Skessuhorn


Skessuhorn - 10.05.2006, Page 6

Skessuhorn - 10.05.2006, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 10. MAI 2006 Laun bæjarstarfsmanna á Akranesi hækka umtalsvert Bæjarráð Akraness hefur sam- þykkt að Akraneskaupstaður leiti eftir samvinnu við Reykjavíkurborg um launa- og kjaramál. Akvörðunin kemur í kjölfar óskar Starfsmannafé- lags Akraness (StAk) um að félagið sameinist Starfsmannafélagi Reykja- víkurborgar. Akvörðunin þýðir í raun að laun sumra félagmanna StAk hækka um tugi prósenta. For- ystumenn Akraneskaupstaðar og starfsmannafélagsins viðurkenna að óánægja hafi verið með störf Launa- nefndar sveitarfélaga. Kostnaður kaupstaðarins vegna þessa getur í upphafi orðið um 70-80 milljónir króna. Valdimar Þorvaldsson formaður StAk segir að nái þessar hugmyndir frarn að ganga muni nást fram um- talsverð hækkun á launum félags- manna er þau aðlagast launum borg- arstarfsmanna. Segir hann að hækk- unin getí í nokkrum tilfellum orðið á þriðja tug prósenta. Félagsmenn StAk sem vinna hjá Akraneskaup- stað eru í dag um 300 talsins og eru flestir þeirra ófaglærðir. Valdimar segir að undanfama mánuði hafi fé- lagið leitað leiða til þess að laun fé- lagsmanna yrðu hliðstæð launum fyrir sambærileg störf hjá Reykjavík- urborg enda á sama atvinnusvæði en það hafi ekki tekist þar sem Launa- nefhd sveitarfélaga sé viðsemjandinn fyrir hönd Akraneskaupstaðar. Því hafi verið ákveðið að fara þessa leið. Aðspurður hvort ekki sé líklegt að önnur starfsmannafélög og sveitar- félög feti sömu leið sagðist Valdi- mar vona að svo verði. „Við höfum verið mjög ósátt með þau störf launanefhdarinnar að vilja ekki við- urkenna launaumhverfi hvers sveit- arfélags fyrir sig“ segir hann. Að- spurður hvort þessi ákvörðun sé ekki vantraust á launastefhu Akranes- kaupstaðar og störf forystu starfs- mannafélagsins segir Valdimar svo ekki vera. „Bæjarfélagið fól launa- nefhdinni á sínum tíma að fara með umboð tíl samninga. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að leita sam- starfs við Reykjavíkurborg. Það er ekki hlutverk starfsmannafélaga að halda niðri latmtun félagsmanna og því ákváðum við að leita efrir sam- einingu við félagið í Reykjavík“. Að- spurður hvort með þessari leið séu starfsmenn sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu ekki að festa í sessi launamun milli sveitarfélaga á ein- stökum landssvæðum segir hann það skoðtm sína að greiða eigi sömu laun fyrir sömu vinnu hjá starfcmönntun einstakra sveitarfélaga. „Við verðum hins vegar að taka mið af kjörum á markaðnum á hverju svæði. Við get- tun ekki ávallt miðað við lægstu laun hverju sinni“ segir Valdimar. Magnús Guðmundsson bæjar- ráðsmaður segir að á undanförnum árum hafi samstarf Akraneskaup- staðar og Reykjavíkurborgar aukist og nefhir þar samstarf innan Orku- veitu Reykjavíkur, sameiningu hafha við Faxaflóa og almennings- samgöngur. Svæðið sé því orðið eitt atvinnu- og þjónustusvæði. Því hafi verið ákveðið að stíga þetta skref enda ljóst að á sama atvinnusvæði geti ekki verið mörg launasvæði. Aðspurður hvort í þessari ákvörðun felist ekki vantraust á störf Latma- nefndar sveitarfélaga segir Magnús að finna hafi mátt að ýmsum ákvörðunum þeirrar nefndar. Magnús segir heildarkostnað