Skessuhorn


Skessuhorn - 20.09.2006, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 20.09.2006, Blaðsíða 19
^tttsauriOEÍ MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006 19 'f^cnninn^^ Orstutt andsvar Vilhjálmur Birgisson, for- maður Verka- lýðsfélags Akra- ness er búinn að vera reiður við mig undanfam- ar vikur. Hann byrjaði með breiðsíðu á mig á heimasíðu félagsins, síðan skaut hann á mig í viðtali £ Skessuhorni. Eft- ir stutt viðtal við mig þar setur hann á langhund í síðasta eintaki Skessu- homs. I þessu stutta svari ætla ég ekki að rifja upp málsatvik. En hvað er það í rauninni sem ergir manninn svona? Það eru sameiningarviðræður Starfsmannafélags Akraneskaupstaðar við Starfsmannafélag Reykjavíkur. Vil- hjálmur vill sameina StAk og Verka- lýðsfélagið en hefur fengið dræmar undirtektir við þá hugmynd. Það veld- ur honum miklum pirringi. Nú em mér þessar viðræður algjör- lega óviðkomandi að öðra leyti en því að fyrrverandi bæjarstjóm samþykkti að ef samningar tækjust milh félag- anna myndi Akraneskaupstaður líta svo á að Starfsmannafélag Reykjavíkur hefði fullt umboð til samninga við starfsmenn bæjarins. Sú samþykkt stendur enn. Vilhjálmur er líka ergilegur útaf bókun sem ég gerði í bæjarráði og snýr útúr henni, bókun sem fyrst og ffemst var gerð vegna fyrri samþykktar í bæj- arstjórn. Hann telur hagsmunum launþega betur borgið með eingreiðsl- um úr hendi stjómmálamanna, rétt- lausum greiðslum sem falla niður í lok samningstímabilsins en raunveruleg- um kjarasamningum sem tryggja fúll- an rétt fólksins. Ég er ósammála því, enda róttækur verkalýðssinni og vil reisn og réttindi. Svo ber hann saman eph og appelsínur til að sanna að laun- þegar hafi það betra með eingreiðslum heldur en með samningi. Þeim saman- burði hlýtur að verða svarað af þeim sem máhð varðar og þekkja það til hlítar. Þar verður aðalsamningamaður atvinnurekenda ömgglega ekki kallað- ur til vitnis eins og Vilhjálmi er svo tamt. Meginatriðið er þetta: Samtöl em á milli StAk og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar um sameiningu. Þar er sjálfsagt farið vandlega yfir öll þau atriði er varða kjör félagsmanna. Ef menn telja niðurstöðuna áhuga- verða taka félagsmenn væntanlega af- stöðu til málsins á lýðræðislegan hátt. Ég mun ekki og á ekki að hafa nein af- skipti af því. Mér finnst hins vegar ólíklegt að félagsmenn samþykki sam- einingu ef kjörin versna eins og Vil- hjálmi er svo mikið í mun að sanna. í upphlaupum sínum sem Vilhjálm- vn hefúr viljað kalla málefnalega um- ræðu hefúr hann vahð mér ýmis hnýf- ilyrði sem ég hirði ekki um að svara. Hann ætti hins vegar ekki að nefna það að ég kveinki mér í orrahríð. Það vita allir sem til mín þekkja að það ég geri ekki, hef bara gaman af því að brýna kutana! Að lokum: I minni heimasveit var eitt sinn uppi maður sem var með endemum þrætugjarn. Allar deilur sem hann lenti í endaði hann með þessum orðum: ,Mér er alveg sama hvað þið segið, ég skal alltaf hafa síð- asta orðið.