Skessuhorn - 07.12.2005, Blaðsíða 14
14
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2005
^&tðsunu..
Leynivinayika
Leynivinavika var haldin nú á
dögunum í Grunnskólanum í Borg-
amesi með góðum árangri og frá-
bærri þátttöku. Lidum gjöfum, orð-
sendingum og skilaboðum var kom-
ið manna á milh og tók allt starfsfólk
skólans þátt í leynimakkinu. Svo var
haldinn fagnaður þar sem leynivin-
irnir vora afhjúpaðir og urðu marg-
ir undrandi þegar samsæriskenning-
ar þeirra brustu og einhver allt ann-
ar reyndist leynivinurinn. Svo voru
nokkur skemmtíatriði eins og sjá má
á meðfylgjandi mynd af kennurum
skólans í blöðrublásturskeppni.
HSS
Arangurslausum fjár-
námum ungs fólks fjölgar
í svari dómsmálaráðherra á Al-
þingi við fyrirspurn Valdimars Leó
Friðrikssonar, þingmanns Samfylk-
ingarinnar um árangurslaus íjár-
nám hjá ungu fólki kom m.a. fram
að árangurslausum fjárnámum hjá
fólki yngra en 30 ára hefur fjölgað
um tæp 30% á árunum 2001 til
2005. Arið 2001 voru árangurslaus
fjárnám 864 talsins hjá aldurshópn-
um 15 til 30 ára og hefur þeim
fjölgað jafnt og þétt síðan, voru
árið 2004 1234 talsins og 1106
ffarn til nóvember á þessu ári. Af
þessu má sjá að alltof margt ungt
fólk gætir ekki hófs í fjárfestingum
m.t.t. greiðslugetu, en geta skal
þess að árangurslaust fjárnám eru
oft vegna tiltölulegra lágra upp-
hæða og nægir að nefna nýlegar
fréttir um slíkt vegna óhóflegrar
símanotkunar. MM
Störf á Bifröst
Daggæsla:
Tvo a5ila vantar til að taka að sér daggæslu á Bifröst fyrir
börn undir leikskólaaldri frá næstu áramótum. Húsnæði ertil
staðar fyrir starfsemina.
Öryggisvörður:
Viðskiptaháskólinn og Nemendagarðar á Bifröst óska eftir
aðila til að taka að sér næturvörslu á Bifröst frá næstu
áramótum.
Vefsmíði og notendaþjónusta:
Viðskiptaháskólinn á Bifröst óskar eftir starfsmanni til að vinna
við heimasíðu skólans og tölvuþjónustu.
Nánari upplýsingar veita Þórir Páll Guðjónsson
og Stefán Kalmansson í síma 433-3000.
Umsóknir skal senda Viðskiptaháskólanum á Bifröst,
311 Borgarnes.
VIÐSKIPTAHÁSKÓLINN
BIFRÖST
Litla stúlkan með eldspýtumar
Hið klassíska verk H.C. Ander-
sen, Litia stúlkan með eldspýturn-
ar, var frumsýnt nú á dögunum í
Tónlistarskóla Borgarfjarðar í
Borgarnesi við mikinn fögnuð við-
staddra. Verkið var valið af því til-
efhi að 200 ár voru liðin frá fæð-
ingu ævintýrasöguritarans. Fullt
hús var á ffumsýningu og gerður
var góður rómur að leik, söng og
hljóðfæraleik krakkanna sem tóku
þátt í sýningunni. Aðalhlutverkin
eru í höndum Láru Maríu Karls-
dóttur, nemanda í Grunnskólanum
í Borgarnesi og Þorgerðar Olafs-
dóttur, nemanda í Varmalands-
skóla. Tónlistar- og leikstjórn var í
höndum Theodóru Þorsteinsdótt-
ur og píanóleik annaðist Jónína
Erna Amardóttir.
HSS
Þórðar minnst á aldarafinælinu
Þann 25. nóvember
sl. minntust vinir og
sveitungar Þórðar
Halldórssonar frá Dag-
verðará þess, að 100 ár
voru liðin frá fæðingu
hans. Þórður sem náði
háum aldri, var um
margt óvenjulegur
maður - einstakur
sagnamaður, málari og
skáld, þjóðfræg refa-
skytta og veiðimaður,
frumkvöðull í heilsu-
rækt og margreyndur í
ýmsum mannraunum.
Hann var sérstakur áhugamaður
um heilsugildi ölkelduvatns, sem
víða finnst á Snæfellsnesi og því
þótti við hæfi á afmælisdaginn að
halda sérstakt málþing um ölkeld-
ur og heilsulindir á Snæfellsnesi.
