Skessuhorn - 20.09.2006, Blaðsíða 24
t
Láttu ekki vandræðin
verða til vandræða
íbúðalánasjóður
www.ils.is
FJÁRHAGSLEG o GLITNIR^
VELGENGNI ÞÍN
ER 0KKAR VERKEFNI
Daglegar ferðir
Opnunartímarvirka daga 8-12 og 13-17.
Engjaás 2 • 310 Borgarnes • Sími: 458 8880
landflutningar@!andflutningar.is • www.landflutningar.is
Landflutningar
'SAMSKIP
►
Lagt til að tvöfalt kjördæmisþing
stUli upp lista Framsólmarflokksins
Stjórn Kjördæmissambands
Framsóknarflokksins í Norðvest-
urkjördæmi mun leggja það til að
svokallað tvöfalt kjördæmisþing
verði haldið síðar í haust þar sem
kosið verður um skipan efstu sæta
á lista flokksins fyrir þingkosning-
arnar í vor. Kjördæmissambandið
kemur saman til fundar á Varma-
landi á laugardaginn og þar verður
þessi tillaga lögð ffam.
Sigurður Arnason, formaður
Kjördæmasambandsins segir ýms-
ar leiðir mögulegar til að ákveða
skipan framboðslista allt frá því að
uppstillingarnefnd geri tillögu að
skipan lista til þess að galopið
prófkjör ráði. Síðast var kosið um
efstu sæti á tvöföldu kjördæmis-
þingi og segir Sigurður það fyrir-
komulag hafa mælst vel fyrir enda
komi á fimmta hundrað manns að
vali listans með þeim hætti. Hann
segir stjórn sambandsins hafa rætt
málið að undanförnu og þrátt fyrir
að umræðu sé ekki fyllilega lokið
sé ljóst í sínum huga að hún leggi
til að tvöfalt kjördæmisþing verði
haldið. Ekki hefur verið ákveðið
hvenær það kemur saman en Sig-
urður segir að rætt hafi verið um
miðjan nóvember í því sambandi.
Þegar hafa þrír gefið kost á sér
til setu í fyrstu tveimur sætum list-
ans þau Herdís Sæmundardóttir,
Kristinn H. Gunnarsson og
Magnús Stefánsson. Sigurður seg-
ist búast við því að fleiri tilkynni
um áhuga á framboði á fundinum á
laugardag.
HJ
Fýll og bíll
Vegfarendur hefa eflaust orðið
varir við hugdjarfa fúgla sem víla
ekki fyrir sér að sitja á þjóðvegum
landsins og bíða þess sem verða vill.
Ekki er hér um að ræða lífsleiða
fugla í annarlegum hugleiðingum,
heldur árviss viðburður í lífshlaupi
margra fugla af þessari tegund. Um
er að ræða sjófuglinn Fulmarus
glacialis sem gengur oftast undir
nafninu fyll eða múkki. Þetta mun
vera ein algengasta fuglategund
landsins og er útbreiðsla hans um
land allt.
Fýllinn verpir um miðjan maí í
klettum við strandlengjuna og
einnig langt inn til landsins. Fýls-
ungar yfirgefa hreiður síðsumars og
á haustinn og hefja för til sjávar.
Eitthvað gengur ferðalagið brösug-
lega hjá sumum þeirra og algengt
að yfir þá sé ekið á vegum landsins,
en sá veiðiskapur er fremur óvilja-
verk en skipulögð hlunnindatekja.
Veiðar á fyl eru samt sem áður
gömul hefð í sumum landshlutum
og stunduð enn á stöku stað. Aður
fyrr var ungfugl sleginn, verkaður
og saltaður í tunnu. Slíkt þótti mik-
il búbót og rétt verkaður er fuglinn
herramannsmatur.
Fýllinn sem vegfarandi staldraði
við hjá, lifði af fyrstu kynni við
mannheima og virtist ekki vilja taka
meiri áhættu í lífinu, þar sem hann
færði sig að lokum um set yfir í
næsta skurð. Það telst vera mun
vænlegari ferðamáti og líklegri til
árangurs, þar sem öll vötn renna að
lokum til sjávar. BT
Skagamaður skrifar undir
atvinnumannasanming
Bj'óm Jónsson í búningi Heerenveen sem hann mun
leika mei a.m.k. nœstuþrjú árin.
Knattspyrnumaðurinn
ungi, Björn Jónsson frá
Akranesi skrifaði í liðinni
viku undir atvinnumanna-
samning við hollenska úr-
valsdeildarliðið Heeren-
veen. Björn fór til liðsins
fjórtán ára gamall og hefur
æft með því síðan. Hjá
Heerenveen leikur annar
Skagamaður, Arnór
Smárason. Samningur
Björns gildir til næstu
þriggja ára. Björn, sem
verður 16 ára í næsta mán-
uði, hefur leikið afar vel
með unglingaliði Heerenveen.
