Skessuhorn - 07.12.2005, Side 12
12
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2005
aiagaaKiwaERi
Ein afkastamesta steypustöð landsins brátt tekin í notkun hjá Loftorku Borgamesi ehf.
Þreföldun á þremur árum og verkefoastaða áfram góð
Vegfarendum um Borgames sem
litið hefur verið til mannvirkja
Loftorku við Engjaás hefur mörgum
hverjum orðið starsýnt á tum einn
gríðarstóran sem risinn er við enda
verksmiðjuhúsa fyrirtækisins. Tum-
inn, sem gnæfir yfir önnur mann-
virki, hefur að geyma nýja og full-
komna steypustöð sem Loftorka
keypti ffá Ítalíu en stöðin verður
tekin í notkun um miðjan þennan
mánuð.
Andrés Konráðsson er fram-
kvæmdastjóri Loftorku Borgarnesi
ehf. Hann sagði í samtali við Skessu-
hom að hér væri um að ræða eitt
stykki steypistöð með öllu. „Þetta er
svokölluð turnstöð af nýjustu og
bestu gerð. Hún kemur ffá ítalska
fyrirtækinu Markantonini og er ör-
ugglega sú fullkomnasta hér á landi
og líklega sú afkastamesta. Neðst í
stöðinni er blandari en ofan á hon-
um er 600 rúmmetra geymslurými
fyrir möl og síló fyrir 500 tonn af
sementi. Sjálfvirknin er það mikil að
hægt er úr venjulegum GSM síma
að stýra allri ffamleiðslu. Einnig er
hægt að tengjast í gegnum netið
myndavélabúnaði og fylgjast þannig
með öllu sem ffam fer inni í stöð-
inni.“
Geta nú annað efdr-
spum 5 daga vikunnar
Andrés segir að í nýju steypustöð-
inni verði blönduð steypa fyrir alla
byggingarhluta og rör sem Loftorka
ffamleiðir auk þeirrar steypu sem
seld er út til verktaka. Afkastageta
stöðvarinnar stóreykst eftir að nýja
steypistöðin verður komin í gagnið
og af henni hlýst mikil hagræðing í
rekstri fyrirtækisins. „Við búum
alltaf við það að álagspunktar eru
Sölutímabil
5. - 19. desember
Sölustaðir:
Homé Art - Smáralind ■
Kokka - Laugavegi 47.
Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhúsinu
Villeroy & Boch búðin - Kringlunni
Valrós - Akureyri
Norska húsið - Stykkishólmi
Biáa blómið - Höfn
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Markmiðið með sölu Kærleikskúlunnar
er að auðga líf fatlaðra bama
og ungmenna óg rennur allur ágóði
' til starfs I þeirra þágu.
Útgefandi:
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
ÁN UPPHAFS - ÁN ENDIS
„Orðin visa til þess að kærleikurinn á sér hvorki upphaf’né endi.
Hann er óskilyrtur - óendanlegur - hann er.
Eins er með fossinn - hann rennur án afláts - hann er.
Fullkomin kúla hefur hvorki upphaf né endi,
á sama hátt og hnötturinn okkar, Jörðin, er ein samfelld heild.
Einn af hinum máttugu fossum landsins birtist í brothættu,
svífandi listaverkinu, sem örsmáum heimi, sem aftur kallast á við
og speglar alheim þar sem jörðin svífur um í ómælisgeimi."
Rúrí
Verið aS koma stcersta stykki nýju steypustöSvarinnar fyrir á
sökklinum. Þetta stykki eitt og sér vóg 70 tonn enda svignuSu
kranarnir viS átökin.
BúiS er aS kUSa utan á stöSina ogfellur hún þvt vel aS óSrum mann-
virkjum. Gömlu sílóin eru sem lítil peS í samanhurSi viS nýju steypi-
stöSina.
Þreföldun
á þremur árum
Þenslan í fyrirtækinu Loftorku
Borgarnesi ehf. og stækkun mann-
virkja hefur verið ævintýri líkust
síðastliðin ár. Starfsmönnum hefur
fjölgað mikið en fjöldi þeirra hefur
á stuttum tíma meira en tvöfaldast
og starfa nú hátt í 200 manns hjá
fyrirtækinu. En sér framkvæmda-
stjórinn fyrir endann á þessum
vexti? „Þegar við tökum í notkun
stækkun verksmiðjunnar hjá okkur,
vonandi í febrúar á næsta ári, þá eru
ekki fyrirhugaðar auknar fjárfest-
ingar í bráð á lóð Loftorku. Við
höfum tekið stór stökk á síðustu
árum, keyptum 8000 fermetra fyrr-
um mjólkurstöð og höfum verið að
breyta því húsi til að það henti
framleiðslunni auk þess að hafa
flutt skrifstofurnar þangað. Við
erum auk þess að stækka frarn-
leiðsluhúsnæðið á gömlu lóðinni
um 3000 fermetra. Fyrirtækið hefur
þrefaldast að stærð á þremur árum
og er nú lag að hámarka afkastagetu
miðað við það sem við höfum. Okk-
ur hefur gengið vel, erum t.d. með
um 80% markaðshlutdeild á röra-
markaðinum og verkefnastaða í
einingaverksmiðjunni er mjög góð.
