Skessuhorn - 30.08.2006, Side 16
16
MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2006
^ttUsvnu^:
'etltUtltl^^
I sannleika sagt
- leiðrétting varðandi Norðurá
í síðasta tölublaði Skessuhoms,
Veiðihomi er vitnað í veiðimann
nýkominn af veiðum í Norðurá.
Hann telur að í ánni séu miklu færri
fiskar en í fyrra og álítur að áin mtmi
kannske ná 2500 fiskum. Helst er á
greininni að slrilja að það sé slakur
árangur. Vegna þessara skrifa þykir
mér rétt að koma efrirfarandi upp-
lýsingum á ffamfæri. Árið 2005 var
sérstætt á margan hátt hér í Norð-
urá. Þá veiddust í ánni 3137 laxar og
er það miklu meiri veiði en nokkum
tíma er vitað um áður. Árið 2005 er
því ekki heppilegt til viðmiðunar.
Það sker sig úr svo miklu munar frá
öllum aflatölum í ánni allt aftur til
ársins 1963. Það ár þegar mest
veiddist í ánni áður var árið 2002 en
þá veiddust þar 2308 laxar. Þann 26
ágúst síðastliðirm höfðu veiðst í
Norðurá 2175 laxar. Þetta sumar er
því nú þegar orðið þriðja besta
veiðisumarið frá því að skráning
hófst.á veiðum í ánni.
Teljarinn í Glannastiganum gefúr
haldgóðar upplýsingar um ástandið.
Meðfylgjandi tafla gefur nokkra
hugmynd um það.
Mér þykir ólíklegt að heildarafl-
inn í ánni nái tölunni 2500 eins og
tafið er hugsanlegt í umræddri grein
en engu að síður erum við harla á-
nægð með það hér við ána að þetta
skuli nú þegar vera orðið þriðja
mesta veiðisumar, sem sögur fara af
í henni og þá erum við ekki síst
ánægð með það ástand, sem virðist
vera á hrygningarstofni árinnar. Það
er því von mín að umræddur veiði-
maður taki aftur gleði sína og horfi
björtum augum til næstu lax-
veiðisumra í Norðurá. Umsjónar-
maður veiðihornsins mætti hins
vegar hafa það í huga að leita ffam-
vegis traustari heimilda um gang
mála við ána.
Gunnar Jónsson
Veiðivörður við Norðurá.
Ár Heildarveiði I ánni Göngur um teljara á veiðitímanum Veiðin ofan við teljaran Óveiddir fiskar
2002 2308 1801 806 927
2005 3137 4949 1250 3699
2006 2175 2767 783 1984
www.skessuhorn.is
T^etitiititi^
Minjagarður myndast - Minjakirkjan í Reykholti
Sunnudag-
inn 27. ágúst
sl, um það
leiti sem
keppt var í
hrútaþukli í
Sauðfjársetr-
inu á Strönd-
um og opnuð
var ný kjöt-
iðnaðarstöð í Borgarnesi, var hátíð
haldin í veðurblíðunni í Reykholti.
Dyrum gömlu kirkjunnar, sem þar
hefur nú staðið í stórt hundrað ára,
var formlega lokið upp en kirkjan
hefur nú verið færð til fyrsta horfs
bæði að utan og innan. Fyrr um
daginn hafði verið verið guðsþjón-
usta í Reykholti og dr. Guðrún
Sveinbjarnardóttir hafði haldið
fyrirlestur á vegum Snorrastofu
um athyglisverðar rannsóknir sín-
ar á eldri kirkjum í Reykholti, m.a.
um niðurstöður fornleifarann-
sókna þessa sumars.
Með minjakirkjunni í Reykholti
hefur nýr hluti bæst við staðar-
myndina. Á tímabili ríkti nokkur
óvissa um örlög þessa húss, hvort
rifið skyldi, fjarlægt eða endurgert.
Eftir vandaða umhugsun og síðan
með samstilltu átaki margra, er
málið varðaði, var hin gamla
Reykholtskirkja endurgerð og
stendur nú sem veigamikill hluti
hinnar hlýlegu staðarmyndar.
Kirkjuhúsin tvö kallast ekki á held-
ur styrkja hvort annað enda gegnir
hvort húsanna sínu hlutverki:
Hin nýja og glæsilega Reyk-
holtskirkja, sem reist var af dugn-
aði og framsýni heimamanna með
tryggum stuðningi margra, inn-
lendra sem erlendra, hefur löngu
sannað sig sem fagurt og gagnlegt
guðshús en líka sem miðstöð ann-
arrar menningar og tónlista hvers
konar. Hún hefur stórlega styrkt
Reykholt sem þjóðmenningarstað
- ekki aðeins úr fortíð heldur líka
til ffamtíðar. Minjakirkjan - hin
gamla Reykholtskirkja - segir hins
vegar sögu síns tíma, auk þess að
vera mikilvægt framlag til kirkju-
sögu staðar, héraðs og lands. Hún
er fulltrúi tíma sem spannar mestu
breytingar í byggðum og þjóðlífi á
þessu landi: þar má sjá hvernig öfl-
ug sókn rækti kristni sína, og hvert
sóknarbörn sótti huggun jafnt sem
gleði á helgum stundum. Mann-
virkin tvö eru því hlekkir í langri
keðju sem haslar völl um sögu og
helgi þjóðmenningarstaðarins í
Reykholti.
Stjórn Snorrastofu hefur mótað
stefnu um Minjagarð í Reykholti
og þessi misserin er unnið að und-
irbúningi og framkvæmd hennar.
