Morgunblaðið - 04.05.2019, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2019
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
LAUGAVEGUR 26
Vantar þig
cool en vönduð
sól - lestrargleraugu i
skemmtilegum
litum á verði sem
kemur á óvart...
ÚR BÆJARLÍFINU
Andrés Skúlason
Djúpavogi
Djúpivogur er einn af þeim stöð-
um í heiminum sem hafa hæglæt-
isstefnu að leiðarljósi og er eina
sveitarfélag í landinu sem hefur
gerst formlegur aðili að hinni al-
þjóðlegu Cittaslow-hreyfingu. Inn-
leiðing Cittaslow hefur staðið yfir í
nokkur ár á Djúpavogi og smátt og
smátt er hugmyndafræðin að festa
sig í sessi. Eitt af því sem nú er
unnið með er vellíðan íbúa og því er
yfirheitið sem unnið er með í þeim
efnum „Glaðasti bær á Íslandi“.
Nú er nýafstaðin hin árlega
Hammondhátíð sem er að venju
haldin í kringum sumardaginn
fyrsta. Um er að ræða samfellda 4
daga tónlistarveislu sem haldin hef-
ur verið um árabil og er sannarlega
orðin fastur og ómissandi hluti af
annars fjölbreyttu menningarlífi á
Djúpavogi. Fjölmargar hljómsveitir
og tónlistarsnillingar tróðu upp. Þá
voru að venju margir utandagskrár-
viðburðir þá daga sem hátíðin stóð
og var mjög góð þátttaka íbúa og
gesta í öllum viðburðum þessarar
jaðartímahátíðar.
Atvinnuástand er með ágætum
í Djúpavogshreppi og fjölbreytni at-
vinnulífs er umtalsverð með tilliti til
stærðar samfélagsins. Búlands-
tindur ehf. veitir þó langflestum at-
vinnu en þar er unnið jöfnum hönd-
um að hefðbundinni bolfiskvinnslu
og svo hefur vinnsla á laxi farið vax-
andi. Í Búlandstindi vinna um 60
manns.
Trillusjómenn setja þessa dag-
ana niður báta sína og búast til sjó-
sóknar. Útlit á miðunum er gott
þessa dagana. Strandveiðifyrir-
komulag hefur gefist með ágætum á
liðnum árum á Djúpavogi og hafa að
jafnaði um 15 bátar lagt stund á
færaveiðarnar.
Ferðamennska var með allra
besta móti á liðnum vetri. Ljóst er
að ferðamenn eru sífellt að sækja
lengra út á svokallaða jaðartíma.
Ekkert bendir til annars en að
ferðaþjónustan standi áfram styrk-
um fótum hér á svæðinu þrátt fyrir
allt niðurtal í þeim efnum á lands-
vísu.
Sveitarfélögin Djúpavogs-
hreppur, Fljótsdalshérað, Seyðis-
fjörður og Borgarfjörður eru um
þessar mundir í sameiningar-
viðræðum og er stefnt að kosningu
meðal íbúa í haust. Ekki verður
annað lesið úr þeim íbúafundum
sem haldnir hafa verið en að íbúar
almennt séu jákvæðir gagnvart
þessu metnaðarfulla sameining-
arverkefni.
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Hæglætisstefna Djúpivogur, eina sveitarfélag landsins sem hefur gerst aðili að hinni alþjóðlegu Cittaslow-hreyfingu.
Unnið með vellíðan íbúa í
glaðasta bænum á Íslandi
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ekki hafa verið gefin út leyfi fyrir
58% eigna í Reykjavík sem eru leigð-
ar út í gegnum vefinn Airbnb en við
sumar götur eru allt að 70% íbúða í
útleigu til ferðamanna í gegnum net-
ið. Í nýrri rannsókn á áhrifum Airbnb
á húsnæðismarkað á höfuðborgar-
svæðinu kemur fram að fjöldi
skráðra eigna hjá Airbnb hefur
margfaldast síðustu ár. Þéttleiki er
mestur í 101 Reykjavík og næsta ná-
grenni, en þar eru 60% skráðra
eigna.
