Skessuhorn - 21.09.2005, Qupperneq 6
6
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005
giaÉSsiíiíiOKK1
Glæsileg frammistaða ferða-
þjónustufólks í Kaupmannahöfn
Um borð í bátnum í boðsferðinm góðu. Fremst til hægri er Hrafnhildur Tryggvadóttir,
framkvæmdastjóri UKV.
Ferðaþjónustuaðilar á Vesturlandi
sem starfa saman undir salgorðinu
All Senses Awoken eða „Upplifðu
allt“ tóku þátt í Vesmorden ferða-
kaupstefnunni í Kaupmannahöfn
dagana 13. - 14. september sl. Alls
vom um 500 aðilar sem sóttu þessa
kaupstefhu víðsvegar að úr heimin-
um en markmið hennar er að koma
á framfæri ferðaþjónusm á Islandi,
Grænlandi og í Færeyjum. Um 150
seljendur mætm frá löndunum
þremur. Þetta var 20. skiptið sem
þessi kaupstefna er haldin. Hún hef-
ur verið haldin í löndunum til skipt-
is en nú á afmælisárinu ákváðu
Grænlendingar að vera með hana í
Kaupmannahöfn en á næsta ári
verður hún haldin á Islandi.
„Móttökurnar fóru ffam úr björt-
ustu vonum,“ sagði Þórdís G. Arth-
ursdóttdr, verkefnisstjóri. „Við vor-
um alls 19 manns frá All Senses sem
fórum á kaupstefnuna og vomm
búin að vinna heimavinnuna okkar
vel og það skilaði sér svo sannarlega.
Við vomm með góða söluvöm, bæði
rótgróin ferðaþjónusmfyrirtæki, góð
hótel og síðan ýmsar nýjungar svo
sem starfsemina í Fossatúni, sam-
starf golfklúbbanna í Grundarfirði,
Borgarnesi og Akransi, nýtt golfhót-
el og Landnámssetur svo eitthvað sé
Svanborg Siggeirsdóttir og Unnur Halldórsdóttir
sýndu gestum glímutök aðfomum sið - en að þessu
sinni sérstaklega til mótvægis við karlrembuna.
nefht. Bæklingurinn sem við lémm
gera kom að góðum notum og eins
höfðum við látið hanna á hópinn
mjög smekklega boli með merki
hópsins og á bakinu stóð: See - Hear
- Taste - Smell - Touch, sem höfðar
tdl þess að þú gemr fengið eitthvað
fyrir öll skilningarvitdn á Vesmr-
landi.“
Þórdís bætir við: „Það var líka
greinilegt að þetta samstarf vaktd
ekki einungis athygli heldur kom
fram í viðtölum við kaupendur að
þetta væri mjög traustvekjandi,
því ferðaþjónusta á Islandi væri
oft smá í sniðum og það væri
greinilega sterkt að fyrirtækin
vinni saman að því að kynna
sitt landssvæði og eins hlyti
þetta að vera öðrum til fyrir-
myndar í komandi ffamtíð. Að
vanda til verka skiptir öllu máli
og má í því samhengi nefha að
hópnum hefur verið boðið að
koma og kynna Vesturlandið
og samstarfið víða um heim á
næstunni.“
All Senses félagar buðu sam-
gönguráðherra og forsvars-
mönnum ferðaþjónusmnnar á-
samt erlendum kaupendum til
siglingar þar sem hópurinn kynntd
sameiginlega sína þjónustu og Vest-
urlandið í heild. „Eftir kjmningu á
All Senses verkefhinu fluttd Benedikt
Erlingsson leikari og kona hans
Charlotte sprenghlægilegan leikþátt
sem þau höfðu samið um karl-
mennsku víkinganna. Sem mótvægi
við karlrembuna sýndu tvær konur
úr hópnum, þær Unnur Halldórs-
dóttdr og Svanborg Siggeirsdóttdr al-
vöm glímu en þær æfðu báðar glímu
á sínum yngri árum. Þær sýndu
þetta með stæl eins og þeim einum
er lagið. Unnur samdi vísur fyrir
hópinn við lag eftir Kim Larsen og
vora þær sungnar hástöfum í báts-
ferðinni,“ sagði Þórdís að lokum.
All Senses hópurinn vill þakka
Stykkishólmsbæ, Borgarbyggð,
Grundarfjarðarbæ, Sparisjóði Mýra-
sýslu, KB banka á Akranesi og Lans-
bankanum á Akranesi ásamt Ut-
flutningsráði fyrir stuðninginn við
verkefhið. Einnig hefur hópurinn
átt gott samstarf við sendiráð Islands
og Ferðamálaráð Islands í Kaup-
mannahöfh og samgönguráðuneyt-
Særif SH
Linni SH
Tveir nýir bátar á
Snæfellsnes
Tveir nýir bátar bættust á dög-
unum í flota Snæfellinga. A mið-
vikudag kom til heimahafnar í Rifi
báturinn Særif SH sem er í eigu
Melness ehf. Báturinn er nýsmíði
frá Trefjum ehf. í Hafharfirði. Bát-
urinn er 12,5 metrar að lengd og
14,9 brúttótonn að stærð. Báturinn
er búinn línubeitningarvél frá
Mustad.
