Skessuhorn


Skessuhorn - 20.09.2006, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 20.09.2006, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006 aaiúiinui. Réttir liðinnar viku Harpa á Hœl og Haukur á Vatnsenda skutla hér vanni gimburyfir réttarvegg í Oddsstaðarétt. Myndir þaðan tók Olgeir Helgi Ragnarsson. Rekið til Oddstaðaréttar. > i. | ÞVfMÁmitrr j T'. • - ‘ " --i- Allir sem einn minntust Asmundar á Högnastöðum í Þverárrétt. Þar varflaggað í hálfa stöng honum til heið- urs sl. mánudag. Sigurður í Stafholtsey á spjalli við Bjarna Guðjónsson í Oddsstaðarétt. I Þverárrétt var aðþessu sinni um réttað um 19 þúsund fiár og teljafróðir menn að enn sé réttin súfjárflesta á landinu þó aðrir vilji reyndar stela heiðrinum. Ljósm. MM Réttað var í Svarthamarsrétt á Hvaljjarðarströnd sunnu- daginn 10. september í ágœtisveðri, sem var kcerkomið því smalar höfðu heldur beturfengið aðfinnafyrir vœtunni í smalamennskunni. Meðfylgjandi myndir þaðan tók Am- heiður Hjörleifsdóttir. Eftir réttarhaldið í Oddsstaðarétt var upplagt að skola stígoélin í ánni. Fjárbcendumir Sindri í Bakkakoti og Haukur á Vatns- enda á tali saman í Þverárrétt. Sigurjón Guðmundsson bóndi á Bjarteyjarsandi í Hval- fiarðarsveit og réttarstjóri í Svartbamarsrétt var kampa- kátur á réttardaginn. Valdís Þóra lauk keppni f Skotlandi Skagastúlkan unga og íslands- meistari stúlkna í aldursflokki 16-18 ára, Valdís Þóra Jóns- dóttir kylfingur í Golfklúbbnum Leyni, tók þátt í golfmótinu The Duke og York Young Champ- ions Trophy sem fram fór á Dundonald golfvellinum nærri Troon í Skotlandi. Mótið fór fram dagana 12.-14. septem- ber. Fyrsta daginn spilaði hún hringinn á 76 höggum eða 4 höggum yfir pari, annan daginn átti hún frekar erfiðan dag fór hringinn á 97 höggum en loka- daginn fór hún hringinn á 77 höggum. Svo fór að lokum að Valdís Þóra lenti í 38. sæti á mótinu. Auk hennar var Björn Guðmundsson kylfingur í Golf- klúbbi Akureyrar fulltrúi íslands á mótinu. Var þetta í sjötta sinn sem mótið var haldið, 42 kylfingar tóku þátt í mótinu frá 22 iöndum, 26 drengir og 16 stúlkur. SO Annar flokkur ÍA í öðru sæti Lið ÍA í öðrum flokki karla lenti í öðru sæti íslandsmótsins eft- ir markalaust jafntefli við lið Stjörnunnar í Garðabæ. Skagamenn háðu harða bar- áttu í sumar um íslandsmeist- aratitilinn við lið FH sem á endanum hafði betur en að- eins munaði tveimur stigum á liðunum sem höfðu nokkra yf- irburði í mótinu. Árangurliðs ÍA er athyglisverð- ur fyrir þá staðreynd að liðið er skipað að stórum hluta leik- mönnum úr 3.flokki. Þjálfari liðsins er Hafliði Guðjónsson. HJ Nýir rekstraraðilar taka við Shdlstöðimn Borgamesi Unnur og Hjörtur halda hér á k'órfii sem starftfólk staóarins fierði þeim meðýmsu góðgceti og kveðskap í kaupbceti. Við hlið þeirra eru þeir Hans Gerald Hásler rekstrarstjóri og eigendumir Om Guðmundsson og Hafiteinn Hásler. Þann 15. þessa mánaðar urðu rekstraraðilaskipti að Shellstöðinni í Borgarnesi og hættu þar með hjónin Unnur Halldórsdóttir og Hjörtur Amason rekstri stöðvar- innar sem þau hafa haft með hönd- um í rúm 9 ár. Auglýst var efdr nýj- um rekstraraðilum í ágústmánuði og hefur Skeljungur nú samið við sömu eigendur og reka m.a. Grill- húsið við Tryggvagötu um að taka við rekstrinum. I vetur verður farið í stórfelldar breytingar; núverandi verslunarhús rifið og byggt nýtt 500 fermetra hús á lóðinni sem hýsir bæði Select verslun og veitingastað fyrir 100 manns undir merkjum Grillhússins í Borgarnesi. Select og Grillhúsið Orn Guðmundsson og Hafsteinn Hasler reka nokkra veitingastaði á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. Grillhús- ið