Skessuhorn


Skessuhorn - 07.09.2005, Síða 6

Skessuhorn - 07.09.2005, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 SiaeiSSúlfMöiaKI Landbúnaður er stóriðja Norðvesturlands Tímamót í atvinnusögu Dalabyggðar við vígslu endurgerðs sláturhúss í Búðardal Sláturhúsið í Búðardag er mikil bygging. Sveitarstjórinn í Dalabyggð segir tímamót hafa orðið í atvinnusögu Dalabyggðar við vígslu sláturhússins í Búðardal á sunnudag. Lauk þar áralangri baráttu heimamanna fyrir áfiramhaldandi rekstri hússins. Miláð fjölmenni var við vígsluna, þar á meðal Guðni Agústsson landbúnað- arráðherra, þingmenn kjördæmisins og Egill Jónsson fyrrverandi for- maður stjórnar Byggðastofnunar. Haraldur Líndal Haraldsson, sveitarstjóri Dalabyggðar sagði í ræðu sinni við vígsluna að barátta heimamanna fyrir tilvist sláturhúss- ins hafi í ratrn hafist árið 2002 þegar þáverandi eigendur tóku ákvörðtm um að hætta rekstri hússins. Hann sagði að sveitarstjóm Dalabyggðar hafi markvisst unnið að því að styrkja búsetuskilyrði í Dalabyggð með áherslu á atvinnumál og meðal annars sé unnið að því að byggja sveitarfélagið upp sem matvæla- framleiðsluhérað. Þungamiðjan í þeirri uppbyggingu sé mjólkursam- lagið og sláturhúsið og í þeirri þungamiðju komi fram áhersla á að á Norðvesturlandi verði stundaður öflugur landbúnaður í framtíðinni. Stóriðja Norðvestur- lands verði landbúnaður Sveitarstjóra Dalabyggðar varð tíðrætt um stóriðju. Hann sagði m.a: „Bygging álvers stendur yfir á Aust- urlandi. I umræðinni hefur komið fram vilji til þess að byggt verði álver á Norðausturlandi. Alverið og jám- blendiverksmiðjan við Hvalfjörð hafa styrkt byggðina í næsta ná- grenni við Grundartanga. Æda má að draga muni úr landbúnaði á þeim svæðum þar sem stóriðja er í dag og þar sem hún mun byggjast upp í framtíðinni vegna aukinna atvinnu- tækifæra á þeim svæðum. Einnig mtm aukin efirirspurn fólks af höfuð- borgarsvæðinu eftir bújörðum í næsta nágrenni við höfuðborgar- svæðið hafa sömu áhrif. Ekki hefur verið nein umræða um stóriðjuffam- kvæmdir á Norðvesturlandi. Verði rétt haldið á málum má æda að stór- iðjan á Norðvesturlandi verði land- búnaður. Bændur á svæðinu hafa tækifæri til að eflast á sama tíma og landbúnaður dregst saman í næsta nágrenni við stóriðjur og höfuð- borgarsvæðið. Við þessu vilja og eiga bændur í Dölum og sveitarstjóm Dalabyggðar að bregðast. Liður í því að styrkja landbúnað til ffamtíð- ar, litrið á Norðvesturland, verður að efla afurðarstöðvarnar í Búðardal. Samhliða því að rekið er öflugt mjólkursamlag í Búðardal verði rek- ið hér öflugt sláturhús og kjöt- vinnsla.