Skessuhorn - 07.12.2005, Qupperneq 4
4
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2005
Bílslys á
Akranesvegi
AKRANES: Tveir ungir menn
slösuðust, þar af einn alvarlega,
efrir árekstur fólksbíls og jeppa á
gatnamótum Akrafjallsvegar og
Akranesvegar um klukkan hálf sjö
á sunnudagsköld. Að sögn lög-
reglunnar á Akranesi er talið að
ökumaður bílsins hafi misst stjóm
á bíl sínum í hálku með þeim af-
leiðingum að hann rann í veg fyr-
ir jeppann. Ökumaður var einn í
jeppanum en hann sakaði ekki.
Báðir mennirnir vom fluttir á
sjúkrahúsið á Akranesi en öku-
maður fólksbílsins var fluttur á
slysadeild Landspítala-háskóla-
sjúkrahúss. Hann hlaut höfuðá-
verka og innvortis meiðsl og var
lagður inn á gjörgæsludeild.
Meiðsli hans em ekki h'fshættuleg.
Farþegi í bílnum hlaut bakáverka.
-mm
Nýir
rekstraraðilar
REYKHOLT: Frá síðustu mán-
aðamótum era nýir rekstraraðilar
verslunarinnar Vegbitans í Reyk-
holti. Hjónin Embla Guðmunds-
dóttir og Jón Pétursson í Björk
tóku þá við rekstrinum en auk
hans reka þau hjón einnig Blóma-
skálann á Kleppjárnsreykjum sem
er opinn á sumrin. Frá næstu ára-
mótum verður afgreiðsla Islands-
pósts í Reykholtí flutt í Vegbit-
ann. Fleiri breytingar em einnig í
farvatninu, en Embla vildi ekki að
svo stöddu gefa upp í hverju þær
fælust. I vetur verður opið í Veg-
bitanum frá 10-18 virka daga, 12-
18 á laugardögum og 14-18 á
sunnudögum. -mrn
Leikskólastjóri
ráðinn
BORGARBYGGÐ: Bæjarráð
Borgarbyggðar hefur ráðið Ing-
unni Alexandersdóttur í starf leik-
skólastjóra nýs leikskóla í Borgar-
nesi. Auk Ingunnar sótti Þórunn
Harðardóttir um starfið. -hj
Ofiistoppi að
ljúka hjá ÍJ
GRUNDARTANGI: Einn af
þremur ofitum Jámblendifélagsins
var gangsettur 4. desember sl. eft-
ir tæplega mánaðar viðgerðar-
stopp. I stoppinu var m.a. sett ný
fóðring í ofiúnn. Ofhspotturinn er
úr stáli með fóðringu að innan úr
eldföstum steinum, kolefhi og
bindiefhum. Endingartími ofits-
fóðringa er yfirleitt um 15 ár.
Aður en ffamleiðsla getur hafist í
ofhinum þarf að hita, þurrka og
baka fóðringuna í um vikutíma.
Meðan á þurrkun stendur kemur
reykur/vatnsgufa ffá ofninum sem
hleypt er út án hreinsunar. Vatns-
gufan myndi þéttast í pokasíuvirk-
inu, eyðaleggja pokana og gera
það óstarfhæff. Reykhreinsivirkið
verður því gangsett u.þ.b. 11.-12.
desember eða þegar eiginleg
ffamleiðsla hefst. Fram að þeim
tíma em skorsteinar opnir og gera
má ráð fyrir nokkram sýnilegum
reyk/vatnsgufu. Ofhinn er keyrð-
ur á mjög lágu álagi þennan tíma
eða u.þ.b. 15-20% af hámarksál-
agi, segir í tilkynningu ffá ÍJ. -mm
Gallerí Ozone opnaði á föstudag
Þráttfyrir aó nýja verslunin sé stór og rúmgóð varfullt út úr dyrum frá fyrstu mínút-
um og stöðugt rennert alla helgina.
