Skessuhorn - 07.12.2005, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2005
áttiaaunui.
22
Kröftugt starf
Kirlqukórs Akranes
Idrkju á aðventu
Starfsemi Kirkjukórs Akraness er
með miklum blóma um þessar
mundir. I honum eru starfandi 40
félagar á öllum aldri. Æfingar
hófust af krafti í lok september og
21. október var haldið mjög fjölsótt
skemmtikvöld sem tókst í alla staði
mjög vel.
Nú fer í hönd annasamur en
skemmtilegur tími hjá kómum. 11.
desember verða haldnir jólatón-
leikar í Safnaðarheimilinu Vina-
minni. Mikið hefur verið lagt í
jólatónleika síðastliðin ár og verður
engin breyting þar á að þessu sinni.
Tónleikarnir í ár verða með léttu
sniði, ef svo má að orði komast.
Þar verða flutt þekkt og óþekkt ís-
lensk og erlend jólalög í nýjum og
ferskum búningi. Með kórnum
mun leika fjögurra manna „popp-
band“ undir stjórn Arnar Arnar-
sonar tónlistarstjóra Fríkirkjunnar í
Hafharfirði. Kórar Akraneskirkju
og Fríkirkjunnar hafa verið í sam-
starfi og fáum við lánaða hljómsveit
þeirra Hafnfirðinga. Utseming-
arnar eru fjölbreyttar, bæði hefð-
bundnar og djasskenndar. Þar hafa
lagt okkur lið þeir Gunnar Gunn-
arsson, Hjörtur Steinbergsson og
Skarphéðinn Hjartarson, en hann
hefur útsett syrpu sérstaklega fyrir
kórinn. Einnig verður flutt nýlegt
lag Omars Ragnarssonar við ljóð
Gísla frá Uppsölum.
Einsöngvarar verða úr röðum
kórfélaga og er ffábært að geta nýtt
sér það því kórinn er vissulega auð-
ugur af góðu söngfólki.
A þessari upptalningu má því sjá,
að kórfélagar sitja ekki auðum
höndum og framundan er anna-
samur tími eins og áður er getið.
Jólin ffamundan og þar mun mikið
mæða á kórnum. Kórfélagar vinna
mjög fórnfúst og mikilvægt starf
við Akraneskirkju en um leið gef-
andi og skemmtilegt.
Eins og áður segir verða jólatón-
leikar kirkjukórsins haldnir í Vina-
minni sunnudaginn 11. desember
og hefjast þeir kl. 20.
('fréttatilkynning)
Hljómdiskurinn Handan við
Oldð kominn út
Myndin var tekin að loknum tónleikum í Reykholtskirkju 29. maí 2004. Hópur tónlist-
arfólksfrá Trengereit musiklag í Bergen í Noregi tók þátt í tónleikunum og er með á
myndinni.
Upp úr 1980 hófst samstarf
kirkjukóra Reykholts- og Hvann-
eyrarkirkna. Leiddi það til samein-
ingar kóranna í söng við hátíðarat-
hafnir t.d. við lagningu hornsteins
og vígslu Reykholtskirkju og
Snorrastofu, 100 ára afmæli
Hvanneyrarskóla o.fl. Sameinaðir
hafa kórarnir átt samstarf við aðra
kóra innan héraðs og utan og tekið
þátt í fjölda tónleika. Auk þess hafa
þeir haff gagnkvæman stuðning við
jarðarfarir og minni athafnir eftir
atvikum. Eftir því hefúr verið tekið
að samhljómur þessa kórs er góður;
agaður og hljómfagur söngur.
Nú hafa sameinaðir kirkjukórar
þessara tveggja kirkna í uppsveitum
Borgarfjarðar gefið út hljómdiskinn
„Handan við Okið“ sem hefur að
geyma 18 lög ffá söngstarfinu ára-
bilið 1980 til 2005. Stjórnandi er
Bjarni Guðráðsson í Nesi, undir-
leikur ýmist á píanó og orgel var í
höndum Viðars Guðmundssonar
og einsöng syngja þau Asdís Har-
aldsdóttir, Dagný Sigurðardóttir,
Snorri Hjálmarsson og Þorvaldur
Jónsson. Upptakan var gerð í Reyk-
holtskirkju síðastliðinn vemr. Líkt
og svo margt annað gott starf á
menningarsviðinu styrkti Spari-
sjóður Mýrasýslu útgáfúna.
MM
Vmningshafar á Degi íslenskrar tungu
Dagur íslenskrar tungu var hald-
inn hátíðlegur 16. nóvember sl. á
fæðingardegi Jónasar Hallgrímsson-
ar. A myndinni má sjá vinningshafa í
smásagna- og ljóðasamkeppni
Grunnskólans í Borgamesi. Skrif-
uðu nemendur á unglingastigi smá-
sögu eða ljóð undir yfirskriftinni
„Tungumál“ með sinni eigin sýn og
túlkun á því hugtaki. Utkoman varð
mjög góð og var hátíðardagskrá í
kirkjvmni af þessu tilefúi þar sem
skemmtiatriði vom flutt ásamt því
sem vinningshöfum vom veitt verð-
laun og las m.a. Guðrún Ingadóttir,
nemandi í 8. bekk hið klassíska ljóð einmitt vinningshafi í Stóm upp-
Jónasar „Alsnjóa" en Guðrún var lestrarkeppninni í fýrra. HSS
Bráðum koma blessuð jólin...
KERTAÓRÓINN
=r »4, s*i " \\ u*
LITLU ÓRÓARNIR
HURÐARKRANS
AÐVcNTUKRANS
MSKV - I I: í
JÓLATRÉSTOPPAR
MODEL
AKRANESI
Stillholt 16-18 sími: 4313333/tölvupóstur: modcl ak'a sirnnet. is
1
11 K
JÓLAKÚLUR
VI JJI V, \ •-
ÓRÓINN 2005
JOLATRESFÓTUR
KERTASTJAKAR