“ Ný störf skapast og upp- bygging ffamundan Að sögn Haraldar starfa nú rúm- lega 50 manns hjá mjólkursamlag- inu. Þegar sláturhúsið var í rekstri var það þriðji stærsti vinnustaðurinn í Búðardal. Þar vora um 25 heilsárs- störf, sem var um 6% af störfum í Dalabyggð. „Með fjölgun atvinnu- tækifæra má æda að svæðið í heild sinni verði öflugra og efrirsóttara til búsetu. Ný atvinnutækifæri hafa og eru að skapast. Má í því sambandi nefna ungmenna- og tómstunda- búðir á Laugum, störf við ferðaþjón- ustu, við sláturhúsið, á dvalarheimil- inu á Fellsenda o.s.ffv. Arangur þessa er farinn að sjást. Nú í haust eru nokkrar fjölskyldur að flytja til Dalabyggðar og eru einstaklingar að byrja á framkvæmdum við ný einbýl- ishús. Búið er að úthluta lóðum fyr- ir þrjú einbýlishús. Hafnar eru einnig framkvæmdir hjá einkafyrir- tæki sem hyggst reisa sex leiguíbúð- ir. Hvaða tákn er betra um trú fólks á byggðalagi en vilji til að byggja sér eigið íbúðarhús,“ sagði Haraldur. Byggðastofnun kom myndarlega að málum Sveitarstjóri Dalabyggðar var á- nægður með hlut Byggðastofnunar í uppbyggingu í sveitarfélaginu. „Oft- ar en ekki hafa verk Byggða- stofnunar verið gagnrýnd. Ium- ræðunni hefur lítið farið fyrir þeim verkum sem stofnunin hefur komið að og skilað hafa ár- angri. I mínum huga er hægt að nefna mörg dæmi þess að stofnunin hafi komið að málum sem hreinlega hafa bjargað bú- setu á viðkom- andi stöðum. Stofiiunin hefur kom- ið vel að málum okkar Dalamanna bæði með beinum og óbeinum hætti. Leyfi ég mér þar að nefha hitaveituna, hótehð á Laugum og nú sláturhúsið. Eg vil nota þetta tæki- færi og þakka núverandi og fyrrver- andi stjórnarmönnum og starfs- mönnum stofnunarinnar fyrir skiln- ing þeirra á málefhum sveitarfélags- ins,“ sagði sveitarstjórinn. Sláturhúsið í Dalabyggð er í eigu sveitarfélagsins og Byggðastofnunar. I stjóm félagsins sitja tveir fulltrúar frá Dalabyggð og einn frá Byggða- stofnun. Við yfirtöku þessara aðila á sláturhúsinu árið 2002 hvíldu um 60 milljóna króna skuldir á því. Að loknum þeim miklu endurbótum sem fram hafa farið og tahð er að kosti um 55 milljónir króna, er hins- vegar stefht að því að heildarskuldir verði 25 milljónir króna. Stenst hús- ið nú reglugerðir um slátrun og meðferð sláturafurða. Helstu verktakar við endurbæt- urnar voru Megin, Bjössi málari, Jó- hann A Guðlaugsson og Rafsel í Búðardal. Dalalamb leigir húsið Stefha eigenda sláturhússins er sú að félagið verði rekrið sem eignar- haldsfélag um húseignina og hún síðan leigð út ásamt tækjum til rekstrar. Samkvæmt þeirri stefhu hefur nú verið gengið frá leigusamn- ingi við Dalalamb og mun fyrirtæk- ið taka við rekstri hússins að loknum endurbótum. Dalalamb hefur gert samning við Norðlenska á Akureyri um kaup á öllum afurðum félagsins í ár. Samningurinn felur í sér að 75% af afurðaverði verði greitt 31. októ- ber, þar með talið vegna útflutnings, og síðan það sem eftir stendur, eða 25%, eigi síðar en 31. desember n.k. Þetta þýðir að samningurinn felur það í sér að allt verður greitt til bænda fyrir áramót með fyrirvara um gærur að því er kom fram í máli Haraldar. Guðmundur Viðarsson í Skálakoti hefur verið ráðinn slátur- hússtjóri. HJ Miklar endurbœtur hafa fariS fram innanhúss ai undanfömu og uppfyllir húsiS nú ströngustu kröfur sem gerSar eru til sláturhúsa. FriSjón ÞórSarson, fyrrverandi alþingismaíur og sýslumaSur Dala- manna rœSirviS GuSna Agústsson landbúnaSarráSherra