Skessuhorn - 13.09.2006, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2006
SgBSSIIHftBiM
Tii mtnnís
Skessuhorn minnir á að nú er
rétti tíminn til þess að halda útí
móa og tína ber. Þau bíða þess
að breytast í Ijúffengar afurðir
sem hægt er að geyma til vetr-
arins.
Veðftrhorfftr
Gert er ráð fyrir suð- eða aust-
lægum áttum næstu daga og
vætusömu veðri. Hiti verður á
bilinu 8-15 stig.
SpRrniwj viMnnar
í síðustu viku var spurt á
skessuhorn.is hvort afnema
eigi alfriðun á álft. Rúmlega
64% þeirra er svöruðu sögðu
að svo ætti að gera. Tæplega
28% svarenda vilja friða fugl-
inn hvíta áfram en 8% svar-
enda hafa ekki skoðun á mál-
inu.
í næstu viku spyrjum við:
„Ertu fylgjandi því
að hefja
hvalveiðar í
atvinnuskyni að
nýju við ísland?"
Svaraðu án undanbragða
VestlenGjiwjMr
vikftnnetr
Fríða Björg Skúladóttir, hjúkr-
unarfræðingur frá Akranesi er
Vestlendingur vikunnar en
hún er nú á leið til Malaví þar
sem hún mun dvelja næstu sjö
Mt&ikudasiu 13. (apt kl. 30 Mtas. Srti tstt I
fösiadagur 18. sepi. 10.30 UiH>sell
UtioarOasor 16. se|rt. W. 20 Oppsett
Sunnudagur 17. »pl. U. 30 Uppsslt
Uuoardagur 33. sept. kf. 30 Uppselt
Sunntnlagur 34, sept. W. 10 Órfi laus steti
MtðrtkiKtaottr 37. september kl. 30 Um ssetí
FimmtitttoOHr 5. oktdker kt 30 Uus mb«
Fostudaijur 0. október kt. 30 UussaeU
Uugardajur 7. akttkar kl. 30 tlHmelt
Staðfesta þar* ifiða með grelðslu
víku lyrír aýnlngardag
tEIKHÚSTILBOÐ
Tviréttí*óu» kvókiv&töur o§ tttikbw&miöJ kó 4’SJHi 4SaO, ir
MHIAWNIANIR 1 SlM,4 457 ISOI
Hugmyndir að 40 herbergja hóteli
við Golfvöllinu á Akranesi
Einkaaðilar hafa kynnt bæjaryfir-
völdum hugmynd að byggingu 40
herbergja hótels við Garðavöll sem
er golfvöllur Golfklúbbsins Leynis
á Akranesi. Byggingunni er jaín-
ffamt ætlað að þjóna sem skáli golf-
klúbbsins. Gísli S. Einarsson bæjar-
stjóri segir að þessir aðilar hafi
kynnt hugmyndir sínar fyrir bæjar-
yfirvöldum fyrir nokkru enda þurfi
að breyta skipulagi til þess að hug-
myndirnar nái fram að ganga.
Hann segir að þarna sé um að ræða
sex hæða byggingu. Neðstu hæð-
inni sé ætlað að þjóna sem skáli
Golfklúbbsins Leynis. A annarri
hæð verði veitingasalir og á fjórum
efstu hæðunum verði 40 herbergja
hótel.
Gísli kynnti hugmyndina fyrir
bæjarráði sem tók henni vel og fól
honum að fylgja málinu effir. Hann
segir þessar hugmyndir geta fallið
að framtíðaráformum golfklúbbsins
sem um nokkurt skeið hefur stefnt
að byggingu nýs golfskála. Nái
hugmyndir þessar ffam að ganga er
reiknað með að framkvæmdir geti
hafist síðla næsta sumars en auk
breytingar á skipulagi þarf að færa
til eina flöt golfvallarins áður en
ffamkvæmdir geta hafist.
MM
Ibúum fjölgar í stærstu
sveitarfélögum á Vesturlandi
Frá 1. júlí á síðasta ári til sama
tíma í ár hefur íbúum á Vestur-
landi fjölgað úr 14.500 í 14.934
eða um 2,93%. A sama tíma fjolg-
aði íbúum á landinu öllu úr
295.864 í 304.334 eða um 2,86%.
Ibúum á Vesturlandi er því farið að
fjölga hraðar en á landinu í heild.
Þetta kemur fram í tölum Hag-
stofu Islands um miðársmann-
fjölda.
A sama tíma hefur íbúum fjölgað í
öllum stærstu sveitarfélögum á Vest-
urlandi. Ibúum á Akranesi fjölgaði
úr 5.721 í 5.855, í Borgarfjarðarsveit
fjölgaði úr 685 í 746, í Borgarbyggð
fjölgaði úr 2.580 í 2.703, í Grundar-
þrði fjölgaði úr 952 í 956, í Stykkis-
hólmi fjölgaði íbúum úr 1.136 í
1.177, í Snæfellsbæ fjölgaði úr 1.705
í 1.736 og í Dalabyggð fjölgaði úr
613 í 637 íbúa.
