Skessuhorn


Skessuhorn - 30.08.2006, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 30.08.2006, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2006 ^sunuLi Til minnis Skessuhorn minnir íbúa á Vest- urlandi á að sýna aðgát í um- ferðinni í nálægð við skóla og fjölfarna staði sem börn eiga leið um þessa dagana. Þarna eru á ferðinni óvanir einstak- lingar í umferðinni og því verð- ur aldrei of varlega farið. Ve?nrhorfw Spáð er norðaustlægri átt frá fimmtudegi til mánudags, bjartviðri á suður- og suðvest- urhluta landsins en vætusömu veðri norðan- og austanlands. Hiti verður á bilinu 7 till 5 stig, hlýjast suðvestantil. Spwminíj viH^nnar í síðustu viku var spurt á Skessuhorn.is; „Ætlar þú í réttir í haust?" Tæplega 35% svarenda svör- uðu spurningunni játandi, þeir ætla örugglega í réttir, rúm- lega 33% svarenda ætla ör- ugglega ekki í réttir, tæplega 16% ætla sennilega ekki í rétt- ir í haust, tæplega 10% svar- enda ætla sennilega að mæta til rétta í haust og að lokum svöruðu tæplega 6% því að þeir vissu það ekki. í næstu viku spyrjum við: „Er ncegjanlegt framboð af tómstundastarfi fyrir börn í þínu sveitarfélagi?" Svaraðu án undanbragða á www.skessuhorn.is Vestlendiwjwr viKnnnctr Skessuhom útnefnir að þessu sinni Þuríði Örnu Óskarsdótt- ur, 4 ára, Vestlending vikunn- ar. Hún fór í liðinni viku í áheitaferð Heklu með föður sínum Óskari Erni Guðbrands- syni og Stefáni Ásgrímssyni ritstjóra FÍB hringinn í kring- um landið á Skoda til stuðn- ings Félagi krabbameinssjúkra barna. Laugard. 19. ágúst kl. 20 uppselt Swmud. 20. ágúst kl. 15 ðrfá sæti laus Sunnud. 20. ágúst kl. 20 ðriá sæti tans Fðstud. 25. ágúst kl. 20 ðriá sasti laus Laugard. 26. ágúst kl. 15 uppselt Laugard. 26. ágúst kl. 20 uppselt laugard. 2. september kl. 20 Simaud. 3. september kl. 15 Sunnud. 3. september kl. 20 Staðfesta þarf miða með greiðslu viku fyrir sýningardag lANWAMSSm'R Sýnt f Landnámssetrí í Borgarnesi LEIKHUSTILBOÐ Tviættaður kvöldvcrður og fctkftusmiði kr. 4300 ■ 4800,- MIÐAPANTANIR i SÍMA Í37 Nýr Sveinbjöm Jakobsson SH kominn til Olafsvíkur Viö komu Sveinbjamar Jakobssonar SH10 til Ólafsvíkur. Sitthvorumegin standa þeir brœður Egill og Sigtryggur Þráinssynir en á milli eru forelárar þeirra þau Guðbjörg Sveinsdóttir og Þráinn Sigtryggsson. tryggssonar, stjórnarformanns fé- lagsins, eins eiganda og skipstjóra til margra ára, verður farið á dragnót í byrjun september en skipið er einnig búið til neta- og togveiða. Það var fjölmenni sem tók á móti hinu nýja skipi þegar það kom til Olafsvíkur enda alltaf mikil gleði þegar nýju skipi er fagnað. Skip- stjóri á Sveinbirni Jakobssyni er Egill Þráinsson og stýrimaður er Sigtryggur Þráinsson en þeir bræð- ur eru m.a. eigendur í útgerðarfé- laginu en alls er á skipinu 5 manna áhöfn. PSjf Nýr bátur kom til Ólafsvíkur sl. föstudag og er hann í eigu Útgerð- arfálagsins Dvergs ehf. Báturinn sem ber nafnið Sveinbjörn Jakobs- son SH 10 er stálskip smíðað á Akranesi árið 1967 og er 101 brúttórúmlestir að stærð. Skipið var endurbyggt árið 1997 og ný vél sett í það árið 2001 og lítur það mjög vel út í alla staði. Fyrir á fé- lagið tréskip með sama nafhi sem smíðað var í Danmörku árið 1964 en því verður lagt. Er það um 103 lestir og alla tíð verið mikið