Skessuhorn - 20.09.2006, Qupperneq 15
SSBSSÍlBMKaKÍ
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006
15
Skemmtileg heimild um horfið mannlíf
Skessuhorn hefur nú hafið sam-
starf við Ljósmyndasafn Reykja-
víkur um að kynna ljósmyndir
Olafs Arnasonar ljósmyndara. O-
lafur, sem fæddist árið 1919 og dó
árið 1997, rak Ijósmyndastofu á
Akranesi áratugum saman og fað-
ir hans, Arni Böðvarsson, gerði
slíkt hið sama á undan honum. Af-
komendur Olafs komu safninu til
vörslu hjá Ljósmyndasafni
Reykjavíkur með þeirri ósk að þar
yrði það varðveitt, flokkað og
skráð. I næstu tölublöðum
Skessuhorns munu birtast tvær
myndir úr safninu og eru lesendur
beðnir um að reyna að auðkenna
fólkið á þeim. Til að hleypa átak-
inu af stokkunum var ákveðið að
birta þrjár myndir að þessu sinni.
María Karen Sigurðardóttir,
safnstjóri Ljósmyndasafns Reykja-
víkur, þekkir vel til myndanna,
umpakka filmunum í sýrufríar
umbúðir til betri varðveislu.
Vanafastur og fór víða
María segir myndirnar vera
ómetanlega heimild um horfið
mannlíf. „Til dæmis eru hér
myndir frá þeim tíma sem verið
var að reisa Sementsverksmiðjuna
og er mjög gaman að sjá það svæði
áður en hún kom til sögunnar,
sem og Jaðarsbakkasvæðið áður
en íþróttamannvirkin risu.“ Olaf-
ur tók að sögn Maríu mikið af
myndum tengdum hátíðum og
mannfagnaði, sem og af atvinnu-
háttum. „Hann tók mikið af
skipamyndum, ekki síst sjósetn-
ingum, og fór einnig inn í vél- og
trésmiðjur og prjónaverksmiðju
svo eitthvað sé nefnt.“ María seg-
ir hann einnig hafa verið
skemmtilega vanafastan. „Hann
Myndimar sem viS birtum lesendum
Skessuhoms ífyrstu lotu eru teknar á
JaSarsbökkum. Þær eru teknar á sjó-
mannadag, en ekki er vitað nákvœmlega
hvenær, giskað er á árabilið 1955-1965.
Þeir sem telja sig vita rétt ártal og þekkja
einhverja á myndunum eru vinsamlegast
beðnir um að hafa samband við Ljós-
myndasafn Reykjavtkur.,,,,,
enda frá Akranesi sjálf. Hún segir
að við skoðun þeirra hafi heill
heimur opnast henni og hann hafi
komið henni á óvart. „Okkur
vantar hins vegar oftast upplýs-
ingar um myndefnið, hvaða fólk
er á myndunum. Við vitum
hvenær myndirnar voru teknar en
ekki er skráð hverjir eru á þeim.“
María segir að verið sé að vinna í
safninu um þessar mundir og búið
sé að raða kontöktum í raunstærð
í 17 möppur og nú sé verið að
María Karen Sigurðardóttir rýnir í eina möppuna sem geymir kópíur afmyndum Ólafs.
tók til dæmis fjöldan allan af
skipamyndum af nákvæmlega
sama staðnum á bryggjunni. Eins
tók hann mikið af myndum úr
fermingum og þá alltaf ffá sama
stað í kirkjunni.“
Upplýsinga óskað
María segir að á Ljósmyndasafni
Reykjavíkur séu um 30 þúsund
myndir eftir Olaf, þar af um 23
þúsund af stofunni hans, en þær
myndir verði ekki sýndar almenn-
ingi. Um þær gilda lög um per-
sónuvernd og þær eru því ekki til
sýnis. Aðspurð um hvers vegna
myndirnar séu ekki geymdar á
Ljósmyndasafni Akraness segir
María að í raun skipti engu máli
hvar myndir séu geymdar, svo
lengi sem þær séu gerðar aðgengi-
legar. „Það var hins vegar ósk að-
standenda að þær yrðu hér, enda
öll aðstaða hér eins og best verður
á kosið. Við erum að vinna í því að
gera þær eins aðgengilegar al-
menningi og mögulegt er og t.a.m.
má nú sjá ríflega 230 mynda hans á
vef okkar.“
María hvetur alla til að fara inn á
vef safnsins, www.ljosmyndasafii-
reykjavikur.is, velja þar myndavef
og smella á nafh Olafs Arnasonar.
Þá er hægt að skoða myndir hans
og þeir sem telja sig þekkja
myndefnið eru beðnir um að hafa
samband við safnið.
I Ljósmyndasafninu er einnig að
finna eitthvað af myndum Arna
Böðvarssonar, föður Ólafs, en þar
sem ljósmyndastofa hans brann er
ekki til mikið af myndum hans. Er
það von Skessuhorns að lesendur
hafi gaman af þessum svipmyndum
úr gömlu þjóðlífi sem birtar verða
í blaðinu. Þeir sem telja sig þekkja
viðkomandi á myndunum eru
beðnir um að hafa samband við
Ljósmyndsafh Reykjavíkur, annað
hvort í síma 563-1790, eða í net-
fang ljosmyndasafn@reykjavik.is
-KÓP
Tveir
ryknemar
HVALFJ.GÖNG: Tveir
ryknemar hafa nú verið settir
upp í Hvalfjarðargöngum og er
þeim ætlað að mæla svifryks-
mengun og ræsa loftræsiblásar
sjálfvirkt sé þess þörf. Eins og
fram kom í fréttum Skessu-
horns á sínum tíma hefur þetta
staðið til um tíma. Fram til
þessa hefur mengun af völdtun
útblásturs bíla stöðugt verið
mæld í göngunum og ræsa þeir
blásara til hreinsunar gerist
þess þörf. Fari þessi mengun
yfir ákveðin mörk er göngunum
lokað fýrir umferð á meðan á
hreinsun stendur yfir. Með sí-
vaxandi umferð hefur svifryk
valdið óþægindum mun oftar
en útblástur bíla einkum að
vetrarlagi þegar notkun nagla-
dekkja er sem mest. Slík óþæg-
indi eiga því að heyra sögunni
til. Þessa dagana eru starfs-
menn Spalar að fínstilla búnað-
inn og samband ryknemanna
við blásarakerfið.
-hj
Hæglætis
vika
BORGARFJÖRÐUR: Sjö
umferðaróhöpp urðu í umdæmi
lögreglunnar í Borgarnesi í síð-
ustu viku. Allt saman voru þetta
minniháttar óhöpp og ekki
urðu teljandi meiðsl á fólki að
sögn lögreglunnar þar á bæ. 38
ökumenn voru teknir fýrir of
hraðan aksmr í umdæmi lög-
reglunnar í Borgarnesi í síðustu
viku. Þá var einn ökumaður
tekinn í Borgarnesi fýrir ölvun
við akstur. Þá fengu rúmlega 20
bifreiðaeigendur boðunarmiða
um að mæta með bifreiðar sín-
ar til skoðunar.
-so