Skessuhorn


Skessuhorn - 30.08.2006, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 30.08.2006, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2006 ^kiaaimuuj 17 Dýrfinna o g Phifippe á leið til Frakklands Listamennimir Dýrfinna Torfa- dóttir og Philippe Ricart munu halda til Frakklands um miðjan næsta mánuð þar sem þau munu taka þátt í heimssýningunni Foire Internationale í Caen í Frakklandi. Voru þau valin af Útflutningsráði úr hópi íslenskra listamanna í 18 manna hóp tdl að halda á sýninguna fyrir Islands hönd. Sýningin stend- ur ffá 15. til 26. september nk. Sölubás Islendinganna í Frakklandi verður að sögn Dýrfinnu í líki ís- lensks, gamals bóndabæjar. Dýrfinna verður með skartgripi eft- ir sig á sýningunni og ætlar hún að einblína á íslenska fjörusteina, hraun og roð í sínum hlutum. Allt saman íslenskt hráefni. Philippe verður með púsluspilin sín og spjaldvefhaðinn sem hann er þekkt- Hér er Dýrfmna á nýlegu ökutœki sínu; vespu afflnustu gerð, sem hún brunar á um götur Akraness. Ljósm: MM ur fyrir. Dýrfinna hafði orð á því í samtali við Skessuhom að sér fynd- ist gott af hafa Philippe með sér til halds og trausts, en Philippe er franskur að ætt og uppruna. SO Héldu áfram hálfa leið til Akureyrar Hér strandaði hann loks, við Vííihlíð í Húnavatnssýslu, búinn aðfara heilan hring og hálfa leið til Akureryrar að auki. Eftir að áheita- hringferð um land- ið til styrktar Styrktarsamtökum krabbameinssjúkra barna lauk við höf- uðstöðvar Heklu sl. miðvikudag, og tekist hafði að komast hringinn í kringum landið á einum elds- neytistanki, var ákveðið að halda áfram og kanna hve langt væri hægt að komast á því eldsneyti sem þá var enn eftir á tankinum. Við greindum frá yfir- standandi ferðalagi í síðasta tölu- blaði Skessuhorns en farþegar í bílnum vom þau feðgin Oskar Orn og Þuríður Arna frá Akranesi. Ferðin var farin á Skoda Octavia með TDI(r) dísilvél. Hringvegur- inn var 1307 kílómetrar að lengd en eldsneytistankur Skodans tekur 55 lítra. Akveðið var semsagt að aka áfram til Akureyrar og láta reyna á hvar eldsneytið á bílnum þryti end- anlega. Það var ekki fyrr en búið var að aka 208 kílómetra til viðbót- ar frá höfuðborginni og ferðalang- amir komnir aftur hálfa leið til Ak- ureyrar að bíllinn drap á sér í Víði- dal í Húnavatnssýslu. Alls tókst því að aka Skodanum 1515 km. vega- lengd á einum tanki og reyndist meðaleyðslan í allri ferðinni 3,5 lítrar á hundraðið. Á tímum hás eldsneytisverðs er sannarlega mikil kjarabót að farið er að framleiða og selja bíla sem eyða ekki meiru, en umrætt dæmi sannar. MM A meðfylgjandi mynd eru Sigríður Herdís Pálsdóttir formaður Krabbameinsfélags Sna- fellsness, Johanna Van Schalkwyk og Shelagh Smith fulltrúar Alþjóðakajfihússins og Vigdís Gunnarsdóttir frá Foreldrafélagi ADHD. Alþjóðakaffi afhenti tvo styrld A bæjarhátíðinni A góðri stund í Gmndarfirði í júlí var alþjóðakaffi- hús opið í þriðja skipti. Grandfirð- ingar af erlendu bergi brotnu hóp- uðu sig þar saman og gerðu bakk- elsi hver ffá sínu landi og buðu upp á kaffi og meðlætið í Sögumiðstöð- inni Eyrbyggju í hjarta bæjarins. Gestir hátíðarinnar fjölmenntu og var stemningin góð. Aðstandendur alþjóðakaffihúss- ins ákváðu að láta allan ágóða kaffi- söltmnar renna til tveggja samtaka sem starffækt era á Snæfellsnesi. Krabbameinsfélag Snæfellsness sem var stofnað í fyrra varð fyrir valinu ásamt hinu nýstofnaða For- eldrafélagi ADHD. Fengu hvor samtök 25.000 króna styrk. Við þetta tilefni var boðið upp á fram- andi bakkelsi þar sem t.d. mátti sjá kökur ffá Nýja Sjálandi, Póllandi, Færeyjum, Danmörku, Frakklandi, Italíu og Suður Affíku. Konurnar sem stóðu fyrir al- þjóðakaffinu vilja þakka gestum há- tíðarinnar sem kíktu í kaffi kærlega fyrir komuna. Johanna Van Schalkwyk og Shelagh Smith. Öflug fullorðinsfrœðsla í heimabyggð Námsvísirinn kemur út 5. september fylgist með á www.simenntun.is SIMENNTUNARMIÐSTOÐIN Á VESTURIANDI AKURS/jgs - við allra hæfi - Trésmiðjan Akur byggirtvö parhús við Sóltún 14-14a og 16-16a á Hvanneyri. Húsin afhendast fullbúin að utan með grófjafnaðri lóð og óeinangruð að innan. Allar nánarí upplýsingar og sölubækling er hægt að fá á skrifstofu Akurs. Trésmiðjan AKUR ehf. | Smiðjuvöllum 9 • 300 Akranes • Sími: 430 6600 • Fax: 430 6601 | Netfang: akur<3>akur.is • Veffang: www.akur.is ALLT FyRIR HAUSTIÐ! Vinnufatnaður - Regnfatnaður Stígvél - Oryggisskór BÚREKSTRARDEILD Egilsholt 1-310 Borgarnes - Afgreiðsla sími: 430-5505 - Fax: 430-5501 Opið frá kl. 8-12 og 13-18 aila virka daga * * 3

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.