Morgunblaðið - 04.05.2019, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2019
www.velaborg.is | Járnhálsi 2-4 | 110 Reykjavík | Sími 414-8600
Umboðsaðili CASE
vinnuvéla á Íslandi
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
„Þetta eru svik, ekki bóka, kaupa
eða leigja neitt.“ Svona hljómuðu
fyrstu orð starfsmanns í símaveri
hjá endurskoðunarfyrirtæki í Slóv-
eníu þegar blaðamaður hringdi til
að spyrjast fyrir um leiguíbúðir á
Íslandi. Ástæðan fyrir símtalinu er
sú að endurskoðandi hjá fyrir-
tækinu, kona að nafni Urha Polona,
er skráð fyrir fjölda leiguíbúða á
Íslandi, m.a. á fasteignavef mbl.is.
Þessar íbúðaauglýsingar hafa verið
nýttar til að svíkja hundruð þús-
unda króna af grunlausum ein-
staklingum í leit
að leiguíbúð í
Reykjavík.
Morgunblaðið
fjallaði ítarlega
um leigusvindlið
á miðvikudaginn
og hafði í kjölfar-
ið uppi á Urha
Polona, sem
fórnarlömb leigu-
svindlsins töldu
sig vera að eiga samskipti við.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Polona hins vegar að vegabréfinu
hennar hafi verið stolið, hún sé
fórnarlamb persónustuldar og að
nafn hennar sé núna skráð fyrir
leiguíbúðum um alla Evrópu.
Auglýsa íbúðir í Reykjavík
Svindlarinn sem notaði nafn Pol-
ona hafði samtals 380.000 kr. af
vesturíslenskum hjónum sem töldu
sig vera að greiða tryggingu fyrir
íbúð við Hringbraut 65. Þá hafði
hann/hún einnig 400.000 kr. af
pólskri konu að nafni Adrianna
Szuba sem taldi sig vera að greiða
tryggingu fyrir leiguíbúð á Hverf-
isgötu 8. Þá hefur Morgunblaðið
einnig undir höndum tölvupósts-
samskipti svindlarans við 29 ára
gamlan íslenskan karlmann sem
ætlaði að leigja íbúð í Bláhömrum í
Grafarvogi. Hann hætti þó við að
leigja íbúðina án þess að greiða
neitt.
Öll voru þau í samskiptum við
einstakling sem sagðist heita Urha
Polona og væri einstæð móðir frá
Slóveníu en búsett erlendis. Í sam-
skiptunum við vesturíslensku hjón-
in sagðist hún búa í Berlín í Þýska-
landi en í einu tilfelli í Dyflinni á
Írlandi. Svindlarinn sagðist í öllum
tilfellum hafa eignast íbúðina eftir
skilnað og þar sem „hún“ væri bú-
sett erlendis þyrfti að greiða trygg-
ingu áður en hún flygi til Íslands til
að sýna íbúðina og afhenda lykla.
Airbnb myndi sjá til þess að trygg-
ingarféð væri í öruggum höndum.
Tilvonandi leigjendur voru þá send-
ir inn á falsaða Airbnb-síðu, sem er
afar lík alvöruheimasíðu leigurisans
Airbnb. Þangað millifærði fólk í
góðri trú háar fjárhæðir og hélt að
Airbnb myndi geyma þær. Stuttu
eftir að millifærslan var fram-
kvæmd var sendur póstur um að
ekkert yrði af leigusamningnum og
að leigjendurnir gætu beðið um
endurgreiðslu frá Airbnb, það gæti
tekið tvær til þrjár vikur. Rétt er
að taka fram að í skilmálum Airbnb
er tekið fram að tryggingafé fáist
endurgreitt innan þriggja daga. Í
tölvupóstssamskiptum svindlarans
vakti það athygli blaðamanns að
hann/hún bauðst til þess að senda
þeim mynd af vegabréfinu sínu afar
snemma í ferlinu.
Morgunblaðið hafði því uppi á
konu að nafni Urha Polona sem er
búsett í Slóveníu. Þegar hringt var
í fyrirtækið og óskað eftir að ræða
við Polona vegna leiguíbúða á Ís-
landi sagði starfsmaður í símaveri
samstundis. „Þetta eru svik, ekki
bóka, kaupa eða leigja neitt. Þeir
stálu vegabréfinu hennar.“ Hún gaf
blaðamanni síðan samband við Pol-
ona, sem sagði að undirritaður væri
ekki sá fyrsti sem hefði haft uppi á
henni. Fórnarlömb leigusvindlsins
hefðu mörg hver fundið hana og
fyrirtækið hennar eftir að svindl-
arinn hefði hætt samskiptum við
þau.
Nafnið skráð fyrir tugum
leiguíbúða um alla Evrópu
Í samtali við Morgunblaðið segir
Polona að vegabréfinu hennar hafi
verið stolið fyrir um sex mánuðum.
Hún starfar sem endurskoðandi hjá
endurskoðunarfyrirtæki í Ljubljana
í Slóveníu og tilkynnti stuldinn
samstundis til lögreglunnar þar í
landi. Hún byrjaði síðar að fá sím-
töl og tölvupóst frá fólki víðsvegar
frá í Evrópu vegna leiguíbúða.
