Skessuhorn - 10.05.2006, Blaðsíða 24
N§tt og öflugt
verkfæritnibífl.icaup«
íbúðalán.is
I^SPM 1
Sími 430-7500 - www.spm.is g;j
Nýr menntaskóli í Borgamesi er staðreynd
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, mmntamálaráHherra tókfyrstu skóflustunguna aö nýjum menntaskóla 4. maísl. Hjá henni er Helga
Halldórsdóttir, forseti bœjarstjómar Borgarbyggðar. Skátar mynda heiðursvórð.
Það mátti heyra hamingjuóskir í
hverju homi í Iþróttamiðstöðinni í
Borgamesi sl. fimmtudag. Tilefnið
var enda ærið, menntamálaráðherra
var mættur á svæðið til að skrifa
undir viljayfirlýsingu um stofhun
Menntaskóla Borgarijarðar. Bros var
á hverri brá og ljóst að Borgfirðing-
ar binda miklar vonir við að stdgið
hafi verið risastórt framfaraspor í
héraðinu. Haustið 2007 er steínt að
því að borgfirskir unglingar geti sest
á skólabekk í hinum nýja skóla í
heimabyggð.
Það var því mikið um dýrðir í
Iþróttamiðstöðinni. Haldnar vom
ræður, kórar sungu - bæði
Freyjukórinn og Karlakórinn Söng-
bræður til að gæta fyllsta jafhvægis -
og böm úr grunnskólum héraðsins
sýndu skemmtiatriði. Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir menntamála-
ráðherra sagði að heimamenn hefðu
gert henni ákvörðtuiina tun yfirlýs-
inguna mun auðveldari. Þeir hefðu
sýnt sóknar- og framkvæmdavilja og
verið tilbúnir til að skoða nýjar leið-
ir í þátttöku verkefhisins.
Efdr athöfnina í Iþróttamiðstöð-
inni var gengið fýlktu liði tmdir
styrkri stjórn skátanna niður að
gamla íþróttavellinum, þar sem
tjaldstæði bæjarins hafa verið undan-
farin ár. Þar tók menntamálaráð-
herra fyrstu skóflustungu að fyrir-
hugaðri skólabyggingu.
Þrátt fyrir að hugmyndir um
stofnun ffamhaldsskóla í Borgarfirði
hafi lengi verið á reiki, verður ekki
sagt að aðdragandi þessa áfanga sé
langur. Það var í ágúst síðasdiðnum
sem bæjarráð Borgarbyggðar ákvað
að leita samstarfs við háskóla héraðs-
ins um mögulega stofnun fram-
haldsskóla. Og nú, eftir hefðbund-
inn níu mánaða meðgöngutíma, var
fyrsta skóflustungan tekin.
Ohefðbundnar leiðir verða famar,
bæði í rekstri og námsskipulagi
menntaskólans. Um hann var stofn-
að hlutafélag og þann 20. júní nk.
verður kosið í stjórn þess. Einstak-
lingum og fýrirtækjum gefst tækifæri
til að gerast hluthafar í skólanum.
Það var óneitanlega léttyfir mannskapnum sem stóð að undirritun stofnsamnings og
viljayfirlýsingarinnar sl. jhmntudag. Menntamálaráðherra, fulltrúi Sparisjóðs Mýra-
sýslu, sveitarfélaganna og rektor Viðskiptaháskólans á Bifróst.
Eftir undirskriftir og skóflustungu var kominn tímifyrir snæðing sem að þessu sinni var
á sumarlegu nótunum.
Nú þegar hafa Sparisjóður Mýra-
manna og sveitarfélagið lagt fram
umtalsverða upphæð og á fundinum
var tilkynnt að Loftorka hefði skuld-
bundið sig til þess sama. Fleiri fýrir-
tæki og einstaklingar hafa einnig
skráð sig fýrir ffamlagi.
Námstilhögun skólans verður eft-
ir nýrri námsskrá framhaldsskólanna
sem tekur ekki gildi fýrr en árið
2008 og hefðbundið nám til stúd-
entsprófs mun því taka þrjú ár. Skól-
inn mun verða bóknámsskóli og við
harm verða tvær brautir, náttum-
ffæði- og raunvísindabraut og fé-
lagsvísinda- og viðskiptabraut, auk
almennrar brautar sem sinna mun
þeim sem ekki hafa náð tilskyldum
árangri úr grunnskóla. Reiknað er
með góðu samstarfi á milh mennta-
skólans og háskólanna tveggja og
ekki síst á milli menntaskólans og
grunnskóla héraðsins.
KÓP
80 ára afmæli
skátastarfs á Akranesi
Af því tilefni bjóðum við til fagnaðar í Náttúru-
og útilífsmiðstöðinni í Skátafelíi í Skorradal á
afmælisdaginn, þann 13.maí 2006.
Dagskrá:
Kl. 14:00 - Opnun.
Boðið verður upp á gönguferð um svæðið og skátar verða
á staðnum með dagskrá fyrir alla aldurshópa.
Kl. 15:00-16:30 - Hátíðardagskrá.
Saga félagsins, Bragi Þórðarson.
Orðuveitingar.
Opin mælandaskrá.
i Kaffiveitingar í boði Svanna- og Rekkasveitar félagsins.
j Kl. 16:30
I Kvöldvaka í Varðeldalaut eða inni, allt eftir veðri.
Vonum að sem flestir eldri skátar og velunnarar
félagsins sjái sér fært að fagna með okkur á
þessum tímamótum.
Stjórn og afmælisnefnd Skátafélags Akraness
___________________
j
v
Framboðsfundir í nýju
sveitarfélagi í Borgarfirði
norðan Skarðsheiðar
og Kolbeinsstaðahreppi
Framboðsfundir vegna sveitarstjórnarkosninga
í nýja sveitarfélagi í Borgarfirði norðan
Skarðsheiðar og Kolbeinsstaðahreppi verða
haldnir á eftirtöldum stöðum
15. maí Kl. 20:00 Lindartunga
16. maí Kl. 20:00 Hvanneyri (skólahús)
17. maí Kl. 20:00 Brúarás
18. maí Kl. 17:00 Bifröst (Hrifla)
2i. maí Kl. 20:00 Hótel Borgarnes
Allir velkomnir
Borgarlistinn
Framsóknarflokkurinn
Sjálfstæðisflokkurinn