Skessuhorn


Skessuhorn - 13.09.2006, Síða 9

Skessuhorn - 13.09.2006, Síða 9
SgESSSiHeiSKl MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2006 9 Ung Skagakona á leið til hjálparstarfs í Afiíku Fríða Björg Skúladóttir er ungur hjúkrunarfræðingur af Akranesi. Hún vinnur á Landsspítala - Há- skólasjúkrahúsi en er á leiðinni í launalaust leyfi í sjö mánuði. Fríinu mun hún eyða með vinkonum sín- um tveimur; Bjarnheiði Böðvars- dóttur og Astu Rut Ingimundardóttur, við störf í Malaví. Þær eru einnig hjúkrunarfræð- ingar og var ferðin á- kveðin í útskriftarferð þeirra stallsystra í Tælandi. „Við vorum saman í bekk og þegar við vorum í Tælandi komumst við að því að okkur langaði allar til að sjá framandi staði og Afrfka heillaði okkur,“ segir Fríða. Þær fóru út sl. mánudag og fyrir þeim lá ríflega tveggja sólarhringa ferðalag. „Við förum ótrúlegar krókaleiðir þar sem við eltum uppi lægstu far- gjöldin. Við borgum þetta allt úr eigin vasa þannig að hver króna skiptir máli. Það er Hjálparstofn- un kirkjunnar sem skipuleggur ferðina til Malaví. Fríða og félag- ar hennar verða hins vegar ekki starfsmenn Hjálparstofnunarinnar, heldur vinna þær á eig- in vegum. Þær verða í lidu þorpi, Madisi, um 60 kílómetra frá höfuðborginni Lilongwe. „Við verðum að vinna á hreyfanlegri heilsugæslustöð, för- um um þorpin í kring og líknum þeim sem á þurfa að halda,“ segir Fríða. „Um leið verðum við með ffæðslu fyrir þorpsbúa og skóla þar í kring. Þetta gengur út á að hjálpa fólkinu þar til að geta hjálpað sér betur sjálft. Þarna skilst mér að mestan part sé um að ræða eyðni- sjúlkinga í þorpunum, en við verð- um líka við eftdrlit með sjúklingum og næringarráðgjöf." Jólatréð var tuskur á stöng Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Fríða fer til Afríku og hún segist vera mikill flakkari í eðli sínu. „Eg hef alltaf verið haldin mikilli ævin- Fríða Björk Skúladóttir, hjúkrunarfrœðingur er á leið til hjálparstarfa í Afríku. týraþrá og get ekki verið lengi kyrr á sama stað. Eg fór til Afríku að heimsækja frænku mína þegar ég var sex ára gömul, síðan var ég au pair í Bandaríkjunum, skiptinemi í Finnlandi og svo fór ég náttúrulega í útskriftarferðina til Tælands." Fríða segist ekki kvíða því sem að höndum ber í Afríku og hefur eng- ar áhyggjur af því að þurfa að vera úti yfir jólin. „Þegar ég fór til Gambíu þegar ég var sex ára var ég þar yfir jól. Það var fátt sem minnti á hefðbundin jól, fyrir utan íslensku jólakveðjurnar sem við hlusmðum á á langbylgjunni. Við vorum til að mynda með stöng sem við hengd- um tuskur á til að hafa í staðinn fyr- ir jólatré." Fríða segir að þær stöllur viti ekki alveg hvað þær eru að fara út í með ferðinni. „Við vitum mjög lít- ið um þær aðstæður sem við munum búa við.Við fáum íbúð með vatni og rafmagni en meira vitum við ekki. Eg veit t.a.m. ekki hvort það er klósett þar eða ekki.“ Þær vinkonur verða ekki með bíl en heimamaður rntrn lóðsa þær um svæðið og vera þeim til handagagns. Að sex mánaða starfi loknu ætla þær að flakka um í einn mánuð. Með góðum stuðningi Fríða segir að það hafi verið lítið mál fyrir þær að fá leyfi frá vinnuveitendanum til að vera burtu svona lengi. „Við mættum ótrúlegum skilningi á spítalanum og fjöl- skyldur okkar stóðu vel við bakið á okkur. Þar sem við borgum þetta allt sjálfar verður ein- hvern veginn allt að ganga upp og það hefur gert það hjá