Af öðrum sveitarfélögum má
nefna að í Hvaífjarðarstranda-
hreppi fækkaði íbúum úr 148 í
144, í Skilmannahreppi fjölgaði úr
194 í 219, í Innri-Akraneshreppi
fjölgaði um einn íbúa úr 116 í 117,
í Leirár-og Melahreppi stóð íbúa-
fjöldinn í stað og var 130, í Skorra-
dalshreppi fækkaði úr 64 í 61, í
Hvítársíðuhreppi fækkaði úr 84 í
78, í Kolbeinsstaðahreppi fjölgaði
úr 98 í 102, í Helgafellssveit fjölg-
aði úr 50 í 54, í Eyja- og Mikla-
holtshreppi fækkaði úr 146 í 142
og í Saurbæjarhreppi fækkaði úr
78 í 77.
Sérstaklega er athyglisvert að sjá
að á þessum tíma fjölgaði íbúum í
strjálbýli á Vesturlandi úr 2.758 í
2.774. HJ
Borgarbyggð vill þróa grunnskóla
að þriggja ára menntaskóla
Fræðslunefndar Borgarbyggðar
hefur samþykkt að óska eftir við-
ræðum við menntamálaráðuneytið
um að grunnskólar Borgarbyggðar
taki að sér tilraunaverkefni við að
aðlaga grunnskólana að námskrá
þriggja ára framhaldsnáms til stúd-
entsprófs. Þegar samþykkt var að
fara út í stofnun Menntaskóla
Borgarfjarðar var það gert með því
fororði að þar yrði þriggja ára nám
til stúdentsprófs. Menntamálaráð-
herra hefur lýst yfir vilja sínum til
styttingar námsins og á skólinn að
vera sá fyrsti sem kennir eftir nýrri
námsskrá.
Asthildur Magnúsdóttir, fræðslu-
fulltrúi Borgarbyggðar, sagði í sam-
tali við Skessuhorn að verið væri að
stíga fyrstu skrefin í þróun náms
miðað við fyrirhugaðar breytingar.
Með styttingu náms í menntaskóla
væri verið að færa hluta af náminu
niður í grunnskóla. A því væri vilji
til að taka og því væri óskað eftir
þessu tilraunaverkefni. Asthildur
segir að þessi þróunarvinna sé mjög
skammt á veg komin. Menn hafi
fundað með starfsmönnum ráðu-
neytisins og allir líst yfir vilja sínum
til að taka á málinu. Ekkert fjár-
magn hafi hins vegar verið sett í
verkefhið ennþá. „Við viljum vinna
að þessu í vetur,“ segir hún. „Það
gengur ekki að krakkar héðan fari í
þriggja ára framhaldsnám án þess
að vera sérstaklega undir það búin
og í því viljum við vinna.“
KÓP
Segir Norðlenska ekki
hafa undirbúið slátrun
Bóndinn á Á í Dalasýslu telur
ljóst að Norðlenska hafi ekki á
nokkurn hátt undirbúið slátrun
sauðfjár í Búðardal í haust. Hann
hafði samband við sláturhússtjóra
með viðskipti í huga en var fálega
tekið. Eins og fram hefur komið í
fréttum Skessuhorns hefur Kaup-
félag Skagfirðinga yfirtekið leigu-
samning Norðlenska á sláturhús-
inu í Búðardal. Jafnframt hefur
verið ákveðið að leggja slátrun af í
Búðardal einu ári eftir að endur-
bótum á sláturhúsinu lauk sem
talið er að hafi kostað nærri sjötíu
milljónir króna.
Sveitarstjóri Dalabyggðar sagði í
samtali við Skessuhorn á dögunum
að Norðlenska hafi brugðist skyld-
BORGARBYGGÐ: Byggðaráð
Borgarbyggðar hefur ákveðið að
veita auknum fjármunum til
menningarnefndar Borgarbyggðar
vegna vinnu nefndarinnar við
mótun menningarstefnu sveitarfé-
lagsins. Oskaði nefndin eftir fram-
lagi að upphæð 120 þúsund krón-
ur. Nefndin hyggst nýta þessa fjár-
um sínum með því að undirbúa
ekki slátrun. Þessu neitað fram-
kvæmdastjóri Norðlenska.
Trausti Bjarnason, bóndi á Á í
Dalasýslu segir ljóst í sínum huga
að Norðlenska hafi ekki haft slátr-
un í huga í Búðardal. „Eg hafði
samband við sláturhússtjóra þeirra
um miðjan júlí og leitaði eftir við-
skiptum því ég tel það lífsspursmál
fyrir byggð hér að slátrun fari fram
á svæðinu. Mér kom það því í opna
skjöldu að ég fékk lítil sem engin
svör og það litla sem ég fékk að
vita var afar loðið. I mínum huga
höfðu þeir engan áhuga á að und-
irbúa slátrun í Búðardal."