Voru það Hollvinasamtök Þórðar,
sem stofnuð voru 5. mars sl. sem
stóðu að þessu málþingi, sem hald-
ið var að Lýsuhóli í Staðarsveit í
Snæfellsbæ undir stjórn Ragnhild-
ar Sigurðardóttir á Áltavatni.
Þau sem fluttu erindi á málþing-
inu voru: Guðmundur Omar Frið-
leifsson jarðfræðingur, Jón Þor-
steinsson gigtarlæknir, Guðmund-
ur Björnsson endurhæfingarlækn-
ir, Haukur Þórðarson kennari og
Anna G. Sverrisdóttir fram-
kvæmdastjóri Bláa lónsins. Auk
þeirra tóku þeir: Kristinn Jónasson
bæjarstjóri og Friðrik Friðriksson
verkfræðingur hjá Hitaveitu Suð-
urnesja þátt í pallborðsumræðum á
eftir.
í umræðunum var sjónum sér-
staklega beint að Lýsuhóli, þar
sem heitt ölkelduvatn streymir
upp úr jörðinni. Voru frummæl-
endur og fundarmenn sammála
um að þar væru um margt einstæð-
ir möguleikar á uppbyggingu fjöl-
þættrar heilsulindar með áherslu á
sérstöðu og heilsugildi ölkeldu-
vatnsins. Til að svo mætti verða
þyrfti nánari rannnsóknir og bor-
anir eftir heitu vatni og vekja
þyrfti áhuga fjársterkra aðila á
möguleikum fjölbreyttrar heilsu-
lindar á Snæfellsnesi. Heilsulindir
sem nýta sér ölkelduvatn eru
þekktar víða í Mið-Evrópu og hafa
notið mikilla vinsælda í hundruð
ára.
Reyndar voru uppi stórhuga
áform um nýtingu ölkelduvatnsins
á Snæfellsnesi fyrir um 100 árum,
en ekkert varð úr þeim og útflun-
ingur ölkelduvatns rann út í sand-
inn. Kannski er nú rétti tíminn
runninn upp?
Ferðamönnum fjölgar mjög ört
á Snæfellsnesi og nefna má sem
dæmi að á Djúpalónssand einan
koma um 60 þúsund manns á ári.
Rekstrarmöguleikar heilsulinda að
Lýsuhóli og víðar á Snæfellsnesi
ættu því að vera góðir, sé horft til
reynslunnar ffá Bláa lóninu, Mý-
vatnssveit og víðar.
Um kvöldið þann 25. nóv. sl. var
svo haldin afmælisfagnaður að
Lýsuhóli, Þórði til heiðurs og
reyndar var gamli maðurinn sem
lést fyrir rúmum 2 árum, aðal
skemmtikrafturinn, en sýndar voru
gamlar upptökur með sagnamann-
inum, sem sýndi þar sínar bestu
hliðar. Þá tróðu upp listamenn úr
hópi heimamanna og fluttu ljóð
Þórðar með nýstárlegum hætti við
frábærar undirtektir. Þjóðsagna-
persónan Þórður frá Dagverðará
lifir enn góðu lífi á Snæfellsnesi.
Hollvinasamtök
Þórðarfrá Dagverðará
CBóÁasafn JÍf raness
Heiöarbraut 40 • s. 433 1200
Lesid verður úr nýjum íslenskum
frá Eddu og Uppheimum
laugardaginn 10. des. kl. 13.30 -14.30
Hreinn Vilhjálmsson - Bæjarins verstu
Reynir Traustason - Skuggaböm
Guðjón Friðriksson - Ég elska þig stormur
Marta María Jónsdóttir - Djöflatertan
Ari Trausti Guðmundsson - Leiðin að heiman
Verið velkomin í bókasafnið
Kaffi og smákökur
Bókasafn Akraness - Penninn bókabúð
Edda forlag - Uppheimar
Akratorg
- kynning d niðurstöðu úr samkeppni
Akraneskaupstaður
Nú liggur fyrir niðurstaða í skipulagssamkeppni
sem efnt var til um framtíðarskipulag Akratorgs
og næsta nágrennis. Sjö tillögur bárust og hefur
verið opnuð sýning á keppnistillögunum í
Safnaskálanum að Görðum.
Sýningin verður opin fram að jólum og
eru bæjarbúar eindregið hvattir til að
kynna sér tillögurnar.
Sviðsstjóri tœkni- og umhverfissviðs