Skessuhorn


Skessuhorn - 20.09.2006, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 20.09.2006, Blaðsíða 9
 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006 9 Andlát: Asmundur Eysteinsson frá Högnastöðum Látinn er Asmundur Eysteinsson, bóndi á Högna- stöðum í Þverárhlíð, 86 ára að aldri. Hann fæddist og ólst upp á Höfða en bjó lengst af á Högnastöðum, sunnan Litlu Þverár, fyrst með foreldrum sínum en eftir það með bróður sínum Daníel, allt þar til þeir fluttust á Dvalarheimilið í Borgarnesi síðla á liðinni öld. Asmundur hélt fram á síðustu stundu góðum tengslum við fólkið sitt og heimahagana og víst er að hans verður víða saknað. Með Asmundi er genginn einstakur maður og mik- ill öðlingur. Landsþekktur var hans óbilandi áhuga á sauðfé og hrossum sem hann þekkti betur en nokkur annar. Um margt var hann fróður og viðræðugóður var hann með ágætum enda naskur að afla sér ffegna. Asmundur bar hag sveitanna og bænda fyrir brjósti og náði sá áhugi langt út fyrir sýslumörk. Lengi var hann skilamaður t.d. í Dölum og Húnavamssýslum og þótti bændum þar ekki síður en Borgfirðingum sérstakur fengur af heimsókn hans þegar ragast var með fé eða hross og bera þurfti kennsl á hverjum málleysingjarnir tilheyrðu. Þá var ekki þörf fyrir prentaða markaskrá. Þekktastur var hann því fyrir einstaka þekkingu sína á mörkum og kunni vafalaust skil á fleiri hrossa- og sauðfjármörkum en nokkur annar Islendingur fyrr og síðar. En mörk þurfti hann ekki að sjá til að vita hvaðan féð kom. Sönn er frásögn af því þegar skera þurfti kind í leit að hausti og gangnamenn vildu sannreyna hversu fjárglöggur As- mundar væri. Tóku þeir hausinn af kindinni, sýndu honum skrokkinn og báðu hann að giska á frá hvaða bæ hún kæmi. Ekki þurfti hann að giska, heldur vissi hann það strax. „Frá fyrstu tíð fór ég að þekkja blessaðar kindurn- ar ffá hinum einstöku bæjum, já og hrossin líka, því á þeim tíma voru hrossin líka á heiðinni. Eg hafði ágæt- lega góða sjón og er sennilega nokkuð glöggur. Eg sá fljótt að skepnur höfðu sitt svipmót og það var ólíkt ffá bæ til bæjar; það átti við um hvorutveggja sauðféð og hrossin," sagði Asmundur í viðtali sem birtist hér í Skessuhorni fyrir réttu ári síðan, þegar hann var beðinn að lýsa því hvenær þessi mikli áhugi hans á búfénaði kviknaði, en það mun hafa verið strax á bamsaldri. Síðan þá ræktaði hann þessa hæfileika sem Asmundur í Þverárrétt. gerði vitneskju hans einstaka á þessu sviði og mann- þekkjari var hann ekki síður góður. Fjárgleggni hans kom oft að góðu gagni t.d. á haustin þegar fé var slátrað í miklu magni í Borgarnesi en þar starfaði As- mundur mörg haust í réttinni. Þá var sama hvaðan af Vesturlandi fé var flutt til slátrunar; hann þekkti af langri fjarlægð af ullinni eða svipmótinu einu saman hvaðan flutt var um leið og féð rann í réttina af bílun- um. I mörgum tilfellum þekkti hann sláturféð betur en bændur sjálfir og gat í stöku tilfellum leiðrétt þannig að lagt yrði inn á rétta fjáreigendur. I fyrrgreindu viðtali við Asmund kom ffam að frá fimm ára aldri hafði hann einungis tvisvar sinnum ekki getað komist í Þverárrétt; haustið 1934 þegar hann var vinnumaður á Laxfossi og haustið 1993 þeg- ar