Skessuhorn - 07.12.2005, Page 10
10
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2005
§giSSÍ)IMMÖÍ2Ki
Ágætu Borgnesingar
og nærsveitungar!
Eins og mörg ykkar efLaust hafa tekið eftir, erum við
Kiwanismenn ekki með árlega jólapappírssölu í gangi
fyrir þessi jól.
Við viLjum þakka ykkur, ágætu nágrannar og veLunnarar,
fyrir þoLinmæði ykkar, góðar viótökur og frábæran
stuðning við starf okkar í gegnum árin.
Megið þið öll eiga góðar stundir um komandi
jól og alla framtíð.
Stjórn Kiwanisklúbbsins Smyrils í Borgarnesi
Laugardaginn 10. des. og sunnudaginn
11. des. verða flutt atríði frá
Tónlistarskólanum á Akranesi milli
kl. 14 og 15 báða dagana.
Heitt kakó og piparkökur
| f lljr . ^itíci Míídm
I velkotrimr kirkjubraut 2 • akranesi
i ' SÍMI431 1753 & 861 1599
Tilvalin jólagjöf til
starfsmanna!
Allt í einum pakka
Gjafakort MRA eru til sölu í útibúum Landsbanka Islands og
íslandsbanka á Akranesi.
Fáanleg í þremur upphæðum
kr. 2.500, 5.000, og 10.000.
Handhafar gjafakortanna geta
notað kortin hjá um
30 verslunar- og
þjónustuaðilum
á Akranesi
ÍSLANDSBANKI
Landsbankinn
Banki allra landsmanna
MARKA
V
J
Andlitslyfting Landsbankans
SfíSastliðinn fóstudag var gestum boðið aðþiggja veitingar í lítibúi Landsbankans við Suðurgötu á Akranesi. Um kaffileitið komu auk
þess nemendur úr Grundaskóla ogflutttt s&ngatriði úr leikritinu Hunangsflugum og Villiköttum. Tilefnið hátíðarhaldanna var að
búið er að breyta afgreiðslu bankans. Felst breytingin einkum í að rýmið er allt opnara en áður. Ljósm. MM
Misjamar undirtektir við niðurfell-
ingu virðisaukaskatts af veggjaldi
Undirtektir við frumvarp Magn-
úsar Þórs Hafsteinssonar um
breytingar á virðisaukaskattslögum
hafa verið misjafnar. Eins og ffam
hefur komið í Skessuhorni verður
virðisaukaskattur á veggjöldum um
Hvalfjarðargöng lagður af nái til-
laga Magnúsar Þórs ffarn að ganga.
Efnahags- og viðskiptanefnd Al-
þingis óskaði eftir umsögnum fjöl-
margra aðila og eru þær mismun-
andi, allt frá því að styðja málið til
þess að leggjast alfarið gegn frum-
varpinu eftir þeim upplýsingum
sem Skessuhorn hefur aflað sér.
I umsögn ffá Norðuráli kemur
fram stuðningur við niðurfellingu
skattsins. Segir Ragnar Guð-
mundsson framkvæmdastjóri hjá
Norðuráli að virðisaukaskattur á
notkun samgöngumannvirkja hafi
að öðru jöfnu letjandi áhrif á sam-
göngur og dragi úr samkeppnis-
færni fyrirtækja utan höfuðborgar-
svæðisins vegna hærri kostnaðar og
minni sveigjanleika í öflun vinnu-
afls. Þá rýri slík skattheimta lífs-
gæði íbúa utan höfuðborgarsvæðis-
ins því hún dragi úr möguleikum
þeirra til að nýta opinbera þjónustu
sem og þjónustu einkafyrirtækja
sem að mestu eru á höfuðborgar-
svæðinu. Slík skattheimta ýti því
undir flutning fólks úr dreifbýli í
þéttbýli.
Samtök verslunar og þjónustu
líta öðrum augum á málið. Þau
telja ekki rétt að fella niður virðis-
aukaskattinn. Hins vegar telja þau
rétt að verði neðra þrep virðisauka-
skatta lækkað fylgi skattlagning á
veggjald þeirri breytingu. Einnig
leggst Viðskiptaráð Islands alfarið
gegn málinu.
Athyglisvert er sjónarmið
Reykjavíkurborgar. An þess að
leggjast gegn frumvarpinu telur
stjórnsýslu- og starfsmannasvið
borgarinnar mun brýnna að horfið
verði frá álagningu virðisaukaskatts
á almenningssamgöngur á höfuð-
borgarsvæðinu.
