Skessuhorn


Skessuhorn - 30.08.2006, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 30.08.2006, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2006 SgBSSgraSfMBlffl Kristmn fær enga formennsku Kristinn H. Gunnarsson þing- maður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, mun ekki gegna formennsku í neinni þing- nefnd á næsta ári, samkvæmt ákvörðun þingflokks Framsóknar- flokksins. Á ýmsu hefur gengið í samskiptum Kristins og annarra þingmanna flokksins og hefur off og tíðum andað köldu þar á milli. Árið 2004 var Kristni vikið úr öll- um nefndum þingsins vegna sam- starfsörðugleika, en Kristinn hefur ekki alltaf beygt sig undir vald flokksforystunnar. í febrúar árið 2005 náðust sættir og fullyrðir Kristinn að í því samkomulagi hafi falist að hann mundi aftur fá for- mennsku í þingnefndum. Á þriðjudag í liðinni viku hittist þingflokkurinn, að Kristni undan- skildum en hann var erlendis, og skipti með sér verkum í kjölfar bre)T:inga á þingflokknum. Var þar samþykkt að Birkir J. Jónsson yrði formaður fjárlaganefndar, Dagný Jónsdóttir formaður félagsmála- nefndar og Guðjón Ólafur Jónsson formaður heilbrigðisnefhdar. Krist- inn verður varaformaður þriggja nefhda; umhverfis,- landbúnaðar- og sjávarútvegsnefndar. Athygli vekur að fyrir utan Jón Kristjáns- son, sem klárlega er á leið úr stjórn- málum, er það bara Sæunn Stefáns- dóttir auk Kristins sem ekki fær nefhdarformennsku, en hún tekur sæti Halldórs Ásgrímssonar þegar þing kemur saman í haust. Eru þar með ungir og reynslulitlir þing- menn teknir framfyrir Kristinn, sem er fyrrum þingflokksformaður flokksins. Athygli vekur ósamræmi á milli Norðvesturkjördæmis og Norðausturkjördæmis. NV kjör- dæmi á einn ráðherra, en NA kjör- dæmi ráðherra og tvo nefndarfor- menn innan Framsóknarflokksins. Gefur kost á sér í fyrsta sætið Kristinn sagði í samtali við Skessuhorn að þegar samkomulag náðist í febrúar 2005 hafi verið samþykkt að allt yrði með svipuðu sniði og áður en hann var rekin úr nefhdum og hann yrði nefndarfor- maður á ný. Samþykkt hafi verið að framkvæma samkomulagið í áföng- um. Nú hafi menn haft þrjú tæki- færi til að uppfylla það að fullu en ekki nýtt þau. „Það voru vandkvæði að stokka allt upp á sínum tíma en hefði átt að vera hægt um haustið 2005 og svo aftur þegar ráðherra- skipti urðu nú í mars. Nú hafa menn samþykkt þetta svona og þessi hluti samkomulagsins hefur því enn ekki gengið eftir.“ Að- spurður segist Kristinn ekki skilja orð Hjálmars Árnasonar sem féllu á RÚV um að ekki væri um afgerandi samkomulag að ræða. „Eg veit ekki hvað það er, er það annars aðila að ákveða hvað er afgerandi? Annars verður Hjálmar að skýra það. Um- mæli hans staðfesta hins vegar að samkomulagið var fyrir hendi eins og ég hef alltaf sagt.“ Kristinn vill ekki segja að sam- komulagið hafi verið brotið, það feli í sér að málinu sé lokið. „Menn hafa enn möguleika á því að upp- fylla samkomulagið að fullu og ég vonast eftir því að það muni gerast. Eg geri mér vonir um að í ljósi yf- irlýsinga nýkjörins formanns um að hans helsta verkefhi sé að jafna ágreining í flokknum, en eins og menn muna voru verulegar deilur í sumar sem ég átti þó ekki aðild að, muni menn leggja sig fram um að ná góðu samkomulagi innan þing- flokksins." Kristinn segir að nú taki við hefðbundin haustverk við að undir- búa þinghald og fara um kjördæm- ið. „Síðan verður kjördæmaþing hjá