Skessuhorn - 13.12.2006, Blaðsíða 23
akUSUIIVw I
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2006
23
Skallagrímur áfram í bikarnum
Lið Skallagríms vann auðveld-
an sigur á liði Vals í 16 liða úrslit-
um bikarkeppninnar í körfuknatt-
leik en leikurinn fór fram í Reykja-
vík á sunnudag. Leiknum lauk
með sigri Skallagríms sem skor-
aði 102 stig gegn 71 stigi Vals.
Eins og tölurnar bera með sér var
sigur Skallanna aldrei í hættu.
Leiksins verður helst minnst fyrir
það að í einni sókn hans skoraði
Pétur Már Sigurðsson leikmaður
Skallagríms 11 stig og er það afar
fátítt. Hann fékk átta vítaskot í
sókninni og skoraði úr þeim öll-
um. Að þeim loknum fékk liðið
innkast og Pétur skoraði þriggja
stiga körfu úr sókninni. Dregið
verður í átta liða úrslitin síðar í
vikunni.
HJ
Þrjú félög hljóti afreks-
styrki á Akranesi
Tómstunda- og forvarnarnefnd
Akraneskaupstaðar hefur lagt til
við bæjarstjórn að þremur íþrótta-
félögum í bæjarfélaginu verði
veittir afreksstyrkir en umsóknar-
frestur um styrkina rann út á dög-
unum. Nefndin leggur til að
Sundfélagi Akraness verði veittur
styrkur að upphæð 250 þúsund
krónur vegna fimm íslandsmeist-
aratitla sem félagsmenn unnu á
fyrrihluta ársins, Karatefélag Akra-
ness verði veittur 510 þúsund
króna styrkur vegna tveggja ís-
landsmeistaratitla sem félags-
menn unnu til og einnig vegna ís-
landsmeistaratitlis í hópkata auk
íslandsmeistaratitils félags- og bik-
arameistaratitils í kata og kumite.
Þá er einnig lagt til að Badmint-
onfélag Akraness hljóti styrk að
upphæð 50 þúsund krónur vegna
íslandsmeistaratitils í tvenndarleik
„þrátt fyrir að viðkomandi kepp-
andi eigi ekki lögheimili á Akra-
nesi," eins og segir í bókun nefnd-
arinnar.
Fram kemur að viðmiðunarregl-
urnar geri ráð fyrir að afreksfólk
þurfi að eiga lögheimili á Akranesi
og telur nefndin að breyta þurfi
þeim reglum og endurskoðun
þeirra hefjist fyrrihluta næsta árs.
Auk félaganna sem hlutu styrki
sótti Golfklúbbur Akraness um
styrk. HJ
Sveinbjörn og Lárus sigruðu
Sigurvegararnir frá vinstri: Unnsteinn, Dóra, Sveinbjörn, Lárus, jón Helgi og jón Ágúst.
Aðaltvímenningi Bridsfélags
Borgarfjarðar lauk sl. mánudags-
kvöld. Mótið stóð í 6 kvöld með
þátttöku 24 para víðsvegar af
sunnanverðu Vesturlandi.
Röð efstu para breyttist síðasta
kvöldið og tókst gömlu refunum
Sveinbirni Eyjólfssyni og Lárusi
Péturssyni að skjótast í fyrsta sæt-
ið með glæsiskori, eða 102 stig-
um síðasta kvöldið. jón H Einars-
son og Jón Ágúst Guðmundsson
voru einnig í góðu stuði og dugði
þeim 89 stig til að tryggja sér
þriðja sætið á mótinu. í öðru sæti
urðu þau Dóra Axelsdóttir og
Unnsteinn Arason. Forusta
tveggja efstu para sýnir nokkra yf-
irburða þessara spilara sem í
gegnum árin hafa vermt toppsæt-
in í Borgarfirði og Borgarnesi. Vert
er að geta sérstaklega góðs árang-
urs yngsta spilaparsins á mánu-
daginn, þeirra Fjölnis í Deildar-
tungu og Láru Lárusdóttur, sem
höfðu fjórða besta skor kvöldsins.
Sýna þessir ungu og efnilegu spil-
arar að allt er hægt þegar metn-
aður og spilagleði er í fyrirrúmi.