Nokkurra efasemda gætir um
frumvarpið hjá nokkrum umsagn-
araðilum. Er þar bent á að verði
virðisaukaskattur felldur niður
missi Spölur ehf. þar af leiðandi
hugsanlega af heimild til frádráttar
innskatts af starfsemi fyrirtækisins.
Þetta kemur meðal annars ffam í
umsögn fyrirtækisins um tillöguna.
Þar segir að slík niðurstaða gæti
þýtt aukinn rekstrarkostnað á
þriðja tug milljóna króna. Sú upp-
hæð hækki mjög þegar að stórum
viðhaldsverkefnum eins og endur-
nýjun slitlags sem fyrirhuguð er
innan fárra ára og einnig ef ráðist
verður í hugsanlega stækktm gang-
anna eins og hugmyndir eru uppi
um. Bendir Spölur því frekar á þá
leið að lækka virðisaukaskattinn
ffekar en að leggja hann af.
Jón Rögnvaldsson vegamála-
stjóri segir í sinni umsögn að slíkar
breytingar hafi í för með sér að fyr-
irtækið verði í kjölfar niðurfelling-
ar virðisaukaskattsins að hækka
gjaldskrá sína. Faxaflóahafnir og
Akraneskaupstaður leggja áherslu á
það í sínum umsögnum að tryggt
verði að rekstrarstaða Spalar ehf.
versni ekki við niðurfellinguna.
HJ
Borgarbyggð tekur þátt í
einkahlutafélagi um reiðhöll
Bæjarráð Borgarbyggðar hefur
samþykkt að taka þátt í stofnun
einkahlutafélags um byggingu
reiðhallar í Borgarnesi. Kemur
samþykktin í kjölfar niðurstöðu
vinnuhóps er fjallaði um málið. I
hópnum sátu sex fulltrúar, þar af
tveir ffá Borgarbyggð. Hlutverk
hópsins var að skila fullmótuðum
tillögum um byggingu reiðhallar í
Borgarnesi.
í tillögu hópsins er gert ráð fyr-
ir að reiðhöllin rísi við félagssvæði
Hestamannafélagsins Faxa og að
hún verði 1.620 fermetrar að
stærð. Aætlaður kostnaður við
bygginguna er um 60 milljónir
króna auk gatnagerðar- og bygg-
ingarleyfisgjalda. Leggur hópur-
inn til að stofnað verði hlutafélag
um bygginguna og verði Skrif-
stofuþjónustu Vesturlands falið að
gera stofnsamning. Stofnaðilar
verði Borgarbyggð, hestamannafé-
lögin Skuggi og Faxi, Hrossarækt-
arsamband Vesturlands og „aðrir
þeir sem vilja leggja málefninu
lið,“ eins og segir í áliti vinnu-
hópsins. Þá leggur hópurinn
einnig til að gengið verði til samn-
inga við Límtré-Vírnet um hönn-
un, framleiðslu og uppsetningu
hússins. HJ
550 ára afmælishátíð
Afmcelisbörnin f.v.: Svavar B. Garðarsson, Sigurlína Valgeirsdóttir, Berglind Guðna-
dóttir, Jónsína Olafsdóttir, Helga Þómý Albertsdóttir, Guðríður Guðmundsdóttir, Mar-
grét Gunnarsdóttir, Guðjón S. Brjánsson, Lára Dóra Gunnarsdóttir og Rósa Mýrdal.
Ein úr hópnum, Rósa Sigurðardóttir brá sér af b<e í afmœlisferð til útlanda.
Á fullveldisdaginn, þann 1.
desmber var haldin 550 ára afmæl-
ishátið fimmtugra starfsmanna á
SHA en 11 starfsmenn fögnuðu
þessum tímamótum á árinu. Þeir
tóku höndum saman og efndu til
samsætis á fullveldisdaginn og buðu
samstarfsólki í tertuveislu af þessu
tileíni. Framkvæmdastjóri flutti há-
tíðarræðu í hófinu og drap á nokk-
ur atriði veraldarsögunnar þessi
550 ár og greindi ffá helstu fféttum
sem varðveist hafa af vettvangi ís-
lenskra þjóðmála. Þessir spræku
starfsmenn eiga bæði lengri og
styttri starfsaldur á stofhuninni en
þau affnælisbörn sem lengst hafa
unnið á SHA hófu störf um tvítugt
og hafa því alið manninn á sama
vinnustaðnum í 30 ár. Þess má geta
að í þessum ellefu manna hópi eru
9 fermingarsystkin. Hófið sám ríf-
lega 100 starfsmenn. Geta má þess
að á næsta ári er útlit fýrir að þetta
verði toppað þar sem hvorki fleiri
né færri en 16 starfsmenn SHA era
af árgangi 1956. MM