Skessuhorn - 20.09.2006, Qupperneq 4
4
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006
Músagangur á
dvalarheimilinu
STYKKISHÓLMUR: Tölu-
vert hefur borið á músagangi í
Dvalarheimili aldraðra í Stykk-
ishólmi að unanförnu. Þetta
hefur verið þráleitt vandamál í
húsinu, enda komið til ára
sinna. Nú er svo komið að
meindýraeiðir hefur verið ráð-
inn til að kortleggja hvaðan
mýsnar koma og loka fýrir inn-
gönguleiðir. Þetta hefúr lengi
verið vandamál í húsinu, en
minnkaði þegar eldhúsi og
matsal var bætt við það fyrir
nokkru. Nú hafa mýsnar sótt í
sig veðrið og því þarf að gera
eitthvað í málunum.
-kóp
Ungir frum-
kvöðlar
BORGARBYGGÐ: í vor var
haldið námskeið á Varmalandi á
vegum Evrópuverkefninsins
„Ungir frumkvöðlar“ og SSV
fyrir unglinga af Vesturlandi.
Fjórum nemendum ffá Grunn-
skólanum í Borgarnesi hefur nú
verið boðið í námsferð til
Skotlands í tilefni góðrar
frammistöðu á námskeiðinu.
Eru þetta Sigurður Þórarins-
son, Eggert Sigurðsson, Valdís
Sigmarsdóttir og Rakel Erna
Skarphéðinsdóttir, öll úr 10.
bekk, en verkefni þeirra fékk 1.
verðlaun. Dvöldu þau í
Skotlandi í liðinni viku. -mm
*
Asinn opnar
að nýju
STYKKISHÓLMUR: Mynd-
bandaleigan Asinn á Nesvegi í
Stykkishólmi hefur nú opnað
aftur eftir lokun vegna innbrots
í sumar. Nýr eigandi, Kári B.
Hjaltalín, hefúr tekið við starf-
seminni og opnaði hann sl.
föstudag. Eins og sagt var frá í
fréttum Skessuhorns í sumar
var öllum DVD mynddiskum
leigunnar stolið í innbrotinu í
sumar og hefur Kári því staðið í
ströngu við að verða sér úti um
nýja titla. Stykkdhólmspóstur-
inn greindi frá. -mm
Meimingar-
stefna í mótun
BORGARBYGGÐ: Byggða-
ráð Borgarbyggðar hefur
ákveðið að veita auknum fjár-
munum til menningarnefndar
Borgarbyggðar vegna vinnu
nefndarinnar við mótun menn-
ingarstefnu sveitarfélagsins.
Óskaði nefndin eftir framlagi
að upphæð 120 þúsund krónur.
Nefndin hyggst nýta þessa fjár-
muni til þess að halda tvo auka-
fundi í nefndinni auk þess að
kalla til sérfræðing í stefnumót-
unarvinnu inn á fund nefndar-
innar. Einnig hyggst nefndin
kalla fulltrúa helstu menningar-
stofnana, félaga og fyrirtækja í
sveitarfélaginu til samstarfs við
mótun menningarstefnunnar.
-hj
Akranes þéttbýlast og Hvítársíðu-
hreppur strjálbýlastur
Um síðustu áramót bjuggu ríf-
lega 642 manneskjur á hvern km2
lands á Akranesi. A sama tíma
bjuggu aðeins 0,1 íbúi á hvern km2
í Hvítársíðuhreppi. Þetta kemur
fram í samantekt í skýrslu um Vaxt-
arsamning Vesturlands. Vesturland
nær yfir 9.554 km2 svæði eða tæp-
lega 10% af flatarmáli landsins.
Næst þéttbýlast var í Stykkishólmi
þar sem bjuggu rúmlega 116 íbúar
á hvern km2 . Akranes og Stykkis-
hólmur skera sig úr öðrum sveitar-
félögum í þessu efni því þriðja þétt-
býlasta sveitarfélagið var Grundar-
fjörður með 6,4 íbúa á hvern km2.
Til gamans má geta þess að væri ís-
land jafn þéttbýlt og Akranes
byggju ríflega 64 milljónir manna á
landinu. Væri það hins vegar jafn
strjálbýlt og í Hvítársíðuhreppi
byggju aðeins 10 þúsund íbúar á
landinu öllu.
HJ
Opin samkeppni um byggðamerki
Borgarbyggðar
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hef-
ur auglýst opna samkeppni um
byggðamerki fyrir hið nýja sveitar-
félag sem varð til við sameiningu
nokkurra sveitarfélaga í Borgarfirði
í vor. Keppnin er öllum opin og eru
íbúar sveitarfélagsins sérstaklega
hvattir til þátttöku. I verklagsregl-
um segir að merkið skuli hafa aug-
ljósa skírskotun til atriða eins og
landafræði eða landslags svæðisins,
sögu, menningar eða menningar-
arfs, dýralífs eða flóru og atvinnu-
hátta eða atvinnulífs. Þá segir að
hið nýja merki skuli ekki líkjast um
of byggðamerkjum þeirra sveitarfé-
laga sem sameinuð voru og að það
skuli teljast endingargott með tilliti
til myndlíkinga þess.