Síðastliðinn laugardag opnaði ný
verslun, sem byggir reyndar á
gömlum merg, við Kirkjubraut 12 á
Akranesi. Verslunin heitir Gallerí
Ozone og er rekin af hjónunum
Huga Harðarsyni og Elsu Björns-
dóttur sem átt og rekið hafa Ozone
sl. 17 ár. Nú er verslunin rekin í
nánu samstarfi við NTC verslunar-
keðjuna sem m.a. rekur Verslunina
17 og er verð t.d. það sama og í
öðram búðum innan keðjunnar.
Sama má segja um leikföng þar sem
þau Hugi og Elsa hafa samning við
Leikbæ og Dótabúðina um verð-
samræmi við þær verslanir á höfuð-
borgarsvæðinu. Nýja verslunin er
bæði rúmgóð og björt og alls um
470 fermetrar að stærð. A efri hæð
er fatnaður, íþróttaföt og skór og
hefur áhersla verið aukin á tísku-
famað. A kjallarahæð eru barnaföt
og leikföng.
Astæða er til að óska eigendum
Gallerí Ozone til hamingju með
nýja og glæsilega verslun sem
óneitanlega á þátt í að bæta ásýnd
gamla miðbæjar Akraness og á vafa-
lítið effir að auðga mannlíf þar á
nýjan leik.
MM
Hafa áhyggjur af hugsanlegri lokun
Lýsuhólssskóla
Atvinnu- og ferðamálanefnd
Snæfellsbæjar ræddi á dögunum
hugsanlega lokun Lýsuhólsskóla.
Bókaði nefhdin að hún hefði tölu-
verðar áhyggjur vegna þessa máls
„enda myndi það skaða atvinnumál
sunnan Fróðárheiðar gríðarlega,"
eins og segir í bókun nefndarinnar.
Þá segir að nauðsynlegt sé að at-
huga alla aðra valkosti til að halda
skólanum gangandi, meðal annars
„að bjóða í kennslu barna ffá nær-
liggjandi hreppum. Ekki er ólíklegt
að þannig mætti ná hagræðingu
fyrir alla aðila,“ segir í bókuninni.
I dag era 2 3 nemendur í skólan-
um í níu árgöngum en enginn nem-
andi er sem stendur í 4. bekk að því
er kemur fram á heimasíðu skólans.
Örvar Már Marteinsson, for-
maður nefndarinnar segir engar
tillögur liggi fyrir um lokun skól-
ans og engin formleg umræða hafi
farið ffam um hugsanlega lokun.
Hins vegar sé ljóst að nemendum
skólans hafi farið fækkandi og því
sé hann óhagkvæmari rekstrarein-
ing en áður var. „Með þessari sam-
þykkt voram við hins vegar að
vekja athygli á því að það era til
fleiri leiðir út úr vandanum en að
loka skólanum. Ymsar hugmyndir
vora ræddar sem styrkt geta skól-
ann og vonandi skila þær árangri,“
sagði Örvar Már.
HJ
Leggja til auknar gatnafiramkvæmdir
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins í minnihluta bæjarstjórnar
Akraness hafa lagt ffam breytingar-
tillögu að fjárhagsáætlun bæjarins
fyrir árið 2006. Leggja þeir til að
nýtt slitlag verði lagt á Grenigrand
og einnig að slitlag verði lagt á veg-
inn að Safnaskála.
I greinargerð með tillögunni seg-
ir meðal annars: „I aðdraganda
kosninga lögðum við sjálfstæðis-
menn á það áherslu að Bjarkar-,
Furu- og Grenigrund yrðu endur-
gerðar. Um er að ræða götur í
hverfi sem byggðist upp fyrir um
30 árum síðan og hafa íbúar þurft
að sætta sig við ónýtar götur í lang-
an tíma. Nú þegar hefur verið ráð-
ist í endurgerð Bjarkar- og Furu-
grundar og því eðlilegt að Greni-
grandin verði tekin á næsta ári.