Trausti er afar ósáttur með þró-
un mála í sauðfjárslátrun í Búðar-
muni til þess að halda tvo auka-
fundi í nefndinni auk þess að kalla
til sérfræðing í stefnumótunar-
vinnu inn á fund nefndarinnar.
Einnig hyggst nefndin kalla full-
trúa helstu menningarstofnana,
félaga og fyrirtækja í sveitarfélag-
inu til samstarfs við mótun menn-
ingarstefnunnar. -hj
dal. „Hér lyftu menn grettistaki
við endurreisn sláturhússins á síð-
asta ári og endurbæturnar kostuðu
mikið fé. Það var því lífsspursmál
að leigutaki hússins hefði allar
klær úti við öflun viðskipta. Því
miður varð svo ekki og nú lítur út
fyrir að ekki verði slátrað hér í
framtíðinni. Það er afar dapurleg
niðurstaða svo ekki sé meira sagt,“
sagði Trausti að lokum.
HJ
Rækjan
hrunin
LANDIÐ: Á síðasta fiskveiði-
ári veiddust aðeins 1.037 tonn
af úthafsrækju við Island. Er
það einungis rétt rúm 8% af út-
hlutuðum aflaheimildum. Þá
veiddust einungis 6 tonn af inn-
fjarðarækju á sama tíma. Þetta
er minnsti rækjuafli við Island í
marga áratugi og undirstrikar
algjört hrun stofnsins og á síð-
ustu tveimur fiskveiðiárum hafa
útgerðir ekki treyst sér til þess
að veiða ríflega 25 þúsund tonn
af úthafsrækju.
-hj
Menningarstefiia
í mótun
✓
A sjötta tug
án atvinnu
VESTURL AND: í liðinni
viku var 61 maður án atvinnu á
Vesturlandi, þar af 34 konur.
Atvinnuleysi hefur því heldur
aukist að undanförnu því í júlí
var 51 maður að meðaltali án
atvinnu í landshlutanum, þar af
28 konur. I vikulokin var 41
starf í boði hjá Svæðisvinnu-
miðlun Vesturlands.
-hj
Húsaleiga
hækkar
STYKKISHÓLMUR: Bæjar-
stjórn Stykkishólms hefur sam-
þykkt að hækka húsaleigu fast-
eigna í eigu eignasjóðs sveitar-
félagsins um 10% frá síðustu
mánaðamótum. Jafnframt var
samþykkt að húsaleiga hækki
fjórum sinnum á ári og miðist
leigan við breytingu á vísitölu
neysluverðs.
-hj
Tíðindalítil vika
BORGARNES: Bflvelta varð
við Árdal á Borgarfjarðarbraut
á föstudaginn. Tveir menn voru
í bflnum og slasaðist hvorugur.
Á laugardag var maður gripinn
við veiðiþjófnað við Gufuá.
Annars var tíðindalítið í um-
dæmi Borgarfjarðarlögreglunn-
ar í síðustu viku, ef svo má að
orði komast. 20 voru teknir fyr-
ir of hraðan akstur, en það er
nokkuð algengur vikuskammt-
ur. -kóp
Kostnaður við
viðbótarstofu
AKRANES: Framkvæmdir við
lausu kennslustofuna, sem
komið var fyrir á lóð leikskól-
ans Garðasels á Akranesi, kost-
aði tæpar tíu milljónir króna.
Þetta kom fram í yfirliti sem
lagt var fram á fundi bæjarráðs
Akraness í síðustu viku. Kostn-
aðurinn skiptist þannig að
kaupverð hússins var 2,5 millj-
ónir króna, endurbætur á hús-
inu og lagfæringar á lóð kost-
uðu tæplega 5,3 milljónir
króna, til kaupa á innanstokks-
munum og kennslugögnum var
varið 1,1 milljón króna og girð-
ing lóðarskika og útileiktæki
kostuðu 1,1 milljón króna.
-M
Makaklúbbur
stofinaður
BIFRÖST: fbúar á Bifröst
stunda ekki allir nám við Há-
skólann. Þeim fylgja makar sem
setjast þar að á meðan sambýl-
ingurinn stundar nám við skól-
ann. Til að þessu ágæta fólki
leiðist nú alls ekki var nýverið
ákveðið að stofna sérstakan fé-
lagsskap fyrir þessa einstak-
linga. í frétt á vef skólans segir:
„Það getur verið erfið ákvörðun
að fara frá fjölskyldu og vinum
en ekki má gleyma því að flest-
ir makar eru í sömu stöðu á Bif-
röst. Til þess að þessi tími verði
jafn eftirminnilegur fyrir þá
sem setjast hér að til þess að
sinna öðrum hlutum en námi,
mun í vetur verða settur á stofn
makaklúbbur." Sérstök móttaka
var fyrir maka nemenda í gær,
þriðjudag.
-mrn