“ Skyldi ég hafa lent í orðaskaki við svoleiðis mann? Sveinn Kristinsson bœjarfulltrúi ■ sreió/im/ t'if'tnnnn’ ítalskur lambakj ötsréttur með kartöflumús Freisting vikunnar kemur að þessu sinni frá Onnubellu Alberts- dóttur í Borgarnesi. Um ítalskan lambakjötsrétt er að ræða en hann matreiddi Annabella fyrst fyrir all- nokkrum ámm þegar hún var í hús- mæðraskóla. Hún segir réttinn aldrei klikka og að allir sem hún hafi boðið hamr segi hann góðan. Rétturinn er mjög auðveldur í mat- reiðslu og lítið fyrir honum haft. Rétturinn: Súpukjöt 2 stórir laukar 1 bolli tómatsósa Vatn Salt og pipar Hveitijafiingur Súpukjötsbitar eru teknir og brúnaðir á pönnu í feiti, olíu eða smjöri og eftir steikingu er þeim raðað í pott. Því næst eru teknir tveir stórir laukar sem hafa verið grófbritjaðir og þeir einnig brúnað- ir á pönnu. Laukurinn er svo settur yfir kjötið. Vatn sett í pottinn og látið fljóta vel yfir kjötið og um það bil einn bolli af tómatsósu sett út í pottinn með vatninu ásamt salti og pipar og allt er þetta soðið saman í pottinum í um 60 mínútur. Að lok- um er settur hveitijafningur út í pottinn og sósa gerð úr soðinu. Með þessum rétt er mjög gott að bera fram kartöflumús og rabbabarasultu sem er nauðsynleg að sögn Onnubellu. Umsjón: Sigurbjörg Ottesen Ajinabella Albertsdóttir Kartöjlumús: Soönar kartöflur Smjör Mjólk Salt Kartöflur eru flysjaðar eftir suðu og stappaðar eða settar í hrærivél og vel maukaðar. Smá smjöri, mjólk og saltti er bætt saman við og þar með er kartöflumúsin tilbúin. Afar einfalt og fljótlegt. Að þessu sinni beinist skrá- argatið að Einari Erni Thorlacius sveitarstjóra Hvaljjarðarsveitar. Eins og flestum lesendum Skessu- homs atti að verða kunn- ugt, varð Hvaljjarðarsveit til við sameiningu hrepp- anna jjógurra sunnan Skarðsheiðar íjúní síðast- liðnum. Einar Om var áður sveitarstjóri Reykhóla- hrepps en er nú kominn suð- urfyrir heiði, þar sem hann latur vel afsér. Einar Öm mœttur í Svartbamarsrétt fyrir skömmu. Fullt najn: Einar Om Thorlacius. Starf: Sveitarstjóri Hvaljjarðarsveitar. Fceðingardagur og ár: 18.júní 1958. Fjölskylduhagir: A jrábæra kærustu, Hrafhhildi Emu Reynisdóttur. A einnigþrjú bóm, Sigríði Thorlacius 18 ára, Bjart Thorlacius 10 ára og Magnús Thorlacius 8 ára. Hvemig bíl áttu? Eg á tvo bíla. Ford Explorer jeppa árg. 2005 og Skoda Felicia árg. 1996. Uppáhalds matur? Lambakjöt er best, enftskurfer nú alltafvel í maga. Uppáhalds drykkur? Afengt öl er gott, svona í hófi. Uppáhalds sjónvarpsefni? Algjór fréttasjúklingur. Uppáhalds sjónvarpsmaður? Hver annar en Gísli Einarsson? Uppáhalds innlendur leikari? Ingvar E. Sigurðsson. Uppáhalds erlendur leikari? John Travolta. Besta bíómyndin? Blazing Saddles með Mel Brooks. Uppáhalds íþróttamaður? Eiður Smári. Uppáhalds íþróttafélag? Iþróttafélagið Haukur í Melasveit. Uppáhalds sljórnmálamaður? Einar K. Guðfmnsson ráðherra. Uppáhalds innlendur tónlistarmaður? Hver annar en Magni? Uppáhalds erlendur tónlistarmaður? Eivör Pálsdóttirjrá Færeyjum. Uppáhalds rithójundur? Jón Thoroddsen sem skrifaði stnar bestu bækur á Leirá á 19. öld. Ertu jýlgjandi eða andvíg ríkisstjóminni? Fylgjandi. Hvað meturðu mest ífari annarra? Gott hjartalag. Hvaðfer mest í taugamar á þér ífari annarra? Onuglyndi. Hver erþinn helsti kostur? Nokkuð góður í mannlegum samskiptum. Hver er þinn helsti ókostur? A til að vera óskipulagður og latur en er að reyna að