Samkvæmt upplýsingum ffá tækni-
deild Akraneskaupstaðar má áætla
að verkið kosti um 25 milljónir
króna."
Um veginn að Safnasvæðinu seg-
ir: „A undanförnum áram hefur
verið mikil uppbygging á Safiia-
svæðinu að Görðum. Þangað kem-
ur á hverju ári fjöldi ferðamanna.
Akraneskaupstaður hefur lagt
aukna áherslu á að hvers kyns við-
burðir sem hann stendur fyrir fari
ffam á svæðinu. Það er því algjör-
lega óviðunandi að aðkoman að
Safnasvæðinu sé ekki fólki bjóð-
andi. Því leggjum við til að lagt
verði varanlegt slitlag á veginn að
Safnasvæðinu. Samkvæmt upplýs-
ingum ffá tæknideild Akraneskaup-
staðar má áætla að verkið kosti um
3 milljónir króna.“ HJ
Vandi neytenda á iandsbyggðinni eykst
Talsmanni neytenda hefur borist
ábending um að vandi neytenda á
landsbyggðinni hafi aukist í kjölfar
áherslu á landflutninga í stað
skipafluminga og einkavæðingar
póstþjónusm. Þetta kemur fram í
umsögn ffá talsmanninum, Gísla
Tryggvasyni, um frumvarp um
breytingu á virðisaukaskattslögum.
í ffumvarpinu er gert ráð fyrir nið-
urfellingu virðisaukaskatts af
veggjaldi um Hvalfjarðargöng. I
umsögninni kemur fram að vand-
inn sé einkum í dreifbýli þar sem
neytendur eru háðari ferðalögum
og flumingskosmaði vöra. Þá telur
talsmaður neytenda að í sumum
tilvikum sé ferð til vöru- og þjón-
ustukaupa eða flutnings vöru um
Hvalfjarðargöng eini raunhæfi val-
kosmr neytenda á Vesmr- og
Norðurlandi. Því sé óheppilegt að
tekjuöflun ríkisins, með innheimm
virðisaukaskatts, komi harðar nið-
ur á þeim sem nota göngin en öðr-
um.
HJ
Ömefnaskilti Eyrbyggja við Kolgrafarfjörð
Eyrbyggjar, hollvinasamtök
Grandarfjarðar afhenm Grundar-
fjarðarbæ fyrir skömmu nýtt ör-
nefnaskilti. Það var sett upp á nýja
áningarstaðnum við Kolgrafarfjörð
á vígsludegi nýju brúarinnar og
vegarins þann 21. október sl. Eyr-
byggjarnir, með Hermann Jóhann-
esson í fararbroddi, lém útbúa skilt-
ið skv. hönntm Hermanns, en skilt-
ið er að formi til eins og opin bók.
I bókinni má lesa um Eyrbyggja
hina fornu, ömefni í firðinum og
gönguleiðir á svæðinu. Freyja
Bergsveinsdóttir vann grafík á skilt-
inu, Jón Hans Inga-
son smíðaði skiltið
úr ryðffíu stáli og
Guðjón Elísson tók
ljósmyndina sem
prýðir það.
Það var Grand-
arfjarðarbær sem
kostaði uppsetn-
ingu skiltisins og
veitti Björg Agústs-
dóttir, bæjarstjóri
því viðtöku.
Af
gnmdarjjordur. is
Hermann Jóhannesson Eyrbyggi og Björg Agústsdóttir bæjar-
stjóri viö skiltió
Nýtt skólaeldhús
SNÆFELLSBÆR: Síðastliðinn
fimmmdag var nýtt og fullkomið
eldhús formlega tekið í notkun
fyrir 5. - 10. bekk í Grunnskóla
Snæfellsbæjar. Þar er matráður
Sigfús Almarsson. Fyrsta nem-
endamáltíðin var ffamreidd í há-
deginu þann dag en áður hafði
starfsfólk skólans fengið for-
smekkinn og snætt steinbít hjá
Sigfusi. A heimasíðu Snæfellsbæj-
ar kemur ffam að matseðill mán-
aðarins verði framvegis settur
ffam á heimasíðuna skólans. I
skoðun er að bjóða nemendum 1.
