Skessuhorn


Skessuhorn - 13.09.2006, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 13.09.2006, Blaðsíða 13
§2ESSUHö2H MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2006 13 PGV ehf. i Bæjarhrauni 61220 Hafnafjöröur i Sími: 564 6080 i Fax: 564 60811 www.pgv.is r- á- í- . Boryarljyyyú Samkeppni um byggðarmerki Sendiherra Frakka fól bænd- um á staðnum að draga saman allan reka úr skipinu. Allt sem þótti nokkurs um vert var sent til Frakk- lans, þar með talið vísindaáhöld og persónulegir mun- ir. Bændur máttu hinsvegar hirða allan brotavið og ekki var haldið uppboð á rekan- um. Vitað er að víða er að finna muni úr skipinu, enda var það hin glæsilegasta smíð og unnið úr vönduðu timbri. Heilu bæjarhúsin vor reist úr sperrum úr skipinu og í tilefni þess að nú eru 70 ár liðin frá slysinu hafa aðstandendur sýn- ingar um strandið reynt að hafa uppi á skipsviðunum. Nokkrum sinnum hefur verið kafað niður að flakinu og hefur það verið myndað og einhverjir munir teknir úr því. Afkomendur hafa hins vegar lýst því yfir að þeir líti á það sem vota gröf og vilja ekki að því sé raskað meira en orðið er. Ekki nema sjálf- sagt að virða þá ósk og sína þessari gröf sömu virðingu og öðrum slík- um. Minningu Dr. Charcots og fé- laga hans verður þannig bestur sómi sýndur. -KÓP Glœsileg skipsbjallan og á minni mynd sést hún eftir dvöl á hafshotni. Ljósm.: Svanur Steinarsson. GLUGGITIL FRAMTIÐAR ENGIN MALNINGAVINNA HVORKI FUI NE RVÐ FRABÆR HITA 0G HUOÐEINANGRUN FALLEGT UTLIT MARGIR OPNUNARMOGULEIKAR 0RUGG VINO- 0G VATNSÞETTING PGV ehf. sérhæfir sig í smíði glugga, hurða, sólstofa og svalalokanna úr PVC-u Öllum framleiðsluvörum PGV fylgir 10 ára ábyrgð Gluggarnir eru viðhaldsfríir og á sambærilegum verðum og gluggar sem stöðugt þarfnast viðhalds Sýning um Pourquoi-Pas? opnar í Englendmgavík Asa S. Haróardóttir og Svanur Steinarsson í Englendingavík. Mikið verk hefur verið unnið við endurhætur gtmlu húsanna þar og var Tjemeshús gert upp í tilefnin sýningar- Næstkomandi laugardag, þann 16. september, verður opnuð sýn- ing í Tjerneshúsi í Englendingavík í Borgarnesi í tilefiti af því að 70 ár eru liðin ffá strandi Pourquoi-Pas? Ása S. Harðardóttir, forstöðumað- ur Safnahúss Borgarfjarðar, hefur haft veg og vanda af sýningunni í náinni samvinnu við áhugamenn um atburðinn, s.s. Svan Steinars- son. Vegna sýningarinnar var mun- um úr skipinu safnað saman til að gefa sem heilsteyptasta mynd af skipinu og leyndust þeir víða og lánaði Þjóðminjasafh Islands m.a. gripi. Tjerneshús hefur fengið and- litslyftingu í tilefni sýningarinnar og verið gert upp. Er þetta fyrsta dagskráin sem ffam fer í húsinu eft- ir endurbætur. Dagskráin hefst klukkan 17:00 á ávarpi Páls S. Brynjarsonar, bæjar- stjórar Borgarbyggðar. Að því loknu mun Asa opna sýninguna. Svanur Steinarsson, sem hefur m.a. margoft kafað niður að flakinu, flytur þvínæst erindið „Tengsl mín við flak Pourquoi-Pas?