Skessuhorn


Skessuhorn - 10.05.2006, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 10.05.2006, Blaðsíða 17
..-f.ttllM. ■■ J MIÐVIKUDAGUR 10. MAI 2006 17 7^enninn~~ Gjaldfrjáls leikskólifrá lokum fæðingarorlofs Á síðustu áratugum hafa mál þró- ast svo að sjálfsagt þykir að bæði karlar og konur vinni utan heimilis og margar fjölskyldur hafa ekki al- mennilega í sig og á nema tvær fyr- irvinnur afli tekna. Þjóðfélag okkar gerir ráð fyrir atvinnuþátttöku bæði karla og kvenna. Heimilin eru orð- in minni en áður og heimilishald einfaldara en áður var. Það er því orðið sjaldgæfara að kona helgi sig heimilisstörfum ein- göngu árum saman og enginn ædast tíl þess. Konur vilja og eiga að taka þátt í atvinnulífinu og þær sem afla sér menntunar að sinna þeim störf- um sem þær hafa menntað sig tál. Þetta er nú held ég orðin skoðun flestra. Máfið snýst ekki um það að „þessar ungu konur nenni ekki að vera heima og hugsa um bömin sín,“ eins og sagt var við mig eitt sinn. Enn eigum við þó nokkuð í land. Fæðingarorlof kvenna hefur í um tvo áratugi verið 6 mánuðir hér á landi og nú hefur bæst við 3 mánaða feðraorlof. Hér á landi er lítið at- vinnuleysi og það er þörf fyrir alla á vinnumarkaðnum. Langflestir for- eldrar snúa aftur til vinnu utan heimflis þegar fæðingarorlofi lýkur. Þá kemur að því að leita að dag- vist fyrir bamið. Best væri auðvitað ef sveitarfélögin byggju svo vel um hnútana að böm kæmust inn á leik- skóla strax eftir fæðingarorlof for- eldra. Þannig er málum háttað í ná- grannalöndum okkar Svíþjóð og Danmörku. Nú er tímabilið þar til leikskólapláss fæst, brúað með að- stoð ættingja eða vist hjá dag- mömmu í flestum tilfellum. Eg hef oft hugleitt það hvort fordómar gagnvart leikskólum og vanþekking á því ffábæra starfi sem þar er unnið sé ástæða þess hve seint hefur geng- ið að byggja upp leikskóla fyrir öll böm. Flestir foreldrar nú til dags em að mínu mati vel meðvitaðir tun uppeldismál og hugsa vel um bömin sín. Alltaf má finna dæmi um van- rækslu því miður en þannig hefur það verið á öllum tímum. Uppeldi barns er auðvitað oftast mest á herðum foreldra þess og ung- tun bömum er að sjálfsögðu best að vera sem mest með foreldrum sín- tun. Góðir leikskólar era líka mikil- vægir í umönnun og uppeldi barna og rannsóknir hafa margsýnt að börn græða á leikskóladvöl en skað- ast ekki. I mörg hom er að líta. Lausnin er ekki bara að byggja húsnæði fyrir leikskóla. Leikskólana þarf líka að manna af vel menntuðum leikskóla- kennumm og starfsfólki og sveitar- félögin verða að sýna sóma sinn í því að greiða viðunandi laun. Þetta snýst um yngstu þjófélags- þegnana, ffamtíð Islands. Lengi býr að fyrstu gerð. Rún Halldórsdóttir, laknir Höf. skipar l.sæti áframboðslista VG á Akranesi. 'Pcnmntis Ungtfólk tilforystu Ég minnist þess ekki að hafa haff mikinn áhuga á bæjarmálunum á mínum (enn) yngri árum. I sann- leika sagt hafði ég nákvæmlega eng- an áhuga á þeim enda áleit ég sem svo að þau kæmu mér ekki við og að þau væm leiðinleg í ofanálag. Ég hafði ekki hugmynd um hverjir væra . í bæjarstjórn en ímyndaði mér að ý : þar sætu miðaldra karlmenn í jakka- S: fötum. Líklega hefúr sú sýn verið SM' nokkuð nærri lagi og þótt miðaldra karlmenn séu stórgóðir í bland verð- ur að viðurkennast að bæjarstjórn sem eingöngu er skipuð þeim þjóð- félagshópi nær illa að endurspegla það samfélag sem við búum í. Á lista Samfylkingarinnar og óháðra er ungt og kraftmikið fólk í bland við reynslubolta. Auk þess em þrjár konur í efetu fjóram sætunum. Sú endumýjun sem átt hefur sér stað á ffamboðslistum Skagamanna hef- ur nær öll verið hjá Samfylkingunni. I baráttusætunum situr ungt fólk sem er tilbúið að leggja sitt af mörk- um til að gera Akranes að betri bæ og á stefhuskránni er m.a. að byggja nemendagarða og að stórbæta að- stöðu til fjamáms. Framtíðin byggist á ungu fólki og ég tel að endurnýjun í sætum bæjar- stjórnar sé bæði eðlileg og nauðsyn- leg. Því miður held ég að viðhorf mitt til bæjarmála hér áður fyrr sé lýsandi fyrir viðhorf margra af yngri kynslóðinni en með því að kjósa ungt fólk til forystu má breyta því. Ég vil að ungir Skagamenn eigi sér málsvara í bæjarstjórn. Sigrún Osk Kiistjánsdóttir Höf. skipar 4. sæti á lista Samfylkingarinnar og óháðra Frelsum