okkur í september og þá munu menn taka ákvörðun um uppstill- ingaraðferð. Eg hef lýst því yfir að ég muni gefa kost á mér í fyrsta sætið fýrir alþingiskosningarnar í vor,“ segir Kristinn að lokum. Ekki aðili að deilum innan þingflokksins Jón Sigurðsson, formaður Fram- sóknarflokksins vildi lítið tjá sig um skipan mála innan þingflokks Framsóknarflokksins. Jón sagði í samtali við Skessuhorn sl. sunnu- dag að hann vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti en því að menn þurfi að ná betur saman. „Eg hef ekki haft tækifæri til að setjast nið- ur með Kristni og ræða málin, hann hefur verið erlendis. Menn þurfa bara að hægja á sér og ræða málin,“ segir Jón. Jón segist ekki vera beinn aðili að deilum innan þingflokksins. „Krist- inn hefur verið að deila við menn, en ég hef ekki átt aðild að þeim Kristinn H Gunnarsson, alþingismaður gefur kost á sér ífyrsta sœti lista Fram- sóknarflokks í NV kjördœmi. Jón Sigurðsson, formaður Framsóknar- flokksins, segist ekki aðili að deilum innan þingflokksins, en segir menn þurfa að setjast niður og ræða málin. deilum.“ Spurður út í ummæli Kristins hér að framan, þar sem hann vísaði til þess að Jón hefði sagt það sitt helsta verkefni að jafha ágreining í flokknum segir hann: „Nú þurfum við bara að setjast nið- ur og ræða saman og ná góðum sameiginlegum takti.“ -KÓP Þorvaldur Valgarðsson gjaldkeri sóknamefndar, sr. Kristinn Jens Sigurþórsson, Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Amheiður Hjörleifsdóttir formaður sóknamefndarfyr- ir utan Hallgrímskirkju í Saurbœ í síðustu viku. Vígsluafinæli Hallgríms- kirkju á næsta ári Á næsta ári á Hallgrímskirkja í Saurbæ 50 ára vígsluafmæli. Fram- kvæmdir við byggingu kirkjunnar hófust árið 1937 en skömmu eftir það skall síðari heimsstyrjöldin á með öllum sínum afleiðingum og lágu framkvæmdir við bygginu kirkjunnar niðri í hálfan annan áratug. Kirkjan var vígð 28. júlí 1957 og eru sóknarnefnd og sókn- arprestur Hallgrímskirkju nú farin að huga að því að minnast tíma- mótanna. Nýskipuð sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti fyrir nokkru á fundi sínum að veita fé til kirkjunnar og verður þeim fjár- munum varið í framkvæmdir ut- andyra, bílaplan verður malbikað og gangstéttir lagfærðar. Til stend- ur að malbikunin fari ffam nú í haust en stéttirnar verða teknar í gegn næsta vor og vonast er til að þeim framkvæmdum verði lokið fyrir vígsluafmælisdaginn. „Óformlegar viðræður við menningarmálanefnd Hvalfjarðar- sveitar hafa farið fram og hefur nefndin sýnt staðnum og vígsluaf- mælinu mikinn áhuga en ekki er hægt að segja frá því með vissu með hvaða hætti afmælishátíðin mun fara fram. Þá er vert að nefna að kirkjan á marga velunnarra, sem án efa munu leggja sitt af mörkum við að gera afmælishátíðina sem á- nægjulegasta. Tónleikaaðstaða í kirkjunni hefur gjörbreyst eftir að kirkjunni var færður flygill á síð- asta ári. Tónlist mun því án efa setja mark sitt á afmælishátíðina," sagði Arnheiður Hjörleifsdóttir sóknarnefhdarformaður í samtali við Skessuhorn. I síðustu viku kom í heimsókn til kirkjunnar Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra og var hann að kynna sér þær fram- kvæmdir sem fyrirhugaðar eru við kirkjuna og þær framkvæmdir sem nú þegar er lokið við. „Sturla hef- ur sýnt staðnum og verkefninu mikinn áhuga og ber heimsókn hans vott um það,“ sagði Arnheið- ur að lokum. SO Sýnum bömnm