Skessuhorn - 20.09.2006, Blaðsíða 23
SSKSSIÍHÖBK
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006
23
Mikilvægur sigur Skagamanna
Lið Skagamanna bætti verulega
stöðu sína í úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu með sigri á ÍBV á Akranes-
velli á laugardag. Liðið er nú í 6.
sæti deildarinnar með 21 stig og
hefur ekki verið ofar í deildinni í
sumar. Eyjamenn eru hins vegar
fallnir í 1. deild. Skagamenn mæta
liði Víkings á Víkingsvelli á laugar-
daginn kl. 14 og þurfa stig úr þeim
leik til þess að gulltryggja veru sína
í deildinni.
í upphafi leiks var Ijóst að
Skagamenn ætluðu sér sigur. Lið-
ið spilaði af miklum krafti enda lá
boltinn í neti Eyjamanna eftir rúm-
ar þrjár mínútur. Það var Árni Thor
sem skoraði en markið var dæmt
af vegna rangstöðu. Á þrettándu
mínútu var brotið á Hafþóri Ægi
innan vítateigs Eyjamanna og víta-
spyrna dæmd. Árnar Gunnlaugs-
son skoraði úr henni af miklu ör-
yggi. Annað mark Skagmanna
kom svo á 30. mínútu og var þar
Hafþór Ægir að verki eftir góðan
undirbúning Bjarka Gunnlaugs-
sonar. Það er seigt í Eyjamönnum
og þeir gefast aldrei upp. Á
nokkrum mínútum náðu þeir að
jafna með mörkum Bo Hendriks-
sen og Andra Ólafssonar. Bjarki
Gunnlaugsson kom heimamönn-
um hins vegar yfir að nýju fjórum
mínútum fyrir leikhlé.
Það hefur oft verið sagt að
feigðarsvipur komist á lið sem eiga
í fallbaráttu. Sama sé hversu vel
þau leiki, ekkert gangi upp á end-
anum. Eitthvað slíkt hvíldi á Eyja-
mönnum í síðari hálfleik. Þeir áttu
fjölmörg færi en tókst ekki að nýta
Sigurður
hættur með
Grindavík
Skagamaðurinn Sigurður Jónsson
hefur hætt störfum sem þjálfari úr-
valdsdeildarliðs Grindavíkur í
knattspyrnu. í frétt sem Knatt-
spyrnudeild UMFG segir að það
sé sameiginleg niðurstaða beggja
aðila og gerð í sátt og samlyndi.
Við stjórn liðsins í leikjunum tveim-
ur sem eftir eru taka Milan Stefán
Jankovic og Magni Fannberg. Lið
Grindavíkur er sem kunnugt er í
mikilli fallbaráttu og situr þessa
stundina í áttunda sæti úrvals-
deildarinnar með 18 stig. Sæti
neöar með sama stigafjölda er lið
ÍA. Sigurður tók við liði Grindavík-
ur síðastliðið haust. HJ
þau. Hafþór Ægir veitt þeim síð-
asta höggið þegar hann skoraði
fjórða mark Skagamanna eftir
góða sendingu frá Bjarna Guð-
jónssyni.
Sumarið hefur verið Skaga-
mönnum erfitt. Þrátt fyrir miklar
væntingar til liðsins náði það að-
eins sex stigum úr fyrri umferð úr-
valsdeildarinnar. Þáverandi þjálfari
sagði stöðu sinni lausri og tví-
burarnir Arnar og Bjarki Gunn-
laugssynir voru ráðnir spilandi
þjálfarar liðsins. Sú ráðstöfun kom
mörgum á óvart enda ekki um að
ræða reynslumikla þjálfara. Þeim
var falið það vandasama verk að
bjarga liðinu frá falli. Eins og geng-
ur voru uppi skiptar skoðanir hvað
væri liðinu þá fyrir bestu í þjálfara-
málum. Bræðurnir létu athug-
semdir sem vind um eyrun þjóta
og létu verkin tala. í seinni umferð
deildarinnar hefur liðinu tekist að
næla í 15 stig. Leikur liðsins tók
miklum framförum þó fráleitt sé
það gallalaust. Hægt og bítandi
hefur liðið fjarlægst botninn en fyrir
leikinn gegn ÍBV var liðið samt
ennþá í erfiðri stöðu. Ekkert er
mikilvægara liðsmönnum á slíkri
stundu en að ekkert raski einbeit-
ingunni.
Ótímabær umræða
Það kom því mjög á óvart að
einn af fyrrverandi þjálfurum liðs-
ins skyldi hefja fjölmiðlaumræðu
daginn fyrir þennan mikilvæga leik
um þann vilja sinn að taka við
þjálfun ÍA. Fram kom að maðurinn
hefði rætt við menn útí bæ um
málið! Tímasetning þessarar um-
ræðu er með þeim hætti að hún
verður annað hvort að teljast fá-
heyrt dómgreindarleysi eða hreint
skemmdarverk. Leikdaginn og
næsta dag þar á eftir veitti þessi
atvinnuleitandi þjálfari fjölmiðlum
viðtöl þar sem hann upplýsti um
hugmyndir sínar og manna úti í
bæ um framtíð liðsins. Gat þess
jafnframt að hann hefði mörg
tromp í erminni fengi hann ekki
starf hjá (A. Fjögur úrvalsdeildarfé-
lög hafa í sumar skipt um þjálfara
án þess að hafa viljað nýta þessi
tromp. Undir merkjum ÍA fer fram
fjölskrúðug íþróttastarfsemi sem
rekin er af miklum metnaði. Knatt-
spyrnulið félagsins hafa löngum
vakið aðdáun víðs vegar um land-
ið og verið öðrum hvatning til
dáða. Því verður ekki trúað að
óreyndu að áðurnefnd vinnubrögð
geti rúmast innan raða þess kröfu-
harða félagsstarfs sem unnið er
undir merkjum ÍA. Stuðningsmenn
lA hljóta að vona að næstu daga
verði hægt að bæta fyrir þann
skaða sem þessi sérkennilega
umræða hefur valdið. Á Víkings-
völlinn verða allir að mæta og klára
það verk sem nú er svo langt kom-
ið. Einkahagsmunir verða að víkja í
þeirri baráttu. HJ
Sæmundur sigraði á
Hálandaleikunum
Heiðar Geirmundsson úr Grundarfirði varð í fjórða
sæti í keppninni.
