Skessuhorn


Skessuhorn - 07.09.2005, Qupperneq 5

Skessuhorn - 07.09.2005, Qupperneq 5
 MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 5 Aframhaldandi menningarsanniingsleysi Eins og ítrekað hefur komið ffam í Skessuhorni hafa Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi tmnið að því á undanförnum árum að fá gerðan menningarsamning milli menntamálaráðuneytis og sveitar- félaga á Vesturlandi. I vor voru lögð ffam ný drög að samningi þar sem markvisst er verið að efla skyldur og ábyrgð aðildarsveitarfé- laga auk þess sem gert er ráð fyrir þátttöku samgönguráðuneytisins. Að sögn Hrefnu B Jónsdóttur, framkvæmdastjóra SSV ríkti tölu- verð bjartsýni eftir fund með menntamálaráðherra í vor og var vonast til að hægt yrði að undirrita samninginn með haustinu. „Við erum búin að vinna í þessu ffá ár- inu 1999 og höfum lengi haldið að þetta væri alvega að koma. I vor var samningurinn við Austurland end- urnýjaður og við vorum bjartsýn á að nú færi eitthvað að gerast. I dag er hinsvegar ekkert sem bendir til þess að það verði gengið frá þessu máli á næstunni en við höldum á- fram að vona það besta, „segir Hrefna. GE Við bás Kvenfélagsins stóðu röskleikakonumar Heiórún Sveinbjömsdóttir og Drífa Stef- ánsdóttir. Þar buðu þær stöllur meðal annars til sölu brodd, hákarl, harðfisk, sultur, fjallagrös, kleinur, kartöflur ogfleira góðmeti að sveitasið. Mildl aðsókn á vel heppnaðan sveitamarkað Síðastliðinn sunnudag var hald- inn sveitamarkaður í gamla slámr- húsinu að Laxá í Leirársveit. Ahugi var mikill fyrir þessari skemmtilegu hugmynd meðal íbúa og þátttak- enda og að sögn Jóhönnu Harðar- dóttur var aðsóknin ffamar öllum vonum. „Um leið og orð spurðist út um uppsetningu markaðarins fóru umsóknir um þátttöku að streyma inn,“ segir Jóhanna og bætir við; „einstaklingar sunnan af Reykjanesi og alla leið norður á Snæfellsnes pöntuðu hér pláss.“ A markaðnum kenndi ýmissa grasa, allt ffá handverki til hefð- bundins íslensks matar. Angan af nýbökuðum vöfflum og kaffi ásamt líflegum tónum harmonikkuspils fyllti svo loftið sem sannarlega bætti skemmtilega stemningu sem hélst allan daginn. Fullt var út úr dyrum á meðan á markaðnum stóð og voru bæði aðstandendur og gestir einkar kátir og ánægðir með þessa nýjtmg. Hvað ffamtíð mark- aðsins varðar segir Jóhanna að allt velti nú á eiganda húsnæðisins. „Hugmyndir eru uppi um að mark- aðurinn verði gerður að fösmm helgaratburði næsta sumar og jafh- vel að það verði sett upp lítið kaffi- hús með aðstöðu til listsýninga," bætir Jóhanna við og er alsæl með þessa fýrsm tilraun að sveitamark- aði á bökkum Laxár. BG ( \ Töpud hross 3 hross töpudustfrá Þingnesi í sumar. Um er að ræða 3ja vetra, örmerkta hryssu, bleikálótta. Einnig tveir tveggja vetrafolar, annar bleikálóttur, tvístjörnóttur, hringeygður á báðum augum, örmerktur og frostmerktur með Þ 3 í vinstri síðu og rauðblesóttur foli örmerktur og frostmerktur með Þ 3 í vinstri síðu. I Þeir sem geta gefið upplýsingar um hrossin eru beðnir að hafa samband við Sveinbjörn ísíma 862-1270. J Fasteignamat óbyggðra sumarhúsalóða margfaldast Flestar lóðir voru endurmetnar t Borgarbyggð þar sem fasteignamat hœkkaði um 200%. Myndin erfrá Hreðavatni og ótengd fréttinni að öðru leyti en þvt að á þessum slóðum eru mörg sumarhús. Einstakar óbyggðar sumarhúsa- lóðir á Vesturlandi margfölduðust