- 4. bekkjar heita máltíð í hádeg-
ishléi þeirra, am.k. langa skóla-
daga. -mm
Hafiia bótakröfu
BORGARBYGGÐ: Bæjarráð
Borgarbyggðar hefur hafnað
kröfum íbúa í Borgamesi um bæt-
ur vegna tafa sem orðið hafa á
gatnagerð við lóð íbúans. Forsaga
málsins er sú að íbúinn fékk út-
hlutað lóð við Kvíaholt árið 2001.
Gekk hann ff á kaupum á eininga-
húsi í Kanada og áætlaði að flytja
inn í hið nýja hús um áramót
2001-2002. Seldi hann eldri hús-
eign sína með það í huga. Vegna
tafa við gatnagerð tafðist hús-
byggingin mjög og þurffi íbúinn
að búa í leiguhúsnæði um tíma,
sem er í eigu sveitarfélagsins. Þar
sem ennþá hefur ekki verið loldð
við gatnaffamkvæmdir óskar hús-
eigandinn eftir bótum að fjárhæð
tæpar 1,2 milljónir króna. Eins og
áður segir hafinaði bæjarráð þess-
ari kröfú. -hj
Gistinóttum
íjölgar
LANDIÐ: Gistinætur á hótelum
í október árið 2005 vom 86.100
en voru 84.000 árið 2004. er þetta
2,5% aukning. Að sögn Hagstof-
unnar er fjölgun gistinátta ein-
göngu vegna údendinga, en þær
fóra úr 63.200 í 66.100 milli ára
sem er 4,6% aukning. Gistinótt-
um Islendinga fækkaði um 4% á
sama tíma, úr 20.800 í 20.000.
Eins og s.l. 5 mánuði varð hlut-
fallslega mesta aukningin á Suð-
urnesjum, Vesturlandi og Vest-
fjörðum þar sem gistinætur fóra
úr 4800 í 6700 (39,3%). -mm
Móttaka að
Borg
BORGARBYGGÐ: Sveitarfé-
lagið Borgarbyggð og séra Þor-
bjöm Hlynur Amason hafá gert
samning um greiðslur fyrir mót-
töku ferðamanna að Borg á Mýr-
um. Samkvæmt honum sér séra
Þorbjöm Hlynur um móttöku
ferðamanna, sýnir þeim staðinn
og kynnir sögu hans. Tekur
Borgarbyggð þátt í kostnaði við
þessar móttökur með ffamlagi að
upphæð 200 þúsund krónur á ári
og skal greiðslan fara fram í ágúst
ár hvert. Samningurinn sem
undirritaður var þann 18. nóv-
ember gildir ffá síðustu áramót-
um. Hann er ótímasettur en upp-
segjanlegur af beggja hálfu með
þriggja mánaða fyrirvara um
hver áramót. -hj
WWW.SKESSUHORN.IS
Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Ákranesi Fax: 433 5501
Skessuhorn kemur út alla miövikudaga. Skilafrestur auglýsinga
er kl. 14:00 á þri&judögum. Auglýsendum er bent á að panta
auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til
12:00 á þri&judögum.
Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í
lausasölu.
Áskriftarverð er 1000 krónur með vsk. á mánuði en krónur 900
sé greitt með greiðslukorti. Verð í lausasölu er 300 kr.
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhom ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Bla&amenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is
Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Fréttaritarar: Císli Einarsson 899 4098 gisli@skessuhorn.is
Ófeigur Cestsson 892 4383 sf@simnet.is
Augl. og dreifing: Iris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is
Umbrot: Cuðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is