okkur. Við höfum greitt allar tryggingar, bólusetningar og flug sjálfar og tökum svo launalaust leyfi þannig að við þurftum á stuðningi að halda. Við fórum í yfir 30 fyrir- tæki og leituðum eftir stuðningi en það var bara KB-banki sem studdi okkur. Þess vegna skipti stuðningur vinnuveitandans svo miklu,“ segir Fríða. Skessuhorn óskar Fríðu og vinkonum hennar góðrar ferðar og velfarnaðar í starfi. Lesendur munu njóta ferðar hennar þar sem hún mun lýsa lífinu í Afríku í greinum í blaðinu á næstu mánuðum. -KÓP Akraneskaupstaður ReykikC Akraneskaupstaður í samvinnu við Orkuveitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í verkið: Hólmaflöt - Bresaflöt Malbikun og frágangur Helstu magntölur eru: Malbik.............................. 3.150 m2 Jöfnunarlag......................... 3.520 m2 Steyptur kantsteinn................ 180 m Steyptar gangstéttar.................. 560 rrr Þökulagnir............................ 800 m2 Sáning............................ 2.900 m2 Verklok eru sem hér segir: Malbikun gatna og gangstéttar....15. des. 2006 Göngustígar og annar frágangur... 1. júní 2007 I Útboðsgögn eru til sölu frá og með 14. sept. n.k. hjá tækni- og umhverfissviði Akraneskaupstaðar, Dalbraut 8 á Akranesi fyrir kr. 3.000,-. Tilboð verða opnuð á sama stað, mánudaginn 25. sept. 2006, kl. 11:00. Sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs Borgarbyggð Starfsmaður óskast Leikskólinn Klettaborg í Borgarnesi Leikskólakennara vantar tímabundið til starfa við leikskólann Klettaborg. Um er að ræða ca 80% starf á eldri deildir og 50% starf fyrir hádegi á yngstu deild. Störfin eru laus nú þegar og ráðið verður í þau út skólaárið. Nauðsynlegt er að umsækjendur búi yfir færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, jákvæðni, sjálfstæði og skipulögðum vinnubrögðum. Fáist ekki leikskólakennarar kemurtil greina að ráða starfsmenn með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu. Nánari upplýsingar veita Steinunn Baldursdóttir leikskólastjóri eða Guðbjörg Hjaltadóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 437-1425 eða á netfanginu klettaborg@borgarbyggd.is + Rauði kross íslands Akranesdeild Rauði kross Islands - Akranesdeild þakkar öllum sem tóku þátt í landssöfnuninni n Göngum til góðs. n Með samstilltu átaki höfum við bætt lífsskilyrði fjölda barna í sunnanverðri Afríku. Mánudaginn 18. september kl. 20.00 verður kaffihúsakvöld í húsnæði deildarinnar að Þjóðbraut 11 þar sem fjallað verður um sögu og markmið Rauða krossins og sjálfboðin störf í þágu mannúðar. Allir velkomnir. Rauði krossinn er stærsta mannúðarhreyfing í heimi með 97 milljónir félaga í 185 löndum. Vilt þú vera með? Pourquoi-Pas? strandið Safnahús Borgarfjarðar, Hollvinasamtök Englendingavíkur og Borgarbyggð auglýsa: Pourquoi-Ras? strandið Sýningaropnun í Tjernihúsi, Englendingavík, 16. september kl 1500. Dagskrá: • Páll S. Brynjarson, bæjarstjóri Borgarbyggðar flytur ávarp. Erindi: • Ása S. Harðardóttir, forstöðumaður Safnahúss Borgarfjarðar • Svanur Steinarsson, verndari flaks Pourquoi-Pas? á Mýrum • Friðrik Rafnsson, þýðandi bókarinnar: Jean-Baptiste Charcot, heimskautafari, landkörmuður og læknir • Finnbogi Rögnvaldsson, formaður byggðarráðs Borgarbyggðar • Odile BRELIER, sendiráðunautur Frakka Kaffi og veitingar undir hressandi harmonikkuslögurum

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.