Skessuhorn


Skessuhorn - 21.09.2005, Side 18

Skessuhorn - 21.09.2005, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 ■■tf-t.-u in... ✓ Asmundur frá Högnastöðum í Þverárhlíð: Ókrýndur konungur mark- og ^árglöggra manna hér á landi Nú þegar haustar að er fé smalað til rétta um allt land. Gangnamenn fara ríðandi tdl fjalla með þetta einn til þrjá hesta hver, vel gallaðir, til- búnir til að takast á við hvaða veður sem er, vonandi að það haldist gott og skyggni á heiðum uppi haldist þokkalegt svo vel smalist. Fjárflesta réttin á Vesturlandi er Þverárrétt í Þverárhlíð. Býlið Högnastaðir í Þverárhlíð, stendur við vegamótin við Norðtunguskóg, skammt frá Þverárrétt, þar sem vegurinn grein- ist ffam hlíðina, niður að Norð- tungu og til Stafholtstungna. Nú stendur Ásmundur á Högnastöðum ekki lengur á hlaðinu og styðst við stafinn sinn að fylgjast með rekstri á fjall fyrri part sumars eða þegar fé kemur af fjalli á haustdögum. Hann er sestur að á Dvalarheimili aldraðra í Borgamesi. Daginn fyrir Þverár- rétt á þessu hausti var hann heim- sóttur og fræðst um göngur og rétt- ir í Þverárhlíð. Ásmundur frá Högnastöðum er af mörgum talinn skepnugleggsti maður landsins og halda sömu aðilar því ffarn að ekki sé til sá íslendingur sem kunni betri skil á fjármörkum en Ási. Á undanþágu í fyrstu göngur Hann rær í gráðið, með pontuna milli handanna þar sem hann situr á rúmstokknum í herbergi sínu og horfir haukffánum, glampandi aug- um á viðmælanda. Ásmundur Ey- steinsson firá Högnastöðum í Þver- árhlíð er komin á níræðisaldur, fæddur þann 28. október árið 1919 að Höfða í Þverárhlíð. Foreldrar hans vom hjónin Eysteinn Davíðs- son bóndi á Höfða og Sigríður Hall- ar kindurnar ffá hinum einstöku bæjum, já og hrossin líka, því á þeim tíma vom hrossin líka á heiðinni. Eg hafði ákaflega góða sjón, já og hef enn, og sennilega nokkuð glöggur. Eg sá fljótt að skepnur höfðu sitt svipmót og það var ólíkt ffá bæ til bæjar, það átti við hvorutveggja; sauðféð og hrossin.“ Ási segist hafa verið 13 ára og ó- fermdur, þegar hann fór fyrst í göngur. „Þá var fjallkóngur Guðjón Jónsson á Hermundarstöðum. Hann gaf mér tmdanþágu til að fara, en fjallkóngur er einráður um ffam- kvæmd mála þegar gangnaseðillinn hefur verið sendur út. Guðjón var kóngur afar lengi og sinnti starfi sínu af ffamúrskarandi trúmennsku.“ Að- spurður tun hvort hann hafi verið sæmilega ríðandi í fyrstu göngum síríum svarar hann: ,Já, og yfirleitt síðan. Fyrsta hestinn minn fékk ég í fermingargjöf og enn á ég fjóra hesta,“ segir hann. Tvisvar misst af Þverárrétt Spurður um áföll og illviðri í göngum segir Ásmundur sig hafa verið heppinn alla tíð. „I fyrstu göngunum mínum var gott veður og oftast gekk þetta stóráfallalaust fyrir sig. Illviðri man ég þó effir sérlegu í seinni leit haustið 1963. Þá snjóaði og var þungfært. Það gerði hörkubyl sem olli töfum. Áreiðanlega það versta veður í göngum, það haust man ég vel.“ En hvernig var aðbúnaður gangnamanna? „Gangnakofinn var steyptur, einnig loftið en það var moldargólf. Það hélaði allt innan ef kalt var eða slagaði, bæði veggir og „Ætli maðurfari nokkuð í réttina á þessu hausti, það spáir norðanátt og gceti hvesst. Ég þoli ekki lengur kuldagjósturinn í Þverárhlíðinni. “ norðan eða þangað til girt var á milli árið 1947. Eg kynntist þarna fyrir norðan mörgu úrvals fólki. Þar eins og hér, hefur margt breyst. Eins og í Fossseli í Hrútafirði, sem var fremsti bær, ffamundir heiði. Þaðan var í- búðarhúsið flutt til Hvammstanga í heilu lagi og hundurinn með! Þá varð ég skilamaður vestur í Dölum, Skarðsrétt eða Haukadalsrétt, allt til 2004.