Skessuhorn


Skessuhorn - 10.05.2006, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 10.05.2006, Blaðsíða 2
2 MIÐVTKUDAGUR 10. MAÍ 2006 Kosið miUi fjögurra nafitia Borgarbyggð, Brákarbyggð, Egilsbyggð og Sveitarfélagið Borgarfjörður verða að líkindum þau nöfn sem íbúar sameinaðs sveitarfélags í Borgarfirði munu kjósa um við sveitarstjómarkosn- ingamar í vor. Þá verður til nýtt sveitarfélag við sameiningu Borgarbyggðar, Borgarfjarðar- sveitar, Hvítársíðuhrepps og Kolbeinsstaðahrepps. Sérstök nafnanefnd hefur verið að störf- um og fyrir skömmu sendi hún nokkrar tillögur til Ornefna- nefndar. Hún samþykkti þrjú þeirra; Borgarbyggð, Brákar- byggð og Egilsbyggð. Einnig gat hún fellt sig við nafnið Borgar- fjörður svo fremi að það héti Sveitarfélagið Borgarfjörður. Kristín Thorlacius, formaður nafnanefhdarinnar segir nefhd- ina ekki hafa komið saman eftir að álit Ömefnanefndar lá fyrir. Hún telur hins vegar líklegt að íbúar hins nýja sveitarfélags fái að kjósa um öll þau fjögur nöfn sem áður vom nefnd. HJ Til minnis Við minnum alla tónlistaunnendur á tónleika með Freyjukórnum og Cospelsystrum úr Reykjavík, sem haldnir verða í Reykholtskirkju á laugardag kl. 17. Á söngskránni verður trúarleg tónlist eftir ýmsa höfunda og gospeltónlist. Ve5fyrhorfw Á næstu dögum er gert ráð fyrir breytilegri átt, 3 til 10 m/s og skúr- um sunnan- og vestanlands. Hita- stig 0 til 10 gráður, mildast hér í þessum landshluta - að sjálfsögðu. Spfyrntruj vikfynnar í síðustu viku var spurt á skessuhorn.is: Ertu búin/n að skipuleggja sumarfrí fjölskyldunn- ar? Niðurstöðurnar benda til þess að fólk sé misjafnlega tímanlega í undirbúningi sínum því um 30% sögðust vera löngu búnir að skipu- leggja frfið á meðan 21 % svöruðu nei, alls ekki. Þá voru um 12% ný- búnir að skippuleggja sumarfrí fjöl- skyldunnar og önnur 12% ætla bráðlega að fara að huga að því. Það sem kemur einna mest á óvart var að fjórðungur eða 25% að- spurðra ætla einhverra hluta vegna ekki að taka sér frf í sumar og svör- uðu því „hvaða frí?" í næstu viku spyrjum viö: „Ætlar þú að nýta kosningarétt þinn í komandi kosningum?" Svaraðu án undanbragða á www.skessuhorn.is Vestlendirujwr viMnnar Að þessu sinni útnefnir Skessuhorn Sigvalda Arason Vestlending vik- unnar fyrir glæsilega Ijósmynda- sýningu sem opnuð var á laugar- daginn var í nýju ráðhúsinu í Borg- arnesi. Á sýningunni er að finna Ijósmyndir frá fimmtíu ára fram- kvæmdasögu Borgarness og tengj- ast margar myndanna verktaka- starfsemi Sigvalda í hálfa öld. Jeppi ogfólksbíll sem skullu saman á veginum við Fíflholt sl. miðvikudag. Ljósm: ÞSK Annasöm vika í umferðinni AUs urðu sex umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi í síðastliðinni viku. Tvö umferðarslys urðu á Snæfellsnesvegi með stuttu millibili upp úr hádegi, miðvikudag- inn 3. maí. Tveir bflar, sem komu úr gagnstæðri átt, skullu saman skammt sunnan við bæinn Fíflholt. Báðir ökumenn, ásamt farþeganum í öðrum bílnum slösuðust töluvert og voru þau flutt beint á sjúkrahús í Reykjavík. Báðir bílamir em taldir ónýtir og vom þeir fluttir af vett- vangi með kranabíl. Þá varð árekstur nærri verk- smiðu Loftorku sama dag og var annar bíllinn að aka á milli verk- smiðusvæðanna, sem eru sitt hvoru megin við Snæfellsnesveg, þegar áreksturinn varð. Okumenn og farþegi voru flutt á Heislu- gæslustöðina í Borgarnesi