Skessuhorn - 13.09.2006, Qupperneq 23
gSESSIÍHÖBKI
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2006
23
m
Enn er
von hjá
Kára
Liðsmenn knattspyrnufélagsins
Kára á Akranesi eygja ennþá von
um að vinna sæti í 2. deild í knatt-
spyrnu þrátt fyrir að hafa tapað
seinni leiknum í úrslitakeppni 3.
deildar gegn Hetti á Egiisstöðum
með tveimur mörkum gegn engu.
Fyrri leik liðanna lauk með jafntefli
og vann Höttur því viðureignina
með þremur mörkum gegn einu.
Lið Kára leikur nú gegn ÍH um eitt
laust sæti í 2. deild. Leikurinn fer
fram á laugardaginn en ekki hefur
verið ákveðið hvar hann fer fram.
HJ
Breyttur leik-
dagur ÍA-ÍBV
Leikur ÍA og ÍBV í 17. umferð úr-
valsdeildarinnar í knattspyrnu sem
vera átti sunnudaginn 17. septem-
ber á Akranesvelli hefur verið
færður fram og verður laugardag-
inn 16. september kl. 16. HJ
Arnór með U19
landsliðinu
Arnór Smárason, Skagamaðurinn
knái sem spilar með hollenska lið-
inu Heerenveen, fór á dögunum
með íslenska U19 karlalandsliðinu
í knattspyrnu til Skotlands í æf-
ingaferð. Liðið lék tvo vináttuleiki
við heimamenn og unnust þeir
báðir. Fyrri leikurinn fór fram á
mánudaginn og sigruðu íslending-
ar 3-1. I gær léku liðin aftur og
unnu íslendingar þá 2-1. Arnór var
í byrjunarliðinu í báðum leikjum og
þótti standa sig vel. Honum hefur
gengið vel úti hjá Heerveen, var
t.a.m. valinn besti leikmaður al-
þjóðlegs móts sem liðið tók þátt í í
Danmörku, eins og greint var frá í
Skessuohrni. Á myndinni séstArn-
ór taka við verðtaunum á því móti.
-KÓP
Fjórir Skagamenn
í U17 úrtakshópi
Fjórir leikmenn ÍA eru í úrtakshópi
sem Lúkas Kostic, þjálfari knatt-
spyrnulandsliðs íslands skipað
leikmönnum undir 17 ára aldri,
hefur valið. Það eru Trausti Sigur-
björnsson, Björn Bergmann Sig-
urðsson, Ragnar Þór Gunnarsson
og Ragnar Leósson. HJ
íslandsmótið í
Hálandaleikum á
laugardaginn
íslandsmótið í Hálandaleikum fer
fram á Akranesi á laugardaginn.
Mótið er orðið fastur liður í íþrótta-
lífinu á Akranesi og sem fyrr fer
það fram við skógræktina í Garða-
lundi. Flestir sterkustu menn
landsins taka þátt í mótinu. Meðai
keppnisgreina má nefna
staurakast, lóðkast, sleggjukast og
lóðkast yfir rá. Meðal keppenda
veröa Pétur Guðmundsson, Sæ-
mundur Unnar Sæmundsson,
Auðunn Jónsson, Unnar Garðars-
son, Heiðar Geirmundsson, Jens
Fylkisson og Óðinn Þorsteinsson.
Mótið hefst kl. 14 við skógræktina
eins og áður sagði.
HJ
Jafntefli í fallbaráttunni
Skagamenn náðu ekki að
tryggja sér þau þrjú stig sem liðið
sárlega þurfti á að halda í fallbar-
áttunni um helgina. Liðið sótti
Breiðablik heim sem var einu stigi
yfir ÍA fyrir leik. Eftir 2-2 jafntefli
munar enn einu stigi á liðunum og
ÍA situr í níunda og næstneðsta
sæti deildarinnar. Aðeins ÍBV hefur
færri stig en Skagamenn, en liðin
mætast einmitt á Akranesvelli nk.
laugardag klukkan 16:00 í næst-
síðasta leik deildarinnar. Skaga-
menn eru með 18 stig, líkt og
Grindavík, en mun verri markatölu
auk þess sem Grindavík á einn leik
til góða. Það er því Ijóst að mikil
barátta er framundan hjá liðinu við
að halda sæti sínu á meðal þeirra
bestu. Svo gæti farið að ÍA og Vfk-
ingur Ólafsvík léku í sömu deild að
ári, en ef Víkingur sigrar Hauka í
síðasta leik 1. deildar nær liðið að
bjarga sér frá falli.
