Morgunblaðið - 04.05.2019, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 04.05.2019, Qupperneq 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2019 Dýrabær Smáralind, Kringlunni, Reykjanesbæ og Akranesi | Byko Selfossi Fiskó Garðabæ | Heimkaup | Hundaheppni | Sími 511 2022 | dyrabaer.is NÁTTÚRULEG INNIHALDSEFNI bragðgott – hollt – næringarríkt – fyrir dýrin þín Með yfirburðasigri áskákmótinu í Grenke íÞýskalandi sem laukum síðustu helgi nálg- ast Magnús Carlsen eigið stigamet frá árinu 2014, 2.884 elo-stig. Hann hlaut 7 ½ vinning af níu mögulegum og komst með því upp í 2.875 elo- stig. Magnús er í algerum sérflokki þessa dagana, vann sitt þriðja stór- mót á árinu og slær út helstu kemp- ur skáksögunnar svo að einungis Garrí Kasparov, sem trónaði á toppi elo-listans í meira en 20 ár, stenst einhvern samanburð. Kasparov hef- ur það enn fram yfir Magnús að hafa unnið tíu mót í röð í kringum síðustu aldamót. Þolgæði Magnúsar í löngum og ströngum endatöflum kom enn og aftur í ljós. Í fyrstu umferð byrjaði hann á því að vinna Þjóðverjann unga Martin Keymer í 81 leik og í þeirri næstu fékk hann upp stöðu með kóng, hrók og biskup gegn kóngi, biskupi og riddara í skák sinni við Spánverjann Vallejo Pons, gekk til dómarans og spurði hvort einhver undantekning væri í gildi á 50 leikja reglunni – og svarið var nei. Á því augnabliki lá fyrir að „vél- arnar“ töldu stöðu Magnúsar unna, en það tæki 54 leiki með bestu tafl- mennsku. Hann vann hinsvegar skákina eftir 23 leiki frá því að um- rædd staða kom upp. Eftir þrjú jafntefli vann hann svo fjórar síð- ustu skákir sínar gegn Meier, Ar- onjan, Svidler og Vachier-Lagrave. Lokastaðan var þessi: 1. Magnús Carlsen 7 ½ v. (af 9) 2. Caruana 6 v. 3.-4. Vachier-Lagrave og Naiditsch 5 v. 5. – 7. Anand, Svid- ler og Aronjan 4 ½ v. 8. Vallejo 4 v. 9. – 10. Meier og Keymer 2 v. Fyrir síðustu umferð þurfti Magnús aðeins jafntefli til að tryggja sigur sinn í mótinu. En hann tefldi til vinnings og náði því markmiði. Skákin við Frakkann sem sjaldan tapar er svolítið dæmigerð fyrir það þegar jafnvel öflugustu skákmenn tefla eins og dæmdir menn: Grenke 2019; 9. umferð: Magnús Carlsen – Vachier- Lagrave Enskur leikur 1. c4 c5 2. g3 g6 3. Bg2 Bg7 4. Rc3 Rc6 5. Rf3 d6 6. O-O Bf5 7. h3 Rf6 8. d3 O-O 9. Be3 a6 10. Dd2 b5?! Þessi peðsfórn er óþörf og á ekki rétt á sér en Vachier-Lagrave hefur greinilega talið að eitthvað sérstakt þyrfti til í þessari viðureign. 11. cxb5 axb5 12. Rxb5 Da5 13. Rc3 Hab8 14. Hfc1 Hfc8 15. b3 e5 16. Bh6 Rd4 17. Bxg7 Rxf3 18. exf3! Óvænt uppskipti en það kemur strax í ljós hvað býr að baki. 18. ... Kxg7 19. f4! Nú veikist staða svarts á mið- borðinu. 19. ... Da6 20. fxe5 dxe5 21. Ra4 Rd7 22. Hc3 Hb4 23. g4 Be6 24. Rxc5! Eftir allt saman var það þá Magn- ús sem braust fram á drottningar- vængnum. 24. ... Rxc5 25. Hxc5 Hxb3 26. Hxc8 Bxc8 27. Hc1 Hxd3 Ekki 27. ... Ha3 vegna 28. Hc6! t.d. 28. ... Db7 29. Hxg6+ og drottn- ingin fellur. Skást var 27. ... Hb8. 28. De2 Be6 29. Dxe5 Kg8 30. Hb1 Hd8 31. Hb8 Hxb8 32. Dxb8 Kg7 33. Bd5! Bráðsnjall leikur sem skýlir a- peðinu. Í drottningaendataflinu sem í hönd fer verður svartur að skapa mótfæri gegn kóngi hvíts. Það tekst ekki. 33. ... Bxd5 34. De5+ f6 35. Dxd5 h5 36. gxh5 gxh5 37. Dd7+ Kg6 38. a4 De2 39. Dd5! Valdar alla mikilvæga reiti. 39. ... f5 40. a5 f4 41. Kg2! Kh6 42. Df5 Dc4 43. Kf3 - Nú fellur f4-peðið og kóngurinn leitar svo aftur skljóls á g2 eða á drottningarvængnum. Frekari bar- átta er vonlaus og Vachier-Lagrave gafst upp. Magnús Carlsen sigraði í Grenke og nálgast eigið stigamet Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Í sérflokki Magnús Carlsen teflir við Vachier-Lagrave. Anand fylgist með. Undirritaður er vott- aður úttektarmaður í stjórnkerfum sem fylgja staðlinum ISO/IEC 27001 um öryggi upp- lýsinga. Stjórnkerfi eru nauðsynleg þegar verk- efni skipulagsheildar ná ákveðnu flækjustigi og stærð skipulagsheild- arinnar krefst þess. ISO/IEC 27001 hefur