happa- skip. Það er einn af mjög fáum bátum sem efdr er á land- inu í þessum báta- flokki. Útgerðarfé- lagið Dvergur ehf er fjölskyldufyrir- tæki og eitt af elstu útgerðarfélögum landsins, en það var stofnað um 1950 og er enn í eigu stofnfélaganna. Að sögn Þráins Sig- Sveinbjöm Jakobsson SH 10 njkominn til hafnar. Slökkviliðin í Borgarbyggð sameinuð Byggðaráð Borgarbyggðar hefur falið sveitarstjóra að hefja vinnu við sameiningu slökkviliða í hinu nýja sveitarfélagi. Til skamms tíma áttu Borgarbyggð eldri, Kolbeins- staðahreppur og Eyjahreppur sam- an hlutafélag sem annaðist rekstur slökkviliðs í sveitarfélögunum. Höfuðstöðvar voru í Borgarnesi en útibú voru á Varmalandi og í Laugagerði. Snemma á þessu ári var félaginu slitið og yfirtók Borg- arbyggð eignarhluti hinna sveitar- félaganna en tók jafnframt að sér að sinna brunavörnum samkvæmt sérstöku samkomulagi. Þá hefur einnig verið starfandi slökkvilið Borgarfjarðardala og er hugmynd- in að það sameinist slökkviliði Borgarbyggðar þannig að úr verði eitt öflugt slökkvilið sem sæti sömu yfirstjórn. Nefna má að framkvæmdir standa nú yfir við endurbyggingu verkstæðishúss í Reykholti sem hýsa mun slökkvi- stöð. HJ Þremur sjómönnum bjargað út af Snæfellsnesi Rétt fyrir klukkan níu að kvöldi sl. föstudags bárust boð ffá neyð- arsendi 30 tonna eikarbáts, Sigur- vins GK sem staddur var um 15 sjó- mílur NV af Rifi á Snæfellsnesi. Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Björg ffá Rifi, hélt skömmu síðar á sjó til leitar sem og ---------*-------------------------- skemmtibáturinn Svalan með þriggja manna fjölskyldu innan- borðs. Þyrla landhelgisgæslunnar TF-LIF fór einnig á staðinn. Skemmtibáturinn Svalan fann mennina þrjá í gúmbjörgunarbáti og tók þá um borð en eikarbáturinn var þá sokkinn. Veður var gott á staðnum og spegilsléttur sjór. Eftir björgun í Svöluna fóru skipbrots- mennirnir þrír um borð í björgun- arskipið Björgu þaðan sem þyrlan hífði þá upp og flaug með til Reykjavíkur. Skipverjarnir voru nokkuð hressir miðað við aðstæður. MM Avísanir á tómstundastarf berast ungmennum á Akranesi Næstu daga berast inn á heimili á Akranesi ávísanir sem hægt verður að nýta til greiðslu á tómstunda- starfi hjá viðurkenndum félögum á Akranesi. Ávísunin er að upphæð 5 þúsund krónur og gildir til 31. maí 2007. Eins og fram hefur komið í Skessuhorni ákvað bæjarstjórn Akraness fyrir nokkru að breyta reglum um niðurgreiðslu tóm- stundastarfs barna og unglinga á þann veg að iðkendur réðu í raun hversu miklar niðurgreiðslurnar yrðu með því að framvísa þessum ávísunum. Markmiðið var einnig að allir finni sér tómstundastarf við hæfi. Félög þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði til að geta notið niður- greiðslnanna. Má þar nefna að færa verður félagatal árlega, árlega þar að leggja ffam ársreikning þar sem helstu bókhaldsreglum er fylgt, starf þeirra sé skipulagt með þeim hætti að börn starfi undir stjóm leiðbeinenda og þjálfara sem era í stakk búnir til að vinna að mark- miðum félagins. Þá þarf félag að starfa með reglubundnum hætti í að minnsta kosti fjóra mánuði á ári og félög þurfa að innheimta árgjald eða æfingagjald af þátttakendum. Þau félög sem nú þegar hafa upp- fyllt skilyrðin eru Hestamannafé- lagið Dreyri, Badmintonfélag