Margföldun
Dr. Anne-Cécile Mermet, borgar-
landfræðingur og lektor við Sor-
bonne-háskóla í París, gerði rann-
sóknina fyrir Höfuðborgarstofu með
styrk frá Ferðamálastofu og Íbúða-
lánasjóði, annars vegar að gera töl-
fræðilega úttekt á þróun framboðs og
landfræðilegri dreifingu Airbnb á
höfuðborgarsvæðinu á árunum 2016-
2018 og kanna hversu stórt hlutfall
hafði tilskilið leyfi. Hins vegar var
kannað á hvaða forsendum leigusalar
starfrækja Airbnb og hvaða áhrif
starfsemin hefur haft.
Niðurstöður voru í stórum drátt-
um þær að fjöldi skráðra eigna hjá
Airbnb hefur margfaldast á höfuð-
borgarsvæðinu á síðastliðnum árum,
t.d. var tvöföldun á tímabilinu janúar
2016 – janúar 2018 þegar skráðum
eignum fjölgaði úr 2.032 í 4.154.
37% eigna í 101 Reykjavík
Hvað varðar landfræðilega stað-
setningu eru 80% skráðra eigna á
höfuðborgarsvæðinu staðsett í
Reykjavík, 37% í 101 Reykjavík, 17%
í 105 Reykjavík og 7% í 107 Reykja-
vík. Miðborgin og næsta nágrenni
hýsir því yfir 60% skráðra eigna. Þær
götur sem hafa flestar Airbnb-eignir
á skrá eru Laugavegur, Hverfisgata,
Grettisgata, Bergþórugata, Óðins-
gata og Bjarnarstígur.
Rannsókin sýnir að leigusalarnir
hafa ólík markmið og aðferðir. Í sum-
um tilvikum eru leigueignirnar í eigu
fjárfesta, en í öðrum tilvikum eru
leigð út herbergi í einkahúsum sem
hjálpar fólki þar að draga fram lífið.
Einnig er sýnt fram á að útleigan ýtir
undir félagslegan ójöfnuð. Starfsem-
in getur skapað fjárhagsleg tækifæri
fyrir þá sem þegar eiga eignir og
treyst stöðu þeirra. Neikvæðu afleið-
ingarnar eru hins vegar minna fram-
boð á eignum sem þar með hækka í
verði, sem gerir þeim sem vilja kaupa
eða eignast heimili erfiðara fyrir.
Miðborgaríbúðir
margar í útleigu
Útleigan talin ýta undir félagslegan
ójöfnuð Margir hafa ekki aflað leyfa
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Reykjavík Fjölgun ferðamanna hef-
ur breytt búsetumynstri í borginni.
Ferðamannaborgin
» Við sumar götur í borginni
er allt að 70% íbúða í útleigu.
» Laugavegur, Hverfisgata,
Grettisgata, Bergþórugata,
Óðinsgata og Bjarnarstígur.
» Minna framboð á eignum
sem hækka í verði, sem gerir
þeim sem vilja kaupa eða eign-
ast heimili erfiðara fyrir.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gaf út yfir 100 sektir fyrir stöðubrot við
Seljaskóla á fimmtudagskvöld. Kvartanir höfðu borist lögreglu vegna þess
hvernig bifreiðum var lagt í nágrenni skólans og fór lögreglan á vettvang.
Ástæður stöðubrotanna má rekja til þess að leikur ÍR og KR stóð yfir í
úrslitarimmu liðanna um Íslandsmeistaratitil karla í körfuknattleik.
Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í umferðardeild,
sagði við mbl.is í gær að það væri íþróttafélaganna að vísa áhorfendum í
bílastæði, en nóg af þeim væri skammt frá. Sektin nemur 10 þúsund krón-
um, en lækkar niður í 7.500 krónur ef hún er greidd innan tiltekins tíma.
Sektuðu 100 bílstjóra á leik ÍR og KR