Framtíðin er því björt hjá félaginu.
Lokatölur mótsins urðu þessar:
1. Sveinbjörn Eyjólfsson - Lárus
Pétursson 329
2. Dóra Axelsdóttir - Unnsteinn/
Rúnar 296
3. Jón H Einarsson - Jón Ágúst/
Jóhann/Hólmsteinn 202
4. Anna Einarsdóttir - Kristján
Axelsson 197
5. Sveinn Hallgrímsson - Magnús
Magnússon 175
6. Elín Þórísdóttir - Cuðmundur
Jónsson 157
7. Alfreð Kristjánsson - Einar Cuð-
mundsson 155
Nýtt hús Björgunarfélags
Akraness vígt
Á föstudag var stór dagur hjá fé-
lögum í Björgunarfélagi Akraness
því síðdegis var formlega vígt nýtt
300 fermetra húsnæði félagsins í
nýjum iðngörðum við Kalmans-
braut. Aðstaða félagsins verður í um
helmingi hússins, en þar eru einnig
til húsa Pípó, Sigvaldi Gunnarsson
og Hljóðkerfaleiga Isólfs Haralds-
sonar. Þetta nýja húsnæði Björgun-
arfélagsins kemur til viðbótar þeirri
aðstöðu sem félagið hefur íýrir starf-
semi sína í norðurenda hússins við
hliðina sem einnig er bækistöð
Slökkviliðs Akraness.
Um 100 manns voru viðstaddir
vígsluna. Séra Bjöm Jónsson, fýrr-
um sóknarprestur blessaði húsið og
starfsemina þar og vígði húsið. Gísh
Séra Björn Jánssrn, jv. sóknarprestur blessaði húsið og vígði. Honum á hiegri hönd er
nafni hans Guðmundsson sem stýrði samkomunni.
Elí Halldórsson með viðurkenningu sem
Björgunarfélagið veitti hmumfyrir ára-
tuga fómfúst starffyrir félagið.
S Einarsson færði kveðjur bæjar-
stjómar með fýrirheit um áfram-
haldandi stuðning við félagið. Ásgeir
Örn Kristinsson flutti ávarp og
skrifaði jafnframt tmdir styrktar-
samning við KB banka á Akranesi.
Þá rimðu hann og Einar Öm Thor-
lacius, sveitarstjóri Hvalfjarðarsveit-
ar undir viljayfirlýsingu um samstarf
sem einkum felst í smðningi Hval-
fjarðarsveitar við Björgunarfélagið
sem sinnir auk Akranesi svæðinu
sunnan Skarðsheiðar. Þá veitti
kvennadeild félagsins styrk til ný-
stofnaðrar unglingadeildar.
Sigurgeir Guðmundsson, for-
maður Slysavamarfélagsins Lands-
bjargar ávarpaði gesti og gat þess
sérstaklega að Björgunarfélag Altra-
ness væri þekkt meðal landssamtak-
anna fýrir kröftuga starfsemi og ekki
síst fýrir góða umgengni og snyrti-
mennsku í starfsstöðvum sínum.
Væri félagið fýrirmyndarfélag sem
Landsbjörg nefhdi einatt þegar vísa
ætti á björgunarsveit sem væri að
sinna starfi sínu einkar vel.
Við þetta tilefiú var Elí Halldórs-
son gerður að heiðursmeðlimi
Björgunarfélags Akraness og hann
heiðraður fýrir gott starf í þágu fé-
lagsins í áramgi. MM
Leðurborðstofustólar
Verðfrá 14.800,-
Rúm
margar gerðir
Verðfrá 289.000,
Verðfrá 229.000,
Þriggja sœta sófi og tveir stólar kr. 198.000,
Rúmföt frá Boras - verð frá 4.990,-
Andadúnssœngur - verð frá 14.900,
Heilsukoddar - verðfrá 7.500,-
Lök - margar stœrðir
Sjón er sögu ríkari
VERZLUNIN
ATH!
f 15%
afsláttur afsœngum
og heilsukoddum
SÍMi 431 2507
KALMANSVÖLLUM
AKRANESI