Skessuhorn


Skessuhorn - 10.05.2006, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 10.05.2006, Blaðsíða 9
„.Ltsau'HöBKI MIÐVIKUDAGUR 10. MAI 2006 9 Elsti pilturinn íBúöardal, Lárus Gunnólfsson ogyngsta stúlkan, Iris D. Brynjólfsdóttir klipptu á borða vió vtgsluna. Nýir sparkvellir vígðir á Vesturlandi Tveir nýir sparkvellir voru vígðir í landshlutanum sl. föstudag, í Stykkishólmi og í Búðardal. Klukk- an 11 var haldin opnunarhátíð sparkvallar KSI í Stykkishólmi. Þar mætti Eyjólfur Sverrisson ffá KSI og vígði sparkvöllinn formlega. UEFA og styktaraðilar gáfu skólan- um og Snæfelli bolta og ffam fór knattspyrnuleikur yngri flokka. Síðar um dagirm fóru Eyjólfur og fylgdarlið í Búðardal og vígðu nýja völlinn þar. Þar afhenti hann fót- bolta. Koma Eyjólfs vakti mikla hrifningu barnanna á báðum þess- um stöðum enda var hann dugleg- ur að gefa eiginhandaráritanir á skó og miða. Fjórar umsóknir samþykktar Knattspyrnusamband Islands hefur samþykkt að á þessu ári og því næsta verði fjórum sparkvöllum með gervigrasi til viðbótar komið upp á Vesturlandi. Þeim verður komið upp í Borgarbyggð, Borgar- fjarðarsveit og Snæfellsbæ. Auk þess var samþykkt sameiginleg um- sókn ffá Kolbeinsstaðahreppi og Eyja- og Miklaholtshreppi. Þegar hafa átta sparkvellir verið settir upp í þessu sparkvallaátaki sambands- ins. Þá má nefna að einnig hefur KSI samþykkt að einum velli verði komið upp á Reykhólum. MM/HJ /Ljósm. HHA Eyjólfur umkringdur áödáendum úr Dölum. SKULAGATA 23, Borgarnesi íbúð á 1. hæð í þríbýlishúsi, 99,8 ferm. Forstofa flísalögð. Borðstofa, stofa og tvö herbergi parketlagt. Eldhús parketlagt, nýleg viðarinnrétting. Baðherbergi allt flísalagt, nýleg ljós viðarinnrétting. íbúðin var mikið endumýjuð 1998 m.a. öll j gólfefni, hurðir, skápar og innréttingar. Allt mjög vandað og I íbúðin því glæsileg. Góð staðsetning m.a. stutt í skóla og íþróttamannvirki. Frábært útsýni. Verð: 22.000.000 Allar nánari upplýsingar á skrifsíofu Ingi Tryggvason hdl. - löggiltur fasteigna- og skipasali Borgarbraut 61,310 Borgarnes, s. 437 1700, 860 2181 - fax 437 1017, netfang: lit@simnet.is - veffang: lit.is J GIRÐINGAR- SFNI Fóður - Áburður - Sóðvörur - Plast Verkfæri - Varahlutir - Mólning BÚREKSTRARDEILD BORGARNESI Egilsholt 1 - 310 Borgarnes - Afgreiðsla símí; 430-5505 - Fax: 430-5501 Opíó frá kl. 8-12 og 13-18 alla vírka daga Opinn kynningarfundur í tengslum við undirbúning að Vaxtarsamningi Vesturlands Vaxtarsamningar, alþjóðavæðing, klasar og samkeppnishæfni Ifor Flowcs-Williams, forstjóri Cluster Navigaor og alþjóðlegur ráðgjafi, mun halda fyrirlestur um alþjóðavæðingu, samkeppnishæfni og klasa. Ifor mun fjalla um alþjóðleg verkefni á sviði klasa og hvernig einstaklingar, íslenskt atvinnulíf og opinberir aðilar geta nýtt sér alþjóðlegar nýjungar og áherslur á þessu sviði. Ifor hefur unnið fyrir fjölda landa, OECD, Alþjóðabankann o.fl. Fundurinn er hluti af stefnumótun stjórnvalda og iðnaðar- og viðskiptaráðherra Valgerðar Sverrisdóttur um eflingu byggðakjarna og vaxtarsvæða, m.a. með uppbyggingu vaxtarsamninga er stuðla eiga að aukinni samkeppnishæfni og vexti atvinnulífs og svæða. Fundurinn verður haldinn á Akranesi föstudaginn 12. maí, kl. 11.00-12.30 í Garðakaffi, Byggðasafninu á Görðum. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, Undirbúningsnefnd Vaxtarsamnings Vesturlands, SSV-atvinnuþróun og ráðgjöf. Gjaldfrjáls leikskóli í áföngum frá 18 mánaða aldri! Jónsson, bæjarstjóri framkvæmdastjóri verstunarmaður viðskiptafræðingur FramSÓknarflokkurinn á AkfaneSÍ

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.