Skessuhorn


Skessuhorn - 10.05.2006, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 10.05.2006, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 10. MAI 2006 • • Ominn flýgur fligla hæst Skátafélag Akraness fagnar 80 ára aftnæli sínu í sumar Böm á leikjanámskeiði í skógarferð í Skorradal. „Örninn flýgur fugla hæst,“ voru kjörorð Emis, fyrsta flokks skátafé- lagsins Væringja sem stofhað var í Báruhúsinu á Akranesi á uppstign- ingardag, þann 13. maí árið 1926. Einn af foringjum Væringjafélagsins í Reykjavík, Jón Oddgeir Jónsson, var aðal hvatamaðurinn að stofhtm skátafélags á Akranesi og á stofn- fundi félagsins var kosinn foringi flokksins, Jón Hallgrímsson þá 22 ára gamall. Fljótlega varð hann sveitarforingi og síðar félagsforingi. Jón helgaði skátastarfinu alla sína krafta og vann að félaginu til dauða- dags en hann lést langt fyrir aldur frarn, aðeins 36 ára gamall. Mikill hugur var í ungu skátunum og draumur þeirra var að eignast eigið húsnæði fyrir félagsstarfið. Haustið 1928 hófu þeir að grafa fyrir grurmi en þá höfðu þeir fengið lóð úr landi Fossakots, sem var í eigu Péturs Ottesen. Reis þar fyrsti útileguskáli skáta á Akranesi, Skátafell, við rætur Akrafjalls árið 1938. Stúlkum langaði í hreyfinguna Ungrnn stúlkum á Akranesi þótti félagsskapur drengjanna áhugaverð- ur og langaði til að kynnast starfi þeirra. Ekki þótti sumum foreldrum stúlknanna það nokkurt vit og ekk- ert nema flan og vitleysa að þær ætl- uðu að fara að stunda útilegur, þeys- ast um móa og upp á fjöll, dömurn- ar sjálfar. Stofnun kvenskátafélag var draumur stúlknanna og fengu þær til liðs við sig Svöfu Þorleifsdóttur skólastjóra. Ur varð að Kvenskátafé- lag Akraness var stolhað þann 25. mars 1928 og var Svafa fyrsti foringi félagsins. Skátahreyfingin á Akranesi fagnar því 80 ára afrnæli sínu þann 13. maí nk. Margt hefur á daga skátanna drifið síðan, Væringjarnir og Kven- skátafélagið voru sameinuð í Skáta- félag Akraness haustið 1952. Fyrsti foringi sameinaða félagsins var Hans Jörgensson. Einu sinni skáti ávallt skáti I dag starfa um 70 böm og ung- lingar á aldrinum 9-15 ára í félaginu og er þeim skipt í flokka eftir aldri. Flokkarnir funda hver fyrir sig einu sinni í viku og fer starfið aðallega fram í formi námskeiða. Tólf vikna námskeið er á haustönn og fjórtán vikna á vorönn. Farið er í að minnsta kosti eina dagsferð og eina útilegu á tímabilinu. Námskeiðin em í senn mikil skemmtun og ómetanlegur lærdómur fyrir félagana sem eflaust nýtist þeim á lífsins braut. Skátafélag Akraness á náttúm- og útilífsmið- stöðina Skátafell í Skorradal og reynt er að nýta aðstöðuna þar vel allt árið. Þar er góður skáh ásamt tjaldsvæði og útivistarsvæði þar sem meðal annars Varðeldalaut er. I Skorradal á skátafélagið einn hrað- bát og tvo kanóa sem notaðir em til siglinga á Skorradalsvatni. Leik- og gmnnskólar á Akranesi hafa not af staðnum og einnig er svæðið leigt út til almennings. Friðarlogi og skrúðgöngur Skátafélagið undir forystu Önnu Margrétar Tómasdóttur, hefur stað- ið fyrir leikjanámskeiðum undanfar- in þrjú sumur og hafa um 200 börn sótt námskeiðin á sumri hverju. Uti- vist er aðaláhersluefni leikjanám- skeiðanna. I júní er fyrirhuguð sú nýjung að halda útilífsnámskeið fyr- ir árganga 5.