Skessuhorn


Skessuhorn - 13.09.2006, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 13.09.2006, Blaðsíða 19
 MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2006 19 Geta aðrir ekki gertþetta? Ábending til foreldra bama í íþróttafélaginu Skallagrími Ég var á almennt boðuðum íbúafundi mánudaginn 28. ágúst sem Skallagrímur boðaði til. Agæt mæting svo sem, en þarna var langmest fólk sem hefur gefið kost á sér til stjómunarstarfa og verið þar lengi. I fleiri en einni stórn og fleiri en tveimur. Margir hafa ver- ið þar lengur en þeir hafa sjálfir kosið. Þeir vita að maður getur ekki hlaupið ffá ábyrgð við að halda utan um félagsskapinn og halda félagsstarfinu gangandi. Þessvegna er meiri vinna og álag á þá sem eftir sitja þegar ekki fæst fólk til að starfa í stjórnum íþrótta- félaganna. Fólkið sem átti að koma á fund- inn, fólkið sem hefur verið ódug- legt að mæta á aðalfundi viðkom- andi íþróttadeilda þar sem börn þeirra æfa, kom ekki. Bara það að mæta á aðalfund sýnir að foreldri gerir sér grein íyrir að íþróttastarf kemur ekki af sjálfu sér. Það er fólk sem vinnur oft vanþakkláta vinnu við að útvega þjálfara eða skipu- leggja tíma í sal, sem oft er erfitt því allir vilja meira en þeir fá, eða skipuleggja mót heima í héraði eða ferðalög á önnur mót. Það þarf fleira fólk að koma að málunum til að íþrótta- og æsku- lýðsstarfið gangi vel. Víða á land- inu er því þannig háttað að van- mannaðar stjórnir sjá um þetta ofan á að langflestir sem eru í stjórnum íþróttafélaga eru í öðrum stjórnum einnig. Ég veit að í sam- félaginu meðal okkar er fólk sem gæti sýnt meiri áhuga á íþrótta- starfi og félagsstörfum almennt. Mætingar á aðalfundi eru al- mennt afspyrnu lélegar hjá for- eldrum sem ekki eru í stjórn. Stjórn mætir og svo 2-8 foreldrar þess fýrir utan. Það er aumur grunnur til að byggja á öflugt íþrótta- og æskulýðsstarf. Nöldur, nagg og neikvæðni er ekki upp- byggjandi fyrir samfélag sem við viljum öll að gott sé að vera í. Það þarf að taka virkan þátt og ekki varpa ábyrgðinni á þá fáu sem gefa sig til starfa. Ef þú vilt ekki vera í stjórn þá er ýmislegt annað hægt að gera. Keyra þarf börn á mót eða bjóðast til að hjálpa til á mótum ef þess þarf. Foreldrar ættu alfarið að sjá um skipulag ferðar á mót og sjá til að nógu margir foreldrar fari með. Þjálfarinn á einungis að þurfa að einbeita sér að keppninni og sjá um að krakkar séu tilbúnir. Gleymum því ekki að börnin eru á okkar ábyrgð og það á að vera sjálfsagður hlutur að foreldrar skiptist á um að fara á mót með börn sín. Lágmark væri að hvert foreldri færi í það minnsta tvisvar sinnum á ári. Það myndi auka sam- skipti milli foreldra og þjálfara og annarra barna í liðinu. Það sem skiptir ekki minna máli, er að fleiri foreldrar vita þá meira um allt skipulag varðandi íþróttaiðkun barna sinna. Þar af leiðandi yrði auðveldara að fá fólk til starfa í stjórn og minni hætta á að fólk sitji þar fast. Oft eru það langir dagar þegar farið er á mót, en setjum okkur í spor barnanna: Ef vel gengur á mótum, hverja vilja börnin þá hafa næst sér og gleðjast yfir framför- um? Eða þegar illa gengur, hverja vilja þau næst sér? Það eru til börn sem hafa aldrei foreldra með sér á mót og er spurning hvort það sé bara vegna áhugaleysis foreldra eða að barnið hafi aldrei vanist því að foreldri sé yfirleitt með í einu né neinu eða að barnið