Skessuhorn


Skessuhorn - 10.05.2006, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 10.05.2006, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 2006 agBssgmigsBH Endumýjar tímatökubúnað AKRANES: Bæjarráð Akraness hefur samþykkt að veita Sund- félagi Akraness 190 þúsund króna styrk til endurbóta á tímatökubúnaði félagsins. Um er að ræða kaup á snúrum milli snertifleka og hnappa við brautir. Búnaður þessi nýtist við sundmót og er búnaðurinn miðaður við sex brautir. -hj Skemmdu bíla AKRANES: Tveir drengir tóku sig til sl. fimmtudag þegar þeir voru á leið heim úr skóla á Akranesi að rispa bíla sem þeir gengu framhjá með steinum. Talvert tjón varð á að minnsta kosti 10 bflum vegna þessa og hugsanlega hafa fleiri bflar ver- ið skemmdir, en það ekki til- kynnt lögreglu. -mm Tuttugu óskilahjól AKRANES: Mikið er nú af óskila reiðhjólum í geymslum lögreglunnar á Akranesi. Frá áramótum hefur verið komið með um 20 hjól og eru þó nokkur þeirra eigulegustu grip- ir sem einhver hlýtur að sakna. Er fólk sem tapað hefur reið- hjólum sínum hvatt til þess að koma á lögreglustöðina til þess að kanna hvort hjól þeirra leyn- ist þar. -mm Dona Nobis - Gef oss firið REYKHOLT: Laugardaginn 13. maí munu Gospelsystur Reykjavíkur og Freyjukórinn í Borgarfirði halda tónleika í Reykholtskirkju. Það eru þær Margrét J. Pálmadóttir og Zsuzsanna Budai sem stjórna kórsöngnum en nokkur sam- vinna hefur verið milli þessara kóra síðustu árin. Tónleikarnir munu einkennast af trúartónlist frá mismunandi tímum og landshomum. A tónleikunum verða geisladiskar kóranna til sölu. Gospelsystur hafa, m.a. gefið út diskinn „Undir norð- urljósum“ og Freyjukórinn mun leggja fram volgan disk, „Birting" sem tekinn var upp nú í marsmánuði. Tónleikarnir hefjast kl. 17. -mm Dæmdur fyrir náttúruspjöll DÓMUR: Héraðsdómur Vest- urlands hefúr dæmt mann til greiðslu 25 þúsund króna sekt- ar fyrir brot á lögum um nátt- úruvernd. Var honum gefið að sök að hafa fyrir um ári síðan ekið torfæruhjóli á nokkur hundrað metra kafla utan vegar í suðurhlíð Seljafells í Helga- fellssveit og niður hlíðina að vestanverðu. Hjólför mynduð- ust í hraunmölina sem er lítil- lega gróinn mosi og gras. Akærði mætti ekki fyrir dóm og mat dómurinn það svo að skoða mætti fjarveru hans sem játn- ingu. Greiði maðurinn ekki sektina innan fjögurra vikna þarf hann að sitja tvo daga í fangelsi. -hj Nýr veitingastaður við Gilið í Ólafsvík Nýr veitingastaður er nú að rísa í Ólafsvík. Hann verður byggður úr finnskum bjálkum og stendur á lóð gamla Félagsheimihsins við GiUð. Húsið er aUs 227 fm á tveimur hæð- tm en að grunnfleti er það 132 fm. Eigandi veitingastaðarins er Arni Guðjón Aðalsteinsson úr Ólafsvík en hann hefur verið sjómaður tmd- anfarin ár. Samkvæmt upplýsingum Arna er ætlunin að opna húsið að hluta fyrir Færeysku dagana sem verða fyrstu helgina í júlí. Ekki er að efa að Snæfellsbæingar og gestir þeirra taki þessum nýja veitdngastað opnum örmun á þessum skemmti- lega stað en mörgum fannst skarð fyrir skildi þegar gamla Félags- heimihð var rifið árið 1988. PSJ Mesti annatíma sauðíjárbænda hafinn Hr'önn og Hulda heimasœtumar á Kópareykjum. Sauðburður er nú hafinn hjá bændum vítt og breitt um Vestur- land. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn á einn fjármargan bæ, Kópareyki í Reykholtsdal, sl. laugardag og fékk að skyggnast inn í líf og störf bændanna þar. Sigríð- ur Harðardóttir, húsffeyja og bóndi tók á móti blaðamanni með bros á vör og ilmandi kaffi og upphófust umræður um sauðfjárrækt og sauð- burðinn, þá miklu törn sem nú fer í hönd hjá sauðfjárbændum. Um 60 ær voru bornar á bænum og sagði Sigríður að það sem af væri sauð- burði hafi allt gengið vel. Örlítið hlé var á burði en sæddu ærnar væru flestar bornar og innan fárra daga áttu þær ær sem höfðu fengið fang með hefðbundnari