Dómnefiid hefur verið skipuð og
eru í henni Þór Þorsteinsson,
Bjarni Guðmundsson, Sigurbjörk
Ósk Askelsdóttir, Bjarki Þorsteins-
son og Ólafur Ingi Ólafsson auk
þess sem Félag íslenskra teiknara
mun tilnefna tvo menn. Veitt verða
verðlaun fyrir þrjú efstu sæti sam-
keppninnar. Fyrstu verðlaun færa
höfundi 100 þúsund krónur, önnur
verðlaun 7 5 þúsund og þriðju verð-
laun 50 þúsund krónur. Að auki fær
höfundur verðlaunamerkisins
greiddar 250 þúsund krónur fyrir
kaup á merki hans. Skilafrestur
rennur út 8. nóvember nk.
HJ
Engin ákvörðun um breytingar á
Grundartanga
Ingimundur Bimir forstjóri ís-
lenska járnblendifélagsins segir í
samtali við Skessuhorn enga
ákvörðun hafa verið tekna um
flutning á ffamleiðslu magnesíum-
kísilmálms ffá verksmiðju Elkem í
Noregi til Grandartanga. Af ffétt-
um fjölmiðla í undanfarna daga
hefur mátt skilja að innan tíðar
muni ein af verksmiðjum félagsins
verða flutt frá Noregi til Grundar-
tanga. Ingimundur segir að innan
Elkem, sem er móðurfélag íslenska
járnblendifélagsins, fari stöðugt
ffam mat á því hvar skynsamlegast
er að ff amleiða hinar ýmsu afúrðir.
Islenska járnblendifélagið hafi á
undanförnum árum sótt á meira
inn á svið sérhæfðari ffamleiðslu,
fyrir sérhæfðari markað. Sú þróun
þýði fleiri framleiðsluskref og sífellt
flóknari framleiðslu með auknum
virðisauka. Unnið hafi verið að á-
kveðnu verkefni í þessu sambandi
og niðurstöðu sé að vænta í haust.
Ef af verður sé tun að ræða nýtt
framleiðsluskref sem nýtir beint
málm ffá einum af núverandi ofn-
um. Orkuþörf fyrirtækisins myndi
ekki aukast af þessum sökum.
Vegna frétta fjölmiðla undan-
fama daga er rétt að minna á frétt
þar sem fjallað var um þetta mál og
finna má á fféttavef Skessuhorns frá
19. maí sl.
HJ
Fyrirhuga hækkun leigu fyrir
aldraða í Stykldshólmi
Rekstararreikningur Dvalar-
heimils aldraðra í Stykkishólmi var
lagður ffam á stjómarfundi fyrir
skömmu. Kom þar ffam að 7,2
milljóna króna tap er á rekstrinum.
Rekstur heimilisins er tvíþættur,
annars vegar dvalarheimilið sjálft,
en rekstur þess gekk ágætlega og
fór 100 þús. kr. ffam úr fjárfram-
lögum. Hins vegar er rekstur þjón-
ustuíbúða. Sá rekstur skilaði tapi og
í kjölfar umræðna um málið var
rætt um að hækka húsaleigu um
10%. Akvörðun hefur ekki verið
tekin, en búast má við að þetta
haldist í hendur við hækkun á leigu
félagslegra íbúða, en hún hækkaði
um 10% og er gert ráð fyrir að hún
verði endurskoðuð miðað við vísi-
tölu fjórum sinnum á ári.
Eignarfyrirkomulag þjónustuí-
búðanna er þannig að bæjarfélagið
á 80% en íbúar 20%. Guðmundur
Andrésson, innheimtustjóri hjá
Stykkishólmsbæ, sagði að íbúðirnar
séu misstórar og því erfitt að nefna
dæmi um hve há hækkunin væri í
krónum talið. Hann nefndi þó
dæmi af tveggja manna íbúð sem
kostar nú í leigu ríflega fjörutíu
þúsund og einnig einstaklingsíbúð
sem kostar tæplega tuttugu þúsund.
Leigan mundi þá hækka um fjögur
þúsund krónur annars vegar og
tvöþúsund hins vegar í þessum
dæmum.
