Morgunblaðið - 04.05.2019, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2019
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
FYRIR BÍLINN
FJARLÆGIR
MENGUN
ÁHRIF
AUKA SKILVIRKNI HEMLUNAR
KREFST EKKI
AÐ TAKA Í SUNDUR
BREMSU
HREINSIEFNI
FYRIR BÍLA
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
• Kjólar
• Túnikur
• Skyrtur
• Jakkar
• Bolir
• Buxur
• Pils
• Vesti
• Peysur
NýttNýtt
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Í sumar verður ráðist í endurbætur
á Óðinstorgi og nágrenni. Verkið var
boðið út í vetur og hefur innkaupa-
ráð borgarinnar samþykkt að ganga
til samninga við Bjössa ehf. Fyrir-
tækið bauðst til að vinna verkið fyrir
rúmar 278 milljónir. Voru það 87%
af kostnaðaráætlun, sem hljóðaði
upp á rúmar 317 milljónir. Alls bár-
ust fimm tilboð í verkið.
Borgarráð samþykkti fyrir
nokkru að bjóða skyldi út fram-
kvæmdir við endurgerð Óðinstorgs
og Týsgötu að hluta. Þetta er hluti af
verkefninu „Þingholt, torgin þrjú“.
Um er að ræða Baldurstorg, Freyju-
torg og Óðinstorg.
Vinningstillögur í hönnunarsam-
keppni um Óðinstorg voru kynntar
árið 2015. Um vinningstillögu að
endurgerð Óðinstorgs segir í dóm-
nefndaráliti að hún tengi garð- og
leiksvæði vel við gróðursælt torg og
virki vel sem hverfistorg fyrir íbúa
og aðra gesti. Tillagan sýni góða
lausn á fjölbreyttu hverfistorgi.
„Góð blanda er af gróðri, efnisval
vandað og lýsing vel útfærð.“
Helsta viðfangsefni hönnunar-
samkeppninnar var að stuðla að
breyttri notkun á torginu frá því
sem nú er, en svæðið er að mestu
lagt undir bílastæði. Einnig að horfa
á lausnir fyrir Óðinsgötu og Týs-
götu, sem tengja torgið við Skóla-
vörðustíg á sem bestan hátt.
Höfundar vinningstillögunnar eru
Anna María Bogadóttir, Einar Hlér
Einarsson, Hrólfur Karl Cela og
Sigríður Sigþórsdóttir, arkitektar
hjá Basalt arkitektum.
Framkvæmdirnar felast í endur-
nýjun torgsins og hluta af götu.
Komið verður fyrir setpöllum, hól-
um, pollum og hjólalagrindum. Á
Týsgötu verða yfirborð götu og
göngusvæði endurnýjuð auk gróð-
ursetningar. Veitur ohf. munu jafn-
framt endurnýja lagnir.
Tölvumynd/Basalt
Óðinstorg Torgið mun taka miklum breytingum á næstu mánuðum. Bílarnir munu víkja fyrir öflugu mannlífi.
Fólk verður í forgangi
Endurbætur gerðar á Óðinstorgi og nágrenni í sumar
„Hugmyndin kemur frá því að ég hef
unnið mikið með bæjarstjórnum og
ríkisstjórnum að markaðssetningu á
þann hátt að ég hef unnið að framtíð-
aráætlunum og
hvernig laða megi
að þau aðföng sem
nauðsynleg eru til
að ná því fram,“
segir Hjörtur
Smárason, mann-
fræðingur og ráð-
gjafi, sem vinnur
að útgáfu bókar
með smásögum
eftir 25 höfunda,
sem allar eiga að
gerast árið 2052. Efni bókarinnar er
tilbúið en á fjármögnunarvefnum
Karolina Fund er safnað fyrir prent-
kostnaði.
Markmiðið með bókinni er að vekja
fólk til umhugsunar um það hvert Ís-
land stefnir sem samfélag. Að verða
stjórnmálamönnum og athafnamönn-
um innblástur til að setja þjóðinni há-
leit markmið langt inn í framtíðina.