vilji ekki hafa foreldra með á mótum? Jákvæðni er drifkraftur hugans sem er uppbyggjandi fyrir þig, foreldri góður, og samfélag okkar. Vandamál eru til að leysa, til- gangur þeirra er ekki að gera þér lifið leitt. Öll höfum við nóg að gera, það vitum við öll. Samt get- um við ekki ætlast til að aðrir geri það sem við nennum ekki. Með kveðju. Ebba Pálsdóttir, foreldri og í stjóm fjögurra félaga. Strandamaðurinn sem varð að Snæfellingi Síðbúin afmæliskveðja til Skúla Alexanderssonar I síðasta Skessuhorni var hið ágætasta viðtal við Skúla Alexand- ersson á Hellissandi í tilefhi af átt- ræðisafmæli hans, 9. september sl. Það hefur sjálfsagt komið ýmsum á óvart að Skúli skuli hafa lagt að baki átta áratugi - síungur maður- inn og fullur af hugmyndum og framkvæmdagleði. Mig langar að- eins að nefna einn þátt í störfum Skúla, sem ekki var mikið nefndur í þessu viðtali. Það er áhugi hans á náttúru og sögu svæðisins undir Jökli, ekki síst í nálægð Hellissands, en það svæði hefur lengst af verið mun minna þekkt en byggðirnar sunnan Snæfellsjökuls. Sá sem ferðast um þessar slóðir tekur fljótt efdr mörgum skiltum og merkingum sem vísa á sögustaði og forvitnilegar gönguslóðir. Þar á Skúli mörg handtökin. Ég vil leyfa mér að segja að hann hafi öðrum fremur opnað ferðafólki og nátt- úruunnendum nýjar lendur, áður lítt kunnar s.s. leið upp að Jökli um Eysteinsdal og út á Öndverðarnes. Fiskbirgin á Gufuskálum urðu þekkt um land allt og sjósóknin og baráttan við hafið, orðið að merki- legri strandmenningu í hugum fleira og fleira fólks. Þannig má lengi telja og ekki má gleyma hlut Skúla í tilurð Þjóðgarðsins undir Jökli. Margur hefur undrast það, að Strandamaðurinn Skúli, skuli hafa orðið meiri Snæfellingur en flestir innfæddir. Sá sem hefur ferðast um Árneshrepp á Strönd- um, æskuslóðir Skúla, þarf ekki að undrast ást hans og aðdáun á land- inu. Þar fá menn landið beint í æð og ekki hafa spillt, langar göngur hans um Steingrímsfjarðarheiði, ffam og aftur. I viðtalinu við Skúla koma fram áhyggjur hans af byggðunum á Snæfellsnesi og í Dölum og vill að þær sameinist. Hann bendir á þró- unina í Borgarfirði og hversu vel hefur verið staðið þar að samein- ingarmálum. Ég deili þessum skoð- unum með hinum síunga Skúla og langar til að koma þeirri hugmynd á ffamfæri - Skúla til heiðurs, að Snæfellingar og Dalamenn, já allir sem tengjast Breiðafjarðarbyggð- um, efiii sem fyrst til ráðstefhu til að fjalla um ffamtíð þessara byggða og vandi þar sem mest til undir- búnings. Ég þykist vita að þá verði félagsmálamaðurinn Skúli Alex- andersson í essinu sínu. Til hamingju Skúli með þín átta- tíu ár. Reynir Ingibjartsson. T^CJUlÚUl^: Sveinn Kristinsson, hvemig getur launahækkun til hinna tekjukegstu hjá Akraneskaupstað verið óheppileg? Sveinn Krist- insson fulltrúi Samfylkingar í bæjarráði Akra- neskaupstaðar fer mikinn í viðtali sem birtist á vef Skessuhoms þann 7. september sl. Sveinn er afar óhress með að ég undirritaður, formaður Verkalýðsfé- lags Akraness, skuli á heimasíðu fé- lagsins voga mér að gagnrýna bókun sem Sveinn gerði í bæjarráði vegna þeirrar ákvörðunar meirihluta bæj- arráðs að hækka laun þeirra starfs- manna sem lægstu launin hafa hjá Akraneskaupstað. Um hvað snýst umrædd bókun Sveins? Hann lét bóka að hann teldi samþykktina um hækkun lægstu launa óheppilega! Vísaði hann til þess að í