“ Ásmundur segir að Dala- menn hafi á þessum árum farið nokkuð fyrir Borgfirðingum í bú- skaparhátmm, „en það hefur nú jafríast hin síðari ár,“ bætir hann við. Fólksfæð til sveita En hvemig var ástand á heiðum þessi ár? „Lengi vel sá nú verulega á afréttum og alltaf nærri gengið á meðan hrossin voru á heiðinni. Nú sýnist mér hinsvegar vera svo rúmt á heiðinni og er hún kannski ekki nægilega bitin. Það em víða ósnert svæði. Kannski ætti að hleypa hross- um eitthvað á heiðina, ég veit ekki? En nú horfir heldur illa með hreins- un á löndum og smalamennskur vegna fólksfæðar í sveitum og marg- ir óvanir koma til aðstoðar. Kannski gengur það þannig?“ Ásmundur ffá Högnastöðum hall- ar sér aftur í rúmið og dæsir, hann er lúinn. „Ætli maður fari nokkuð í réttina á þessu hausti, það spáir norðanátt og gæti hvesst. Eg þoli ekki lengur kuldagjósmrinn í Þver- árhlíðinni," segir Ásmundur. Engu að síður var hann mættur í bítið morguninn eftir í réttina sína, líkt og flest árin frá því hann var 5 ára gam- afi. qq Úr Þverárrétt fyrir nokkrum árum síðan. 193 3 og missti því af réttum. „Ég var á Laxfossi vinnumaður í fjögur ár og fór ekki í Þverárrétt haustið 1934. Það var eins haustið 1993. Þá vann ég við slátrun hér í Borgarnesi. Það var ekkert við því að gera. En þetta vom og em skemmtilegir dagar, réttardagamir." Spurður um réttarstemningu seg- ir Ásmtmdi svo ffá: „I Þverárrétt var margt fé. Þegar flest var vom í kringum 25 þúsund fjár. Réttin sjálf var stór, steypt upp 1911 og allt hrært í hana með skóflum á bretti. Hún var svo endurbyggð 1960. Hér á árum áður komu Reykdælingar En mættur var hann meðal fyrstu manna í réttina sína, enda lagðist hami ekki t kalda norðanátt eins og spáð var. Hér er vinur Asa og samstarfsmaður í sláturhúsinu í Borgamesi til margra ára, Ingimundur í Deildartmigu. dórsdóttir, ætmð ffá Síðumúlaveggj- um í Hvítársíðu. Ásmundtn er ógift- tn og bamlaus en bjó lengst af með bróður sínum Daníel á Högnastöð- um. Fyrstu árin ólst Ásmundur upp á Höfða og þaðan fór hann í fyrsta skipti í Þverárrétt 5 ára gamall. „Eg man vel enn hve gaman var að fylgj- ast með fólkinu í réttinni þetta haust. Fór þá strax að taka eftir breytilegu svipmóti fólks ffá bæjun- um í nálægum sveitum." Það færist góðlegt bros yfir allt andlit Ásmund- ar og það er greinilegt að minningar ffá æsku hans birtast honum ennþá ljóslifandi. „Eg held bara að frá þeim tíma hafi ég farið að þekkja blessað- loft og var því æði hráslagalegt. Við slógum brok undir okkur til að liggja á. Þarna var legið í tvær næmr og farið niður á þriðja degi, þannig hef- ur það alltaf verið. Fyrsta haustið mitt kom í skálann stór prímus. Á meðan hann var í gangi var sæmilega notalegt og á kvöldin var flogist á og glímt sér til hita og oftast sungið líka. Nú er kominn stór og notaleg- ur timburskáli og hitað upp með gasi þannig að aðbúnaður er allur orðinn betri en áður.“ Þegar flest var voru 25 þúsund fjár Ásmundur gerðist vinmnnaður á Laxfossi í Stafholtstungum haustið kvöldið fyrir réttina og úr öðrum nærliggjandi sveitum og gism á bæj- unum. Þá var oft kátt á hjalla og margt spjallað. Það er undramargt fé enn í dag í réttinni, ef vel smalast þetta 15-16 þúsund. En fátt er nú orðið eftir víða á bæjunum.“ í útréttum Ásmundur segir að það hafi verið hans hlutskipti að fara nokkuð víða í útréttir. „Þá var ég skilamaður, fyrst í Melarétt í Hrútafirði 1937. Arið eftir í Hrútatungurétt og Miðfjarð- arrétt. Fé sótti nokkuð stíft á norð- urheiðamar. Afburða góð beitarlönd þar. Fé rann oft alveg niður undir bæi. Þetta vom tíu ár þarna fyrir „Ég held bara aðfrá þeim tíma hafi égfarið að þekkja blessaðar kindumarfrá hinum einstöku bcejum,já og hrossin líka, því áþeim tíma voru hrossin líka á heiðinni. Ég hafði ákaflega góða sjón,já og hefenn. “

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.