“ og að því loknu mun Friðrik Rafnsson, sem þýtt hefur bók um Charcot, flytja erindið „Rannsóknarskipið Po- urquoi-Pas?: Rabb um Charcot og skipin hans fjögur sem hétu Po- urquoi-Pas?“ Að því búnu verður boðið upp á veitingar undir hressandi harmon- ikkuslögurum, en því næst mun Finnbogi Rögnvaldsson, formaður Byggðaráðs Borgarbyggðar, fjalla um Englendingavík og söguna. Síðasta ávarp dagsins flytur Odile Brelier, sendiráðunautur Frakka, fýrir hönd ffanska sendiráðsins. Að lokum gefst gestum kostur á að segja eigin sjófara- og ævintýrasög- ur áður en dagskrá lýkur. -KÓP Innan um þetta eru brotin hús- gögn, skápar og skrifborð, skúffur og hillur og bjarg- hringir og fatnað- ur. Þar eru brot úr allskonar vísindaá- höldum, og smá- hlutir ýmsir, kerti og brúður, eða annað smálegt, sem skipverjar hafa haft sér til gam- ans.“ Einungis rak 22 líkanna á land, um afdrif hinna 17 er ekki vitað. Ankeri Pourqoui pas? ísinni votu gröf undan Mýrum. Ljósm.: Svanur Steinarsson. svart hálsbindi á gulum leðurstígvél- um. Flest eru líkin alklædd. En af klæðnaði nokkurra verður sjeð, að mennimir hafa klætt sig í flaustri. Sum eru líkin berfætt. Lík skiplæknisins Parats er með óbrotin gleraugu. Ef nokkur líkanna hefðu ekki sár á höfði, er líkast því, sem þarna sjeu menn sofandi. Því ró og ffiður er í svip þeirra, en engin angist. Um alla strandlengjima á Álfta- nesi og í Straumfirði, er nú hrönn af rekaldi. Þar eru stór flök af skipinu, bátabrak og bjálkar. Ilnokki eða Þormóðs- sker? Það vakti at- hygli blaðamanns er hann átti leið út í Þormóðssker fýrir skemmstu að þar er að finna platta með mynd Dr. Charcot. Þar segir að hann hafi farist við skerið ásamt félögum sínum og er lág- mynd af honum að finna þar og einnig kassi með franskri mold. Sams konar platta mun vera að finna við Háskóla Islands. Ollum heimildum ber hinsvegar saman um að Pourqoui pas? hafi farist við Hnokka en ekki Þormóðssker. Sáu menn skipið þar sem það veltist í hafrótinu við Hnokka daginn eftir strandið, en tveimur dögum síðar var það horfið í sæinn. Telja menn að ef skipið hefði komist ffamhjá Hnokka hefði það borið upp í fjöru og þá hefði ekki þurft að fara svo illa sem raun bar vitni. Borgarbyggð efnir til opinnar samkeppni um hönnun byggðarmerkis fyrir sveitarfélagið. Keppnin er öllum opin og eru íbúar Borgarbyggðar sérstaklega hvattir til þátttöku. Skilafrestur tillaga er til kl. 15:00 þann 8. nóvember 2006. Allar nánari upplýsingar um samkeppnina, skilyrði fyrir gildum tillögum, skil á tillögum, dómnefnd, verklagsreglur dómnefndar, verðlaunafé og ítarefni er að finna á slóðinni: www.borgarbyggd.is/byggdarmerki ^SlMkLVestwands www.skessuhorn.is SkessuHorn Stjómsýslan Fynrtæki - Þjónusta ' Ferðaþjónuota Forsíða Fréttir Tenglar Myndir Fyrirtækið Smáauglýsingar Á döfinni Áskrift Gestabók Aðsendar greinar Auglýsingar Á Skessuhomsvefnum finnurðu daglegar fréttir af Vesturlandi, innsendar greinar, smáauglýsingar, viðburðadagskrá og margt fleira. Kíktu núna!

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.