Skessuhorn - 07.12.2005, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2005
^kCSsunviJi
Tafarlausar
aðgerðir
vegna
hraðaksturs
Umhverfis- og skipulags-
nefad Borgarbyggðar telur að
nú þegar þurfi að grípa til að-
gerða vegna mikils hraðaksturs á
Borgarbraut í Borgarnesi. Þetta
kom fram á ftmdi nefndarinnar á
dögunum þar sem rædd voru
umferðaröryggismál.
Nefhdin samþykkti eftirfar-
andi bókun: „Það er engin
hraðahindrun á Borgarbraut ffá
Brákarey að nýuppsettri hindr-
un við gangstétt á móts við
Klettaborg. Síendurtekinn
hraðakstur á þessari leið einkum
að kvöldlagi og um helgar skap-
ar óásættanlega hættu fyrir ak-
andi og gangandi umferð auk
þess sem það skapar hávaða með
tilheyrandi ónæði hjá íbúum á
þessu svæði. Því leggur nefridin
til að tafarlaust verði gripið til
hraðalækkandi aðgerða á Borg-
arbraut." HJ
Til minnis
Við minnum á fjöida aöventu-
og jólatónleika sem haldnir eru
vítt og breitt um Vesturland.
Sjá vibburðaskránna „Á döf-
inni" á bls 21 og heimasíður
sveitarfélaga á Vesturlandi.
Ve?whorfMr
Það verður suðlæg átt og frem-
ur hlýtt í vebri næstu daga.
Vætusamt hér á Vesturlandi
a.m.k. fram á laugardag en þá
gæti stytt upp.
Spnrnimj viK^nnar
Á Skessuhornsvefnum var
spurning libinnar viku: „Gefur
þú bágstöddum í söfnunum
fyrir þessi jól?" Um helmingur
þeirra sem svöruðu segjast
ætla ab gera þab, eba 48,5%.
18,3% vissu það ekki, en réttur
þriðjungur gerir það ekki.
í næstu viku spyrjum vib
þeirrar praktísku spurningar:
„Áttu þinn uppá-
halds jólasvein?"
Svaraöu án undanbragöa
á www.skessuhorn.is
Vestlendiníjtvr
viKtvnnar
I
Ab þessu sinni er Vestlendingur
vikunnar Vilhjálmur Birgisson,
formabur Verkalýösfélags Akra-
ness. Titilinn hlýtur hann fyrir
einarba baráttu fyrir kjörum og
réttindum erlendra starfs-
manna á félagssvæöi VLFA.
Smyglvamingnrmn sem haldlagður var á Grundartanga ísíðustu viku kommn í vörslu lögreglunnar í Borgamesi. ÞaS er kátbrosleg
staSreynd aS hluti þessa smygls var framleiSsla VíngerSarinnar í Borgamesi. Þærflöskur voru semsagt œttaSar úr Borgamesi, búnar aS
fara til Danmerkur, smyglaS til Grundartanga og komnar aftur í Borgames.
Smygl upplýst á Grundartanga
Lögreglan og tollgæslan í Borg-
amesi lagði hald á smyglvarning
sem komið hafði verið ffá borði
m/s Dettifoss í Grundartangahöfn
seint á miðvikudagskvöld í liðinni
viku. Skipið hafði komið til Grand-
artangahafnar frá Reykjavík um kl.
18 og vora tveir skipverjar stöðvað-
ir með varninginn á pallbifreið
skammt ff á Grundartanga um mið-
nættið. Leitað var í skipinu og voru
7 skipverjar handteknir og færðir til
yfirheyrslu en sleppt að þeim lokn-
um. Málið telst að fullu upplýst.
Um var að ræða samtals um 280
lítra af sterku áfengi, 50 lítra af létt-
víni, um 30 lítra af bjór, 100 karton
af sígarettum auk 280 dósa af neftó-
baki og 120 dósa af munntóbaki.
Dettifoss fór frá Grundartanga um
kl. 9 morguninn eftir. MM
------------------------------+-------
Mestum smábátaafla landað í Olafevík
Á síðustu fimm fiskveiðiárum hafa
smábátar landað tæplega 47 þúsund
tonnum af sjávarafla á Vesmrlandi.
Þetta kemur ffam í svari sjávarút-
vegsráðherra við fyrirspum Adolfs
H. Berndsens á Alþingi. Mestum
afla hafa smábátar landað í Ólafsvík
eða tæplega 20 þústrnd tonnum.