Sæmundur Unnar
Sæmundsson sigr-
aði með yfirburðum
á hinum árlegu Há-
landaleikum sem
fram fóru á Akranesi
á laugardag. Keppt
er í ýmsum aflrauna-
greinum og tóku
nokkrir af sterkustu
mönnum landsins
þátt. Það var Gísli S.
Einarsson bæjar-
stjóri sem hóf
keppnina með
steinkasti. Sæ-
mundur Unnar vann fjórar þrautir
af fimm og hlaut alls 24 stig. Á
meðal keppenda var Heiðar Geir-
mundsson frá Grundarfirði og
varð hann í fjórða sæti.
HJ
SIM6NNTUNARMIÐSTÖÐIN
Á VeSTURLANDI
VIKA SÍMENNTUNAR
24. - 30. september 2006
Opið hús hjá
Símenntunarmiðstöðinni á
Vesturlandi þriðjudaginn
26. september kl. 15 - 18.
í tilefni af því að Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi er flutt í nýtt og rúmbetra húsnæði
langar stjórn og starfsmönnum að bjóða þér í heimsókn, að Bjarnarbraut 8 (neðri hæð)
í Borgarnesi, kynna fyrir þér starfsemina og bjóða þér að þiggja léttar veitingar.
Einnig verða nokkur sýnishorn af þeim námskeiðum sem í boði eru nú á haustönn.
Það væri okkur sönn ánægja ef þú sæir þér fært að mæta og samgleðjast
okkur á þessum tímamótum.
Starfsmenn Símenntunarmiðstöðvarinnar taka vel á móti þér!
Með kærri kveðju,
f,h. stjórnar og starfsfólks, Inga Dóra Halldórsdóttir framkvæmdastjóri.
J
Snorrastofa verður með hinn árlega
minningarfyrirlestur um Snorra
Sturluson þriðjudaginn 26.
september nk. kl. 20.30 í Bókhlöðusal
stofnunarinnar. Helgi Þorláksson,
prófessor í sagnfræði við Háskóla
íslands, mun flytja fyrirlestur sem hann
nefnir “Þorkell prestur Ólafsson í
Reykholti og samtíð hans. Um
atburði og heimildir 1393-1430”.
Nýi annáll greinir frá árunum 1393-1430 og hefur verið nefndur
'síðasta íslenska sagnaritið á miðöldum'. Er haft fyrir satt að hann
hafi verið tekinn saman í Skálholti og hefur Jón Egilsson, ritari Árna
biskups Ólafssonar, verið nefndur sem líklegur höfundur enda segir
mikið frá Árna í annálnum. Þessii feðrun er dregin í efa og bent á
tengsl annálsins við Borgarfjörð. í Reykholti sat presturinn Þorkell
Ólafsson sem víða er talinn hafa verið bróðir Árna. Þeir Árni voru
amk. nánir samverkamenn og er kannað hvort annállinn kunni að
hafa orðið til að tilstuðlan Þorkels eða fyrir áhrif frá honum.
Helgi Þorláksson er prófessor í sagnfræði við Háskóla íslands og fæst
einkum við íslandssögu miðalda en hefur jafnframt samið yfirlitsrit
um sögu íslands á 16. og 17. öld. Hann hefur verið í stjórn
Reykholtsverkefnis frá upphafi þess.
Fyrirlestur Helga verður sem fyrr segir
fluttur þriðjudagskvöldið
26. september nk. kl. 20.30. Að loknum
fyrirlestrinum verður boðið upp á
veitingar sem síðan gefst gestum tækifæri
til að ræða efni fyrirlestarins.
V.
r
Aðgangseyrir er 500 kr.
og eru allir velkomnir!
Víðines hjúkrunarheimili atdraðra
Kjalarnesi -116 Reykjavik
J
Hjúkrunarfræöingur óskast
Hjúkrunarfræðingur óskast í ca. 70%
starfshlutfall. Unnió er aðra hverja helgi á
morgunvöktum og kvöldvaktir í miðri viku.
Ennfremur eru í boði gæsluvaktir og
ökutækjastyrkur.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri,
Borghildur Ragnarsdóttir,
í síma 563 8801 eða 664 9595. Netfang:
vidines.borghildur@simnet.is
V
Víðines hjúkrunarheimUi aldraðra er staðsett á fallegum og
kyrrlátum stað á Álfsnesi. Á heimilinu eru 38 hjúkrunarrými
á tveimur deildum. Við viljum leggja áherslu á góðan starfsanda
og að starfsmenn tileinki sér jákvætt hugarfar til starfsins.
J
Borgarbyggú
Starfsmaður óskast
Leikskólann Andabæ Hvanneyri
vantar leikskólakennara til starfa
sem allra fyrst.
Andabær er þriggja deilda
og erum við Grænfánaleikskóli.
Um er að ræða 100% starf.
Athygli er vakin á því að ef ekki fæst
leikskólakennari til starfa kemurtil greina
að ráða ófaglært starfsfólk.
Nánari upplýsingar veitir Valdís
Magnúsdóttir í síma 437-0120
milli kl. 9 og 16.