Skessuhorn - 21.09.2005, Qupperneq 23
^tttasunvi.
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005
23
Góður sigur á erkifjendunum
Skagamenn luku keppnistíma-
bilinu með glæsibrag þegar þeir
lögðu erkifjendurna úr Vesturbæn-
um í fjörugum leik á Akranesi á
laugardag. Heimamenn höfðu
undirtökin allan tímann og ekki
annað hægt að segja en að sigur-
inn hafi verið verðskuldaður.
Leikurinn var varla hafinn þegar
miðjumaðurinn smái en knái, Dean
Martin skoraði fyrsta mark leiksins
með harðfylgi. Þetta dugði að
sjálfsögðu vel til að koma Skaga-
mönnum vel í gang en á eftir
fylgdu margar góðar sóknir þótt
mörkin yrðu ekki fleiri fyrir leikhlé.
Skagamenn héldu áfram af
svipuðum krafti í seinni hálfleik og
áttu m.a. tvö stangarskot í röð. Á
59. mínútu gerði hinsvegar Sigurð-
ur Ragnar Eyjólfsson annað mark
ÍA og 5. mark sitt í fjórum leikjum.
Eftir þetta töpuðu Skagamenn að-
eins niður einbeitingunni og KR
ingar náðu að klóra aðeins í bakk-
ann þegar Sigurvin Ólafsson skor-
aði fyrir gestina. Lengra komust
w
þeir hinsvegar ekki og Skagamenn
unnu verðskuldaðan sigur á Vest-
urbæingum.
Dean Martin var besti maður ÍA í
þessum leik og einnig áttu þeir
Igor Pesic, Kári Steinn Reynisson
og Jón Vilhelm Ákason fínan leik.
Sigurinn á KR gulltryggði
Skagamönnum 3. sætið en þeir
hlutu 32 stig en Keflvíkingar sem
enduðu í fjórða sæti fengu aðeins
27 þar sem þeir töpuðu sínum leik
í lokaumferðinni. Valsmenn sem
enduðu í 2. sæti voru reyndar
einnig með 32 stig en töluvert betri
markatölu en ÍA. Núna þurfa
Skagamenn hinsvegar að bíða eft-
ir úrslitum úr bikarkeppninni þar
sem Valur og Fram eigast við. Ef
Valur vinnur þá er nefnilega Evr-
ópusæti í höfn fyrir ÍA.
GE/Ljósm: HS
Olafur Þórðarson og 11 leikmenn
skrifa undir samning við ÍA
-Þórður Þ. Þórðarson verður aðstoöarþjálfari
Leikmennirnir sem skrifuðu undir samninga við ÍA.
Nú er Ijóst hverjir verða þjálfar-
ar meistaraflokks ÍA næstu þrjú
árin. Á föstudaginn skrifuðu Ólaf-
ur Þórðarson, Þórður Þ. Þórðar-
son og hvorki fleiri né færri en ell-
efu leikmenn undir samninga við
félagið. Athöfnin var all sérstök
enda má teljast til undantekninga
að svo margir skrifi undir samn-
inga við íþróttafélag á einu bretti.
Við þetta tækifæri sagði Eiríkur
Guðmundsson, formaður rekstr-
arfélags meistaraflokks ÍA, að
markviss uppbygging hefði verið í
yngri flokkum undanfarin ár: „Það
er að skila sér núna upp í meist-
araflokk. Við höfum ákveðið að
taka hérna hóp af efnilegum ung-
lingum og verðlauna þá fyrir góða
frammistöðu." Sumir leikmann-
anna eru enn í 3. flokki og nokkr-
ir þeirra voru ekki samningslausir
þegar skrifað var undir á föstu-
dag. Samningarnir við þessa leik-
menn gilda til loka ársins 2008.
Nokkrar vangaveltur voru um
það hvort Ólafur Þórðarson, þjálf-
ari meistaraflokks, myndi söðla
um á næstu leiktíð og var helst
minnst á Fylki í því sambandi.
