Skessuhorn - 13.09.2006, Page 24
J»
«*
' »S'
Láttu ekki vandræðin
verða til vandræða íbúðalánasjóður
ll I lllll www.ils.is
FJÁRHAGSLEG GLITNIR^
VELGENGNI ÞÍN
ER OKKAR VERKEFNI
Daglegar ferðir
Opnunartímar virka daga 8-12 og 13-17.
Engjaás 2 • 310 Borgarnes • Sími: 458 8880
landflutningar@landflutningar.is • www.landflutningar.is
Landffutningar
SAMSKIP
Upplýsingum haldið leyndum um
áhrif sameiningar stéttarfélaga
Ljósm: Mats Wibe Lund
Hvalstööin í HvalfirSi hefitr látiö mikiS á sjá á þeim 17 árum sem hún hejhir staðið auð.
Hvalur hf. endumýjar
starfeleyfi sitt í Hvalfirði
Engar upplýsingar eru á lausu hjá
Akraneskaupstað né formanni
Starfsmannafélags Akraness um
áhrif hugsanlegrar sameiningar
starfsmannafélaga Akraness og
Reykjavíkur. Eins og kunnugt er
var tilkynnt í byrjun maí að fyrir
dyrum væri sameining þessara fé-
laga og jafnframt samþykkti bæjar-
ráð Akraness að leita eftir samvinnu
við Reykjavíkurborg um launa- og
kjaramál. I samtölum við Skessu-
horn á þeim tíma létu forráðamenn
Akraneskaupstaðar og Starfs-
mannafélags Akraness hafa eftir sér
að umrædd sameining myndi færa
sumum félagsmönnum launahækk-
anir sem næmu tugum prósenta.
Hún myndi því koma þeim til hags-
bóta sem lægst hafa launin. Kom
fram að kostnaðarauki bæjarins
gæti orðið á bilinu 70-80 milljónir
króna á ári í upphafi.
Vilhjálmur Birgisson formaður
Verkalýðsfélags Akraness hefur haft
miklar efasemdir um þessa stefhu
svo og Karl Björnsson starfsmaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga. I
máli þeirra hefur komið fram að
með sameiningu sé aðeins verið að
hækka laun þeirra er hæst hafa
launin. Mál þetta olli hörðum
skoðanaskiptum á sínum tíma. Þær
deilur blossuðu aftur upp í kjölfar
ákvörðunar bæjarráðs Akraness á
dögunum um að hækka laun starfs-
Akranes.
manna í þremur lægstu launaflokk-
um bæjarins. A vef Skessuhorns í
síðustu viku deildu Vilhjálmur og
Sveinn Kristinsson bæjarfulltrúi
Samfylkingarinnar hart um málið.
Fullyrðir Vilhjálmur að aðeins
hærra settir bæjarstarfsmenn muni
hækka í launum við breytinguna og
ákvörðun bæjarráðs í síðustu viku
sé staðfesting á því og hefur hann á
heimasíðu félags síns nefnt ákveðna
launaflokka í því sambandi.
Engar nákvæmar upplýsingar
hafa hins vegar birst um raunveru-
leg áhrif sameiningarinnar á laun
einstakra hópa. Aðspurður segir
Valdimar Þorvaldsson, formaður
Starfsmannafélags Akraness að
starfsmenn launadeildar bæjarins
hafi á sínum tíma unnið samanburð
fyrir félagið. Oskaði blaðamaður
því eftir aðgangi að þessum upplýs-
ingum. Hafnaði Valdimar þessari
ósk og sagði þær innihalda upplýs-
ingar um laun einstaklinga og því
gæti hann ekki birt þær opinber-
lega.
Gísli S. Einarsson bæjarstjóri
segir að á sínum tíma hafi starfs-
menn launadeildar bæjarins unnið
samanburð fyrir starfsmannafélag-
ið. Sú vinna hafi verið unnin utan
vinnutíma starfsmanna. Upplýsing-
arnar hafi verið afhentar fulltrúa
starfsmannafélagsins. Því hafi hann
sem bæjarstjóri ekki umrædd gögn
undir höndum og geti því ekki gef-
ið neinar upplýsingar um málið.
Svo virðist að þrátt fyrir mjög af-
gerandi yfirlýsingar í vor um ágæti
sameiningar sé enginn málsaðili til-
búinn til þess að leggja fram blá-
kaldar staðreyndir málsins.
HJ
A fundi Heilbrigðiseftirlits Vest-
urlands þann 21. júní í sumar var
samþykkt starfsleyfi fyrir Hval hf.
vegna Hvalstöðvarinnar í Hval-
firði. Skessuhorn hefur undanfarið
fylgst með umræðum um hvalveið-
ar og fyrirætlunum forsvarsmanna
fyrirtækisins. Fram hefur komið að
verði veiðar hafnar að nýju muni
aðstaðan í Hvalfirði verða nýtt. Það
vekur því upp spurningar um hvort
breytingar séu fyrirhugaðar á
stefnu Islendinga í hvalveiðum.
Nýverið fór Hvalur 9 í slipp og nú
hefur starfsleyfi hvalstöðvarinnar
verið endurnýjað. Það er þó tekið
ffam í starfsleyfinu að það skuli
endurskoðað ef breytingar verða á
eignarhaldi eða rekstri. Þá segir:
„Oheimilt er að hefja starfsemi í
fyrirtækinu nema að úttekt hafi
áður farið fram.“
Það er því ljóst að útgáfa starfs-
leyfisins veitir ekki heimild til þess
að starfsemi hefjist á ný í Hvalfirð-
inum. Kristján Loftsson, forstjóri
Hvals hf. sagði í samtali við Skessu-
horn að eingöngu hefði verið um
endurnýjun gamals leyfis að ræða.
Menn hefðu sótt um leyfi fyrir fjór-
um árum til að vera klárir ef eitt-
hvað gerðist og það hafi síðan
runnið út. Hann segir að ef ákvörð-
un verði tekin um að hefja hval-
veiðar að nýju sé fyrirtækið í start-
holunum. „Við getum hafið veiðar
með litlum fyrirvara ef menn
ákveða að fara af stað, þó það þurfi
að betrumbæta ýmislegt í hvalstöð-
inni áður. Það eru öll skilyrði fyrir
hendi fyrir veiðum og allir fyrirvar-
ar sem menn gáfu sér á sínum tíma
eru horfnir, hvað svo sem leiðara-
höfundur Morgunblaðsins skrifar í
sitt blað,“ segir Kristján og vísar í
leiðara Morgunblaðsins sl. þriðju-
dag sem mælti gegn hvalveiðum.
-KÓP
Fiskiri
helgina
Velkomin á sjávarréttahátíðina Fiskirí
á 80 veitingastöðum um land allt.
Komið og njótið gómsætra fisk- og sjávarrétta
í stórkostlegri sjávarfangsveislu.
Kíktu á www.fiskiri.is
september
Fimm Fiskar ■ Frúarstíg 1 Stykkishólmi
Hótel Búðir ■ Búðum ■ Snæfellsnesi
Hótel Glymur ■ Hvalfirði
Hótel Hamar ■ við Borgarnes
Narfeyrarstofa • Aðalgötu 3 ■ Stykkishólmi
Hótel Framnes ■ Nesvegi 8 ■ Grundarfirði
eru þátttakendur í Fiskiríi!
■mareL
'ísVanössaca'
SAMSKIP
GLITNIR
www.fiskiri.is