Morgunblaðið - 04.05.2019, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2019
Öflugur fellibylur, nefndur Fani,
skall á austurströnd Indlands í
gærmorgun. Var vindhraðinn yfir
60 metrar á sekúndu þar sem
veðrið var verst. Búið var að flytja
nærri milljón íbúa á strandsvæð-
um á brott áður en veðrið skall á,
en óttast var að sjór myndi ganga
á land, og hundruðum þúsunda til
viðbótar hefur verið skipað að yf-
irgefa svæði sem fellibylurinn
stefnir á.
Í gærkvöldi var vitað um að
minnsta kosti átta dauðsföll á Ind-
landi og í Bangladesh af völdum
fellibylsins og mikið tjón varð
einnig á byggingum og öðrum inn-
viðum. Flugvöllum á svæðinu var
lokað, vegum sömuleiðis og járn-
brautarlestir voru kyrrsettar.
Kókospálmar og önnur tré rifnuðu
víða upp með rótum.
Veðurfræðingar höfðu varað við
mikilli eyðileggingu af völdum
óveðursins. Um 3 þúsund neyð-
arskýli voru reist í Odishahéraði
til að taka við fólki, sem flutt var
af heimilum sínum. Höfnum á
svæðinu var lokað en indverski
sjóherinn sendi sex herskip þang-
að með vistir og neyðarútbúnað.
Þá voru nærri 500 starfsmenn ol-
íuborpalla á Bengalflóa fluttir á
brott.
Gerðar voru ráðstafanir til að
verja 850 ára gamalt hindúamust-
eri í Puri, sem er heilög borg í
augum Hindúa og þar er jafnan
krökkt af pílagrímum.
Dimmdi skyndilega
„Það dimmdi og skyndilega varð
skyggnið aðeins nokkrir metrar,“
sagði íbúi í Puri við AFP frétta-
stofuna. „Matarvagnar og vega-
skilti fuku um allt. Hávaðinn er
ærandi.“
Annar íbúi sagðist hafa séð bíl
fjúka um koll.
Barn fæddist nálægt Bhuba-
neswar þegar fellibylurinn gekk
þar yfir „Við nefnum hana ungfrú
Fani vegna þess að hún fæddist
þegar óveðrið skall á sjúkrahús-
inu,“ sagði talsmaður sjúkrahúss-
ins við indverska fréttastofu.
Óttast er að óveðrið fari í dag
yfir borgina Kolkata, þar sem um
4,5 milljónir manna búa. Yfirvöld á
svæðinu segja, að grannt sé fylgst
með ástandi mála.
Tjöld fuku á Everest
Óveðrið stefnir í átt að Bangla-
desh. Þótt dregið hafi úr veðurofs-
anum þegar leið á daginn gekk
sjór þar á land og að minnsta kosti
14 þorp voru umflotin vatni. Tals-
maður innanríkisráðuneytis lands-
ins sagði, að um 400 þúsund íbúar
á strandsvæðum hefðu verið fluttir
í neyðarskýli. Það var einnig
hvasst í gær í Nepal og tjöld fuku í
2. búðum fjallgöngumanna á Eve-
restfjalli í 6400 metra hæð.
Mannskæður fellibylur
Varað við
mikilli eyðilegg-
ingu á Indlandi af
völdum óveðurs
AFP
Eftir storminn Kaupmenn í borginni Puri skoða skemmdir á sölubásum eftir að fellibylurinn Funi gekk þar yfir.
INDLAND
NEPAL
BANGLADESH
Leið Fani
250 km
Heimild: GDCAS/IMD
2. maí 6:00 GMT
2. maí 18:00
3. maí 6:00
5. maí
6:00Vindhraði< 31 m/s
31-55 m/s
55-67 m/s
3. maí 18:00
4. maí
6:00
Visakhapatnam
Puri
Norski eftir-
launasjóðurinn,
oftast nefndur
olíusjóðurinn,
dafnaði vel á
fyrsta fjórðungi
ársins. Nam
raunávöxtun
sjóðsins 9,1% og
eignir hans jukust um 738 millj-
arða norskra króna, rúmlega
10.400 milljarða íslenskra króna, á
fyrstu þremur mánuðum ársins.
Yngve Slyngstad, fram-
kvæmdastjóri sjóðsins, segir að
þetta sé besti ársfjórðungur sjóðs-
ins til þessa mælt í norskum krón-
um en á síðasta ári tapaði sjóð-
urinn 485 milljörðum norskra
króna, aðallega vegna þess að er-
lendir hlutabréfamarkaðir gáfu
eftir.
Í sjóðinn rennur stærsti hlutinn
af olíutekjum norska ríkisins. Er
sjóðurinn stærsti eftirlaunasjóður í
heimi og námu eignir hans rúm-
lega einni billjón dala, þúsund
milljörðum, í lok mars.
NOREGUR
Metávöxtun
olíusjóðsins
Enn hefur ekki verið tilkynnt um
kjördag fyrir þingkosningar í Dan-
mörku en núverandi kjörtímabili
lýkur 17. júní.
Danska ríkisútvarpið þjófstart-
aði í fyrrakvöld þegar frétt birtist á
fréttaskjám í lestum landsins um að
kjördagurinn yrði 28. maí en í gær-
morgun var sú frétt dregin til baka.
Enn er því óvíst hvenær Danir
ganga að kjörborðinu og kjósa nýtt
þing.
DANMÖRK
Kjördagur á reiki
Sylvi Listhaug, þingmaður Fram-
faraflokksins í Noregi, sem sagði af
sér ráðherraembætti fyrir rúmu ári
vegna umdeildrar færslu á Face-
book, var í gær skipuð ráðherra heil-
brigðis- og öldrunarmála í norsku
ríkisstjórninni.
Listhaug var áður ráðherra dóms-
og innflytjendamála en sagði af sér
embætti í mars í fyrra vegna harðr-
ar gagnrýni sem hún fékk vegna
facebookfærslu þar sem hún sagði
að Verkamannaflokkurinn, stærsti
stjórnarandstöðuflokkur landsins,
teldi að réttindi hryðjuverkamanna
væru mikilvægari en þjóðaröryggi
Noregs.
Hægriflokkurinn, undir stjórn
Ernu Solberg forsætisráðherra, fer
fyrir ríkisstjórn Noregs. Auk Fram-
faraflokksins eiga Venstre og Kristi-
legi þjóðarflokkurinn aðild að ríkis-
stjórninni.
Listhaug ráðherra á ný
AFP
Ráðherra á ný Sylvi Listhaug ræðir við fréttamenn í gær. Hún tekur nú við
embætti heilbrigðis- og öldrunarmálaráðherra í ríkisstjórn Ernu Solberg.
GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is
www.gimli.is
Við vitum hvað þín
eign kostar