ogjóhann- es Kristjánsson eftirhermu sem skemmti gestum viS vígsluna. Þótt það megi til sannsvegar færa að oft sé betra illt að gera en ekki neitt þá er það þó ekki al- gilt. Því fer ekki hjá því að mað- ur njótri betur fjarveru alþingis- manna en nærveru. Menn hafa þessvegna ekki verið að kvarta sérstaklega yfir því þótt þing- menn hafi orðið enn fjarstaddari eftir að kjördæmin stækkuðu. Samt sem áður koma oft upp þær aðstæður að gott væri að hafa þingmann við hendina. Slíkt er hinsvegar ekki til á hverjum bæ og menn hafa svos- em lært að lifa með því. Það fer samt ekki hjá því að þær bæir sem búa svo vel virðast njóta þess í ríkulegri uppskeru. Þing- menn eru með öðrum orðum þarfaþing sem menn fá aldrei nóg af nema síðustu vikurnar fýrir kosningar. Þegar líður að kosningum þarf aldrei að leita langt eftir næsta þingmanni og ég geri ekki ráð fyrir að þar verði nokkur breyt- ing á þótt kjördæmin hafi verið stækkuð. Yfirleitt er nóg að fara að næstu jarðarför en þangað liggja yfirleitt helstu þing- mannaleiðir þingmannanna þegar kosningar fara að nálgast. Eg hef reyndar aldrei áttað mig fullkomlega á gildi þess að halda uppi kosningaáróðri í jarð- arförum. Eg veit ekki hvort menn eru móttækilegri fýrir pólitík í jarðarförum en allavega er ljóst að menn eru fullseint á ferðinni til að ná í atkvæði þess sem þar er í aðalhlutverki. Hvað sem því líður þá eru margir sem eru ekki tilbúnir til þess að mæta í jarðarfarir ein- göngu í þeim tilgangi að hitta þingmanninn sinn. Þeir eru líka til sem hafa áhuga á að finna hann oftar en daginn fýrir kosn- ingar. Þegar ákvörðun var tekin um það á hinu háa Alþingi að stækka kjördæmin þá óttuðust margir að þá myndu þingmenn fjarlægj- ast sína kjósendur enn frekar. Það var líka talin hætta á því að þingmenn ættu erfitt með að ná endanna milli í sínum kjördæm- um enda þingmannaleiðirnar orðnar hátt í þrefalt lengri eða jafnvel rúmlega það. Lausnin á þessum vanda var sú að þing- flokkamir stofnuðu skrifstofur í hverju kjördæmi þar sem væru nokkurskonar um- boðsmenn þingmanna í heimabyggð. Með öðrum orðum þá áttu þingmenn- irnir að fá húskarla tril að sjá um málin heimavið, taka á móti gestum og sinna ýms- um verkum á heimavelli. Þessir starfsmenn hefðu þá líka getað þjónað sem nokkurskonar jarð- arfarafulltrúar og létt þannig nokkuð á sínum húsbændum. Auðvitað hefðu þingmennirnir áffam farið sjálfir í fínni jarðar- farir. Þetta var allt gott og blessað. Nú eru hinsvegar liðin rúm tvö ár ffá stækkun kjördæmanna og enn bólar hvorki á kjördæma- skrifstofunum né húskörlum þingmannanna. Sumir hafa reyndar sett ffam þá kenningu að fjárveitningar í þennan mála- flokk hafi verið nýttar fýrirff am í kosningabaráttunni 2003. Því trúi ég alls ekki. Eg veit það líka að stjórnmálamenn gera sér fulla grein fýrir því að þingmennskan er fýrst og ffemst þjónustustarf og ber að haga sér eftir því. Ekki bara í jarðarförum. Gísli Einarsson, heila þingmannaleið í burtu.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.