Morgunblaðið - 04.05.2019, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2019
Allir á völlinn!
INKASSODEILDIN
HEFST Í DAG
LAUGARDAGUR 4. MAÍ
16.00 Leiknir R. – Magni
16.30 Þór – Afturelding
SUNNUDAGUR 5. MAÍ
14.00 Þróttur R. – Njarðvík
14.00 Víkingur Ó. – Grótta
14.00 Fjölnir – Haukar
14.00 Keflavík – Fram
Fyrstu vortónleikarnir af þrennum
hjá Karlakór Akureyrar-Geysi eru
á dagskrá í Glerárkirkju í dag,
laugardaginn 4. maí, klukkan 16.
Þeim verður fylgt eftir um næstu
helgi, 11. maí, í Egilsstaðakirkju
klukkan 14 og í Miklagarði á
Vopnafirði klukkan 18.
Vortónleikarnir eru eins íslensk-
ir og hugsast getur, en öll lögin sem
kórinn syngur eru eftir íslensk tón-
skáld, sungin við texta íslenskra
höfunda. Þetta markmið settu kór-
félagar sér strax á haustdögum og
var auðvelt að uppfylla það, en kór-
félagar lofa afar fjölbreyttum og
vonandi skemmtilegum tónleikum
sem eru hápunktur starfsársins.
Steinþór Þráinsson, stjórnandi
kórsins, hefur leitt undirbúninginn
en mörg laganna eru vel þekkt sem
einsöngslög en verða nú flutt í fjór-
raddaðri útsetningu fyrir karlakór.
Einsöngvararnir Arnar Árnason,
Giorgio Baruchello og Þorkell Már
Pálsson fá þó einnig að njóta sín, en
undirleikari á tónleikunum er Judit
György.
Íslenskan í öndvegi á
þrennum vortónleikum
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Vortónleikar Frá æfingu Karlakórs Akureyrar-Geysis fyrir tónleikana sem framundan eru á þremur stöðum.
Íslendingar hafa mestar áhyggjur af
spillingu í fjármálum og/eða stjórn-
málum. Þetta kemur fram í könnun
MMR sem var framkvæmd dagana
11.-15. febrúar síðastliðinn, en heild-
arfjöldi svarenda voru 934 einstak-
lingar 18 ára og eldri.
44% svarenda sögðust hafa mest-
ar áhyggjur af spillingunni en næst
komu áhyggjur af fátækt og félags-
legum ójöfnuði, 35%.
Húsnæðismál voru helsta
áhyggjuefni svarenda á aldrinum 18-
29 ára, eða 50%. Spilling í fjármálum
og/eða stjórnmálum reyndist svar-
endum 68 ára og eldri efst í huga,
62%, og var helsta áhyggjuefni
stuðningsfólks Pírata, Miðflokks og
Flokks fólksins. Stuðningsfólk Sjálf-
stæðisflokks og Viðreisnar var ólík-
legast til að segjast hafa mestar
áhyggjur af spillingu.
Af þeim áhyggjuefnum sem spurt
var um hafa áhyggjur af loftslags-
breytingum aukist mest frá könnun
ársins 2018 eða um sem nemur 11%.
Þá reyndist stuðningsfólk Vinstri-
grænna líklegra en stuðningsfólk
annarra stjórnmálaflokka til að segj-
ast hafa áhyggjur af loftslagsbreyt-
ingum. Áhyggjur af menntun hafa
minnkað mest, eða um 13%.
Áhyggjur af
loftslags-
breytingum
aukist mest
Harmonikufélag
Reykjavíkur
stendur fyrir
dansleik í kvöld,
4. maí, frá kl.
20:30 til mið-
nættis. Mun
dansinn duna í
Danshöllinni í
Drafnarfelli 2 í
Reykjavík og húsið verður opnað
kl. 20. Leiknir verða „gömlu dans-
arnir“ og nýrri danslög.
Fjórar hljómsveitir spila fyrir
dansi, þ.e. Vitatorgsbandið, dúett-
inn Einar Friðgeir Björnsson og
Sigurður Alfonsson, hljómsveitin
Sigfús og Léttsveit Harmoniku-
félags Reykjavíkur. Sveitina Sigfús
skipa þær Hildur Petra og Guðný
Kristín Erlingsdóttir ásamt undir-
leikurum. Allir eru boðnir velkomn-
ir og aðgangseyrir er 2.000 kr.
Harmonikudans-
leikur í Drafnarfelli
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Áhyggjur Ungt fólk hefur krafist
betri aðgerða í loftslagsmálum.