Morgunblaðið - 04.05.2019, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2019
Vínlandsleið 16
Grafarholti
urdarapotek.is
Sími 577 1770
Opið virka daga kl. 09.00-18.30
og laugardaga kl. 12.00-16.00
VELKOMIN Í
URÐARAPÓTEK
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Vorfrakkar í úrvali
Stærðir 36-52
Verð 22.980
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Opið 11-15 í dag
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Gallabuxur
Kr. 7.900
Str. 42-52
Litir: Svart og dökkblátt
Kæru landsmenn,
við úthlutum yfir 900 matargjöfum
í hverjum mánuði.
Reykjavíkurborg styrkir starfið
um eina milljón króna árið 2019
Félagsmálaráðuneytið styrkir
starfið um eina milljón árið 2019
Hjálpið okkur að hjálpa fátæku
fólki á Íslandi.
Margt smátt gerir eitt stórt.
0546-26-6609 kt. 660903-2590
Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Neyðarsöfnun í matarsjóðinn
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
JUNGE heilsársjakkar
Flottir í borgarferðina
frá 19.900,-
Margir litir
Guðni Einarsson
Freyr Bjarnason
Þórunn Kristjánsdóttir
Iðnaðarmenn og Samtök atvinnulífs-
ins (SA) undirrituðu kjarasamning í
fyrrinótt. Þar er m.a. kveðið á um
styttingu vinnuvikunnar, ný deilitala
fyrir dagvinnu sett fram, nýtt fyr-
irkomulag yfirvinnu og nýtt launa-
kerfi og auk þess er launatöxtum
fækkað sem leiðir til hækkunar á
lágmarkstöxtum.
Kauptaxtar mánaðarlauna fyrir
dagvinnu, lægstu launin, hækka á
bilinu frá 90.000 og upp í 117.000 á
samningstímanum. Almenn launa-
hækkun er 68.000 krónur. Launa-
töluhækkanir samningsins eru allar í
formi krónutöluhækkana á mánaðar-
laun, þ.e. föst mánaðarlaun fyrir
dagvinnu. Allir fá eingreiðslu upp á
26.000 krónur í maí 2019 verði samn-
ingurinn samþykktur. Í samflotinu
eru Rafiðnaðarsamband Íslands,
Samiðn, Byggiðn, Grafía, Matvís,
Félag hársnyrtisveina og VM, félag
vélstjóra og málmtæknimanna.
Kristján Þórður Snæbjarnarson,
formaður Rafiðnaðarsambands Ís-
lands og talsmaður iðnaðarmanna,
sagði að kjarasamningar iðnaðar-
mannafélaganna væru efnislega hlið-
stæðir. Þeim svipaði til lífskjara-
samninganna sem samþykktir voru
nýlega. Gildistími samninganna er sá
sami eða til 1. nóvember 2022.
Breytingar verða á ákvæðum um
vinnutíma, neysluhlé og yfirvinnu 1.
apríl 2020. Við upptöku virks vinnu-
tíma á tímabilinu frá 07:00 til 18:00
frá mánudegi til föstudags verða 37
klukkustundir greiddar að jafnaði á
viku í stað 40 stunda. Kaffihlé teljast
ekki lengur til vinnutíma. Deilitala
dagvinnutímakaups verður því 160 í
stað 173,33 en það mun ekki hafa
áhrif á kaffihléin sem slík. Tímakaup
í dagvinnu hækkar því um 8,33%. Yf-
irvinna 1, sem er fyrir fyrstu fjóra
yfirvinnutíma á viku, lækkar aðeins.
Yfirvinna 2, sem er fyrir vinnu um-
fram 41 klukkustund á viku að með-
altali, verður 1,15% af mánaðarlaun-
um fyrir dagvinnu frá 1. janúar 2021.
Meiri hluti starfsmanna í fyrir-
tæki, eða stjórnendur, geta óskað
eftir vinnutímastyttingu í 36 vinnu-
stundir á viku samhliða niðurfellingu
kaffihléa.
Kristján gerði ráð fyrir að flest
iðnaðarmannafélögin hæfu kynningu
á samningnum um miðja næstu viku
og hefst atkvæðagreiðsla á svipuðum
tíma. Niðurstaða atkvæðagreiðsl-
unnar á að liggja fyrir í síðasta lagi
þann 21. maí.
Efnahagslega ábyrgur
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri SA, sagði að
kjarasamningurinn væri efnahags-
lega ábyrgur. „Það er ánægjulegt að
það náðist samhljómur á milli samn-
ingsaðila á síðustu dögunum,“ sagði
Halldór. Hann nefndi að almennar
hækkanir til iðnaðarmanna væru
þær sömu og í lífskjarasamningnum.
Samningurinn byggist sömuleiðis á
„nálgun um hagvaxtarauka og
launaþróunartryggingu sem er órofa
hluti af lífskjarasamningnum“. Þá
nefndi hann útfærslu varðandi stytt-
ingu á vinnutíma samhliða upptöku
virks vinnutíma og niðurfellingu
kaffitíma. Halldór kvaðst telja að
kjarasamningurinn byggði undir
efnahagslegan stöðugleika og gæti
skapað skilyrði til lækkunar vaxta.
Samið um styttri vinnu-
tíma og launahækkanir
Iðnaðarmenn og Samtök atvinnulífsins sömdu í fyrrinótt
Ljósmynd/Embætti ríkissáttasemjara
Karphúsið Skrifað var undir samninginn á öðrum tímanum í fyrrinótt.
Samningnum svipar mjög til lífskjarasamninganna.
Við vorverkin í garði sínum í Kópa-
vogi fyrir skömmu fékk forstjóri
Náttúrufræðistofnunar óvæntan
glaðning. Þar var á ferð mynd-
arlegur kuðungssnigill með 3,5 cm
kuðungshús. Frá þessu er greint á
facebooksíðu stofnunarinnar. ,,Eftir
nokkra daga kom í ljós að hann var
sprækur sem lækur og við bestu
heilsu. Hann lá þarna í beði falinn í
gróðurleifum frá síðasta hausti,“
segir m.a. í færslunni. Reyndist
þetta vera svonefndur garðabobbi
(Cornu aspersum) sem berst hingað
til lands af og til með varningi. Hann
er mun stærri en íslenskir kuð-
ungasniglar. „Kannski mun garða-
snigill geta numið landið okkar með
hlýnandi vetrarveðráttu og kannski
er þessi fundur forstjórans vísbend-
ing um slíkt,“ segir í umfjölluninni.
Garðabobbi
í garðinum
Ljósmynd/Náttúrufræðistofnun Íslands
Garðabobbinn Hann er sagður ber-
ast af og til til Íslands með varningi.
Bryndís Hlöðversdóttir ríkis-
sáttasemjari sagði í gær að stór
áfangi hefði náðst með kjara-
samningi SA og iðnaðarmanna.
Hún nefndi að opinberi mark-
aðurinn ætti þó enn eftir að
semja.
SA segir á heimasíðu sinni að
búið sé að gera kjarasamninga
fyrir næstum níu af hverjum tíu
starfsmönnum á almennum
vinnumarkaði til fjögurra ára.
„Ef horft er til alls vinnumark-
aðarins, að opinberum starfs-
mönnum meðtöldum, hafa
kjarasamningar verið gerðir fyr-
ir um tvo þriðju starfsmanna á
landinu.
Stóra myndin á vinnumarkaði
er því skýr eftir samninga við
félög iðnaðarmanna 3. maí og
Lífskjarasamninginn sem skrif-
að var undir 3. apríl.“
Stóra mynd-
in er skýr
KJARASAMNINGAR