Skessuhorn - 07.09.2005, Side 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI 35. tbl. 8. árg. 7. september 2005 - Kr. 300 í lausasölu
Landbúnaður er
stóriðja Norð-
vesturlands
„Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur markvisst unnið
að því að styrkja búsetuskilyrði í Dalabyggð með á-
herslu á atvinnumál og meðal annars er unnið að því
að byggja sveitarfélagið upp sem matvælaffamleiðslu-
hérað. Þungamiðjan í þeirri uppbyggingu er mjólkur-
samlagið og sláturhúsið og í þeirri þungamiðju kemur
ffarn áhersla á að á Norðvesturlandi verði stimdaður
öflugur landbúnaður í framtíðinni," sagði Haraldur L
Haraldsson, sveitarstjóri í Dalabyggð m.a. við vígslu
sláturhússins sl. sunnudag. Sjá bls. 6
Höfirungur með
mestar
aflaheimildir
Höffungur AK fær mestar aflaheimildir skipa og
báta á Vesturlandi á því fiskveiðiári sem hófst í síðustu
viku. Samtals eru aflaheimildir skipsins 4.758
þorskígildistonn. I öðru sæti er Tjaldur SH með 4.657
tonn, Helga María AK er með 3.332 tonn, Sóley SH
fær 2.515 tonn og fimmta hæsta skipið er Hringur SH
með 2.352 tonn. Alls fá 13 skip og bátar á Vesturlandi
úthlutað meira en 1.000 þorskígildistonnum.
Af einstökum höfnum má nefna að mest kemur í
hlut skipa og báta á Akranesi eða tæplega 13.800
þorskígildistonn, skip og bátar á Rifi fá 11.925 tonn, til
Gmndarfjarðar fara 11.342 tonn og til Olafsvíkur
7.180 tonn. I hlut báta og skipa í Stykkishólmi koma
tæp 3.771 tonn og til Hellissands fara 2.416 tonn.
Til skipa og báta á Vesturlandi er úthlutað samtals
tæpum 51.283 þorskígildistonnum. Þar af er hlutur
krókabáta 7.311 tonn eða rúrri 14%. Af einstökum
fisktegundum má nefna að mestu er úthlutað af þorski
til Vesturlands eða rúmum 24.982 tonnum, af ýsu er
úthlutað tæpum 12.658 tonnum, af karfa tæpum 8.897
tonni, af ufsa tæpum 8.038 tonnum og tæpum 1.793
tonn af steinbít er úthlutað til Vesturlands á nýbyrj-
uðu fiskveiðiári. HJ
5ÍMENNTUNARMIÐSTÖÐIN
Á VESTURLANDI
Nýr námsvísir kominn á netið!
Skráðu þig strax!
www.simenntun.is - Sími 437 2390
ATLANTSOLIA
Dísel *Faxabraut 9.
Þeir gerast vart fallegri baustdagamir til útreiða eða hverskyns útiveru en um liðna helgi. Þessir hressu karlar erufélagar í Kynbótaklúhhnum svokallaða.
Félagamir riðu hinn skemmtilega Hreðavatnshring sl. laugardag, en þá er lagt uppfrá Munaðamesi, riðið hringinn í kringum vatnið og til haka hjá Para-
dísarlaut og Glanna og meðfram Norðurá í Munaðames. Frá vinstri eru þeir Bjami Þór, Marteinn á Vestri Leirárgörðum, Stefán í Skipanesi, Smári Njáls-
son, Hrafn Hákonarson og Haraldur Haraldsson með Hreðavatn í bakgrunn. Ljósm: MM
Borgarland byggir
við brúna
Fasteignafélagið Borg-
arland ehf, sem er í eigu
Kaupfélags Borgfirðinga,
Sparisjóðs Mýrasýslu og
fleiri aðila, hyggst byggja
skrifstofu- og þjónustu-
hús á lóðinni sem er laus
við Digranesgötu. Lóðin
er á milli nýrra húsa Bón-
us og Sparisjóðsins og
segir Gísli Kjartansson
sparisjóðsstjóri og stjórn-
armaður í Borgarlandi að
ætlunin sé að byggja þarna myndarlegt hús.
„Þetta svæði er andlit Borgarness og við vilj-
um fá þarna fallegt hús. Það hefur verið
samþykkt að fá Ingimund Sveinsson arkitekt
til að gera tillögu að húsi á lóðina en hann
teiknaði nýtt hús Sparisjóðsins.“
Gísli segir hugmyndina að selja eða leigja
pláss í húsinu undir verslanir eða annars
konar þjónustu og verði teikningar Ingi-
mundar notaðar í markaðssetningu á vænt-
anlegu húsi. „Það hafa aðilar sýnt þessu á-
huga nú þegar og við gerum okkur góðar
vonir um að þetta gangi fljótt út.“
Ef að líkum lætur verða miklar fram-
kvæmdir í Borgarnesi á vegum Borgarlands
á næstunni því þessa dagana er verið að
hanna tvær íbúðabyggingar sem eiga að rísa
á svokölluðu Essóplani. Upphaflega voru
hugmyndir um að á neðsm hæðinni yrði ein-
hvers konar þjónusta en nú er eingöngu gert
ráð fyrir íbúðum í húsinu. Þá er gert ráð fyr-
ir bílageymslu sem yrði væntanlega neðan-
jarðar. GE
Fullnýtt
íþrótta-
mann-
virld
„Miðað við þá aðstöðu sem
við höfum í dag erum við í raun
komnir í strand með að hér sé
hægt að bæta við iðkendum
hinna ýmsu íþrótta og þjóna
þeirri auknu ásókn sem á sér
stað,“ segir Hörður Jóhannes-
son, rekstrarstóri íþróttamann-
virkja Akraneskaupstaðar m.a. í
viðtali á miðopnu. Þar er fjallað
um vaxandi áhuga á íþrótmm og
heilsurækt, fullnýttum íþrótta-
sölum og væntanlegum bygg-
ingum sem leysa munu úr þörf-
inni á næsm árum.
Sjá bls. 12.
N'ORÐþENSKA
Lambalærilæri af
j nýslátruðu frá Norðlenska
Samkaup lun/ai
Hafnarfjöröur • Njarðvík • ísafjöróur • Akureyri • Dalvik • Siglufjöröur • Ólafsfjöröur • Húsavík • Egilsstaóir • Selfoss • Borgarnes • Blönduós • Skagaströnd • Bolungarvík • Neskaupstaóur