ekkert með öldr-
unarmál á Akranesi að gera. Þvert
á móti látum við okkur þau mál
miklu varða og reynum eins og
best er hægt að vinna úr því sem
við höfum. Eg velti því fyrir mér
þegar ég las þessa grein hvemig er
þá með það fólk sem er í skóla-
nefnd og eða íþróttanefhd á veg-
um bæjarins hvort það sé ekki að
fjalla um skólamál og íþróttamál?
Rekstur Dvalarheimilisins
Höfða hefur oft verið í umræð-
unni. I dag erum við bara nokkuð
kát hvað reksturinn varðar þ.e.
höldum sjó. Sveitarfélögin sem eru
eignaraðilar að heimilinu hafa oft
þurft að hlaupa undir bagga þegar
hefur verið hart í ári og tekjurnar
ffá ríkinu ekki dugað tíl. Fyrir
tveimur árum fengum við góða út-
hlutun úr fjáraukalögum og hjálp-
aði það mikið til. Nú höfum við
sótt um 15 hjúkrunarrými til heil-
brigðisráðuneytisins og gerum við
okkur vonir um að eitthvað af
þeim fáist á þessu ári.
Á Dvalarheimilinu Höfða er
unnið mikið og gott starf. Þar höf-
um við á að skipa ffábæru starfs-
fólki sem gerir allt hvað það getur
til að gera íbúum heimilisins lífið
sem ákjósanlegast. Nú nýverið var
ráðinn iðjuþjálfi í 70% stöðu við
heimilið og eykur það á mikinn
metnað okkar í að fá sem flest fag-
fólk til starfa við Dvalarheimilið
Höfða.
Með kveðju og þakklæti til allra
sem lagt hafa okkur lið.
Sigríður Gróa Kristjdnsdóttir,
formaður stjómar
Dvalarheimilisins Htifða
Akranesi.
www.skessuhorn.is
ssv
þróun og ráögjöf
Starfsmaður í atvinnuráðgjöf.
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi óska eftir að ráða til
starfa atvinnuráðgjafa í fullt starf með staðsetningu á
Snæfellsnesi en starfssvæðið er Vesturland.
Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun, helst af
rekstrar- og/eða á ferðaþjónustusviði.
Auglýst er eftir fjölhæfum, traustum einstaklingi sem
á gott með að vinna sjálfstætt og setja sig inn í mismunandi
aðstæður.
SSV - þróun og ráðgjöf starfa samkvæmt samningi við
Byggðastofnun um verkefni á sviði atvinnu- og
byggðaþróunar á Vesturlandi. Því er um fjölbreytt og
skemmtilegt starf að ræða.
Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf í haust.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Ólafiir Sveinsson,
olisv@ssv.is, GSM: 892-3208 eða Hrefna B. Jónsdóttir,
hrefha@ssv.is, GSM: 863-7364,
Starfsumsókn skal sendast til Samtaka sveitarfélaga á
Vesturlandi, Bjamarbraut 8, 310 Borgamesi eða á
i netfangið ssv@ssv.is fyrir 5. ágúst n.k.
SSV
þróun og ráðgjöf
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi óska
eftir að ráða til starfa öflugan
skrifstofumann á skrifstofu sína að
Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi.
SSV óska eftir að ráða öflugan skrifstofumann til starfa
á skrifstofu sinni að Bjamarbraut 8, í Borgamesi.
Auglýst er eftir fjölhæfum og traustum einstaklingi með
fmmkvæði og rekstrarmenntun.
Um er að ræða umsjón móttöku og símsvörun og Ijölbreytt
skrifstofustörf.
Innan skrifstofu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi starfa
Atvinnuráðgjöf Vesturlands og Sorpurðun Vesturlands hf.
Um er að ræða fjölbreytt starf sem gefur góða reynslu.
Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf í byrjun ágúst
2005.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Hrefiia B. Jónsdóttir,
hrefna@ssv.is. GSM: 863-7364,
j Starfsumsókn skal sendast til Samtaka sveitarfélaga á
| Vesturlandi, Bjamarbraut 8,310 Borgamesi eða á netfangið
i ssv@ssv.is fýrir 15. júlí n.k.