Morgunblaðið - 04.05.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 04.05.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2019 Óvissa tengd kjarasamningumhefur verið atvinnulífinu erf- ið mánuðum saman. Allt frá síð- asta hausti þegar óþarflega harkalegt orðaskak á vinnumark- aði fór að hafa neikvæð áhrif á gangverk atvinnu- og efna- hagslífs.    Gerðlífs- kjarasamningsins 3. apríl sl. voru mikil umskipti í þessu efni og gáfu góða von um framhaldið.    Kjarasamningur Samtaka at-vinnulífsins og iðnaðar- manna réttum mánuði síðar er enn frekari staðfesting þess að forsendur hafi skapast fyrir því að óvissutímabili ljúki og að jafnvægi og vöxtur geti verið á næsta leiti.    Í því sambandi má líka minna ánýleg orð seðlabankastjóra í grein hér í blaðinu um að tölu- verðar líkur séu á að forsendur skapist fyrir lækkun vaxta á næst- unni. Innan við þrjár vikur eru í næstu vaxtaákvörðun, 22. maí.    Sú óvissa sem helst er uppi, eft-ir að 90% af almenna vinnu- markaðnum hafa samið, eru samningar við opinbera starfs- menn. Augljóst er þó að samn- ingar við opinbera starfsmenn verða að fylgja þeim samningum sem þegar hafa verið gerðir við tvo þriðju hluta allra launamanna í landinu.    Mikilvægt er að góður skiln-ingur verði á þessu og að unnið verði hratt og af skynsemi við að ljúka þeim samningum sem eftir eru. Það er brýnt hagsmuna- mál launamanna, raunar allra landsmanna. Línurnar hafa verið lagðar STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Viðræður eru hafnar milli ríkisins og Reykjavíkurborgar um kaup borgarinnar á Keldnalandinu. Þetta er mikið byggingarland, sunnan við Folda- og Húsahverfi í Grafarvogi. Mögulegt er talið að allt að fimm þúsund manna byggð verði í Keldnalandi. Viðræðurnar eru enn sem komið er á frumstigi, að sögn Elvu Bjark- ar Sverrisdóttur, upplýsingafulltrúa fjármálaráðuneytisins. Ekki sé hægt að segja til um það á þessu stigi hversu langan tíma viðræðurn- ar muni taka. Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna lífskjarasamninganna á dög- unum var kafli um ráðstöfun ríkis- lóða fyrir íbúðir, þar á meðal fyrir leigumarkað. Átakshópur ríkisstjórnarinnar um húsnæðismál, sem skilaði skýrslu í janúar sl., taldi að Keldur og eftir atvikum Keldnaholt gætu nýst sem byggingarland þar sem m.a. ákveðinn hluti íbúða yrði hag- kvæmar leiguíbúðir fyrir tekjulága og einnig almennar íbúðir og veittur yrði afsláttur af lóðarverði. Aðrar lóðir yrðu seldar á markaðsvirði. Lagði hópurinn til að ríki og Reykjavíkurborg kæmust að sam- komulagi um að hefja skipulagningu Keldnalands sem fyrst. sisi@mbl.is Keldur Þar hefur tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði verið til húsa. Viðræður hafnar um Keldnalandið  Gæti rúmað 5.000 manna byggð ALDREI AFTUR! - FUNDARÖÐ SAMTAKA SPARIFJÁREIGENDA Allir velkomnir! Karlmaður á fimmtugsaldri var í gær dæmdur í sex mánaða skil- orðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að ráðast með of- beldi að þáverandi sambýliskonu sinni og dóttur hennar á að- fangadag árið 2017. Í ákæru var manninum gefið að sök að hafa kýlt konuna með krepptum hnefa í andlit og herðar, rifið í hár hennar og sparkað í læri hennar. Hann var einnig ákærður að hafa kýlt dóttur konunnar ítrek- að með krepptum hnefa í andlitið og sparkað í andlitið á henni. Sex mánaða dómur fyrir heimilisofbeldi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.