I svari ráðherra kemur ffam að á
síðustu 5 fiskveiðiárum hafa smábát-
ar landað allt frá 8.662 tonnum til
9.884 tonna á hverju þessara ára eða
samtals 46.863 tonnvun alls. Eins og
áður sagði var stærstum hluta þessa
afla landað í Ólafevík eða 19.568
tonnum. Á Rifi hefúr verið landað
10.254 tonnum, á Arnarstapa 6.020
tonnum, f Grandarfirði 4.677 tonn-
um, í Stykkishólmi 4.250 tonnum
og á Akranesi 2.084 tonnum. Þá var
10 tonnum landað í Hvalseyjum á
þessum árum.
Á landinu öllu lönduðu smábátar
á þessum árum samtals 293.543
tonnum og er því hlutur haftia á
Vesmrlandium 16%.
HJ
Gámaþjónusta Vesturlands með
lægsta tilboð í sorphreinsun
Gámaþjónusm Vesmrlands átti
lægsta tilboðið í sorphreinsun
sunnan og norðan Skarðsheiðar en
tilboð í verkið voru opnuð á þriðju-
dag. Bæjarráð Akraness hefur sam-
þykkt að ganga til samninga við
lægstbjóðanda og gert er ráð fyrir
að önnur sveitarfélög sem um ræð-
ir geri slíkt hið sama. Talið er að
talsverðir fjármunir sparist í kjölfar
útboðsins.
Alls bárust tilboð frá fjórum aðil-
um í sorphirðu í sveitarfélögum
sunnan og norðan Skarðsheiðar
auk þess sem frávikstilboð bárust
frá tveimur bjóðendum. Islenska
gámafélagið bauð 64,7 milljónir
króna og 57,1 milljón króna frá-
vikstilboð. Garðlist ehf. bauð 95,5
milljónir króna og Islandsgámar
bauð 102,8 milljónir króna auk
35,7 milljóna króna ffávikstilboðs.
Tilboð Gámaþjónusm Vesmrlands
var að upphæð 36,6 milljónir
króna. Frávikstilboð Islandsgáma
miðaðist eingöngu við sorphirðu á
Akranesi og sunnan Skarðsheiðar
og var því dæmt ógilt.
Sorphirða mun breytast nokkuð
til sparnaðar með þessu útboði og
því erfitt að bera saman kostnað
sveitarfélaganna í dag við kostnað-
inn efdr útboð. Hins vegar er ljóst,
að sögn Þorvaldar Vestmanns
sviðsstjóra tækni- og umhverfis-
sviðs Akraneskaupstaðar, að útboð-
ið mun hafa talsverðan sparnað í för
með sér fyrir sveitarfélögin. Sem
dæmi má nefna að kostnaður við
sorphirðu á Akranesi er í dag um 30
milljónir króna á ári. Hlutur Akra-
neskaupstaðar í útboðinu nú er hins
vegar um 17 milljónir króna.
Verði af samningum við Gáma-
þjónusm Vesmrlands mun sorp-
hirða á grundvelli útboðsins hefjast
í Borgarfjarðarsveit og sveitarfélög-
unum sunnan Skarðsheiðar þann 1.
janúar, á Akranesi hefst hún 1. febr-
úar og í Borgarbyggð 1. júlí á næsta
ári. Samkvæmt útboðsgögnum er
gert ráð fyrir að samið verið til 1.
júlí 2009.
HJ
Rætt um stöðu erlendra
starfsmanna á Akranesi
Bæjaryfirvöld á Akranesi vilja
leggja sitt af mörkum til þess að
leikreglur á vinnumarkaði séu virt-
ar við þátttöku erlendra starfs-
manna á Akranesi og hefur verið
komið á fót formlegum samstarfs-
vettvangi til þess að auðvelda sam-
starf þeirra félaga og stofiiana sem
vinna að málum.
Á fimmmdaginn komu Olafur Þ.
Hauksson sýslumaður á Akranesi,
Vilhjálmur Birgisson formaður
Verkalýðsfélags Akraness, Stefán
Skjaldarson skattstjóri Vesturlands-
umdæmis og Tryggvi Bjarnason
lögfræðingur Skattstofu Vestur-
landsumdæmis til fundar við bæjar-
ráð Akraness. Ræddu þessir aðilar
málefni erlendra starfsmanna sem
starfa á vinnumarkaði á Akranesi. I
bókun fundarins segir að aðilar séu
sammála um að hafa með sér sam-
starf og miðla upplýsingum um
málið.
Guðmundur Páll Jónsson bæjar-
stjóri segir að boðað hafi verið tdl
fundarins vegna þeirra umræðu
sem átt hefur sér stað að undan-
förnu um erlenda starfsmenn hér á
landi þar á meðal á Akranesi. Hann
segir engan vafa á því í sínum huga
að ekki hafi verið farið að settum
reglum. Því hafi þótt nauðsynlegt
að koma á fót samstarfsvettvangi
um þessi mál. „Þessi fundur var
mjög góður og við rnunum funda
aftur í næstu viku,“ segir Guð-
mundur Páll.