verið við lýði í rúm 15 ár og enn lengur ef forverinn BS 7799 er talinn með. Markmið með innleiðingu ISO/IEC 27001 er að koma upp stjórnkerfi í rekstri með áherslu á öryggi upplýs- inga. Hluti af innleiðingunni er að útbúa verkferli, verklagsreglur og búa svo um hnútana að upplýsingaöryggi sé regla fremur en undantekning. Þetta heitir á ensku „Secure by design“ og má þýða sem hönnun með tilliti til ör- yggis. Hvernig er þetta gert? Skrásett verkferli eru ótrúlega ein- falt tól sem tryggir að starfsfólk þekki hvað skal gera og hvernig. Að útbúa þau getur verið talsverð vinna en þó ekki endilega flókin. Vel útfærð verk- ferli verða að vera útbúin með öryggi í huga. Til dæmis að starfsfólk læsi tölvunum sínum ef stigið er frá þeim. Þetta er einfalt og kemur í veg fyrir að einhver óviðkomandi sjái viðkvæm gögn á tölvuskjánum. Vinnan sem á sér stað við greiningu verkferla getur einnig afhjúpað takmarkanir á starf- semi skipulagsheildarinnar. Hlutirnir hafa verið gerðir á ákveðinn hátt frá upphafi og engar umbætur hafa verið framkvæmdar svo árum skiptir. Þetta hjálpar einnig ef mikil starfs- mannavelta er hjá fyrirtækinu eða það er orðið svo stórt að yfirmenn hafa ekki lengur sömu yfirsýn og áður. Þá er gott fyrir fyrirtæki að útbúa skipu- lagshandbók sem inniheldur upplýs- ingar um stjórnkerfið og hvernig það er uppsett. Skipulagshandbókin getur innihaldið stefnur, verk- ferli og önnur skjöl sem lýsa verk- og skipulagi – sem allir starfsmenn þurfa að kynna sér og þekkja. Þannig má koma í veg fyrir óvissu og mistök í daglegum rekstri og nýir starfs- menn eru fljótari að koma sér inn í rekst- urinn. Með reglulegum út- tektum á stjórnkerfinu má svo sjá hvar skór- inn kreppir og hvar er þörf á breyt- ingum. Fyrirtæki hafa þá innri út- tektarmann sem sér um að taka út starfsemina og skrá hjá sér niður- stöðurnar. Þannig má sjá til þess að stöðugar umbætur séu gerðar á stjórnkerfinu og að hlutirnir séu ekki gerðir á ákveðinn hátt, aðeins vegna þess að þeir hafa alltaf verið gerðir þannig. Samfelldur rekstur Öll erum við mannleg og mistök geta komið upp í starfseminni. Þá er nauðsynlegt að hafa áætlanir um hvernig tryggja megi samfelldan rekstur. Í slíkar áætlanir er skráð hvað skal gera í ákveðnum að- stæðum, ábyrgðarhlutverk hvers og eins og hversu langan tíma hvert skref á að taka. Þetta getur skipt sköpum á ögurstundu og afstýrt stórslysum. Áætlanir um sam- felldan rekstur verða einnig að taka á öryggi og gæta þess að því sé ekki fórnað ef áföll verða í rekstri. Að starfa með öryggi í huga Eftir Aron Friðrik Georgsson » Skrásett verkferli eru ótrúlega einfalt tól sem tryggir að starfsfólk þekki hvað skal gera og hvernig. Aron Friðrik Georgsson Höfundur er viðskiptafræðingur og ráðgjafi í upplýsingaöryggismálum hjá Stika ehf. aron@stiki.eu Upplýsingaöryggi Óskar Aðalsteinn Guðjónsson fæddist 1. maí 1919 á Ísafirði. Foreldrar hans voru Guðjón Sigurðsson og Guðmundína Salóme Jónsdóttir. Eftir eins vetrar gagnfræða- nám á Ísafirði stundaði Óskar Aðalsteinn íslenskunám hjá Haraldi Leóssyni, kennara og bókaverði á Ísafirði. Hann var aðstoðarbókavörður við Bóka- safn Ísafjarðar á árunum 1941- 1946. Árið 1947 réðst Óskar Aðal- steinn sem vitavörður í Horn- bjargsvita þar sem hann vann til 1949. Hann stundaði ritstörf og blaðamennsku á Ísafirði ár- in 1949-53 en þá fór hann til starfa sem vitavörður á Galt- arvita. Gegndi hann starfi þar fram til ársins 1977 þegar hann gerðist vitavörður Reykjanes- vita. Þar starfaði hann til árs- ins 1992. Eftir Óskar Aðalstein liggja margar skáldsögur, barna- og unglingabækur, þáttasafn og fleiri ritverk, má þar nefna skáldsöguna Grjót og gróður. Fyrri kona Óskars var María Guðbjartsdóttir og eru dætur þeirra igríður Ósk og Halldóra Björt. Seinni kona Óskars var Valgerður Hanna Jóhanns- dóttir, börn þeirra: Flosi, Gylfi og Bragi. Óskar lést 1. júlí 1994. Merkir Íslendingar Óskar Aðalsteinn ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.