Við höfum verið heppnir að ráðast í
allar þessar framkvæmdir á rétmm
augnablikum, nýtum fjárfestingar
vel og því stendur fyrirtækið ágæt-
lega. Sú staðreynd að lánastofhanir,
fjárfestar og byggingaraðilar bera
mikið traust til okkar, ásamt því að
verkeftiastaðan er góð, segir mér að
ffamtíð fyrirtækisins sé mjög björt,“
sagði Andrés Konráðsson að lokum.
MM
3. bekkur grunnskólans í Stykkishólmi meS bókag/öfina.
Sammi brunavörður í 3. bekk
I síðustu viku fengu nemendur
3. bekkjar grunnskólans í Stykkis-
hólmi heimsókn frá Lionsklúbbn-
um Hörpu í Stykkishólmi. Það var
Anna Sigríður Guðmundsdóttir,
formaður sem kom í skólann og
afhenti krökkunum að gjöf frá
Lionsklúbbnum litabók um hann
Samma brunavörð. Heimsókn
þessi var í tengslum við eldvarnar-
átak sem stendur yfir hjá Lands-
sambandi slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamanna og greint hefur
verið frá í Skessuhorni.
Þorbergur Bæringsson, slökkvi-
liðsstjóri hjá Slökkviliði Stykkis-
hólms og nágrennis, heimsótti
bekkinn einnig fyrr í vikunni og
var þar með árlega ífæðslu fyrir
þennan aldurshóp. Fræðslan sneri
að brunavörnum bæði í skóla og á
heimilum og tóku börnin þátt í
eldvarnargetraun sem dregið
verður úr eftir áramótin. MM
Þrjár listakonur sameina
krafta sína
Listakonumar fi'á vinstri; Sóla, Lína og Ólöf.
Á dögunum
opnuðu þrjár
listakonur list-
munasölu í
Gallerí Brák í
Borgamesi. Það
em þær Snjó-
laug Guð-
mundsdóttir,
Ólöf Davíðs-
dóttir og TVtna
Sigurlína sem
tekið hafa
höndum saman
og bjóða list-
muni sína til
sölu á aðvent-
unni. Kennir
þar án efa
margra fallegra grasa sem glatt
geta landsins lýð. Um leið og gest-
ir velja listmuni tdl kaups geta þeir
glatt bragðlaukana með kaffi og
piparkökum. Listmunasala lista-
kvennanna verður opin í Gallerí
Brák, Brákarbraut 13 í Borgamesi
alla daga til jóla ffá kl. 14-19. HJ
miklir á ákveðnum tímum sólar-
hringsins og því höfirm við orðið að
ffamleiða verulegt magn af steypu
um helgar. Effirspumin efdr steypu
bæði í byggingahluta sem við ffam-
leiðum og seldri steypu hefur aukist
veralega. Við höfum t.d. ekld náð að
ffamleiða stöðugt í röraverksmiðj-
unni vegna steypuskorts en á því
verður nú breyting. Á síðasta ári vor-
um við að ffamleiða um 20 þúsund
rúmmetra af steypu en á þessu ári
verður magnið tvöfalt meira og á lík-
lega enn eftir að aukast. Við von-
umst til að með aukinni afkastagetu
getum við einnig dregið verulega úr
vinnu um helgar og þannig náð að
spara í rekstrarkostnaði og vinnuá-
lagi og þannig hagrætt til að mæta
þessum mikla stofnkostnaði, en nýja
steypistöðin kostar hingað komin og
uppsett á milli 150 og 200 milljónir
króna. Þessi stöð getur afkastað
a.m.k 180 rúmmetmm af blaut-
steypu á klukkustund og því sýnist
okkur að við getum annað allri eftir-
spum eftir steypu 5 daga vikunnar
en það var ekki hægt áður. Spamað-
ur okkar af að þurfa ekki að steypa
um helgar getur legið á um 30 millj-
ónir á ári en sá spamaður einn og sér
réttlætdr fjárfestinguna og vel það,“
segir Andrés.
En er ekki talsverð sérþekking fal-
in í að stýra svo afkastamikilli og
tæknilegri steypistöð? „Við höfum
verið afskaplega heppnir með mann-
skap. T.d. kræktum við í góðan
mann þegar við fengum Steinar
Ragnarsson til að verða steypustöðv-
arstjóra. Hann hefur góða innsýn í
tölvustýringar og vanur rekstri þó á
öðm sviði sé. Þá höfum við hjá okk-
ur sérmenntaðan doktor í stein-
steypu, Jón Axel Jónsson og kemur
það sér mjög vel fyrir okkur að hafa
mann með svo mikla sérhæfingu í
öllu sem viðkemur steypu og eigin-
leikum hennar, en steypa er jú hjart-
að í fyrirtæki okkar.