Skessuhorn - 07.12.2005, Qupperneq 23
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2005
23
Aðstaða hestamannafélags-
ins Faxa flutt að Miófossum
Frá úrtökumóti Faxa á Miðfossum fyrir Fjórðungsmót sl. sumar.
Aðalfundur hestamannafélags-
ins Faxa í Borgarfirði fór fram í lið-
inni viku. Á fundinum var stjórn
félagsins veitt umboð til að selja
eignir þess á Faxaborg en þar
hefur keppnishald farið fram í
meira en hálfa öld, þar er völlur,
veitingaskúr, yfirbyggður dans-
pallur, hreinlætisaðstaða og hest-
hús sem að vísu er farið að láta á
sjá. Þó svo aðstaðan til keppnis-
og sýningarhalds hafi verið góð á
árum áður er óhætt að segja að
með hliðsjón af keppnisvöllum í
dag sé aðstaðan þar í dag fremur
léleg. Faxi gerði fyrst samning um
landleigu á bökkum Hvítár fyrir 55
árum síðan, þá til 50 ára en fyrir 5
árum síðan var samningurinn
endurnýjaður og rennur hann út
um næstu áramót.
Ástæða þess að félagið hyggst
nú draga úr eða hætta starfsemi á
Faxaborg er sú að nú er risin á
Miðfossum í Andakíl hestamið-
stöð með ágætri sýningar- og
keppnisaðstöðu. Þessi aðstaða
stendur Faxamönnum nú til boða.
Gunnar Örn Guðmundsson, er
formaður Faxa. Hann sagði í
samtali við Skessuhorn að félags-
fundur í Faxa sl. þriðudag hafi
veitt stjórninni heimild til að reyna
að selja eignirnar á Faxaborg og
ef ekki semdist um sölu mætti
grípa til annnarra ráðstafana. „Við
höfum einnig umboð félags-
manna til að semja við Ingimund
hf., eiganda Miðfossa þar sem
byggð hefur upp stórglæsiieg að-
staða fyrir hross og sýningarhald
auk ágætrar félagsaöstöðu. Vilji
Ármanns Ármannssonar er að fá
Faxafólk til starfa á Miðfossum og
skapa félaginu góða aðstöðu þar
til framtíðar. Þarna er nýr 300
metra hringvöllur og sérstök
skeiðbraut sem hægt er að nota
tii kynbótasýninga, ágæt stæði
fyrir bíla á áhorfendasvæði og 40
hesta hús ásamt reiðskemmu.
Þannig má segja að aðstaðan á
Miðfossum geti vart gerst betri og
því er það mikill fengur fyrir
hestamannafélagið að fá þarna
aðstöðu fyrir okkar starfsemi sem
að mestu fer fram á sumrin; nokk-
ur mót, sýningar og námskeið,"
sagði Gunnar.
Þess má geta að það eru fleiri
sem líta hýru auga til aðstöðunn-
ar á Miðfossum. Samkvæmt
heimildum Skessuhorns standa
nú yfir viðræður milli Landbúnað-
arháskólans og Ingimundar hf.
um afnot aðstöðunnar yfir vetrar-
tímann, eða þegar nemendur eru
við nám á Hvanneyri.
Hestamannafélagið Faxi er
auk þess í samstarfi við Skugga,
Borgarbyggð og Hrossaræktar-
samband Vesturlands um að-
komu að byggingu reiðhallar í
Borgarnesi. Undirbúningur að
þeirri framkvæmd hefur staðið
yfir um nokkurt skeið og gætu
framkvæmdir farið af stað á
næsta ári ef og þegar fjármögn-
un lýkur.
Samkvæmt þessu er Ijóst að
mikilla breytinga er að vænta til
hins betra hjá félagsmönnum
hestamannafélagsins Faxa.
Starfsemi félagsins er býsna
kröftug, félagsmenn vel á þriðja
hundrað og hefur góður árangur
yngri félagsmanna í Faxa vakið
athygli út fyrir raðir félagsmanna
og nægir að nefna Fjórðungs-
mótið á Kaldármelum sl. sumar
þar sem unga fólkið í Faxa rað-
aði sér í mörg verðlaunasæti.
MM
Naumur sigur Snæfells á
nágrönnum úr Borgarnesi
Á fimmtudag fór fram nágranna-
leikur í meistarflokknum í körfu-
bolta á milli Snæfells og Skalla-
gríms. Fór leikurinn fram í þrótta-
miðstöðinni í Stykkishólmi. Skalla-
grímur byrjaði betur og náði góðri
forystu, en í öðrum leikhluta tókst
Snæfelli að saxa á forystu þeirra
þegar þeir skoruðu 26 stig á móti
14 stigum Skallagríms. í hálfleik
var staðan 41 -39, Snæfelli í vil.
Eftir hlé var þetta alvöru barátta
og liðin skiptust á um að taka for-
ystu. Skallagrímur náði svo að
taka gott forskot og virtist allt
stefna í sigur þeirra, en Snæfells-
menn gáfust ekki upp og þegar
innan við 10 sekúntur voru eftir af
leiknum, í stöðunni 74-72, tók Jón
Ólafur Jónsson 3ja stiga skot,
boltinn rataði ofaní og tryggði
Snæfelli þar með nauman sigur;
75:74.
Stigahæstir hjá Snæfelli voru
Nate Brown með 21 stig, Igor Belj-
anski 19 og Jón Ólafur Jónsson
17. Hjá Skallagrími var Jovan
Zdraveski með flest stig eða 21,
Þétur M. Sigurðsson 19 og Dimit-
ar Karadzovski 13.
DSH
Fræddust um fólk og fomsögur
I síðustu viku lögðu þrjár ungar
stúlkur, þær Unnur, Asdís Elísabet
og Iðunn, upp í söguferð um heim-
slóðir sínar á sunnanverðu Snæ-
fellsnesi. Með þeim í för var kenn-
ari þeirra úr Lýsuhólsskóla hún
Rósa Erlendsdóttir sem fræddi
stúlkurnar um staðarheiti, merki-
legt fólk frá íyrri tíð og leiddi þær í
gegnum erfiða orðaþraut. Veðrið
var með besta móti og sólarupprás-
in skartaði sínu fegursta þegar tek-
in var mynd af stúlkunum við skilti
sveitafélagsins.
Mynd: Rósa
Nýjar
§yk ’V J J vörur
Veríð velkomin!
/Mtíth'n KJRKJUBRAUT 2 • AKRANESI SÍMI431 1753 & 861 1599
Þökkum
Akurnesingum
sem og
Vestlendingum
ölium frábærar
móttökur við opnun
á nýrri verslun okkar
Höfum bætt við mikið af
nýjum vörum
Verið velkomin!
qalleri ozone
| Akranesi
borgorsport
hyrnutorgi borgornesi - siml 437 1707