Skessuhorn - 07.12.2005, Síða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2005
‘Dýijiwia Tmfadátdr
TiJiiuir iPárðcur&mi
guU&miðir ag skartgripafiámmðir
&ímar: 862 6060 - 464 3460
Verið tímanlega Mlmuów: ^
með &erpantamr íVYvJpPTC
Þórhanna
Guðmundsdéttlr
Skrifstofumaður hjá SlBS
irnéreremsogsttW.
LTms ltmebPoiarol.,e.
NíÖurstöður kiiniskra rannsókna sem
prófessör ArnoldBerstad við
Haukeiand háskólasjukrahúsið í
Noregí framkvaemdi sýna að olían
hefur áhrif á:
-Önæmiskerfið
- Gígt - a'urrta og stifa Hðí
-Sárogexem
- Maga- og þarmastárfsemi
- Hárvöxt og negiur
- Kólestrol t g bióðþrysting
Fæst í öllum
apótekum
og heilsubúðum
^tíandsmíðað ákart
frá cAkrane&i í jálapakkann
Selolía frá Noregi
KENNAfb\8,\MfíAND
fóLANDS
Orlofshúsnæði
sumarið 2006
Stjórn Orlofssjóös Kennarasambands
íslands óskar eftir að taka á leigu húsnæði
til endurleigu næsta sumar fyrir
félagsmenn. Bæði íbúðarhúsnæði og
sumarhús koma til greina.
Tilboð berist til skrifstofu Kennarasambands
íslands merkt "Orlofssjóður” fyrir
20. desember nk.
Orlofssjóður Kennarasambands íslands,
Laufásvegi 81
101 Reykjavík
Nánari upplýsingar veitir Hanna Dóra
Þórisdóttir í síma 595-1122,
netfang: hanna@ki.is og fax: 595-1112.
Bætt samfélagsvitund
- þemaverkejhi gnmnskólabama
Undanfarnar vikur hefur 7.
bekkur í Grunnskólanum í Borg-
arnesi verið að vinna að þema-
tengdu verkefni sem ber yfirskrift-
ina samfélagsvitund. Er hugmynd-
in sú að nemendurnir fái að kynn-
ast samfélaginu sem þeir búa í bet-
ur og með öðrum hætti en þau
gera e.t.v. í sínu daglega lífi.
Þannig er verið að gefa þeim tæki-
færi á að nálgast fyrirtæki og stofn-
anir sjálf á eigin forsendum með
spurningar sem brenna á þeirra
huga og hjörtum. Fóru þau t.d. í
viðamikla rannsóknarferð í Safna-
hús Borgarbyggðar þar sem tekið
var vel á móti þeim en þar unnu
þau verkefhi tengt hinum ýmsu
munum og hlutum á safninu sem
kennari þeirra útbjó sérstaklega.
Einnig hafa þau farið á lögreglu-
stöðina og fengið að skoða, prófa
og spyrja. - einmitt það sem vakið
hefur áhuga þeirra. Margt for-
vitnilegt kom í ljós, m.a. sú stað-
reynd að fæst þeirra vissu að lög-
reglan á Islandi ber ekki vopn. Þau
fengu að prófa handjárn, fara inn í
fangageymslur, setjast inn í lög-
reglubifreið, klappa dópleitar-
hundinum og sjá sírenurnar koma
á bílinn með væli og öllu tilheyr-
andi. Vakti það stormandi lukku.
Einnig hefur þjálfaður leitarhund-
ur komið í heimsókn og eigandi
hans, María Hrönn Kristjánsdóttdr
sýndi þeim hvernig hundurinn
Fönix getur þefað uppi fólk án erf-
iðleika. HSS
Vilja lækka fasteignagjöld en
hækka byggingarleyfisgjöld
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins, sem sitja í minnihluta bæjar-
stjómar Akraness, hafa lagt fram
breytingartillögur við fjárhagsáætl-
un bæjarins og stofhana hans fyrir
árið 2006. Eins og fram hefur kom-
ið í fréttum Skessuhoms hefur fast-
eignamat á Akranesi hækkað mjög á
liðnum ámm. Fasteignagjaldastofn
hefur hins vegar verið óbreytmr
þannig að fasteignagjöld hafa
hækkað mjög mikið. I íjárhagsáætl-
uninni sem var til fyrri umræðu í
bæjarstjórn á dögunum var hins
vegar lagt til að fasteignaskattur
lækki úr 0,431% í 0,394%. Bæjar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja
hins vegar ganga lengra því þeir
hafa nú lagt til að fasteignagjöldin
verði lækkuð í 0,36%.