Aðspurður hvers vegna bæjarfé-
lagið hafi ákveðið að koma að mál-
inu segir hann mikla hagsmuni í
húfi fyrir bæjarfélagið. „Okkur er
það mjög mikilvægt að staðið sé skil
á útsvari vegna þeirra erlendu
starfsmanna er hér starfa. Einnig er
mjög mikilvægt að sveitarfélagið
tryggi að jafnræði sé meðal þegn-
anna. Ef einstök fyrirtæki komast
upp með að brjóta lög og reglur
grefur það undan þeim fyrirtækjum
hér um slóðir sem standa löglega að
hlutum. Slíkt megum við ekki og
getum ekki fallist á. Því var mjög á-
nægjulegt að undirtektir við að
koma þessum samstarfevettvangi á
voru góðar. Þannig getum við auð-
veldað starf þeirra er að þessum
málum koma,“ segir Guðmundur
Páll Jónsson.
HJ
Tilkynning
vegna jólablaðs
Að þessu sinni kemur jólablað
Skessuhoms út þriðjudaginn 20.
desember. Að vanda verður um
stærsta blað ársins að ræða hjá út-
gáfunni. Af þeim sökum er
vinnslutími blaðsins lengri en
venjulega og því þurfúm við að
biðja alla þá sem þurfa að koma á
framfæri efhi; fféttum, tilkynn-
ingtun og auglýsingum að hafa
samband sem fyrst. Síðasti skila-
ff estur auglýsinga er fimmtudag-
inn 15. desember. -ritstjóri
Breytingar í
verslun
GRUNDARFJÖRÐUR: Sam-
kaup hf hefúr keypt rekstur Esso
söluskálans í Grundarfirði af
Gmmari Ragnarssyni. Gunnar
mim verða verslunarstjóri áffam
yfir söluskála og versltm auk þess
að sjá um þjónustu í kringum
bensínið. Fyrirhugað er að
byggja við söluskálann nýtt versl-
unarhúsnæði fyrir Samkaup
Strax verslunina og tengja það
söluskálanum. Undirbúningur að
því er hafinn í samráði við bæjar-
yfirvöld. „Markmiðið er að
treysta enn ffekar þjónustu við
Grundfirðinga og nærsveitir,"
segir í ffétt ffá Samkaupsmönn-
um. -mm
Geca gjaldþrota
AKRANES: Óskað hefur verið
effir því að fýrirtækið Geca ehf.
við Höfðasel á Akranesi verði
tekið til gjaldþrotaskipta. Geca er
sprotafýrirtæki sem undanfarin
ár hefúr unnið að þróun og ffam-
leiðslu á húseiningum með nýrri
firamleiðsluaðferð. Undir mikl-
um þrýstingi eru einingaplötur
steyptar og er hráeffúð sement,
trjáspæni og kolsýra. Starfemenn
Geca fengu ekld greidd latm nú
um mánaðamótin og mun Verka-
lýðsfélag Akraness sjá um að gera
launakröfu fýrir hönd allra starfe-
manna, sem send verður til
skiptastjóra. -mm
Jólamarkaður
BORGARNES: Árlegur jóla-
markaður ýmissa söluaðila verð-
ur fýrir þessi jól í Félagsbæ í
Borgamesi. Þar fæst allt ffá loft-
kökum til mun eðlisþyngri vöru;
prjónles, kökur og ýmislegt fin-
erí. Opið er alla daga nema
sunnudaga ffá kl. 13 til 18. -mm
80 þúsund rjúpur
LANDIÐ: Rjúpnaveiðitímabil-
inu er nú lokið og líklega hafa
veiðst um 80 þúsund fúglar á öllu
landinu. Reyndar er mjög erfitt
að segja með vissu til um veiði-
tölur. „Þetta byrjaði mjög vel,
sumir fengu mjög góða veiði og
síðan drógu menn aðeins úr
veiðunum þegar leið á. En marg-
ir voru nú bara að sýnast í þeim
efinun. Eg held að 80 þúsund
fúglar séu nærri lagi, ég hef heyrt
í nokkuð mörgum veiðimönnum
víða um land,“ sagði skotveiði-
rnaður sem stundaði mikið rjúp-
una og veiddi ágædega. Frétt
okkar um að rjúpan hafi verið
seld á allt að 4500 krónur vaktd
mikla athygli og voru töluverð
viðbrögð hjá lesendum okkar við
fféttinni. Flestum fannst þetta
svakalega hátt verð fýrir einn
fugl, sem auk þess má alls ekki
selja.
-gb