vor samþykktd bæjarstjóm samhljóða að verða við þeim tilmæl- um Starfsmannafélags Akraness að ef félagið sameinaðist Starfsmanna- félagi Reykjavíkur myndu bæjaryfir- völd samþykkja fyrir sitt leyti að kjarasamningar yrðu á hendi hins sameinaða stéttarfélags. Einnig kemur ffam í umræddri bókun að Sveinn telji nauðsynlegt að hækka laun hinna lægst launuðu hjá bænum en telur sameiningu stéttarfélaganna farsælli leið til þess. Það er að mínu mati afar ámæhs- vert af Sveini Kristinssyni að halda því ffam að farsælla sé fyrir hina lægst launuðu sem starfa hjá Akra- neskaupstað að sameinast Starfs- mannafélagi Reykjavxkurborgar til að fá hækkun á sínum launum. Blá- kaldar staðreyndir sýna að þeir tekjulægstu sem starfa hjá Akranes- kaupstað myndu einfaldlega lækka í launum við þá sameiningu. Staðreyndimar tala sínu máli Fjölmörg dæmi er hægt að finna um afleiðingar sameiningarinnar á launakjör starfsmanna Akraneskaup- staðar. Starfsmenn sem starfa við ræstingar og í þvottahúsi hafa í dag samkvæmt kjarasamningi launa- nefhdar sveitafélaga 143.279 kr. í laun með mánaðarlegum eingreiðsl- um. Ef sömu starfsmenn myndu taka laun effir kjarasamningi Reykja- víkurborgar þá væru launin fyrir fuht starf 132.494 kr. á mánuði. Mis- munurinn er hvorki meira né minna en 10.785 kr. á mánuði eða 129.420 kr. á ári. Það liggur fyrir að verkamenn í sorpmóttöku og matráðar I munu einnig lækka í launum taki þeir laun efdr kjarasamningi Starfsmannafé- lags Reykjavíkur. Það figgur einnig fyrir að sundlaugaverðir, verkamenn í bæjarvinnu og skólaliðir standast nánast í stað í launum komi til þess- arar sameiningar. Hinsvegar liggur það alveg hvellskýrt fyrir að stjórn- endur, milhstjórnendur og forstöðu- menn munu margir hverjir hækka um tugi þúsunda króna á mánuði við sameiningu. Má ekki gagnrýna pólitíkusa? Það er með hreinustu ólíkindum að Sveinn Kristinsson skuli telja það pólitískar árásir á sig þegar ég bendi ófaglærðu starfsfólki Akraneskaup- staðar á að það hefði lægri laun ef það tæki laun eftir kjarasamningi Reykjavíkurborgar. I hverju ætli þessar pólitísku árásir sem Sveinn talar um séu fólgnar? Vissulega get- ur ég viðurkennt að hér er um verkalýðspólitík að ræða. Sveinn undrast að heimasíða félagsins skuli hafa verið notuð í að gagnrýna áður- nefhda bókun. Rétt er að minna á ffétt sem birtist á heimasíðu félags- ins 8. ágúst sl. þar sem Einar Oddur Kristjánsson þingmaður sjálfstæðis- manna er gagnrýndur harðlega fyrir að telja launasamninga og stofnana- samninga rót þess vanda að fjárlögin fóru langt ffam úr áætlrm. Það er hlutverk stéttarfélaga að verja rétt- indi sinna félagsmanna og eitt af þeim tækjum sem stéttarfélögin hafa til þess eru heimasíður félaganna. Það er í raun og veru undarlegt að jafn reyndur pófitíkus eins og Sveirm skuh emja eins og stunginn grís und- an málefnalegri gagnrýni vegna um- ræddrar bókunar. Eru ekki allar launa- hækkanir af hinu góða? Sveinn sagði í áðumefndu viðtali við Skessuhomið „Mér finnst ekki mikil reisn yfir þeirri leið, sem for- maður Verkalýðsfélags Akraness mæhr með, að þiggja launabætur með sérstökum samþykktum stjórn- málamanna og maula þannig ein- hverja mola úr lófum þeirra“. Hið rétta er ég fagnaði því að meirihluti bæjarráðs ákvað að hækka laun þeirra sem lægst hafa launin hjá Akraneskaupstað. Ég kæri mig koll- óttan um það hversu mikil reisn