aðgát í umferðinni Að sumarffíi loknu hópast börn og unglingar til skólanna þessa dagana og gangandi vegfarendum fjölgar mikið í umferðinni og jafn- vel þeim hjólandi líka, sérstaklega í nágrenni við menntastofnanir. Oll vitum við það sem eitthvað þekkj- um til barna að þau eru ekki alltaf með hugann við það sem þau eru að gera. Fyrstu skóladagarnir eru spennandi en reyna oft mikið á sál- artetur ungra skólabarna, þá kannski sérstaklega þeirra sem eru að stíga sín fyrstu skerf í grunn- skólagöngunni. Því ættum við öll sem akandi erum í umferðinni að vera varkár að venju en leiða hug- ann sérstaklega að þessum einstak- lingum sem á leið eru til eða frá skóla. Að sögn lögreglunnar í Borgar- nesi ætlar hún sér að verða mun sýnilegri innan bæjarmarkanna en verið hefur í sumar og þá sérstak- lega árla dags eða um klukkan átta. „Við upphaf skóladags á morgn- anna verðum við mikið á ferðinni og þá sérstaklega í nágrenni grunnskólans hér í bæ. Svo verður gangbrautarvörður hjá tónlistar- skólanum, en reyndar ekki á veg- um lögreglunnar," sagði Theodór Þórðarson yfirlögregluþjónn í Borgarnesi í samtali við Skessu- horn. SO PISTILL GISLA Myrkvun Það er svo merkilegt að mannskepnan sættir sig við nánast hvað sem er ef það er gert í nafni menninga og lista. Það sem þykir óviður- væmleg, ósiðlegt, ógeðslegt eða klámfengið í daglegu lífi þykir áhugavert, ögrandi, skapandi og í versta falli erótískt ef það er fram- kvæmt af listamönnum. Mér flaug þetta í hug þegar ég las fréttir af fyrirætlunum forsvarsmanna alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykja- vík sem ætla að myrkva hina oflýstu höfuðborg í heilan hálftíma að mánuði liðnum. Mér þykir það nokkuð merkilegt að Reykvíkingar láti þetta yfir sig ganga í ljósi þess að ljósleysi veldur þeim hugarkvölum og ang- ist ef borgin myrkvast af völdum bilunar. Ef rafmagn fer af litlu hverfi í Breiðholti í tíu mínútur eða svo fer allt á annan endann. Um það eru gerðar langar fréttir. Vestfirðir þurfa hinsvegar að vera rafmagnslausir í nokkra daga svo það teljist fréttnæmt svo dæmi sé tek- ið. Sú hugmynd að taka raf- magnið af Reykjavík í lengri eða skemmri tíma hugnast mér í sjálfu sér ekki illa. Mér er í raun slétt sama. Ég læt mér líka í léttu rúmi liggja þótt önnur sveitarfélög api þetta eftir líkt og farið hefur verið fram á samkvæmt fréttum Skessuhorns. Þannig vill til að í rúmt ár hefur ákveðinn ljósastaur í mínum heimabæ, Borgar- nesi, haft miður góð áhrif á geðslag mitt. Ljósastaur þessi hefur upp á sitt eins- dæmi stundað tímabundna listræna myrkvun. Reyndar ekki í heilan hálftíma heldur tvær til þrjár sekúndur í einu og síðan hefur hann líst á ný í álíka langan tíma. Þannig hefur þetta gengið linnulaust á þeim tíma sól- arhringsins sem ljósastaurar eru yfirhöfuð starfandi. Nú léti ég þetta ekki trufla mig svo mjög ef ljósastaur- inn væri ekki akkaúrat utan við stofugluggann minn og stæði þar síblikkandi. Eg mæli því með því að myrkv- unaraðgerðum á Vestur- landi verði beint að þessum staur fýrst og ffemst. Eg er líka með hugmynd fýrir þá sem hnupluðu hraðahindr- unum í Borgarnesi fyrir skömmu. Ef þá vantar fleiri verðug verkefni, þá er ekki mikil gæsla við umræddan ljósastaur. Ég er viss um að hraðahindranirnar njóta sín betur í stofunni hjá viðkom- andi með viðeigandi lýs- ingu. Gísli Einarsson, upplýstur.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.