Aðstæður til knattspyrnuiðkunar
voru ekki góðar í Kópavoginum á
sunnudaginn, hellirigning og rok.
Leikmenn gerðu þó sitt besta til að
ylja knattspyrnuáhangendum um
hjartaræturnar og leikurinn varð
fjörugur. Blikar voru mun hættu-
legri aðilinn í upphafi leiks og þeir
Stig Krohn Haaland og Nenad Zi-
vanovic hefðu báðir getað skorað
á upphafsmínútum leiksins. Það
var því í takt við leikinn þegar Guð-
mann Þórisson kom Blikum yfir á
10. mínútu eftir að aukaspyrna
Haalands barst til hans. Þá var
eins og Skagamenn vöknuðu til
lífsins og áttu bæði Þórður og
Bjarni Guðjónssynir ágætis tilraun-
ir sem voru varðar. Það var svo
Hafþór Ægir Vilhjálmsson sem
jafnaði metin fyrir IA á 27. mínútu
eftir fínan einleik. Skagamenn
fögnuðu gríðarlega um tíu mínút-
um síðar þegar Arnar Gunnlaugs-
son skoraði eftir laglega sendingu
frá Þórði Guðjónssyni. Dómarinn
dæmdi markið hins vegar af vegna
rangstöðu, en tæpt var það.
Skagamenn létu þetta ekki á sig fá
og Guðjón Heiðar Sveinsson kom
þeim yfir með skalla rétt fyrir leik-
hlé. Haaland skallaði frá en dóm-
arinn mat það svo að boltinn hefði
farið inn fyrir línuna.
Seinni hálfleikur var fjörugur og
áttu bæði lið sín færi. Hafþór Ægir
átti ágætis tilraun áður en Nenad
Zivanovic jafnaði metin fyrir
Breiðablik á 64. mínútu. Liðin sóttu
stíft eftir markið og voru Skaga-
menn ívið hættulegri. T.a.m. áttu
þjálfararnir báðir, Arnar og Bjarki
Gunnlaugssynir, ágætis tilraunir
sem voru varðar. Hvorugu liðinu
tókst að bæta við marki og úrslitin
2-2 því staðreynd.
Ljóst er að erfitt verkefni er
framundan hjá Skagamönnum ætli
þeir sér ekki að falla niður í fyrstu
deild. Liðið spilar oft og tíðum
ágætis bolta, en það vantar oftar
en ekki herslumuninn upp á að
hlutirnir gangi upp. Nú á liðið tvo
leiki eftir; við ÍBV á laugardaginn
og lokaleik við Víking á Víkingsvelli
laugardaginn 23. september. Liðið
er með lakari markatölu en
Grindavík en betri en Breiðablik
sem er í sjöunda sæti með 19 stig.
Nú er því að duga eða drepast og
Ijóst að hvert mark getur skipt
máli.
-KÓP
Björn Bergmann hlaut Donnabikarinn
Björn Bergmann Sigurðarson
leikmaður 3. flokks var valinn
leikmaður yngri flokka lA árið
2006 og hlaut að að launum
Donnabikarinn. Þetta var tilkynnt
í fjölmennu lokahófi unglinga-
deildar ÍA sem haldið var á laug-
ardag. Allir liðsmenn 6.-8. flokks
fengu viðurkenningu í samræmi
við stefnu fyrirmyndarfélaga ÍSÍ.
Veittar voru viðurkenningar til ein-
staklinga í 3.-5. flokki drengja og
stúlkna. Annars vegar var valinn
sá leikmaður sem mestar fram-
farir þótti hafa sýnt og einnig var
valinn besti leikmaður flokkanna.
í 5. flokki þóttu Konráð Freyr
Sigurðsson og Þóra Björk Þor-
geirsdóttir hafa sýnt mestar fram-
farir og bestu leikmenn flokksins
voru valin Sindri Kristinsson
og Eyrún Eiðsdóttir.
í 4. flokki þóttu Jón Björg-
vin Kristjánsson og Erla Kar-
ítas Pétursdóttir hafa sýnt
mestar framfarir og Ragnar
Már Viktorsson og Heiður
Heimisdóttir voru valin bestu
leikmenn flokksins.