bæj- arfélagsins af þessum breytingum ekki liggja fyrir en líklegt sé að hann verði um 70-80 milljónir króna á ári í upphafi. HJ Kiwanisklúbbur gefiir golfbíl Kiwanisklúbburinn Þyrill á Akranesi afhenti Golfklúbbnum Leyni veg- lega gjöf síðastliðið mánu- dagskvöld. Um er að ræða golfbíl sem vera á til af- nota á golfvelli Leynis á Akranesi. Jón Trausti Her- varsson formaður Þyrils afhenti Heimi Fannari Gunnlaugssyni formanni Golfklúbbsins gjafabréf að viðstöddum félögum úr Kiwanis og stjórnarmeð- limun Leynis. Heimir Fannar þakkaði Kiwan- ismönnunum kærlega fyrir þessa veglegu gjöf og sagði að án efa kæmi bíllinn að góðum notum fyrir tmga HeimirFavnarGunnlaugssonformaðurGolfklúbbsinsogPéturElíssonfélagsmaSurtÞyrlitóku sem aldna. SO jýrsta rúntinn á golfbílnum nýja. Hagnaður af rekstri Dalalambs á síðasta ári Dalalamb ehf., sem rekið hefur sláturhúsið í Búðardal, var í fýrra rekið með tæplega 8,6 milljóna króna hagnaði að því er fram kem- ur í fréttatilkynningu frá félaginu. Hjá félaginu var slátrað um 15.500 fjár og voru heildartekjur á árinu tæpar 107 milljónir króna. Slátrun hófst hjá félaginu síðastliðið haust en ekki fékkst heimild til slátrunar haustið 2004 þrátt fýrir að búið hafi verið að leggja í töluverðan kostnað vegna undirbúnings slátr- unar. Vegna rekstrarafkomu árs- ins 2005 hefur félagið nú staðið að fullu í skilum með þann kostnað sem stofnað var til á árinu 2004 að því er kemur fram í tilkynningu félagsins. Þá hefur stjórn félagsins tekið ákvörðun um að greiða bændum 61 krónu fýrir hverja gæru vegna sláturtíðar haustið 2005. Greiðsla til bænda fer fram á næstunni. Lýkur þá fullnaðaruppgjöri við innleggjendur hjá félaginu. Lokið er við endurbætur á hús- næði sláturhússins. I kjölfar þess fékk það löggildingu og rekstrar- leyfi sl. haust. Samkvæmt árs- reikningi Sláturhússins í Búðardal ehf. 2005 og uppgjöri við verktaka nam heildarkostnaðurinn við end- urbæturnar rúmum 66 milljónum króna og er fjármögnun lokið. Fyrir sláturtíð 2005 var gerður samningur við Norðlenska um kaup á öllum afurðum Dalalambs ehf. Gekk það samstarf svo vel eft- ir að nú hefur verið gerður leigu- samningur við Norðlenska mat- borðið um leigu á húsnæði slátur- hússins í Búðardal til ársins 2015. Þannig mun Norðlenska taka yfir rekstur sláturhússins frá og með haustinu 2006. Mun því slátrun í haust fara fram á vegum Norð- lenska matborðsins. I tilefni af þessu bauð Norðlenska bændum í Dalasýslu í tveggja daga heimsókn til fyrirtækisins á Akureyri og Húsavík í mars sl. I fréttatilkynningunni segir að ætla verði að með áframhaldandi rekstri sláturhúss við hlið hins öfl- uga Mjólkursamlags í Búðardal sé hefðbundinn landbúnaður í Dala- sýslu og nágrenni enn betur tryggður til framtíðar litið. „Ljóst er að með þessu er verið að tryggja nokkur ársstörf í Dalabyggð svo og mikla þjónustu við bændur á svæðinu,“ segir orðrétt. HJ Styrkir Þróunarsjóðs gunnskóla 2006 Tveir grunnskólar á Vesturlandi hlutu styrki frá Þróunarsjóði grunnskóla fyrir þetta ár, Gunn- skólinn í Borgarnesi og Grunn- skóli Stykkishólms. Að tillögu ráð- gjafanefhdar ákvað menntamála- ráðherra að veita styrki að upphæð alls 13 milljónir króna til 31 verk- efnis, en að þessu sinni bárust 54 styrkumsóknir. Að efla