í fasteignamati við endurmat Fast- eignamats ríkisins, sem ffam fór fyr- ir nokkru og tók gildi um liðin mán- aðamót. A Vesmrlandi vom endur- metnar samtals 1.691 lóð og var fasteignamat þeirra rúmar 392,5 milljónir króna fýrir endurmat. Þær hækkuðu hins vegar í tæpar 928 milljónir króna eða um tæp 139%. A landinu öllu vom 5.630 lóðir teknar til endurmats og hækkuðu þær um 19,5% að meðaltali. Af einstökum sveitarfélögum á Vesmrlandi má nefha að flestar ó- byggðar lóðir vom endurmemar í Borgarbyggð eða 711 talsins. Þar nam hækkunin um 200%. I Borgar- fjarðarsveit vom endurmemar 271 lóðir og hækkuðu þær um tæp 365%. Mest hækkuðu varð hinsveg- ar á 18 lóðum í Eyja- og Miklaholts- hreppi eða um tæp 686%. I Skil- mannahreppi lækkuðu lóðir hins vegar tun 20,2% og í Grundarfjarð- arbæ um 20%. Þess ber þó að geta að í þessum sveitarfélögum vom að- eins endurmemar 5 lóðir. Breytt svörun, bætt þjónusta Neyðarsímanúmer lögreglunnar í Borgarnesi 437-1166 heyrir brátt sögunni til og er fólki bent á að hringja í síma Neyðarlínunnar 112 ef því vantar aðstoð lögreglu. Að sögn Theodórs Þórðarson yfirlög- regluþjóns hefur gamla símanúm- erið, 437-1166 nú verið stdllt yfir á Neyðarlínuna. Ef fólki vantar hins vegar upplýsingar ffá lögreglunni eða vill heyra í einhverjum sem er á vaktinni þá á að hringja í nýtt núm- er: 433-7612. Aðspurður sagði Theodór að þetta væri liður í breyt- ingu sem væri nánast á landsvísu og hefur m.a. sambærileg breyting þegar átt sér stað á Akranesi. Theodór segir lögregltma í Borgar- nesi vera eitt fjölmargra lögreglu- liða sem tengdist svörun Neyðar- línunnar ffá og með 2. september s.l. Neyðarlínan vísar símtölum síðan áffam til Fjarskiptamiðstöðv- ar lögreglunnar -FML- sem að ræs- ir út lögregluna á hverjum stað. „Það er komin svokölluð ferilvökt- un í flesta lögreglubíla landsins og starfsmenn FLM sjá því hvar þeir eru staðsettir og senda því þann bíl sem næstur er verkefninu hverju sinni. Sá lögreglubíll getur verið á leiðinni í gegnum umdæmið og því ffá öðru lögregluumdæmi. Þetta verður því til að bæta þjónusmna í mögum tilfellum, sagði Theodór.“ GE Sparaðu göngin! Fartölvuna færðu hjá okkur United MP3 6.990 kr. * » # Freecom Mide Player 160Gb 32.990 kr. Töivuþjónustan • Esjubraut 49 • 300 Akranes • Sími 575 9200 • Fax 575 9201 • tolva@tolva.is Talnaborð 1.990 kr. Geisladiskar 10 f pakka 990 kr. Nokia 3120 9.900 kr. Microsoft OneNote 2003 Rafrænt gtósubókarforrit sem allir nemendur ættu að hafa í tötvunni. Glósið í OneNote í tímum, safnið heimildum og búið til minnistista, aLLt á einum stað. Verð: 4.900 Áður 6.900 PC-cillin Vírusvörn Örugg vörn fyrir töLvur og heimanet. Forritinu fyLgir rusLpóstsia, sía fyrir óæskiLegar síður, eLdveggur og sjátvirkar uppfærsLur. Verð: 2.900 Áður 4.900 HP fartölvumús 2.490 kr: (F2100A) Microsoft Office 2003 - námsmannaútgáfa Þessi útgáfa af Office er ætLuð nemendum, kennurum og heimiLum. LeyfiLegt er að setja þennan Office pakka inn á þrjártölvurinnan sama heimiLis. Pakkinn inniheLdur forritin Microsoft Word, ExeL, OutLook og PowerPoint. Verð: 14.900 Áður 16.900 Webcam 3.490 kr. USB 128mb minnislykill 2.990 kr. (VD2U 128) DVD640E LightScribe Utanáliggjandi LightScribe sem gefur þér möguLeika á að merkja diska í drifinu! Engin þörf á prentara. Kr. 14.900 V

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.