til skoð- unar en meiðsli þeirra voru talin minniháttar. Tveir ökumenn vom teknir fyrir meinta ölvun við akstur í vikunni í umdæmi lögreglunnar í Borgamesi. Annar hafði misst stjórn á bílnum sínum sem lenti útaf og valt. Hlaut hann minniháttar áverka og var fluttur á Heilsugæslustöðina í Borg- arnesi til skoðunar. SO Afkoma Dalabyggðar jákvæð og skuldir lækka Rekstur Dalabyggðar og stofn- ana hennar var jákvæður um rúmar 1,4 milljónir króna á síðasta ári. Það er ívið lakari niðurstaða en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Fyrri umræða um ársreikninginn fór fram í sveitarstjórn í síðustu viku. Skatttekjur sveitarfélagsins voru á síðasta ári rúmar 138 milljónir króna en vom tæpar 135 milljónir í áætlun. Framlög Jöfnunarsjóðs vora tæpar 111 milljónir króna en í áætlun var gert ráð fyrir 85 milljón- um króna. Aðrar tekur vora tæpar 140 milljónir króna en í áætlun var reiknað með rúmum 130 milljón- um króna. Samtals vom tekur því rúmar 389 milljónir króna en í fjár- hagsáætlun var gert ráð fyrir að þær yrðu rúmar 350 milljónir króna. Tekjur vora því tæplega 11 % hærri á áætlað var. Laun og launatengd gjöld vora tæpar 176 milljónir króna í stað rúmra 164 milljóna króna í áætlun. Annar rekstrarkostnaður var tæpar 177 milljónir króna í stað tæpra 150 milljóna króna í áætlun. Þá voru af- skriftir rúmar 15 milljónir króna en í áæltun var reiknað með að þær yrðu rúmlega 14 milljónir króna. Fjármagnskosmaður var rúmar 16 milljónir króna en var rúmar 14 milljónir króna í áæltun. I árslok 2005 námu hreinar skuld- ir Dalabyggðar og stofnana hennar rúmum 228 milljónum króna og höfðu þær lækkað á árinu úr tæpum 255 milljónum króna. HJ Deilisldpulag Borgarbrautar á byrjunarreit Bæjarráð Borgarbyggðar sam- þykkti á fimmmdag sl. að fela um- hverfis- og skipulagsnefnd að vinna nýtt deiliskipulag fyrir lóðirnar við Borgarbraut 55-59 í Borgarnesi. Þessi ákvörðun er til komin vegna athugasemda Skipulagsstofnunar vegna deiliskipulags lóðarinnar nr. 59 og óskar eiganda hússins nr. 57 um að fá að rífa það og byggja nýtt hús á lóðinni. Eins og fram hefur komið í Skessuhorni hefur mikil umræða farið fram í Borgarnesi vegna hug- mynda sem uppi hafa verið um reisa 30 íbúða fjölbýlishús á lóðinni nr. 59 við Borgarbraut. Meðal ann- ars var bæjaryfirvöldum á sínum tíma afhenmr undirskriftarlisti þar sem 144 íbúar mótmæltu deiliskipulagi lóðarinnar. I mars lagði umhverfis- og skipulagsnefnd Borgarbyggðar til að svæðið Borg- arbraut 55, 57 og 59 yrði deiliskipulagt í heild sinni áður en lengra yrði haldið. A það féllst bæj- arstjórn ekki og samþykkti fyrir- liggjandi deiliskipulag fyrir lóðina nr. 59. Skipulagsstofnun gerði hins vegar nokkrar athugasemdir við deihskipulagstillöguna og vora þær athugasemdir til athugunar hjá Borgarbyggð. A dögunum gerist það hins vegar að eigandi lóðarinnar að Borgar- braut 57 sendi inn erindi til sveitar- félagsins þar sem óskað var leyfis til þess að rífa hús það sem á lóðinni er og hýsti á sínum tíma verslun Bón- uss. Jafhframt var óskað leyfis til að byggja á lóðinni fjölbýlishús. I ljósi þessarar beiðni ákvað bæjarráð því í morgun að svæðið sem nær yfir lóðirnar þrjár yrði deiliskipulagt í heild sinni. Páll Brynjarsson bæjarstjóri Borgarbyggðar segir að ósk eiganda hugmyndir eiganda lóðarinnar nr. 57 og athugasemdir Skipulags- stofiumar hafi