aldraða Málefhi aldraðra em í brennidepli í þessari kosningabaráttu. Umræðan hefur magnast í þjóðfélaginu og samtök eldri borgara hafa verið óþreytandi að vekja athygli á kjörum og aðstæðum aldraðra. Umræðan er ekki af tilefhislausu því kjör þessa þjóðfélagshóps em því miður ekki sæmandi okkar ríku þjóð. Vandinn er ríkið Helsti vandinn er að málaflokkur- inn er á ábyrgð og í höndum ríkis- valds sem hefur ekki hirt um að sinna honum sómasamlega. Oldrun- arstofnanir era fjárhagslega sveltar, launakjör starfsfólks em léleg og sveitarfélögin hafa legið undir hót- unum um greiðslu rekstrarhallans sem skapast af ónógum fjárveiting- um. Dvalarheimilum er breytt í sjúkrastofhanir vegna skorts á sjúkrarýmum og til að auka tekjur sínar. Síðan er sveitarstjómum legið á hálsi fyrir að leysa ekki þau fjár- hagslegu og húsnæðislegu vandræði sem af þessu skapast í heimabyggð. Þetta er óþolandi ástand og verður ekki lagað nema að málaflokkurinn verði tekinn úr höndum úrræða- lausrar ríkisstjómar. Yfirtaka er nauðsyn Sá sem þekkir söguna man efrir hliðstæðum. Grunnskólinn var að dragast upp þegar hann var á for- ræði ríkisins. Þar réðu ráðherrar Sjálfetæðisflokkins árum saman og héldu kirkingartaki sínu á grtum- skólanum, þannig að hann hvorki þróaðist né dafnaði. Þegar sveitarfé- lögin yfirtóku málaflokkinn varð heldur en ekki breyting á. Starfið blómstrar, húsnæði og tækjavæðing er til fyrirmyndar og launakjör kennara hafa stórbatoað. Það sama þarf að gerast með málefhi eldri borgara. Það er óþolandi að Sjálf- stæðisflokkurinn komist upp með það að beita sömu greipinni og hann gerði með grunnskólann. Þess vegna þarf að ffelsa eldri borgara ffá forsjá ríkisstjórnarinnar og Sjálfstæðis- flokkins. Ráðherrar flokksins hafa of lengi skammtað fjármuni úr hnefa til aldraðra og það tekur úr hnjúkunum þegar þeir reyna að slá um sig með yfirboðum nú fyrir kosningar. Þeir hefðu átt að nota allan þann langa tíma sem þeir hafa setið í rfkisstjóm til að leysa vandann, en það hafa þeir ekki gert. Það er Sjálfstæðismönn- rnn til skammar. Sveitarfélögin gera betur Akraneskaupstaður er fjárhags- lega sterkur og vel rekinn. Bænum er ekkert að vanbúnaði að yfirtaka málefhi eldri borgara og sinna þeim af alúð eins og málum annarra hópa. Til þess þarf að taka málið úr hönd- um ríkisins og fá til þess þá fjármuni sem nægja til að sinna því af metnaði og reisn. Samfylkingin mun berjast fyrir því að bæjarfélagið fái yfirráð yfir málaflokknum sem fyrst og að hann verði tekinn úr höndum ríkis- valds sem sinnir málefnum eldri borgara með hangandi hendi. Sveinn Kristinsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar ogformaður Bæjarráðs Akraneskaupstaðar 1100 ára búseta er lögum æðri Á aðalfundi Búnaðarsamtaka Vesturlands, sem haldinn var í Fossatúni 5. apríl sl., var mótmælt vinnubrögðum kröfunefndar rflds- ins í óbyggðamálum og þess krafist að rfldð láti af stefhu sinni í þessum málum. I greinargerð með ályktun- inni segir: „Við mótmælum því að fornir samningar, eignaskipti og landamerkjabréf sem era meira en hundrað ára gömul og enginn hef- ur hreyft mótmælum við af nær- liggjandi landeigendum séu ekki tekin gild eða sem einskisverð plögg. Þá mótmælum við þeim fjáraustri ríkisins sem farið hefur til kröfunefhdar ríkisins óbyggðamál- um tengd. Við teljum það for- gangsmál að öllum landeigendum sem þurft hafa að kaupa sér málsvörn til að verja sínar eignir verði sá kostnaður endurgreiddur að fullu. Ellefu alda búseta á Islandi hefur skapað hefð sem öllum lög- um er æðri.“ MM t Okkur langar að þakka öilum sem sýndu okkur vináttu og hlýhug vegna andláts móður okkar Unnar Pálsdóttur Fróðárstöðum Starfsfólki Dvalarheimilis aldraðra færum við bestu þakkir fyrir vináttu og umönnun. Elín Birna, Sigríður, Gerður og Ingibjörg Daníelsdætur. SkagaMfrkin Stuðningsmannafélag ÍA Minnum á fyrsta deildarleik sumarsins í Grindavík n.k. sunnudag kl. 16:00. Rútuferðir frá Cafe Mörk við Skólabraut stundvíslega kl. 14:00. Frítt í rútu gegn framvísun félagsskírteinis. lOOO.-kr í rútu fyrir aðra. Skráning í rútu fer fram í tölvupósti axelmk@simnet.is Minnum skráða meðlimi á að borga félagsgjöld svo hægt sé að afhenda félagskort. www.skagamorkin.com

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.