Liðið er í efsta sæti í deild 16-17
ára liða, með 12 stig effir fjóra leiki.
Björn hefur verið í byrjunarliðinu í
öllum leikjunum og skorað tvö
mörk, en hann leikur fyrir aftan
framherjana. Skessuhorn óskar
Birni til hamingju með þennan
áfanga og glæstrar ffamtíðar á fót-
boltasviðinu. -KÓP
Metfjöldi
félagsmanna VLFA
Félagsmenn Verkalýðsfélags
Akraness hafa aldrei verið fleiri og
eru þeir nú 2.184 talsins. A þessu
ári hefur þeim fjölgað um 306.
Þetta kemur fram á heimasíðu fé-
lagsins. Þar segir að á fyrsta starfs-
ári núverandi stjórnar árið 2004
hafi félagsmönnum fjölgað um
190 og hafi í lok þess árs verið
1.807 talsins og í árslok voru fé-
lagsmenn 1.878. Töluverð fjölg-
un hefur orðið á starfsfólki hjá
stórum fyrirtækjum á félagssvæði
VLFA og má þar nefna að í júlí
2005 voru 199 félagsmenn starf-
andi hjá Norðuráli á Grundar-
tanga en einu ári síðar voru þeir
orðnir 312. Af öðrum stórum fyr-
irtækjum á félagssvæðinu má
nefna HB Granda þar sem 126 fé-
lagsmenn starfa, hjá Islenska járn-
blendifélaginu eru þeir 94 og hjá
Smellinn eru þeir 59 að tölu.
HJ
Kynning á
deiliskipulagstillögu
fyrir hafnarsvæðið
í Brákarey
Borgarbyggð, Orkuveita
Reykjavíkur og Faxaflóahafnir
boða til fundar á Hótel Borgarnesi
fimmtudaginn 21. september
kl. 20.00.
Tilgangur fundarins er að kynna
deiliskipulagstillögu fyrir hafnarsvæðið f
Brákarey í Borgarnesi.
Framsögumenn verða;
Richard Briem arkitekt
Sigurður Skarphéðinsson Orkuveitu
Reykjavíkur
Reynir Árnason arkitekt
Vignir Albertsson Faxaflóahöfnum
Allir Velkomnir
Sveitarfélagið Borgarbyggð
SÍMGNNTUNARMIÐSTOÐIN
J Á VGSTURLANDI
VIKA SÍMENNTUNAR
24. - 30. september 2006
Vika símenntunar verður haldin dagana 24. - 30. september, en
menntamálaráðuneytið stendurfyrir þessu verkefni.
Markmiðið er að vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi menntunar
og þess að ávallt er hægt að bæta við sig þekkingu.
Af þessu tilefni viljum við vekja sérstaklega athygli á námstækifæri sem er í boði nú á haustönn sem
nefnist "Aftur í nám", en þetta nám er sérsniðið fyrir þá sem eiga við lestrar- eða skriftrarörðugleika að
glíma. Þetta nám verður kennt á Akranesi en ef áhugi er fyrir hendi þá er stefnt á að bjóða upp á þetta
víðar á Vesturlandi eftir áramótin.
Kynningar-og fræðslufundir vegna námskeiðsins
"Aftur í nám" verða haldnir á Vesturlandi á
eftirtöldum stöðum:
Mánudaginn 25. september kl. 19:30 í FEBAN-salnum Kirkjubraut 40, Akranesi
Þriðjudaginn 26. september kl. 19:30 í Alþýðuhúsinu Borgarnesi
Miðvikudaginn 27. september kl. 19.30 í Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Fimmtudaginn 28. september kl. 19.30 í Rauða kross húsinu í Búðardal
Á fundunum verður kynnt námskeiðið Aftur í nám, sem Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi, í samstarfi
við Fræðslumiðstöð atvinnulffsins, fer af stað með í október n.k. Námskeiðið er ætlað fólki sem er á
vinnumarkaði en hyggst fara f nám eða aftur í nám.
I Markmiðið er að auka hæfni til starfs og náms og stuðla að jákvæðu viðhorfi til áframhaldandi náms.
\ Námskeiðið er sérstaklega ætlað þeim, sem eiga við einhvers konar námsörðugleika að stríða, s.s. lesblindu,
§ skrifblindu eða einbeitingarskort.
| Á fundinum verður farið ítarlega f hvað felst f þessu námskeiði og Davis aðferðir kynntar. Davis aðferðirnar
; eru kenndar við Ron Davis sem þróaði þessar aðferðir til að sigrast á sinni eigin lesblindu/dyslexfu. Engar
kröfur eru gerðar til lágmarks skólagöngu áður en nám hefst og námsmenn gangast ekki undir formleg
próf. Menntamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið til allt að 7 einingum
Hvetjum áhugasama til að mæta!
A
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi
Verkaiýðsfélag Akraness - Stéttarfélag Vesturlands
www.lesblind.com
Stéltarfélag Vesturlands ifí% J Verkalýðsfélag Akraness