I greinargerð með tillögvmni seg-
ir m.a.: „Samkvæmt fyrirliggjandi
upplýsingum er ljóst að fasteigna-
mat á íbúðarhúsnæði, hefur hækkað
gríðarlega á höfuðborgarsvæðinu
eða um 45%. Ekki er óeðlilegt að
áætla að fasteignamat hér á Akra-
nesi hækki um 25% eða jafnvel
meira þar sem töluvert af nýbygg-
ingum koma til álagningar á næsta
ári. Miðað við það er eðlilegt að
lækka álagningarprósentu til sam-
ræmis við það sem gerist í ná-
grannasveitafélögum Reykjavíkur
svo sem Mosfellsbæ og Reykjanes-
bæ. Þrátt fyrir lækkun prósentunn-
ar má búast við að fasteignagjöld
muni skila bæjarsjóði 18 milljónum
meira en núverandi frumvarp gerir
ráð fyrir.“
Þá lögðu bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins einnig til að bygg-
ingarleyfisgjöld verði hækkuð um
6%. I greinargerð með tillögunni
segir m.a.: „I núverandi ffumvarpi
til fjárhagsáætlunar er gert ráð fyrir
tekjum vegna byggingaleyfisgjalda
124 milljónir króna. Að okkar mati
er svigrúm til ffekari hækkana þar
sem byggingaleyfisgjöld á Akranesi
eru mun lægri en gengur og gerist í
þeim sveitarfélögum sem við ber-
um okkur saman við. Einnig er ljóst
að þau standa engan veginn undir
útlögðum kostnaði. Sú hækkun sem
við leggjum til ætti að skila bæjar-
sjóði 7,5 milljómim króna.“
Um áhrif þessara tillagna segja
bæjarfulltrúarnir meðal annars:
„Þar er trú okkar, eins og rakið er í
hér að ofan að hækkun fasteigna-
mats og hækkun byggingaleyfis-
gjalda muni skila okkur nægjanleg-
um fjármunum til að standa undir
þessum viðbótarframkvæmdum.
Auk þess skal á það bent að á árinu
2004 voru tekjur Akraneskaupstað-
ar vegna útsvars, fasteignagjalda og
byggingaleyfisgjalda 59 milljónir
umfram áætlun. Má því alveg áætla
að árið 2006 verði með svipuðu
móti.“
Kollubúð tekur við fatnaði
fyrir Rauða krossinn
íbúum í Borgarfjarðarsveit og
víðar stendur nú til boða fyrir jól-
in að fara með notuð föt og skó í
Kollubúð á Hvanneyri og gefa í
þágu góðs málefnis. Kolbrún Anna
í Kertaljósinu á og rekur Kollubúð
á Hvanneyri. Sagði hún í samtali
við Skessuhorn að þetta hafi verið
gert í tilraunaskyni fyrir tveimur
árum og hafi árangurinn verið
góður. Fullur vörubíll hafi þá ver-
ið sendur af fötum og skóm til
Rauða krossins úr Borgarfjarðar-
sveit. I fyrra hafði hún talið að það
væri of mikið að gera þetta árlega,
en reyndin var sú að margir komu
með föt og skó í Kollubúð þrátt
fyrir að ekki hafi verið auglýst
söfnun. Hún hafi þá ákveðið að
standa fyrir þessu árlega og fékk til
liðs við átakið í ár fyrirtækið Land-
flutninga, sem mun sjá um að
koma því sem safnast til Rauða
krossins. „Við ætlum að senda
dreifibréf í öll hús í sveitinni og
minna á þetta og það verður tekið
við fötum og skóm fram til laugar-
dagsins 17. desember. Við hvetjum
alla til þess að taka nú til föt og skó
sem hætt er að gegna hlutverki
sínu og koma með, gjarnan í góð-
um pokum. Það eru því miður allt
of margir sem búa við lakan kost
og þetta er nú það minnsta sem við
getum gert fyrir þá sem lítið eiga,“
sagði Kolbrún Anna að lokum.
Kollubúð er opin alla daga nema
sunnudaga frá 12-17.
MM