Morgunblaðið - 04.05.2019, Síða 27

Morgunblaðið - 04.05.2019, Síða 27
MESSUR 27á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2019 AKUREYRARKIRKJA | Æðruleysismessa kl. 11. Sönghópurinn Synkópa syngur. Ein- söngur: Anna Eyfjörð Eiríksdóttir. Prestur Hild- ur Eir Bolladóttir. Organisti er Eyþór Ingi Jóns- son. ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta og sunnudagaskóli. Þór Hauksson þjónar fyrir alt- ari. Organisti Kristina Kalló Szklenár. Félagar úr kór Árbæjarkirkju leiða almennan safn- aðarsöng. Erna Þórey Sigurðardóttir leikur á klarínett. Þorgerður Þorkelsdóttir leikur á horn. Sunnudagaskólinn á sama tíma í safn- aðarheimilinu í umsjón Önnu Sigríðar og Að- alheiðar Þorsteinsdóttur. Aðalasafn- aðarfundur kl. 12. Venjuleg aðalfundarstörf. ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Sigurður Jónsson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Kristnýju Rós Gústafsdóttur djákna. Kór Áskirkju syngur. Bjartur Logi Guðnason leikur á orgelið. Kaffisopi og safi í Ási eftir messu. ÁSTJARNARKIRKJA | Messa kl. 11. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Keiths Reed tónlistarstjóra. Prestur er Kjartan Jóns- son. Sunnudagaskóli á sama tíma undir stjórn Bjarka Geirdals Guðfinnssonar. Hress- ing og samfélag á eftir. BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í Brekkuskógum 1 kl. 11. Umsjón með stund- inni hafa Fjóla og Þórarinn Kr. BORGARNESKIRKJA | Léttmessa kl. 20. Kirkjukórinn flytur sumarlegt prógramm og á efnisskrá er m.a. Kvöldblíðan lognværa, Lóan er komin, og Ó, blessuð vertu sumarsól. Kirkjugestir eru hvattir til þess að taka undir og fagna þannig komu sumarsins. Steinunn Árnadóttir organisti leiðir kórinn , Sigurgeir Gíslason leikur á harmoniku og Benjamín Fjelsted á gítar. Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson þjónar fyrir altari. BÚSTAÐAKIRKJA | Fjölskyldumessa og lok barnastarfs kl. 11. Grill og leikir. Barnakórar kirkjunnar undir stjórn Svövu Kristínar. Hólm- fríður djákni, Daníel Ágúst, Sóley Adda og Jón- as Þórir. Messuþjónar aðstoða. DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Gunnar Sigurjónsson þjónar fyrir altari og pré- dikar. Kammerkór Digraneskirkju. Organisti Sólveig Sigríður Einarsdóttir. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Séra Elínborg Sturludóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur og Kári Þormar dómorgan- isti. Minnum á bílastæðin við Alþingi. EGILSSTAÐAKIRKJA | Messa kl. 10.30 helguð náttúruvernd og umhverfismálum. Ræðumaður er Kristbjörg Mekkín Helgadóttir, varaformaður ungmennaráðs Fljótsdals- héraðs, sem jafnframt situr í ungmennaráði Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Prest- ur Þorgeir Arason. Organisti Torvald Gjerde. Kór Egilsstaðakirkju. Kaffisopi eftir stundina. FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl. 20. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar og Pétur Ragnhildarson guðfræðingur predikar. Stór- sveit Íslands leikur. Stjórnandi er Daði Þór Einarsson, Hjördís Geirsdóttir og Bjarki Guð- mundsson syngja. Kaffisopi eftir stundina. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Fermingarmessur kl. 11 og 13. Prestar Sigríður Kristín Helga- dóttir og Einar Eyjólfsson. Kór og hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn undir stjórn Arnar Arnarsonar. Einsöngur Kirstín Erna Blöndal. GARÐAKIRKJA | Messa kl. 14. Sr. Bjarni Karlsson þjónar fyrir altari. Tveir ungir menn verða fermdir. Kór Vídalínskirkju syngur og organisti er Jóhann Baldvinsson. GLERÁRKIRKJA | Messa og sunnudaga- skóli kl. 11. Sameiginlegt upphaf í messu. Sr. Gunnlaugur Garðarsson og sr. Stefanía G. Steinsdóttir þjóna. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots organista. Um- sjón með sunnudagaskóla: Sunna Kristrún djákni. GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Helga Bragadóttir guðfræðinemi prédikar og þjónar ásamt sr. Sigurði Grétari Helgasyni. Kór Grafarvogskirkju syngur og organisti er Hákon Leifsson. Kaffi á eftir. Sunnudagaskóli á neðri hæð kirkjunnar kl. 11. Dans, söngvar og sögur. Pétur Ragnhildarson hefur umsjón ásamt sr. Guðrúnu Karls Helgudóttur og Stef- án Birkisson leikur á píanó. Engar messur verða í sumar í Kirkjuselinu í Spöng en þær hefjast á ný sunnudaginn 1. september kl. 13. GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er María Ágústsdóttir, organisti Ásta Haralds- dóttir. Vox Feminae syngur. Messuhópur þjón- ar. Heitt á könnunni fyrir og eftir messu. Kyrrðarstund á þriðjudag kl. 12, helgistund og bingó á miðvikudag kl. 14. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðsþjónusta í umsjón Félags fyrrum þjón- andi presta klukkan 14 í hátíðasal Grundar. Prestur er Jón Dalbú Hróbjartsson. Grund- arkórinn leiðir söng undir stjórn Kristínar Waage organista. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Ferming- arguðsþjónusta kl. 10.30. Prestur Leifur Ragnar Jónsson, organisti Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju syngur undir hennar stjórn. Meðhjálparar Guðný Aradóttir og Bryn- dís Böðvarsdóttir. Kirkjuvörður Lovísa Guð- mundsdóttir. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Vorhátíð Hafn- arfjarðarkirkju kl. 11. Barna- og unglingakórar kirkjunnar syngja í kirkjunni og sunnudaga- skólinn tekur þátt í stundinni. Hljómsveit leik- ur. Grill, kaffisopi, hoppukastali, leikir og fjöl- breytt dagskrá úti á eftir. HALLGRÍMSKIRKJA | Orgel Matinée- hádegistónleikar laugardag kl. 12. Björn Steinar Sólbergsson leikur. Messa og barnastarf sunnudag kl. 11. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyr- ir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Nemendur í Listahá- skóla Íslands og Tónskóla þjóðkirkjunnar taka þátt. Organisti Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón barnastarfs Karítas Hrundar Páls- dóttir og Ragnheiður Bjarnadóttir. Aðalsafn- aðarfundur Hallgrímssóknar kl. 12.30. HAUKADALSKIRKJA | Lokasamvera barna- starfsins í Skálholtsprestakalli kl. 11. Umsjón hafa Bergþóra Ragnarsdóttir og Jón Bjarna- son organisti. Eftir samveruna verður grillað og farið í leiki. HÁTEIGSKIRKJA | Plokkmessa kl. 11. Prest- ur Eiríkur Jóhannsson, organisti Guðný Ein- arsdóttir. Kordía, kór Háteigskirkju, syngur. Eftir messuna er farið út að plokka og hugað að umhverfinu. Guðsþjónustan verður með léttara sniði og í lokin verður boðið upp á grill- aðar pylsur. HVERAGERÐISKIRKJA | Messa og ferming kl. 11. Sr. Gunnar Jóhannesson þjónar fyrir altari og kór Hveragerðis- og Kotstrandasókna syngur undir stjórn Örlygs Atla Guðmunds- sonar. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam- koma kl. 11. Translation into English. Sam- koma á spænsku Kl. 13. Reuniónes en esp- añol. Samkoma á ensku kl. 14. English speaking service. Lofgjörðarkvöld Fíló+ kl. 20. KEFLAVÍKURKIRKJA | Holtaskólabörn fermd kl. 11 og kl. 13 af sr. Fritz Má og sr. Erlu. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju syngja undir stjórn Arnórs organista. Helga Jak- obsdóttir, Þórey Eyþórsdóttir, Garðar Guð- mundsson og Fanney Ómarsdóttir eru messu- þjónar. Miðvikudagur 8. maí. Vorferð kyrrðar- stundasamfélagsins í Strandakirkju þar sem Guðmundur Brynjólfsson djákni tekur á móti gestum. Lagt af stað með rútu kl. 10 frá Kirkjulundi. KÓPAVOGSKIRKJA | Barna- og fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11. Uppskeruhátíð sunnu- dagaskólans. Sigurður Arnarson sókn- arprestur leiðir ásamt leiðtogum sunnudagaskólans. Skólakór Kársness syng- ur. Hoppukastali og grillaðar pylsur eftir guðs- þjónustu. LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11, barna- kórinn Graduale Futuri syngur undir stjórn Rósu Jóhannesdóttur og undirleik Magnúsar Ragnarssonar organista. Léttur hádegismatur eftir messu. Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknar- prestur þjónar. Sunnudagaskólinn er komin í sumarfrí. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli kl. 11. Messa kl. 20. Kór Lindakirkju syngur, stjórnandi er Óskar Einarsson. Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar. NESKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Umsjón með sunnudagaskóla hafa Katrín H. Ágústsdóttir, Gunnar T. Guðna- son og Ari Agnarsson. Hressing og samfélag fyrir alla á Torginu að loknum stundunum. SALT kristið samfélag | Sameiginlegar samkomur Salts og SÍK kl. 17 í Kristniboðs- salnum Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð. Ræðu- serían: Ávextir. Ræðumaður: Daníel Stein- grímsson. Barnastarf. Túlkað á ensku. SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11, ath. breyttan messutíma, prestur Bryndís Malla Elídóttir, organisti Tómas Guðni Eggertsson og félagar úr Kór Seljakirkju syngja. Aðalsafn- aðarfundur sóknarinnar verður strax að lok- inni guðsþjónustu, dagskrá: Venjuleg aðal- fundarstörf og önnur mál. Kirkjureið og guðsþjónusta hestafólks kl. 14, sr. Valgeir Ástráðsson prédikar, Brokkkórinn syngur und- ir stjórn Magnúsar Kjartanssonar, messukaffi í lokin. SELTJARNARNESKIRKJA | Fjölskylduguðs- þjónusta og lok sunnudagaskólans kl. 11. Barnakór Seltjarnarneskirkju syngur undir stjórn Þorsteins Freys Sigurðssonar. Leiðtog- ar sjá um stundina ásamt sóknarpresti og organista. Mikill söngur. Pylsuveisla eftir at- höfn í safnaðarheimilinu. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Egill Hallgrímsson sóknarprestur annast prestsþjónustuna. Kór Hjallakirkju syngur. Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir. STÓRA Núpskirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Söngsveitin Tvennir tímar leiðir sönginn undir stjórn Stefáns Þorleifssonar organista. Úlfljótsvatnskirkja | Guðsþjónusta kl. 14. Egill Hallgrímsson sóknarprestur annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason. VÍDALÍNSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Fermingarbörn vorsins 2020 og foreldrar/ forráðamenn þeirra eru boðin sérstaklega vel- komin. Kór Vídalínskirkju syngur og organisti er Jóhann Baldvinsson. Unglingakór Vídalíns- kirkju syngur og kórstjórar eru Jóhanna Guð- rún Jónsdóttir og Davíð Sigurgeirsson. Fundur að lokinni guðsþjónustu og léttar veitingar í safnaðarheimilinu. YTRI-Njarðvíkurkirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Baldur Rafn Sigurðsson þjónar og kirkjukórinn leiðir söng undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar organista. Orð dagsins: Ég er góði hirðirinn. (Jóh. 10) Morgunblaðið/ÓmarStykkishólmskirkja Góð 3 herbergja neðri hæð í tvíbýli ásamt stórum bílskúr, sól- stofu og sólpalli. Heimild liggur fyrir að breyta bílskúr í íbúð Stærð 134,3 m2 Verð kr. 34.000.000 Hringbraut 64, 230 Reykjanesbæ Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is Ég bjó á erlendri grund í mörg ár. Einn daginn fékk ég bréf frá vini heima á Íslandi sem taldi mig sælan fyrir að lifa fjarri því sem hann nefndi velferð- arfyllirí Íslendinga. Því ber ekki að neita að mér leið vel úti í Mið-Evrópu, þar sem lífið hafði upp á minni velferð að bjóða en heima í Norður-Atlantshafi. En hvort vellíðan mín var tengd þeirri staðreynd beinlínis skal ósagt látið. Minni streita og hófleg bjór- drykkja gat eins hafa verið undirrót sælu Íslendingsins á meginlandinu, þó að hamingja, fjölskylda og atvinna hafi kannski vegið meira. En þetta hefur fólk líka á Íslandi, en er samt að bogna undan allsnægtum og velferð- arfullnægju. Það segir mér að eitt- hvað sé að. Það var það svo sann- arlega hjá mér áður en ég skipti um umhverfi og fór að tileinka mér aðra menningu og hugsunarhátt. Það þarf ekki að vera neitt slæmt að vera ríkur ef menn hafa lært að taka ekki öllu sem sjálfsögðum hlut. En það læra menn ekki öðruvísi en að hafa smakk- að á örbirgð og lifað við efnahagslega erfiðleika. Því er erfitt að sækja sér holla reynslu og veganesti fyrir lífið í þjóðfélagi sem er óþakklátt við gjaf- ara lífsins gæða. Þrátt fyrir auðinn lifa margir í tómi, andans ófullnægju og skilja ekki óhamingju sína betur en svo að þeir leita í ham- ingjuformúlur auglýsing- anna til að reyna að hressa upp á vannærða sál. Það er bros með nýjasta farsím- ann, sólarlandaferðina, heimabíóið, nýju árgerðina af draumabílnum og út í hið óendanlega haf rán- dýrra gerviþarfa og svik- ullar hamingju sem endist kannski einungis að næsta afborg- unardegi. Ég bjó í landi þar sem fólk er mjög kirkjurækið. Trúin hefur mótað hugsun þess og það eru ein- staklingar með slíka hugsun sem byggja upp þjóðfélagið. Áhrifin segja til sín. Ekki af bjór eða víni, ekki af skammgóðum gerviþörfum auglýs- ingaflóðsins, heldur af orði Guðs, sem hefur kennt fólki að þekkja og til- einka sér hin sönnu verðmæti sem þar er að finna. Megi Íslendingar verða þeirrar gæfu aðnjótandi að koma auga á þann himneska ham- ingjusjóð sem þeim stendur til boða í orði Guðs – og án þess að þurfa að borga fyrir hann. Velsæld Eftir Einar Ingva Magnússon Einar Ingvi Magnússon » Það þarf ekki að vera neitt slæmt að vera ríkur. Höfundur er áhugamaður um samfélagsmál.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.