Hjörtur bendir á að Íslendingar hafi í
gegnum tíðina haft skýr framtíðar-
markmið til að vinna að. Lengi vel
hafi það verið sjálfstæði þjóðarinnar
en síðan hafi tekið við nýting jarð-
varma, stækkun landhelginnar og
sjávarútvegsmálin. Upp úr aldamót-
um hafi það síðan verið íslenska
fjármálaútrásin. Eftir það mikla skip-
brot segist hann ekki vita hvert mark-
miðið sé. Hann segir bókina tilraun til
að fá fólk til að velta framtíðinni fyrir
sér, hver staðan sé í dag og hvaða
áhrif ákvarðanir hafi til langs tíma.
Höfundarnir koma úr ýmsum átt-
um og deila mismunandi sjónarhorn-
um á framtíðina. Á meðan sumir deila
myrkri sýn á hvert þróunin mun
hugsanlega leiða okkur ef ekki er gáð
að eru aðrir sem reyna að vera les-
endum innblástur og hvatning til
góðra verka.
Stefnt er að því að bókin komi út í
næsta mánuði. Markmiðið er að safna
4.000 evrum á Karolina Fund, um 550
þúsund krónum íslenskum, og gær
hafði rúmlega helmingur þeirrar upp-
hæðar náðst. Söfnuninni lýkur í
kvöld. helgi@mbl.is
Fólk hvatt til að velta
framtíðinni fyrir sér
Hjörtur
Smárason
Óðinstorg heitir þar sem saman
koma Óðinsgata, Spítalastígur,
Týsgata og Þórsgata á Skóla-
vörðuholti.
Torgið var upphaflega bygg-
ingarlóð sem bæjarstjórn
Reykjavíkur keypti árið 1906 til
að gera þar torg, en lóðin þótti
þá mjög óhrjáleg. Eftir breyt-
inguna voru nokkrar verslanir
stofnaðar þar. Fljótlega eftir að
bifreiðir tóku að sjást á götum
borgarinnar var farið að nota
torgið sem óskipulegt bílastæði
og 1949 var það skipulagt sem
slíkt, segir á Wikipediu.
Verslanir viku
fyrir bílum
ÓÐINSTORG
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ákveðið hefur verið að veita afslátt
af gatnagerðargjöldum lóða sem út-
hlutað hefur verið og verður úthlut-
að í Borgarbyggð á árinu 2019. „Búið
er að verja töluverðum fjármunum í
uppbyggingu gatna á ákveðnum
svæðum í sveitarfélaginu en lítið ver-
ið byggt. Litið er á þetta sem hvata
til að fá verktaka og einstaklinga til
að byggja,“ segir Lilja Björg
Ágústsdóttir, forseti sveitarstjórnar.
Byggðaráð Borgarbyggðar ákvað
að veita 50% afslátt af almennum
gatnagerðargjöldum af íbúðarhúsa-
lóðum og fella alveg niður gjöld sem
innheimt eru á hvern fermetra lóðar.
Nú eru um 35 lóðir lausar undir
einbýlishús, parhús og raðhús í
Borgarnesi, á Hvanneyri, í Bæjar-
sveit og á Varmalandi og nær afslátt-
urinn til þeirra. Einnig verður veitt-
ur afsláttur af lóðum undir tvö 14
íbúða fjölbýlishús sem verða aug-
lýstar fljótlega í Bjargslandi í Borg-
arnesi.
Skortur á húsnæði
Skortur hefur verið á íbúðarhús-
næði í Borgarbyggð og talin líkindi á
að það standi íbúafjölgun fyrir þrif-
um. Lilja Björg segir að tákn séu um
hagvöxt á svæðinu. Með ákvörðun
um afslátt af gatnagerðargjöldum sé
verið að hamra járnið á meðan það er
heitt og reyna að auka framboð á
íbúðarhúsnæði og stuðla þannig að
fjölgun íbúa og frekari uppbyggingu
í sveitarfélaginu.
Veita afslátt af
gatnagerðargjöldum
Stuðlað að byggingum í Borgarbyggð
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Borgarnes Lóðir eru lausar í Borg-
arnesi og fleiri þéttbýliskjörnum.