„Þetta er ekki bara í gangi á Ís-
landi. Þetta er líka í gangi í Sví-
þjóð, Tékklandi, Grikklandi, Finn-
landi, Frakklandi og Bretlandi.
Þetta eru yfir 10 lönd sem ég hef
verið skráð fyrir íbúðum í,“ segir
Polona. Hún segist hafa gert sitt
besta hverju sinni til að segja fólki
að borga ekki krónu og að um
svindl sé að ræða ef það hefur náð í
hana. Adrianna Szuba var ein
þeirra sem höfðu samband við Pol-
ona gegnum vinnunetfangið hennar
eftir að svindlarinn hætti að svara
Szuba.
Morgunblaðið hefur undir hönd-
um samskipti milli Polona og Szuba
frá því í mars á þessu ári þar sem
Polona svarar henni samstundis að
greiða ekki neitt og að um svindl og
persónustuld sé að ræða. Staðfestir
það frásögn Polona. Það var hins
vegar of seint þar sem Szuba hafði
þegar greitt 400.000 krónur þegar
hún fann vinnunetfang hjá „alvöru“
Polona.
Polona segir að rannsókn málsins
sé í gangi hjá lögregluyfirvöldum í
Slóveníu en hún hafi fengið þau
svör að lítið sé hægt að gera. „Hér í
Slóveníu sagði lögreglan að hún
gæti ekki hjálpað mér þar sem ég
lenti ekki í neinu fjárhagslegu tjóni.
Ég tapaði bara persónuskilríkjum
en ekki fjármunum. Þeir hafa hins
vegar verið í sambandi við al-
þjóðleg lögregluyfirvöld vegna per-
sónustuldarins og mér er sagt að
það sé verið að rannsaka málið,“
segir Polona. Óskað var eftir við-
brögðum vegna leigusvindlsins frá
alþjóðadeild ríkislögreglustjórans á
Íslandi en þau bárust ekki áður en
Morgunblaðið fór í prentun.
Víðtækt alþjóðlegt leigusvindl
Endurskoðandi frá Slóveníu, sem er skráður fyrir leiguíbúðum í Reykjavík sem
notaðar hafa verið til að svíkja fé af fólki, segist vera fórnarlamb persónustuldar
Ljósmynd/wikimedia commons
Ljubljana Nafn Urha Polona hefur verið notað í að svíkja fé af fólki í leit að
leiguíbúðum á Íslandi. Hún segir að vegabréfinu sínu hafi verið stolið í Slóv-
eníu fyrir sex mánuðum og hún sé fórnarlamb persónustuldar.
Fölsuð heimasíða Hér má sjá skjáskot frá vesturíslensku hjónunum.
Vefsíðan er keimlík alvörusíðu Airbnb en um falsaða netsíðu er að ræða.
Urha Polona
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
umhverfis- og auðlindaráðherra,
undirritaði í gær friðlýsingu Akur-
eyjar í Kollafirði og er hún nú flokk-
uð sem friðland. Verndargildi eyj-
unnar er sagt ekki síst vera fólgið í
mikilvægi hennar sem sjófugla-
byggðar.
Samhliða friðlýsingunni undirrit-
aði Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri yfirlýsingu um samþykki land-
eiganda fyrir friðlýsingunni, en
eyjan er í eigu Reykjavíkurborgar.
Friðlýsing Akureyjar er hluti af
friðlýsingarátaki sem Guðmundur
Ingi ýtti úr vör á síðasta ári og er sú
fyrsta sem er undirrituð undir
merkjum þess. Guðmundur Ingi seg-
ir að friðlýsing Akureyrar sé liður í
því að vernda búsvæði lundans, sem
sé í bráðri útrýmingarhættu hér á
landi.
„Friðlýsingarhjólin eru farin að
snúast og ánægjulegt að fyrsta frið-
lýsingin sem lýkur í yfirstandandi
átaki stjórnvalda skuli einmitt stuðla
að vernd þessarar mikilvægu fugla-
tegundar, sem má kannski segja að
sé orðin ákveðinn einkennisfugl
landsins,“ segir Guðmundur Ingi.
Ljósmynd/Umhverfisráðuneytið
Undirritun Guðmundur Ingi Guð-
brandsson og Dagur B. Eggertsson.
Akurey í
Kollafirði
nú friðlýst
Liður í að vernda
búsvæði lundans
Einkaleyfastofa mun fá heitið Hug-
verkastofan þann 1. júlí næstkom-
andi í framhaldi af lagabreytingu
sem samþykkt hefur verið á Al-
þingi. Í frétt á vefsíðu stofunnar er
haft eftir Borghildi Erlingsdóttur,
forstjóra Einkaleyfastofunnar, að
breytingin muni fyrst og fremst
gera stofnuninni betur kleift að
auka vitund um hugverkaréttindi
hér á landi og styðja betur við ís-
lenska nýsköpun, iðnað og rann-
sóknar- og þróunarstarfsemi.
„Hugverk leika stórt hlutverk í við-
skiptum, iðnaði og nýsköpun í dag
og eru oft helstu verðmæti fyr-
irtækja. Verndun hugverka skiptir
þar lykilmáli til að ná árangri,“ seg-
ir Borghildur.
Fær heitið
Hugverkastofan