vinna bug á því. Hvernigfinnst þér að vera fluttur í Hvaljjarðarsveit? Þetta er sveitarfélag hinna stóru tækifæra. Það hljóta allir sveitarstjórar á landinu að öfunda mig. Hvernig leggst komandi vetur í þig? Veturinn hefur alltaflagst vel í mig. Eitthvað að lokum? Hvemig væri að stofna hjólreiðafélag Hvaljjarð- arsveitar? L k&ifi CÍHLC Veiðiþjófar skilja Umsjón: Gunnar Bender eftir net í Dölunum Svo virðist sem veiðiþjófar hafi farið ránshendi um Hvolsá og Stað- arhólsá í Dölum fyrir fáum dögum síðan. Hafa þeir verið svo ósvífnir að skilja net eftir við veiðihúsið og poka fullan af msli að auki og alls ekki haft fyrir því að fela netið. Lít- ið hefur verið veitt í ánni síðustu daga og þegar blaðamaður Skessu- homs kannaði hver væri veiðivörð- ur við ána, varð fátt um svör, en nýir leigutakar tóku við ánni sl. vor. Laxanetið liggur í reiðileysi fyrir utan veiðihúsið Arsel við Hvolsá. Lögreglan í Búðardal hyggst rann- saka hverjir gætu hafa verið á ferð- inni. Agæt veiði hefur verið í Hvolsá og Staðarhólsá í haust og mikið af fiski er í lóninu neðst í ánum, lík- lega nokkuð hundruð fiskar. Haustið er sá tími sem veiðiþjóf- ar em helst á ferð við ámar og er skemmst að minnast sl. hausts þeg- ar þjófar fóm ránsferð um hyl í veiðiá á Mýrum og tæmdu hann í skjóli myrkurs. Sleppti Maríulaxinum Það hafa veiðst margir Maríulax- ar í sumar enda margir veiðimenn sem verið hafa að stíga sín fyrst spor á bakkanum. Hólmfríður Karls- dóttir veiddi sinn fyrsta lax í Langá fyrir skömmu og sleppti honum aft- ur í ána. Fiskinn veiddi hún á efsta veiðisvæði Langár á silungasvæðinu (hylur nr 14). Hún var firrun mínút- ur að landa honum og fannst henni ómögulegt annað en að sleppa fisk- inum. Ánægjan var ósvikin þegar hún sá laxinn synda í burtu. Síðasta holl veiddi 60 laxa í Langá. Bæði er veitt á maðk og flugu. „Helvíti kalt“ „Það hefur kólnað vemlega síðan við voram hérna í gærdag og við höfúm ekki fengið neitt, við sáum fiska á nokkmm stöðum," sagði Steingrímur Davíðsson þegar við hittum hann við Fáskrúð í Dölum rnn helgina, en ágætveiði hefur ver- ið í ánni og veiðimenn sem vom fyrir nokkmm dögum fengu fína veiði. „Við veiddum vel enda búinn að rigna í marga daga og fengum við 11 laxa víða um ána,“ sagði Guðmundur Stefán Maríasson, en hann var við veiðar í Fáskrúð og nokkmm dögum áður var hann í Krossá. Þar gekk veiðin líka vel. I Hvolsá og Staðarhólsá hafa veiðst 130 laxar sem er mjög gott og Miðá í Dölum er komin yfir 200 laxa. „Það em komnir kringum 200 lax- ar á land, það er aðeins minna en í fyrra,“ sagði Lúðvík Gizzurarsson við Miðá. Víða er að finna fisk í ánni. „Við fengum tvo laxa og einn stóran urriða og nokkra smærri en ég missti ansi stóran lax eft- ir mikla baráttu,“ sagði Ingvar J Bender sem var að koma úr Núpá á Snæfellsnesi um helgina við fjórða mann. „Laxinn stóri slapp þegar ég ætlaði að landa honum, þetta var hörkufiskur og ég var bú- inn að vera með hann á í 20 mínút- ur. Núpá er ansi skemmtileg veiðiá en við höfum ekki veitt þar áður,“ sagði Ingvar Júlíus. Hólmfríður var hæstánægð með að sleppa Maríulaxin- um sínum eftir að hann hafði veriðfestur áfilmu.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.