Það er nú Ijóst að Ólafur mun
halda áfram með liðið næstu þrjú
árin. „Það er okkar trú að Ólafur
hafi unnið frábært starf á Skagan-
um og með liðið. Hann hefur á
sinni þjálfaratíð unnið alla titla
sem hafa verið í boði hér á landi
og við ætlum okkur ekki að hætta
því. Við lítum svo á að þetta sé
fyrsti liðurinn í nýrri sókn,“ sagði
Eiríkur. Meistaraflokkur ÍA lauk
keppni í Landsbankadeildinni í
sumar í þriðja sæti með 32 stig.
Á föstudaginn skrifaði Þórður
Þ. Þórðarson einnig undir samn-
ing við félagið og gerist aðstoðar-
þjálfari liðsins. Hann er fyrrum
markvörður meistaraflokks en
þurfti að leggja skóna á hilluna
snemma í sumar vegna veikinda.
GG
Hér má sjá þá Ólaf Þórðarson og Eirík Guðmundsson skrifa undir þjáifarasamn-
inginn. Haraldur Ingólfsson, aðstoðarútibússtjóri KB banka á Akranesi fylgist
með.
Tveir piltar af Akranesi
í landshliðshóp U17
Lúkas Kostic, þjálfari U17 lands-
liðs karla, hefur valið 18 manna
leikmannahóp fyrir undankeppni
EM. Riðill íslands fer fram í And-
orra dagana 23. - 27. september
og eru Tékkland, Andorra og Sví-
þjóð einnig í riðlinum. Þrír leik-
menn í íslenska hópnum eru á
mála hjá erlendum liðum. Mark-
vörðurinn Haraldur Björnsson hjá
Hearts í Skotlandi, Björn Orri Her-
mannsson hjá Ipswich á Englandi
og Skagamaðurinn Björn Jónsson
hjá hollenska liðinu Heerenveen.
Björn'er ekki eini leikmaðurinn
sem Kostic valdi í landsliðshópinn
því annar af markmönnunum,
Björn Jónsson í Heerenveen bún-
ingnum þar sem hann hefur nú skrif-
að undir reynslusamning til eins árs.
Skarphéðinn Magnússon kemur
einnig af Akranesi, en hann er al-
mennt talinn einn efnilegasti ungi
Skarphéðinn Magnússon, markmað-
ur og landsliðsmaður kemur einnig
frá ÍA.
markmaðurinn hér á landi um
þessar mundir.
MM
LATTU OKKUR FA ÞAÐ
ÓÞYEGIÐ
Efnalaugin Múlakot ehf
Borgarbraut 55
310 Borgarnesi
Sími 4371930
A
£)jJ£jJjJ2JjJiJj
j 2JIJjÍ2J 1/JJJJJU J ÚuJjJ
Á Gufuskálum og í Holti rekur Svæðisskrifstofa
I Vesturlands skammtímavist fyrir fötluð börn og unglinga.
Við leitum að fólki sem hefur áhuga á að taka þátt í
fjölbreyttu starfi með börnum.
Um er að ræða hlutastörf.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum SFR og ríkisins.
Upplýsingar veitir Kristrún Sigurjónsdóttir
forstöðuþroskaþjáifi í síma 893 9588. .
Borgarfjaröarsveit
Grunnskóli Borgarfjarbarsveitar
Starfsmann í
skólasel á
Hvanneyrl vantar
nú pegar
Um er að ræða 30 - 40% starf og er vinnutími
síðdegis.
Til greina kemur að starfsmaðurinn
| taki auk þessa að sér einhverja kennslu.
Umsóknir berist Grunnskóla Borgarfjarðarsveitar
Nánari upplýsingar veita deildarstjóri í
síma 437 0009 og skólastjóri í síma 435 1171
VERZLUNIN
■BHWMH
Hálfsfdir ullarfrakkar
L gráir og svartir
verd 13.990.-kr
■f4