við Tryggvagötu, Geysi bistro bar við Aðalstræti og ítalska veit- ingastaðinn Rossopomodoro við Laugaveg. Þeir eru því hnútum vel kunnugir í rekstri veitingastaða. En hvað fær þá félaga til að taka við rekstri Shellstöðvarinnar í Borgar- nesi og færa um leið kvíarnar út fyr- ir höfuðborgarsvæðið? Örn verður fyrir svörum: „Við sjáum mikil tækifæri hér í Borgarnesi og höfum trú á því að íbúum fari fjölgandi og umferð eigi eftir að aukast hér um. Fram kom í samningaviðræðum okkar við Skeljung að til stendur að byggja nýtt hús yfir starfsemi Skelj- ungs og sjáum við tækifæri sam- hliða byggingu nýrrar Selectversl- unar, þar sem verða almennar ferðavörur, hraðþjónusta og skyndibitastaður, að vera með sjálf- stæðan og myndarlegan veitinga- stað við hliðina þar sem við getum tekið a.m.k. 100 manns í sæti.“ Haf- steinn Hasler segir að rífa eigi nú- verandi hús Skeljungs og reka sjoppu og eldsneytisafgreiðslu í 50 ffn bráðabirgðahúsi í þrjá mánuði í janúar til mars. „Stefnan er að opna góðan veitingastað hér í Borgarnesi þann 1. apríl og teljum við að aukna fjölbreytni í veitingaffamboð vanti hér á staðnum. Við verðum með heitan mat í hádeginu og góða breidd á matseðlinum í anda Grill- hússins og mun veitingastaðurinn því heita Grillhúsið Borgarnesi,“ sagði Orn. Bróðir Hafsteins, Hans Gerald Hasler, matreiðslumaður mun verða rekstrarstjóri Select og Grillhússins í Borgamesi. Á vel við mannblendið fólk Þau hjón Unnur og Hjörtur sem nú kveðja Shellstöðina segjast fegin að geta nú einhent sér að hótel- rekstrinum, en eins og margir vita reka þau Hótel Hamar ofan Borg- arness og sjá auk þess um rekstur farfuglaheimilis og félagsaðstöðu í golfskálanum að Hamri. Þau hófu byggingu nýja hótelsins haustið 2004 og opnuðu vorið 2005 fyrsta golfhótelið hér á landi. Frá fýrsta degi hefur verið mikið að gera á hótelinu og ágæt nýting verið á því allt árið. Samhliða þessum ffarn- kvæmdum hafa þau rekið Shell- stöðina og því lagt að baki langa vinnudaga undanfarin misseri. Þau hjón vom af starfsfólki sínu kvödd með virktum síðasta rekstrardag- inn, með blómakörfu og kveðskap eftir Bjartmar bónda á Norður- reykjum. „Við kveðjum þennan vinnustað með ákveðnum söknuði en leynum þó ekki ákveðnum létti um leið því það er of mikið að reka til lengdar tvo ólíka staði samtímis og viljum við fara að eiga okkur eitthvað líf utan vinnunar," segir Unnur. Þau hjón era sammála um að sá tími sem þau hafa rekið Shellstöð- ina hafi verið skemmtilegur og ekki síður gefandi þar sem starfsemin sé fjölþætt og reyni á marga þætti í skipulagningu og þjónustu. „Þó að við höfum komið víða við þá höfum við aldrei verið í jafn fjölþættu og gefandi starfi eins og því sem felst í rekstri svona verslunar og veitinga- staðar þar sem jöfnum höndum er verið að elda mat, afgreiða flutn- ingabílstjóra, gefa upplýsingar, selja ís og svo fram eftir götunum. Hér höfum við kynnst mörgu skemmti- legu fólki, bæði starfsfólki og ekki síður þeim fjölmörgu sem hér eiga leið um. Þetta hefur átt vel við okk- ur þar sem við erum mannblendin og finnst gaman ef tími gefst til að setjast niður með gestunum og spjalla. Við höfum á þessum tíma kynnst mörgum og metum ekki síð- ur að við höfum lært mikið inn á okkur sjálf. Loks má ekki gleyma því að eðli svona starfsemi er að vinna mikið með ungu fólki, en eins og margir vita þá er aldur starfs- fólks í verslun og þjónustu alltaf að verða lægri. Nú látum við semsagt þessum kafla í lífi okkar lokið og ætlum að sinna hótelrekstrinum eins vel og kostur er næsm árin,“ sagði Unnur Halldórsdóttir að lok- um. MM

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.