óhjákvæmilega kall- að á þá ákvörðun að skoða málið í heild sinni. Með þessari ákvörðun bæjarráðs er ljóst að byggingar- ffamkvæmdir á lóðinni nr. 59 tefj- ast. Páll vildi ekki spá um hvað deiliskipulagsvinnan tæki langan tíma. HJ Hækkun launa hjá Vinnuskóla Akraness Bæjarráð Akraness hefur sam- þykkt tillögu Einars Skúlasonar æskulýðsfulltrúa um hækkun launa unglinga sem starfa munu hjá Vinnuskóla Akraness í sumar. Taka launin mið af launum í Vinnuskóla Reykjavíkur. Nýverið hækkaði Reykjavíkurborg laun allra árganga í vinnskólanum um rúm 12% ffá árinu 2005. Eftir samþykkt bæjarráðs verða laun unglinga, sem fæddir eru árið 1992, 339 krónur á klukkustund, laun unglinga sem fæddir era árið 1991 verða 381 króna á klukku- stund og laun unglinga sem fæddir eru árið 1990 verða 507 krónur á klukkustund. I fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir 3% hækkun launa og gerir æskulýðsfulltrúi ráð fyrir að kostnaðarauki vegna hækkunar- innar nú verði eitthvað á aðra milljón króna. Þá ákvað bæjarráð einnig að laun 17 ára unglinga sem starfa munu við Átaksvinnu Akranes- kaupstaðar og Vinnuskóla Akra- ness verði 702 krónur. HJ Lengd aðsendra greina SKESSUHORN: í aðdrag- anda kosninga, næstu tvær vik- ur eða svo, má búast við að margir frambjóðendur til sveit- arstjórnakosninga vilji koma boðskap sínum á framfæri hér í blaðinu með pennagreinum. Til að Skessuhorn geti tekið allt þetta efni til birtingar hefur verið ákveðið að hámarkslengd aðsendra greina í tölublöð 20 og 21 verði hálf síða A4, miðað við 12 punkta letur og venjulegt línubil. Blaðið getur ekki ábyrgst að lengri greinar verði birtar. Mikill fjöldi frétta af ýmsu tagi býður nú birtingar í blaðinu og er ástæðan sú að fyrrnefndar greinar hafa á und- anförnum vikum verið lámar ganga fyrir ýmsu öðra efni. Því sjáum við okkur tilneydd að biðja greinahöfunda að stytta mál sitt. -ritstj. Óbundin kosning SKORRADALUR: Kosning verður óbundin til hrepps- nefndar Skorradalshrepps í vor þar sem enginn framboðslisti barst kjörstjórn. Við síðustu kosningar var einnig óbundin kosning og þá voru Davíð Pét- ursson, Pétur Davíðsson, Bjarni Vilmundarson, Steinunn Fjóla Benediktsdóttir og Ágúst Árna- son kjörin í hreppsnefnd. -hj Ekkert íramboð HELGAFELLSSVEIT: Eng- inn framboðslisti kom fram í Helgafellssveit fyrir svéitar- stjórnarkosningarnar "■*,« vor. Kosningin verður því óbundin. I núverandi sveitarstjórn sitja Brynjar Hildibrandsson, Magn- ús Valdimar Vésteinsson, Ásta Sigurðardóttir, Sævar Ingi Benediktsson og Benedikt Benediktsson. Óbundin kosning EYJA- OG MIKLAH.HR: Enginn framboðslisti kom fram í Eyja- og Miklaholtshreppi vegna sveitarstjórnarkosning- anna þann 27. maí. Kosning í hreppnum verður því óbundin, það er kjósendur rita nöfn fimm samborgara sinna sem þeir vilja að taki sæti í hrepps- nefnd. I núverandi hreppsnefnd sitja Ástþór Jóhannsson, Eggert Kjartansson, Guðbjartur Gunnarsson, Halldór Jónsson og Högni Gunnarsson. -hj Óbundin kosning REYKHÓLAHREPPUR: Enginn framboðslisti barst kjörstjórn Reykhólahrepps vegna kosningu til sveitar- stjórnar í vor. Verður því kosn- ingin óbundin líkt og gerðist í síðustu kosningum. Þá hlum kosningu Egill Sigurgeirsson, Gústaf Jökull Ólafsson, Mál- fríður Vilbergsdóttir, Þórður Jónsson og Bjarki Stefán Jóns- son. -hj

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.