leiðum, að fara að bera. Um fjögur hrmdruð vetrarfóðraðar ær eru á bænum. Heimasætunum á Kópareykjum, þeim Hrönn og Huldu, þótti lítið mál að stilla sér upp fyrir ljósmynd- ara og þegar myndatöku lauk þeystu þær á harðaspretti, berbakt á fákum sínum út í vorið. SO Raftasýning í Borgamesi Sólin skein og vor var í lofti síð- astliðinn laugardag í Borgarnesi. A bifhjólasýningu Raftanna, Bif- hjólafélags Borgarfjarðar, var margt um manninn og fjöldi fólks gerði sér ferð í Borgarnes til að sjá glæsifáka sem þar voru til sýnis. Sýningin fór ffarn í íþróttamið- stöðinni í Borgarnesi og lék veðrið við heimamenn og gesti. Fjöldinn allur af mótorhjólaköppum mættu á hjólum sínum og var þeim öllum raðað upp úti við íþróttamiðstöð- ina og barði fólk þau þar augum. SO Aöeins að grípa í tryllitœkið. Mikið var afkrómi, glans og leðri í Borgamesi á sýningunni. Ný nautastöð BI Iíklega á Hvanneyri Hugmyndir um nýja nautastöð BI voru kynntar á Búnaðarþingi, á aðalfundi LK og nú síðast á árs- fundi fagráðs í nautgriparækt. Upphaflegar hugmyndir snerust um að einungis ætti að endurnýja kálfauppeldisstöðina í Þorleifskoti, en eftir því sem málið var skoðað lengur varð undirbúningshópun- um ljóst að hentugast væri að end- urnýja einnig nautastöðina. „End- anleg ákvörðun um staðsetningu liggur ekki fyrir, en mestar líkur eru á að stöðin rísi í nágrenni Hvanneyrar,“ segir í nýju frétta- bréfi Búnaðarsamtaka Vesturlands. MM Bátahús yfir kútter Sigurfara AKRANES: Sú hugmynd er komin í umræðuna að byggja bátahús yfir kútter Sigurfara sem stendur við Byggðasafhið á Görðum. Erlendir sérfræðingar telja að verja verði bátinn fyrir ffekari skemmdum og yfirbygg- ing sé í raun það eina sem geti bjargað skipinu ffá eyðileggingu. Sigurfari hefúr verið mikið end- urbættur á liðnum árum en er samt kominn á þann stað í tilver- unni að ekki er hægt að gera mik- ið meira við hann að sögn Jóns Allanssonar forstöðumanns Byggðasafns Akraness og nær- sveita. -so Heitir dagar HÚSAFELL: Mikill hiti var í gær og í fyrradag í Húsafelli en í gær komst hitirm í um 20 gráður kl. 15. Þegar Skessuhorn hafði samband við Bergþór Kristleifs- son, ffamkvæmdastjóra í Húsa- felli, sagði hann hitamæli sinn sína 21 gráðu. Er það nokkru hærri hiti en menn eiga að venj- ast á þessum árstíma þar effa. Vetraropnunartími er ennþá í gildi í Húsafelli og eru sundlaug og þjónustumiðstöð því aðeins opin um helgar. Bergþór segir stefht að því að hafa opið alla daga efrir 20. maí. Þá er stefiit að því að opna tjaldsvæðið í Húsa- felli um mánaðamótin. -so Miklum verð- mætum stofið REYKHÓLAHREPPUR: Miklum verðmætum var stohð þegar brotist var inn í sumarbú- stað á Eyri í Kollafirði í Reyk- hólahreppi fyrir skömmu. Að sögn Jónasar Sigurðssonar aðal- varðstjóra lögreglunnar á Pat- reksfirði varð innbrotsins vart þann 27. aprfl. Síðast var dvalið í bústaðnum um páskana þannig að innbrotið hefur verið ffamið á tímabilinu ffá 17.-27. apríl. Jónas segir ljóst af því sem þjófamir höfðu á brott með sér að þeir hafi ekki verið á fólksbfl. Hann segir hluta af því sem stolið var hafa mjög mikið tilfinningalegt gildi fyrir eigendur auk þess sem verð- mætið í krónum tahð hlaupi ef- laust á milljónum króna. Þjófam- ir unnu einnig nokkrar skemmd- ir á bústaðnum. Þeir sem orðið hafa varir við óvenjulegar mannaferðir í grennd við Eyri í Kollafirði á áðumefndu tímabiH em beðnir að hafa samband við lögregluna á Patreksfirði. -hj Lilja sjötug Lilja Margeirsdóttir á Bergi hélt upp á sjötugsafmæli sitt síðasdiðinn laugardag. Þann dag áttu hún og eiginmaður hennar Flosi Ólafsson einnig 50 á brúðkaupsaf- mæli, gullbrúðkaup. Hér má sjá svipmynd- ir ffá afmælisveislunni sem haldin var í Logalandi og vora þar komin saman fjöl- skylda Lilju, vinir og sveitongar. SO ,1

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.