hann vann við slátrun í Borgarnesi. Þannig fór ekki á milli mála að eitthvað þýðingarmikið vantaði í Þverárrétt sl. mánudagsmorgun og engu líkara en bændur og búalið væru þar hljóðari en oft áður. Allir sem kynntust Asa minnast þessa fallna höfðingja með virðingu. Það vantaði mikið að sjá hann ekki lengur á vaktinni á sínum gamla stað við Höfða- og Högna- staðadilkana. Utför Asmundar verður gerð frá Borgarneskirkju, miðvikudaginn 27. september. MM SIMGNNTUNARMIÐSTOÐIN Á VGSTURLANDI VIKA SIMENNTUNAR 24. - 30. september 2006 f/| fS |s Vika símenntunar verður haldin dagana 24. - 30. september, en menntamálaráðuneytið stendur fyrir þessu verkefni. Markmiðið er að vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi menntunar og þess að ávallt er hægt að bæta við sig þekkingu. í tilefni af Viku símenntunar verður Guðjón Bergmann með fyrirlestur sem nefnist 'Streita - vinur eða fjandi" í fyrirlestrinum leitar Guðjón m.a. svara við spurningum eins og: Hvernig stendur á því að nánast allir kvarta undan streitu en einungis örfáir geta skilgreint streitu aðspurðir? Hvers vegna geta tvær manneskjur staðið hlið við hlið í nánast sömu vinnu, önnur virðist vera að kikna undan streitu en hin þrífst best þegar mest er að gera? Hvernig er hægt að takast á við afleiðingar streitu eins og vöðvabólgu, svefntruflanir, einbeítingarskort, háan blóðþrýsting, meltingartruflanir, kvíða og fleira? Á fyrirlestrinum er leitast við að svara þessum spurningum og mörgum fleirum. Kenndar eru rótgrónar aðferðir til að takast á við afleiðingar skammtíma og langvarandi spennu. Þessi fyrirlestur verður haldinn á tveimur stöðum á Vesturlandi: Fjölbrautaskóla Snæfellinga mánudaginn 25. september kl. 20.00. Fjölbrautaskóli Vesturlands miðvikudaginn 27. september kl. 20.00. Aðgangur ókeypis. Guðjón Bergmann hefur haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra um heilsueflingu og hvernig má stuðla sem best að andlegri og líkamlegri vellíðan. Einnig munu starfsmenn Símenntunarmiðstöðvarinnar kynna þær námsleiðir og námskeið sem eru í boði á haustönn. Upplýsingar og skráning svava@simenntun.is eða í síma 4372390 og á www.simenntun.is FREYJUKÓRINN BORGARFIRÐI Freyjukórinn hefur upp söng sinn enn á ný, miðvikudaginn 27. september kl. 19:45 í Logalandi Reykholtsdal Nýjar konur velkomnar! Bara að skrá sig hjá Zsuzsönnu Budai síma 847 5264 Metnaður, gleði og góður andi! Stjórnin www.skessuhorn.is FOfteCDM" fláfflSHEIÐ Á vegum Heilsugæslustöðvarinnar í Borgarnesi og Fjölskyldusviðs Borgarbyggðar. Hefst miðvíkudaginn 4. október frá kl. 17-19 og næstu 3 miðvikudaga á Heilsugæslunni í Borgarnesi. Skráning á Bæjarskrifstofu Borgarbyggðar, sími: 4337100. Nánari upplýsingar þar. Verð 6000 kr. fyrir einstætt foreldri, 9000 kr. fyrir par. Leiðbeinendur: Ásþór Ragnarsson sálfræðingur og Dagný Hjálmarsdóttir hjúkrunarfræðingur • Koma í veg fyrír hegðunarerfiðleika? • Hjálpa börnum að þróa með sér öryggi, sjálfstæði og jákvæðni? • Auka eigin styrkleika og færni í foreldrahlutverkinu? • Nota aga á jákvæðan og árangursríkan hátt? • Kenna börnum mikílvæga færni? • Takast á við venjuleg vandamál í uppeldí?

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.