Sveini finnst vera yfir þeirri leið sem bæjarráð fór varðandi launahækkan- ir til þeirra lægst launuðu. Það sem skiptir máli er að laun þeirra vom hækkuð. Rétt er að spyrja Svein að því hvort honum hafi fundist lítil reisn yfir þeim einhliða latmahækk- unum sem fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkuborgar kom með í des- ember2005? Eitt er víst að formað- ur VLFA fagnaði þeim sem og öðr- um launahækkunum til handa þeim sem lægst hafa launin. Skorað á Svein Einnig sagðist Sveinn í áður- nefndu viðtali imdrast það að ég skuh helst treysta málflutningi Karls Björnssonar, harðsnúnasta samn- ingamanns Launanefiidar sveitafé- laga og væntanlega er Sveinn að draga í efa þau ummæh Karls að þeir tekjulægstu fengu minnst og þeir tekjuhæsm mest við sameiningu fé- laganna. Ég byggi útreikninga mína á fyrirliggjandi kjarasamningum þessara tveggja stéttarfélaga og einnig fyrirliggjandi starfsmati. Ég þarf því á engan hátt að treysta samningamanni launanefndar í þessu máli. Ég hef hins vegar komist að sömu niðurstöðu og Karl Bjöms- son í þessu máli þegar þessi gögn em skoðuð. Ég skora því á Svein Kristinsson að fara yfir fyrirliggjandi gögn ásamt mér. An nokkurs efa munu þau sýna ffam á að laun tekjulægstu starfs- manna Akraneskaupstaðar myndu lækka við sameiningu. Einnig mun koma í ljós veruleg hækkun hjá þeim tekjuhæsm við sameiningu Starfs- mannafélags Akraneskaupstaðar við Starfsmannafélag Reykjavíkur. Rétt er að segja frá því að ég fúnd- aði um þessi mál með bæjarráði í vor þegar Sveinn var í meirihluta. A þeim fundi spurði ég Svein hvort hann teldi það sanngjamt að við sameiningu Stak við Starfcmannafé- lag Reykjavíkur, myndu þeir sem lægstu hefðu launin lækka eða standa í stað á meðan stjómendur hækkuðu margir hverjir um tugi þústmda á mánuði. Sveinn kannski svarar því núna hvort hann telji það sanngjamt. Miklir hagsmunir fyrir þá tekjulægstu Vissulega er það rétt hjá Sveini að félagsmenn Stak eigi að ráða örlög- um sínum sjálfir varðandi samein- ingu. En það er algert lágmark að félagsmenn séu rétt upplýstir um breytingu á launakjörum við sam- einingu við Starfsmannafélag Reykjavíkur. Það er því ámæhsvert hjá Sveini að reyna að telja þeim tekjulægstu trú um að það sé farsæl- ast að sameinast Starfcmannfélagi Reykjavíkur til að fá launahækkun. Reyndar er ég ekki í neinum vafa um að hagsmunum ófaglærðs fólks sem starfar hjá Akraneskaupstað sé vel borgið innan Verkalýðsfélags Akra- ness og að félagið sé algerlega sam- keppnishæft við Starfsmannafélag Reykjavíkur hvað varðar þjónustu við sína félagsmenn. Er sameiningin fyrir þá tekjuhæstu? Að lokum spyr ég: Atti ég sem formaður VLFA að láta það ógert að benda t.d ræstingafólki og starfefólki í þvottahúsi sem starfar hjá Akranes- kaupstað á þá staðreynd að við sam- einingu við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar gæti það jafhvel lækkað í launum rnn 10.785 kr. á mánuði? Ég spyr hvort ég hefði átt að þegja yfir þessum mismun. Kannski einhverjir hefðu viljað það, en ekki ég, síður en svo. Einnig velti ég því fyrir mér hvort umrædd sam- eining sé fyrst og fremst fyrir þá tekjuhæstu hjá Akraneskaupstað. Að minnsta kosti er ekki að sjá að hún sé fyrir þá tekjulægstu, svo mikið er víst. Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA. * < > >

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.