Á miðvikudag kom einnig í fyrsta
sinn til heimahafnar í Olafsvík
Linni SH-333 sem er í eigu
feðganna Gauts Hansen og Eiríks
Gautssonar. Bátinn keyptu þeir
feðgar úr Hafnarfirði. Hann var
smíðaður í Njarðvík árið 1990 og
er rúmir 19 metrar að lengd og
34,6 brúttótonn að stærð.
HJ
Veiðiþjófur slasast
Það fór illa fyrir manni sem ætl-
aði að stelast til veiða í Laxá í Reyk-
hólasveit fyrir fáum dögum síðan.
Maðurinn hafði farið fyrir ofan
Klukkufell og þar upp í gljúfur.
Hóf hann veiðiskapinn en hafði
ekki orðið var þegar hann hrasar og
dettur illa í gljúfrinu. Meiddist
hann nokkuð á höfði og varð að ná
í lögreglu og lækni til aðstoðar
veiðiþjófinum úr ógöngum sínum
við ána.
Erfitt hefur verið síðustu árin að
fá veiðileyfi í ánni nema fyrir landi
Klukkufells enda kannski ekki eftir
miklu að slægjast. Þó hefur mark-
viss minkaveiði á þessum slóðum
leitt til vaxandi fiskgengdar í ána.
„Það hefur greinilega aukist veiðin
hérna í ánum á þessu svæði eftir að
gert var stórátak í að eyða mink.
Fiskur er farinn að veiðast aftur,“
sagði bóndi við ána í samtali við
Skessuhorn. GB
I
Ég verð nú að viðurkenna að
þótt ég láti mig varða alla hlutd er
varða almannaheill og snerta ör-
yggi lands og þjóðar þá hafði ég
lengi vel ekkert að ráði verið að
velta mér upp úr Öryggisráðinu.
Ég vissi vissulega að Island hafði í
hyggju að fara í framboð til Ör-
yggisráðsins enda menn komið að
máli við mig um það eins og geng-
ur í tengslum við ffamboðsmál al-
mennt. Mér stóð hinsvegar nokk-
uð á sama um þessar kosningar,
ekki síst þar sem það er fullt starf
að fylgjast með hreppsnefhdar-
kosningum í Reykjavík og verður
það næsta árið. Þessvegna var ör-
yggisráðið ekkert ráðandi í mínu
Kfi, ekki fyrr en Guðni Ágústsson
birtist í sjónvarpsviðtali í lopa-
peysu með hestamynstri og með
barðastóran leðurhatt á höfði.
Hann var staddur í fjárréttum á
Suðurlandi og í kapp við jarmandi
sauði þá tjáði hann sig fjálglega um
Öryggisráðið. „Að vera eða ekki
vera í öryggisráði með réttu ráði. -
Það er efinn.“ Einhvemveginn á
þessa leið mæltist hinum mikla
landbúnaðarleiðtoga en ekki
treysti ég mér tdl að hafa það eftir
með sama glæsibrag. Hvað með
það. Þrátt fyrir að Guðni væri ekki
öldungis alveg með það á hreinu
hvort það væri ráð að bjóða sig
ffam í Öryggisráð þá var ég engu
að síður sannfærður. Ásjóna land-
búnaðarráðherrans í lopapeysunni
og með leðurhattdnn fylltd mig því-
líkri öryggistilfinningu að allt ffá
því ég var í móðurkviði hef ég ekki
fhndið fyrir jafn miklu öryggi.
Oft var þörf en nú er nauðsyn á
að Islendingar taki öryggismálin í
sínar hendur. Guttormur er dauð-
ur og það í sjálfum Húsdýragarð-
inum og Guð einn veit hvaða
hörmungar dynja á okkur næst. Ég
læt þá staðreynd að við séum smá-
þjóð heldur ekki trufla mig. Það er
hinsvegar fásinna að halda því
ffam að við getum ekki haft áhrif
fyrir því. Ég nefhi sem dæmi að í
samfélagi þjóðanna á mínu heimili
er ég ekki nema smáríki á
meðan að konan mín er stór-
veldi. Samt er ekki lengra síð-
an en bara núna í morgun að
ég beitti mér með góðum ár-
angri í mikilvægu máh.
Þannig var að syni mínum
barnungum var skipað af
móður sinni að fara í gúmmí-
stígvélum í skólann á þeim for-
sendum að veður væri vott. Vanda-
málið var hinsvegar að fyrir dyrum
lág knattspyrnuiðkun í frímínútum
hvar gúmmístígvél gám vart talist
heppilegur fótabúnaður. Ég sá það
í hendi mér að þessi áform móður-
innar gætu gjörsamlega eyðilagt
farsælan knattspyrnuferil sonarins
fyrirffam. Ég beittd þvi neitunar-
valdi og hann skokkaði í skólann á
sínum strigaskóm og skoraði
grimmt í ffímínútunum.
Éyrst ég gat komið tautd við
konu mína þá er alls ekki ómögu-
legt að Island geti haff áhrif á stór-
þjóðir.
Gísli Einarrsson, öruggur.
Kaupum og seljum allar gerðir skulda- og hlutabréfa
ítSPM
Sparisjódur Mýrasýslu
W&rtvi -oðili oð Kouphöll íslands w
Digranesgötu 2-310 Borgarnesi - Sími 430-7500 - www.spm.is
’ítSPM