Skessuhorn


Skessuhorn - 13.09.2006, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 13.09.2006, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2006 7 3gESSfflBflBKl Menningarverðlaun aflient í Borgarbyggð Síðastliðinn sunnudag fór fram afhending tveggja menningar- tengdra verðlauna í Safnahúsinu í Borgarbyggð. Annars vegar voru veitt ljóðaverðlaun úr Minningar- sjóði Guðmundar Böðvarssonar skálds og bónda frá Kirkjubóli og hlaut rithöfundurinn Þórarinn Eldjárn þau. Einnig voru veitt borgfirsk menningarverðlaun og féllu þau listamanninum Páli á Húsafelli í skaut. Ingibjörg Berg- þórsdóttir, formaður sjóðsins setti samkomuna og Asa Harðardóttir, forstöðumaður Safnahússins gerði grein fyrir glæsilegri yfirlitssýn- ingu sem hefur verið sett upp með verkum Páls í Safnahúsinu, en þar eru einnig aðgengilegar allar bæk- ur rithöfúndarins. Steinunn Jó- hannesdóttir las ljóð að eigin vali eftir Guðmund Böðvarsson og Böðvar Guðmundsson, verndari sjóðsins, fór yfir fjölbreyttan starfsferil verðlaunaþeganna. Þór- arinn Eldjárn flutti nokkur nýsam- in ljóð sín og Steindór Ander- sen flutti rímuna Móðir Jörð. Blandaður kór Bjarna Guðráðs- sonar úr Reyk- holts- og Hvanneyrar- sóknum söng lög við texta Guðmundar og Snorri Hjálm- arsson söng ein- söng. Viðar Guðmundsson spilaði á flygil Hvítárvallabar- ónsins. Páll á Húsafelli, Hilm- ar Orn og Frank spiluðu á stein- hörpu lista- mannsins, sem var til sýnis þennan dag í Páll á Húsafelli og Asa S. Harðardóttir við eitt verka Páls á sýn- ingunni sem opnuð var sl. sunnudag. Unnur Ólafsdóttir og Thor Vilhjálmsson spjalla við annan verðlaunahafann, Þórarinn Eldjám. Safnahúsinu. Ýmsir aðrir kunnir listamenn tóku þátt í athöfninni, sem var fjölmenn og heppnaðist vel. Þetta er í fimmta sinn sem minningarsjóðurinn úthlutar verð- launum, ljóðaverðlaun hafa áður hlotið Hannes Sigfússon, Þuríður Guðmundsdóttir, Ingibjörg Har- aldsdóttir og Þorsteinn frá Hamri. Borgfirsku menningarverðlaunin hafa áður hlotið Bjarni Backmann og Ari Gíslason, Orgelkaupasjóður Reykholtskirkju, Ungmennafélag Reykdæla og Ungmennafélag Lunddæla og Bjarni Þórðarson. KÓP Hámarkshraði lækkaður á Akranesi Bæjarráð Akraness samþykkti í síðustu viku tillögu skipulags- og byggingarnefndar bæjarins um breytingar á hámarkshraða á göt- um bæjarins. Eins og fram hefur komið í fféttum Skessuhorn hafa hugmyndir að breyttum hámarks- hraða verið til umræðu í bæjarkerf- inu á Akranesi um nokkurt skeið eða allt ffá því að bæjarstjórn sam- þykkti í desember á síðasta ári til- lögu um að lækka hámarkshraða niður í 35 km/klst „í völdum íbúða- götum og við skóla á næstu tveim- ur árum og þannig stuðlað að bættu umferðaröryggi á Akranesi,“ eins og sagði orðrétt í tillögunni. I tillögunni sem bæjarráð sam- þykkti í gær segir að eðlilegt hafi verið talið að 1. áfangi verkefnisins beindust að nánasta umhverfi grunnskóla bæjarins. Þær götur sem hámarkshraði lækkar nú eru í nágrenni Brekkubæjarskóla: Vesturgata milli Stillholts og Merkigerðis Merkigerði ffá Kirkjubraut að Vesturgötu Háholt ffá Kirkjubraut að Vest- urgötu Stekkjarholt frá Kirkjubraut að Heiðarbraut Heiðarbraut frá Stillholti að SHA Brekkubraut frá Stillholti að Háholti í næsta nágrenni við Grunda- skóla verður hámarkshraði lækkað- ur á Víkurbraut og á Innnesvegi milli Víkurbrautar og Garðabraut- ar. Þá samþykkti bæjarráð einnig að lækka hámarkshraða á Esjuvöllum en íbúar þar kvörtuðu á dögunum undan hámarkshraða á þeirri götu. í tillögu þeirri er bæjarráð sam- þykkti kemur fram að gert sé ráð fyrir að merkingum á skilum hraðasvæða verði haldið í lágmarki, það er að fyrst og ffemst verði not- ast við lögboðnar merkingar með umferðarmerkjum en þó verði komið fyrir þrengingum á sex stöð- um. Lauslega er áætlað að kostnað- ur við þessar ffamkvæmdir verði um ein milljón króna. Við þann kostnað bætist kostnaður vegna uppsetningu gangbrautaljósa verði talin þörf á uppsetningu þeirra. HJ HROSS í ÓSKILUM í Skorholti Hvalfjarðarsveit eru þrjár hryssur í óskilumr tvær rauðar og ein rauðstjörnótt ca. þriggja vetra. Komu fram í fyrri hluta júlí við þjóðveg nr. 1. Nánarí upplýsingar gefa Baldvin Björnsson síma 899 8892 og oddviti í síma 864 7628. \ y Blikksmiðir eða vanir menn Blikksmiðir eða vanir menn óskast til starfa hjá Blikksmiðnum hf. Malarhöfða 8, Reykjavík. Boðið er uppá bjartan og notalegan vinnustað og fjölbreytt blikksmíðaverkefni. Þrifalegt umhverfi. I Þeir sem hafa áhuga hafi samband við verkstjóra í síma 577 2727. Framtíðarstörf hjá Norðuráli Norðurál óskar eftir að ráða röskt og áhugasamt starfsfólk til starfa í vaktavinnu í framleiðsludeild Við leitum að fólki sem býr yfir metnaði og lipurð í samskiptum og hefur vilja til að takast á við krefjandi verkefni. Um framtíðarstörf er að ræða og æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Hvað er í boði? • Góður aðbúnaður hjá fyrirtæki í mikilli sókn • Kraftmikill og góður hópur samstarfsfólks • Mikið atvinnuöryggi, traustar tekjur og laun að hluta árangurstengd Jafnrétti Við leggjum áherslu á jafna möguleika karla og kvenna til starfa hjá Norðuráli. Hvernig sækir þú um? Vinsamlega sendu okkur umsókn þína fyrir 22. september n.k. Þú getur sótt um á vef fyrirtækisins: www.nordural.is, sent umsókn þína á netfangið: umsókn@nordural.is eða póstlagt umsóknina, merkta: Ný störf Trúnaður Við förum með umsókn þína og allar persónulegar upplýsingar sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað. Nánari upplýsingar Nánari upplýsingar veitir Rakel Heiðmarsdóttir, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs, í síma 430 1000. Norðurál Um þessar mundir er unnið að stækkun Norðuráls sem felur í sér að framleiðslu- geta álversins verður aukin í 260.000 tonn á næsta ári. Hjá okkur starfa nú um 380 manns að margvíslegum verkefnum og gert er ráð fyrir því að starfsfólki fjölgi enn frekar næsta ári. Century Grundartanga • 301 Akranesi • Sími 430 1000 • Fax 430 1001 • nordural@nordural.is • www.nordural.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.