í 3. flokki höfðu Viktor Ýmir
Elíasson og Helga María
Hafsteinsdóttir sýnt mestar
framfarir og bestu leikmenn
voru valin Ragnar Leósson
og Arna Björg Jónsdóttir.
Á meðfylgjandi mynd sjást
nokkrir verðlaunahafanna.
Björn Bergmann var ekki
viðstaddur verðlaunaafhend-
inguna. HJ
Valdís Þóra í Skotlandi
Hinni efnilegu golfkonu, Valdísi Þóru Jóns-
dóttur, golfklúbbnum Leyni og íslandsmeistara
stúlkna 16-18 ára var nýlega boðin þátttaka í
The Duke of York Young Champions Trophy
sem fram fer á Dundonald golfvellinum nálægt
Troon í Skotlandi um þessar mundir. Leikinn er
54 holu höggleikur í flokki pilta og stúlkna.
Þetta golfmót er haldið í sjötta skipti og er efni-
legum kylfingum, 18 ár og yngri, boðin þátttaka
og koma þeir frá öllum Evrópulöndunum, Suð-
ur Afríku og Indlandi. Mótið er skipulagt eins
og alvöru atvinnumannamót til að gefa þátttak-
endum, sem væntanlega eiga eftir að verða
framtíða atvinnukylfingar, tækifæri til að upplifa
hvað felst í því að keppa á stórum golfmótum.
MM
Sveitarómantík um síðustu helgi
Um síðustu helgi var efnt til
sveitarómantíkur á Safnasvæð-
inu að Görðum á Akranesi. Boð-
ið var upp á ýmislegt til
skemmtunar og fróðleiks. Meðal
þess var sýning á gömlu hand-
bragði þar sem unnið var úr ull,
málmi og leðri. Dean Ferrell
kontrabassaleikari lék við hvern
sinn fingur ásamt félögum sín-
um og Hólmsteinn Snædal hélt
Ijósmyndasýningu og fyrirlestur
sem hann nefndi „Uppgefnir
nytjahlutir". Boðið var upp á
kleinur og kjötsúpu ásamt því
sem hægt var að gæða sér á
heilgrilluðu lambi. Um kvöldið
var harmonikkuball í tjaldi á
svæðinu og stóð það fram eftir
kvöldi. Mikill fjöldi sótti söfnin
heim en aðgangseyrir var felldur
niður í tilefni dagsins.
-KÓP
Valdís Þóra ásamt Karli Ómari Karlssyni golfkennara sínum að
fínstilla púttstrokuna. Ljósm: golf.is
Nær Víkingur
Ólafsvík að
verjast falli?
Lið Víkings í Ólafsvík er á góðri
leið með að verjast falli úr 1. deild
íslandsmótsins í knattspyrnu eftir
að liðið bar sigurorð af liði HK í
Kópavogi á laugardag. Leiknum
lauk með því að liðsmenn Víkings
skoruðu eitt mark en HK menn
ekkert. Það var Sivko Aljosa sem
skoraði mark Víkings. Með jafntefli
eða sigri hefði HK tryggt sér sæti í
úrvalsdeild en það tókst ekki.
Lið Víkings hefur hins vegar á
undanförnum vikum gjörbreytt
stöðu sinni í deildinni og er nú í
áttunda sæti með 18 stig eftir 17
umferðir. Síðasti leikur liðsins
verður gegn Haukum í Ólafsvik á
laugardaginn. Haukar eru sæti
neðar en Víkingur og getur leikur-
inn því orðið hreinn úrslitaleikur
um hvort liðið heldur sæti sínu í
deildinni.
HJ
Vel merkt
verður
höllin
Bæjarráð Akraness hefur sam-
þykkt tillögu Harðar Kára Jóhann-
essonar rekstarstjóra íþróttamann-
virkja um merkingar á fjölnotaí-
þróttahúsinu sem er í byggingu á
Akranesi og nú hefur fengið nafnið
Akraneshöllin. Samkvæmt tillögu
Harðar verður komið fyrir merking-
um á gafli hússins með nafni húss-
ins og skjaldarmerkjum bæjarfé-
lagsins annars vegar og ÍA hins
vegar. Áætlaður kostnaður viö
verkið er um 470 þúsund krónur.
HJ
j*
*■
e