-8. bekkjar og verður það auglýst nánar síðar. I desember á síðasta ári tendmðu skátar á Skaganum á kerti í Akranes- kirkju með Friðarlogann sem kom- irm var alla leið frá Betlehem. Einnig buðu þeir viðstöddum að kveikja á kertum með Friðarloganum en kert- in vom lögð á leiði ástvina í kirkju- garðinum að Görðum. Þá era skrúðganga og skátamessa á sumardaginn fyrsta og skrúðganga á 17. júní árvissir viðburðir hjá skát- unum og fastir liðir í hátíðarhöldum bæjarbúa á Akranesi. Skátahreyfingin 100 ára Nú í sumar er miðaldarskátamót í Þýskalandi og þangað stefna fimm skátar af Akranesi á að fara, em þeir allir 15 ára, en tveir foringjar fylgja þeim einnig á mótið. Mótið stendur dagana 5. - 15. júlí. Sumarið 2007 fara 20 skátar á alheimsmót skáta í Englandi, á heimaslóðum Baden Powell stofnanda skátahreyfingar- innar. Alheimsmótið er 100 ára af- mælismót skátahreyfingarinnar. I tilefni 80 ára aftnælis Skátafélags Akraness verður boðið til fagnaðar á afmælisdaginn í náttúm- og úti- lífsmiðstöinni Skátafelli í Skorradal, þar sem skátar ætla að gera sér glað- an dag og fagna þessum merka áfanga í sögu félagsins með gestum sínum. SO/Myndir; Skátafélag Akraness og Ljósmyndasafh Akraness. Stúlkur úr skátafélagi Akraness, tendra á kerti í Akraneskirkju meó Frióarloganum. Ungir skátarjýrir allmórgum árum, Pétur Már Helgason og Stefán Ævar Guómunds- son báóirfœddir 1945. Skátafell í Skoiradal. Nýtt ráðhús í Borgamesi ráðhúsinu en þar era 144 ljósmynd- afhentu málverk af föður þeirra við ir sem hann hefúr tekið og tengjast ýmsum framkvæmdum í Borgarnesi sl. 50 ár. Myndimar munu prýða veggi hússins í sumar. Börn Hall- dórs E. Sigurðssonar fyrrv. sveitar- stjóra, alþingismanns og ráðherra, þetta tilefni, en málverkið er eftir Ragnar Pál, mynlistarmann. Fjöldi fólks mætti við vígsluat- höfnina í blíðskaparveðri og þáði veitingar að athöfninni lokinni. Höfðu margir á orði að húsnæðið Sigvaldi Arason opnaói Ijósmyndasýningu í nýja ráóhúsinu. Hér er kappinn á tali vió Svein Hallgrímsson á Vatnshömnim. Nýtt ráðhús var vígt við formlega athöfn í Borgarnesi síðastliðinn laugardag. Björn Bjarki Þorsteins- son, bæjarfulltrúi og formaður byggingamefhdar vegna breytinga hússins afhenti Páli S. Brynjarssyni bæjarstjóra lykla að húsinu og fluttu þeir báðir ávörp. Þá léku þeir Gunnar Ringsted og Dan Cassidy nokkur lög fyrir gesti. Við þetta tækifæri var opnuð ljós- myndasýning Sigvalda Arasonar í Páli S Btynjarssyni, bæjarstjóra eru hérfaró lyklavöldin úr hendi Bjarka Þorsteinssonar, formanni byggingarnefndar. Þessi góóa mynd af Halldóri E Sigurós- syni sómir sér nú vel í afgreióslu nýja ráóhússins. væri stórglæsilegt og mikil breyting að koma á nýju skrifstofurnar mið- að við aðstæðurnar á gamla staðn- um handan götunnar. SO

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.