nýjungar, tilraunir og nýbreytni í skipulagi náms, námsgögnum, kennsluhátt- um og mat í grunnskólum er til- gangur sjóðsins. Grunnskólinn í Borgarnesi fékk 500.000 kr. styrk vegna verkefnis- ins „Aukið val nemenda með það að markmiði að efla sjálfstæði og ábyrgð nemenda“. „Lífríki og saga Breiðafjarðar,“ er verkefni Grunnskólans í Stykk- ishólmi, en í hlut skólans kom 650.000 kr. styrkur til þess verk- efnis. SO PISTILL GISLA Leikur að eldi Oft og iðulega hef ég mátt þola háðsglósur útaf hárafari mínu síðustu tíu árin eða svo. Það hófst á því að virtur smiður í Borgarfjarðarhéraði, sem ég starfaði hjá um tíma, hrópaði upp yfir sig að ég væri að verða sköllóttur. Var hann þá staddur uppi á fjög- urra metra háum stillansi en ég staðsettur beint fyrir neð- an. Hann er nefnilega tölu- vert lægra yfir sjávarmáli en ég og því hafði hann ekki haft aðstæður til að gera þessa uppgötvun fyrr. Þess má líka að geta að þarna var viðstatt fjölmenni og því fór þessi fregn sem eldur í sinu svo maður noti líkingamál sem Mýramenn kannast við. Þrátt fyrir stöðugt áreyti hef ég þó notað þessa hár- greiðslu við ritun á fimmta hundrað pistla í Skessuhorn og hafa lesendur látið það yfir sig ganga. Engu að síður halda óvandaðir menn áfram að hæðast að hárvexti mínum en ég læt það sem vind um eyru þjóta. (Þetta er aftur á móti líkingamál sem menn eiga að skilja í Staðarsveit- inni). A vordögum fékk ég líka uppreisn æru því nú get ég útskýrt sprettuna á höfði mér á þann veg að þetta sé eina hárgreiðslan sem þor- andi sé að vera með á Mýrun- um nú til dags. Annars er ábyrgðarleysi að hæðast að hamförum þótt betur hafi farið en á horfði á Mýrunum nú í vor. Maður hefði samt ætlað að sú reynsla hefði latt menn frem- ur en hvatt til að leika sér að eldinum. Síðast liðinn föstu- dag kom hinsvegar í ljós að í það minnsta tveir pörupiltar höfðu ekki fengið nóg. Kannski höfðu þeir misst af Mýrareldunum og langað í sína eigin. Ekki veit ég það en allavega munu tveir ung- lingspiltar hafa kveikt í sinu í miðju sumarhúsahverfi í Borgarhreppi. Það var að þakka snarræði þeirra sem að björgunarstörfum komu og sjálfsagt ekki síður heppni að eignatjón varð lítið sem ekk- ert. Samkvæmt fréttum af vettvangi var reynt að stöðva piltana af við verkanaðinn en sá sem það reyndi uppskar ókvæðisorð og heldur voru afskipti hann til að hvetja brunavargana. Þetta sýnir ótrúlega for- herðingu hjá ungum piltum en það sem þó er kannski sínu verra er að síðast þegar ég vissi var ekki búið að hafa hendur í sótugu hári þeirra. Jafnvel má ætla að foreldrar þeirra eða forráðamenn hafi stungið þeim inn í skáp þeg- ar lögreglan fór um. Þetta er háalvarlegt mál að mínu mati því ef menn kom- ast upp með að gera hvað sem er eru líklegir til að gera hvað sem er og jafnvel ríflega það. Síst er það líka til að draga úr brotaviljanum ef ungmenn komast upp með glæpi í skjóli foreldra sinna. Það ætti hver maður að sjá að litli strákurinn með eld- spýturnar gæti valdið óbæt- anlegum skaða ef hann held- ur áfram á sömu braut en þar á ég ekki aðeins við þá sem hér um ræðir heldur aðra slíka sem ekki spá í afleiðing- ar gjörða sinna. Gísli Einarsson, fyrrverandi slökkviliðsmaður.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.