Jóhanna Guðbrandsdóttir, ffam-
kvæmdastjóri Dvalarheimilisins,
sagði í samtali við Skessuhorn að
leiga hefði ekki verið hækkuð í hús-
unum síðan árið 1999. Nú væri svo
komið að mikið tap væri á rekstrin-
um og ef ekkert yrði að gert mundi
það halda áffam að aukast. Komið
væri að viðhaldi húsnæðisins og það
kostaði töluvert. Hún sagði að
hækkanir kæmu alltaf illa við fólk,
en hún efaði ekki að íbúar myndu
skilja ástæðu þessara hækkana. Jó-
hanna sagði að nauðsynlegt væri að
koma hlutnnum þannig fyrir að
svona hlutir gerðust nokkuð sjálf-
krafa, þannig að tekjur stæðu undir
gjöldum. -KÓP
Hvalfj arðarsveit vill
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar
hefúr samþykkt samhljóða að fela
Einari Emi Thorlacius, sveitarstjóra
að undirbúa viðræður við Strætó BS
og Akranesbæ um að komið verði
upp biðstöð við Hvalfjarðargöng
norðanverð og að sveitarfélagið
verði aðili að samningi um almenn-
ingssamgöngur til og ffá Reykjavík.
Einnig verði hafhar viðræður við
Borgarbyggð um skipulag og sam-
starf strætóferða við þjóðveg eitt.
Strætóferðir milli Akraness og
Reykjavíkur hófust tun síðustu ára-
mót og greiðir Akraneskaupstaður
um 16 milljónir króna á ári til
Sttætó
Strætó BS vegna ferðanna. íbúar
Hvalfjarðarsveitar, sem nota ferð-
imar, þurfa í dag að fara á Akranes
til þess að ná vagninum. í febrúar
barst bæjarráði Akraness ósk ffá íbúa
í Hvalfjarðarsveit um að komið yrði
upp biðstöð við Hvalfjarðargöng en
þeirri ósk var hafnað. HJ
Neyðarbauju
stolið
AKRANES: Neyðarbauju var
stolið úr sementsflutningaskip-
inu Skeiðfaxa þar sem það lá við
bryggu í Akraneshöfn í síðustu
viku. Neyðarsendir baujunnar
fór í gang og bárust boð um
neyðarkallið meðal annars frá
Noregi. Að sögn lögreglunnar á
Akranesi fannst baujan skömmu
síðar á floti í höfiiinni á Akra-
nesi. -so
Sjást illa
VESTURLAND: Nú þegar
daginn tekur að stytta hefur lög-
regla á Vesturlandi haft afskipti
af allnokkrum ökumönnum til
að benda þeim á að ljósabúnað-
ur bifreiða þeirra sé ekld í lagi.
Algengast er að perur séu
sprungnar í afturljósum og öku-
menn vita ekki af því. Rétt er að
benda ökumönnum á að yfirfara
ljós á bifreiðum síntun áður en
ekið er inn í skammdegið. -kóp
Staðsetning
menntaskóla
BORGARBYGÐ: Á síðasta
fundi skipulags- og byggingar-
nefhdar Borgarbyggðar bárust
athugasemdir um fyrirhugaða
staðsetningu menntaskólans á
gamla íþróttavellinum við Borg-
arbraut. Bréfritari taldi hana
ekki heppilega og að ekki væri
gert ráð fyrir nægilega mörgum
bílastæðum. Bréfið verður tekið
til umfjöllunar á fundi byggða-
ráðs í dag (miðvikudag) og mun
Skessuhorn fylgja því eftir á
vefhum og í næsta tölublaði.
-kóp
Fundir á netið
AKRANES: Fundur bæjar-
stjómar Akraness í vikunni sem
leið var sá fyrsti sem verður að-
gengilegur almenningi á heima-
síðu bæjarfélagsins. Um nokkurt
skeið hefur bæjarstjómarfund-
um verið útvarpað á FM 95,0 en
framvegis verða upptökur af
fundunum vistaðar á heimasíð-
unni og verða öllum aðgengi-
legar. -hj
Hafiiar
samstarfi um
bamavemdarmál
BORGARBYGGÐ: Félags-
málanefhd Borgarbyggðar mæl-
ir ekki með áffamhaldandi sam-
starfi við Dalabyggð í bama-
verndarmálum. Beiðni kom frá
Dalabyggð um áframhaldandi
samstarf og sendi byggðaráð er-
indið til félagsmálanefndar til
umsagnar. í bókun nefhdarinnar
kemur ffam að hún telji að mið-
að við núverandi starfsmanna-
hald og ærin verkefni þá sjái hún
sér ekki fært að veita þjónustu
utan sveitarfélagsins. Þá segir að
nefhdin telji að reynslan af sam-
starfi í bamaverndarmálum á
síðasta kjörtímabih gefi ekld til-
efni til að sækjast efdr áffam-
haldandi samstarfi. -hj
WWW.SKESSUHORN.IS
Bjarnarbraut 8 - Borqarnesi Sími: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Ákranesi Fax: 433 5501
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga
er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta
auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til
12:00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og f
lausasölu.
Áskriftarverð er 1300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200
sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 950.
Verð í lausasölu er 400 kr.
SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DACA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Blaðamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is
Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kolbeinn Ó Proppé 659 0860kolbeinn@skessuhom.is
Sigurbjörg Ottesen 868 0179 sibba@skessuhorn.is
Augl. og dreifing: Katrín Óskarsd. 616 6642 katrin@skessuhorn.is
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is