Akraness, Fimleikafélag Akraness, Golklúbburinn Leynir, Karatefélag Akraness, Knattspyrnufélag Akra- ness, Körfuknattleiksfélag Akra- ness, Ungmennafélagið Skipaskagi, Keilufélag Akraness, Sundfélag Akraness, Smábílafélag Akraness, Skátafélag Akraness og Skagaleik- flokkurinn. HJ Hætt við ráðningu markaðs- og menningarfúUtrúa Byggðaráð Borgarbyggðar hefur ákveðið með tveimur atkvæðum að ráða ekki að svo stöddu í starf markaðs- og menningarfulltrúa Borgarbyggðar. Starfið er nýtt af nálinni og var auglýst laust til um- sóknar skömmu eftir að Borgar- byggð hin nýrri varð til. Um starfið sóttu átta manns og var sveitar- stjóra falið að kynna umsækjendum þessa ákvörðun. Páll S. Brynjars- son sveitarstjóri Borgarbyggðar segir að farið verði yfir þær for- sendur sem lagðar voru til grund- vallar starfinu í upphafi og þær endurmetnar meðal annars með hliðsjón af því hvort rétt sé að deila þessum verkefnum á fleiri störf. Sveinbjörn Eyjólfsson byggða- ráðsmaður lét bóka að staða máls- ins sýni glöggt að menn verði að vanda sig betur þegar kemur að skipulagi og starfsmannamálum. HJ Hundrað féllu út LEIÐRÉTTING: í umfjöllun um starf tónlistarskólanna á Vesturlandi í síðasta tölublaði var sagt að í vetur yrðu um 125 nemendur við Tónlistarskóla Borgarfjarðar en svo er ekki rétt. I vetur verða um 225 nem- endur við skólann og beðist er velvirðingar á þessum mistök- um. -so Fyrirgefðu Skotta! SMALAHUNDAR: í frétt um frábæran árangur vestlenskra smalahunda f Skagafirði fyrir nokkru var rangt farið með nafn þess hundar sem stóð sig best. Hún heitir Skotta en ekki Týra eins og sagt var. Hlutað- eigendur era beðnir velvirðing- ar á þessum mistökum. -mm Björgunar- félaginu afhent nýtt hús AKRANES: Um næstu helgi mun Björgunarfélag Akraness fá afhent nýtt húsnæði sem ver- ið hefur í byggingu við Kalm- ansvelli. Húsið er viðbót við þá aðstöðu sem félagið hefur yfir að ráða og mun hýsa tæki og aðstöðu til viðgerða. Þrátt fyrir að félagið taki nú við húsinu er það ekki tilbúið, eftir á að vinna það að innan og laga að starf- semi félagsins. Sú vinna verður unnin í sjálfboðavinnu og því ekki gott að segja fyrir um hvenær henni lýkur. -kóp Lést af áverkum sínum RVK: Maðurinn sem slaðaðist alvarlega í umferðarslysi á Vest- urlandsvegi aðfararnótt sl. sunnudags er látinn. Maðurinn hét Dariusz Wojewoda og var Pólverji. Hann var starfsmáður Loftorku í Borgarnesi og bjó þar. Slysið varð með þeim hætti að hross sem fældist við flug- eldasýningu vegna Menningar- nætur hljóp yfir veginn á milli Þingvallaleiðar og Köldukvíslar með þeim afleiðingum að öku- maður bifreiðarinnar, sem var á leiðinni upp á Kjalarnes, missti stjórn á henni og lenti bifreiðin á annarri bifreið sem var að koma úr gagnstæðri átt. Félagi mannsins sem var með honum í bíl lést einnig. Líkamsárás kærð á Dönsk- um dögum STYKKISHÓLMUR: Maður á þrítugsaldri hefur kært lík- amsárás sem hann varð fyrir á Dönskum dögum í Stykkis- hólmi. Margt var um manninn í bænum á hátíðinni, þó oft hafi þar verið fleiri. Maðurinn lenti í áflogum við annan mann og var laminn þannig að tennur í honum losnuðu. Er þetta eina staðfesta kæran eftir hátíðina sem gekk að öðru leyti vel að sögn lögreglu. -kóp

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.