Minjakirkjan er mikilvægur hluti
þessa minjagarðs - hún bætir nýrri
vídd við staðinn og raunar héraðið
allt. Opnun minjakirkjunnar er því
ánægjulegur áfangi í framkvæmd
þessarar stefnu Snorrastofu og því
markvissa uppbyggingarstarfi sem
svo farsællega hefur staðið í Reyk-
holti síðustu árin.
Það er ástæða til þess að gleðjast
yfir þeim áfanga í eflingu Minja-
garðsins í Reykholti sem opnun
minjakirkjunnar er. Það er líka á-
stæða til þess að færa þeim fjöl-
mörgu er lögðu hönd að verkinu
þakkir fyrir starf og stuðning.
Héraðsbúar eru eindregið hvattir
til þess að líta við í Reykholti og
kynna sér það fjölbreytta starf sem
þar er unnið.
Bjami Guðmundsson
Hvanneyri
(Jdu&ihoztiCS
Umsjóh: Gunnar Bender
Síðasta holl með
40 laxa úr Flóku
Veiðin hefur gengið vel í Flóka-
dalsá í Borgarfirði og eru núna
komnir 370 laxar á land. Síðasta
holl náði 40 löxum, sem verður að
teljast mjög gott. Víða er fiskur í
ánni en flestir eru þeir á bilinu 4
til 6 pund. „Hollið fékk 40 laxa og
það er fínt, stærsti laxinn sem
veiðst hefur í Flóku í sumar er 9
pund,“ sagði Ingvar Ingvarsson
frá Múlastöðum sem var á bökk-
um Flókadalsár fyrir nokkrum
dögum síðan.
Norðurá er komin í
2230 laxa
„Við erum að byrja veiðiskapinn
núna í Norðurá, ég held að veiðin
gæti orðið góð hjá okkur, veður-
spáin gerir ráð fyrir breytingum í
veðri. Það er fiskur í mörgum
hyljum árinnar," sagði Eggert Jó-
hannesson sem var að byrja veið-
ina seinni partinn á mánudaginn.
„Við fengum góða veiði hérna í
fyrra á svipuðum tíma en þá voru
líklega fleiri laxar en núna eru í
ánni,“ sagði Eggert sem var að
byrja veiðina fyrir neðan Krók í
Norðurárdal.
Norðurá hefur nú gefið 2230
laxa og það er svipuð veiði og fyr-
ir tveimur árum síðan.
Fælir sjóbirtingurinn
bleikjuna burtu?
Sífellt fleiri sjóbirtingar veiðast
í veiðiánum núna þegar komið er
undir haust, þar sem bleikjur
veiddust áður. Má í þessu sam-
bandi nefna ár eins og Hítará,
Álftá og Laxá í Kjós. Sjóbirting-
urinn tekur sér sffellt bólsfesm í
fleiri veiðiám á sama tíma og
bleikjunni fækkar verulega og hún
hverfur reyndar alveg í mörgum
veiðiám.
Laxá í Kjós er að verða helsta
sjóbirtingsáin á vestanverðu land-
inu, mikið af birtingi hellist í ána
þegar ágústmánuður hefst og
sumir þeirra eru vel vænir. Veiði-
menn sem Skessuhorn hitti við
Laxfoss í Laxá í Kjós, voru í hörku
birtingi en laxinn tók ekki. Þeir
dunduðu sér við að kasta flugunni
og fá sprækan birtinginn til að
taka ýmsar flugur. En fyrir
nokkrum árum var lítið um sjó-
birting í Kjósinni.
> Wa Tí
Örn Helgason með fallegan sjóbirting úr Leirá, en sjóbirtingurinn hefur víða veiðst á
Vesturlandi að undanfómu.
Sjóbirtingurinn er fiskur sem á
hvergi heima og flækist á milli
vatnasvæða og hefur mest haldið
sig fyrir austan, en hefúr greini-
lega fært sig meira og meira á
Vesturlandið.
„Við vorum að koma úr Álftá og
fengum 3 laxa og 3 sjóbirtinga,
það er víða fiskur í ánni en hann
tekur illa, en það er farið að rigna
og þá getur ýmislegt gerst þar,“
sagði Eggert Jóhannesson sem var
að koma úr ánni fyrir fáum dög-
um.
Það er töluvert af sjóbirtingi
neðarlega í Álftá. Á Vatnasvæði
Lýsu er sjóbirtingur að veiðast en
hann er frekar smár og það sama
er hægt að segja um Staðará á
Snæfellsnesi.
Bleikjan er á undanhaldi, alla-
vega núna í ár og í fyrra líka, en
hún kemur vonandi aftur, en
dæmi eru um ár þar sem bleikja
hefur nánast horfið eins og í
Hörðudalsá í Dölum, en mjög
fáar bleikjur hafa veiðst þar í sum-
ar.
Víða er gæs að finna
Margir hafa farið á gæs fyrstu
dagana sem mátti veiða hana og
veiðin hefur verið ágæt en reynd-
ar fer það mikið eftir landshlutum
hvernig veiðiskapurinn gengur.
„Eg var að koma af Ströndum og
það var alveg hellingur af fugli á
flestum túnum, ég var ekki að
skjóta heldur ferðast. Hitti veiði-
menn fyrir utan Hólmavík og þeir
voru búnir að fá 15 fugla, sagði
Skagamaður sem var á ferðalagi á
Ströndum, reyndar byssulaus og
sá hann eftir því.
Tveir veiðimenn voru vestur í
Dölum um helgina og fengu 20
fugla.